Morgunblaðið - 05.06.1985, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 5. JÚNÍ 1985
25
Æfa sig til spellvirkja
á dauðadæmdum föngum
Stokkbóhni, 4. jnní. Fri frétUriUra Mbi-
HÁTTSETTUR fyrrverandi njósn-
ari Sovétríkjanna, sem flúði á sín-
um tíma til Vesturlanda, kom I
gærkvöldi fram í sænska sjónvarp-
inu og skýrði þar frá því, hvernig
Sovétmenn notfæra sér m.a.
dauðadæmda fanga sem æfingar-
tæki.
Æfingum þessum lýkur oftast,
samkvæmt frásögn mannsins,
með því, að fangarnir eru drepn-
ir. Er þetta þáttur í þjálfun sov-
ézkra skemmdarverkamanna
(Spetsnaz), sem hafa m.a. það að
Sovézkur njósnari afhjúpar
starfsaðferðir Spetsnaz
verkefni, ef til styrjaldar kemur,
að koma fyrir kattarnef æðstu
mönnum hersins í viðkomandi
landi. Þeir eiga einnig að valda
skemmdum á helztu varnar-
mannvirkjum og skapa glund-
roða með spellvirkjum á sam-
göngutækjum.
Það var Viktor Suvorov, sem
skýrði frá þessu. Hann er talinn
vera valdamesti sovézki njósnar-
inn, sem flúið hefur til Vestur-
landa. Réttu nafni hans hefur
verið haldið leyndu. Maðurinn
skýrði svo frá, að hann hefði
starfað sem njósnari við sovézkt
sendiráð í Vestur-Evrópu, verið
yfirmaður í Spetsnaz-sveitunum,
og hann var orðinn foringi í
GRU, leyniþjónustu hersins, er
hann tók það ráð að flýja, þegar
hann var staddur í Sviss 1979.
Síðan hefur Suvorov haldið
fyrirlestra fyrir yfirmenn í herj-
um NATO-ríkjanna auk þess
sem hann hefur gefið út fjórar
bækur um hernaðarlega upp-
byggingu Sovétríkjanna.
Hvað dauðadæmdu fangana
snertir, þá sagði hann, að i Sov-
étríkjunum væru þeir hagnýttir
eins mikið og frekast væri unnt.
Annað hvort væru þeir látnir
vinna úraníum úr jörðu allt til
dauða eða þeir fengju það hlut-
verk að vera andstæðingar í ná-
vígisæfingum.
AUGLYSING
Réttarhöld vegna tilræðis við páfa:
Samsærismaður
spurður í þaula
Rómjiborg, 4. júní. AP.
Rannsóknardómari, sem stýrir réttarhöldunum yfir Ali Agca tilræðismanni
páfa, spurði Búlgarann Omer Bagci spjörunum úr fjórða daginn í röð. Setti
hann Bagci út af laginu.
Mehmet Ali Agca, tilræðismaður páfa, í járnbúri f upphafi réttarhalda yfir sjö
meintum samsærismönnum. Réttarhöldin hafa staðið í rúma viku. Talið er
að Agca hafi ekki verið einn að verki og að samsærinu hafi verið stjórnað frá
Búlgaríu með aðstoð Rússa.
Bagci virtist óstyrkur undir
orrahríð spurninga dómarans og
hann ruglaðist oft á dagsetning-
um. Var hann spurður í bak og
fyrir um ferðir sínar i Búlgaríu
meðan Ali Agca dvaldist þar í
landi. Bagci hélt fast við fyrri
framburð um að hann hafi ekið
um landið á leið í fri í Tyrklandi.
Kvaðst hann hvorki hafa áð á leið-
inni né talað við nokkurn mann á
ferðalaginu.
Bagci, þrír Tyrkir til viðbótar og
þrír Búlgarir, eru nú fyrir rétti,
ákærðir fyrir meint samsæri um
að myrða Jóhannes Pál páfa ann-
Chicago Tribune:
„Bann“ íslendinga vegna
kjarnorkuvopna í skipum
YFIRLÝSINGAR íslenskra stjórn-
valda um kjarnorkumál hafa verið
talsvert til umræðu í erlendum fjöl-
miðlum. Hinn 16. aprfl síðastliðinn
lýsti Geir Hallgrímsson, utanríkis-
ráðherra, því yflr á Alþingi að ferðir
herskipa sem bera kjarnorkuvopn
væru óheimilar í íslenskri lögsögu
og slíkum skipum væri bannað að
koma í íslenskar hafnir. Síðar sagði
utanríkisráðherra, að þessi yfirlýs-
ing væri staðfesting á stefnu ís-
lenskra stjórnvalda árum saman
„og ekkert í tengslum við yflrlýs-
ingu Nýja-Sjálands“, eins og ráð-
herrann orðaði það { forsíðufrétt
Morgunblaðsins hinn 18. aprfl.
Morgunblaðinu hefur borist
forystugrein í bandaríska blaðinu
Chicago Tribune frá 2. júní og ber
hún fyrirsögnina: „Iceland's
nuclear „ban““ eða Kjarnorku-
vopna-„bann“ íslands. Fer hún
hér á eftir:
„tslenska ríkisstjórnin hefur
með því, sem hún kallar „skýr-
ingu“ á ríkjandi stefnu, bannað
öllum skipum sem bera kjarn-
orkuvopn að fara um íslenska lög-
sögu eða koma til hafnar. Þetta
gerist eftir mikið fát og fum
vegna yfirlýsinga ríkisstjórnar
Nýja-Sjálands gegn kjarnorku-
vopnum sem minna ekki á annað
en bardaga Kíkóti.
Vegna fjarlægrar legu sinnar
hefur Nýja-Sjáland ekki jafn
mikla hernaðarlega þýðingu og
nágrannaland þess Ástralía, þar
sem meira raunsæi ríkir, og
Bandaríkjamenn þola vel að
Iceland’s nuclear ‘ban’
ln what ít calls a "clanfication" of a stan
ding policy. the lcelandic govemment has
banned all ships carrymg nuclear arms from
its ports and temtorial waters. This follows a
major to-do over a Quixotic anttnuclear pro-
clamation from the government of New
Zcaland
Far-off New Zealand hasn't the strategic
importance of its more realistic neighbor.
Australia. and its loss to the ANZL’S pact is
one the United States can easily suffer Though
tiny (Pop 230,0001. lccland constitutes some of
the most vital territory in NATO. It is the key
to the Greenland-lceland-United Kingdom
chain of radar and sonar defenscs deploycd
against the Soviets' huge Northem Fleet and
its horde of submannes NATO's air base at
Keflavik makes the island nation function as
an unsinkable aircraft carrier—one that NATO
cannot afford to lose.
If Iceland's "clarification ís rhetoric in-
tended for domestic consumption in the wake
of the New Zealand flap. and presages no real
change in policy or practice, all will be well.
The United States response has always been
and continues to be that it does not reveal
which of its ships carry nuclear arms and
Iceland has not been ín the habit of dirpatching
gunboats to find out
If Iceland long a good friend of the U.S., ís
bent on anything more serious. it would be
making a mistake. Unlike New Zealand. the
real world exists all around Iceland, most
particularly m the form of nuclear-armed
Soviet and NATO warships. Any Westem na-
tion that depends on the Atlantic alhance for
its safetv (the Soviets would love to neutralize
or occupy the islandl must accept NATO and
the militarv situatwn for what it is.
Forystugrcinin í Chicngo Tribune nú um helgina
missa Nýja-Sjáland úr ANZUS-
bandalagirtu. Þótt Island sé fá-
mennt (230.000 íbúar) er það eitt
lifsnauðsynlegasta landið fyrir
NATO. Island er burðarhlekkur-
inn í þeirri keðju ratsjár- og són-
arvarna sem teygir sig frá Græn-
landi um ísland til Bretlands og
beitt er gegn hinum risavaxna
Norðurflota Sovétmanna og kaf-
bátahjörðinni sem honum tilheyr-
ir. Vegna aðstöðu NATO á Kefla-
víkurflugvelli gegnir ísland hlut-
verki sem ósökkvanlegt flugmóð-
urskip — sem NATO hefur ekki
efni á að tapa.
Sé „skýring" islenskra stjórn-
valda ekki annað en pólitísk yfir-
lýsing fyrir heimamarkað eftir
uppákomuna á Nýja-Sjáiandi og
hafi hún hvorki í för með sér
breytingu í orði né á borði, þá er
ekki alvara á ferðum. Svar Banda-
ríkjamanna hefur ætíð verið á
þann veg, að þeir segi ekki frá því,
hvort skip þeirra beri kjarnorku-
vopn og fslendingar hafa ekki
haft það fyrir venju að senda fall-
byssubáta á vettvang til að rann-
saka það sem í skipunum er.
Séu fslendingar, sem hafa lengi
verið góðir vinir Bandaríkja-
manna, með eitthvaö annað og al-
varlegra í huga væru þeir að gera
mistök. Aðstæður eru aðrar við
fsland en Nýja-Sjáland þvl að
umhverfis ísland standa menn
frammi fyrir raunveruleikanum í
mynd sovéskra skipa með kjarn-
orkuvopn og herskipa NATO. Sér-
hver vestræn þjóð sem á öryggi
sitt undir aðild að Atlantshafs-
bandalaginu (Sovétmönnum væri
kært að gera ísland gagnslaust
fyrir NATO eða hernema það)
verður að sætta sig við NATO og
hernaðarstöðuna eins og hún er I
raun og veru.“
an 13. maí 1981. Páfi lifði af morð-
tilræðið er Agca skaut á hann
þann dag í Rómaborg. Dómarinn
segir að tilræðinu hafi verið
stjórnað frá Búlgaríu, líklega með
stuðningi Sovétríkjanna.
Dómarinn segir margar „tilvilj-
anir“ í sambandi við ferðir Bagci
og Agca ótrúverðugar. Mjög oft á
árum fyrir tilræðið voru þeir
staddir samtímis í sömu borgum.
GENGI
GJALDMIÐLA
Dollari
styrkist
, 4. júní. AP.
í DAG styrktist dollarinn ( sessi
gagnvart pundi og líru, en féll gagn-
vart öðrum evrópskum gjaldmiðlum
á annars tíðindalitlum degi á gjald-
eyrismörkuðum álfunnar. Gullverð
mjakaðist aðeins upp á við.
Gengi pundsins var i kvöld
1,2762 dollari, miðað við 1,2932
dollara á mánudagskvöld.
Annars staðar var gengi dollara
þannig, að fyrir einn dollara feng-
ust:
3,0470 vestur-þýsk mörk (3,0540)
2,5590 svissn. frankar (2,5660)
9,2850 franskir frankar (9,3000)
3,4360 hollensk gyllini (3,4470)
1.944,50 ítalskar lírur (1.941,50)
1,3665 kanad. dollarar (1,3670)
DAGSINS:
Hvað finnst þér um Frí-
klúbbinn og ferðatilboð
Útsýnar?
Ivar Hauksson, 20 ára
golfmeistari og prentari:
„Stofnun Fríklúbbsins ger-
breytti hugmyndinni um sumar-
leyfisferöir. Það er auðséö, að Út-
sýn leggur metnaö sinn í aö gera
ferðirnar sem bezt úr garöi og
ánægjulegastar fyrir farþegann.
Þaö er ekki hægt aö láta sér leiö-
ast í Fríklúbbsferö, þaö þekki ég
af reynslunni.“
Laufey Benediktsdóttir,
20 ára nemi, ad Ijúka
stúdentsprófi:
„Stór plús viö feröalagiö. Ný og
betri leið til aö kynnast skemmti-
legu fólki í ferðinni. Fjölbreytnin í
starfsemi Fríklúbbsins er ótrúleg,
sem tryggir aö fólk fær miklu
meira út úr ferðinni. Ég var á
Spáni 1982, og aftur með Fri-
klúbbnum i fyrra, og þaö var
stórbreyting til batnaóar.“
Eftirlit með
fiskveiðum
við Grænland
og Færeyjar
Kaupmannahöfn, 4. júní. Frá frétta-
riUra Morgunbladsins, N J. Bruun.
DANSKA þjóðþingið hefur samþykkt
að danska ríkið hefji smði skips, sem
hafl eftirlit með flskveiðum i haflnu
umhverfls Færeyjar og Grænland.
Þegar skip þetta er búið að vera f
notkun í eitt ár á að smíða annað skip
til viðbótar.
Ákvörðun þessi var tekin af
vinstri flokkunum og Radikale
Venstre, sem mynduöu þannig
meirihluta gegn borgaraflokk-
unum. Sennilega munu líða þrjú ár
unz fyrra skipið verður tilbúið til
notkunar.
Tómas Tómasson, 22 ára
nemi íMyndlista- og handíöa-
skóla íslands.
„Verðtilboóió er frábært með
3.000 kr. afslætti frá verðakrá. Ég
hef tvisvar áður farió með Útaýn
og fullyröi aö veröiö var sann-
gjarnt og stóö fyllilega fyrir sínu,
en meö afsiætti Fríklúbbsins tel
ég þaö einstakt. Fríklúbburinn
hefur frumkvæói aö mörgu
skemmtilegu, þaö reyndi óg sjálf-
ur í fyrra.“
Kristín Vilhjálmsdóttir, 18 ára
menntaskólanemi úr Vogum:
„Ég geröist félagi i Fríklúbbn-
um, og skírteinið hefur komið aér
vei og sparað mér útgjöld. Þaö
munar líka um minna en 3.000 kr.
afslátt af feröinni. Ég er viss um
aö margir auralif lir en feröaglaöir
muni notfæra sér þetta tilboö, að
taka 5 félaga meö sér é þessum
kjörum og Ié frítt sjálfur.“