Morgunblaðið - 05.06.1985, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JtJNÍ 1985
Ellilífeyrir og
tekjutrygging hækkuðu
um 88 % frá júní 1983
ELLILÍFEYRIR og tekjutrygging hækkuðu níu sinnum frá 1. júní 1983 til 1.
maí 1985, úr 6.095 krónum í 11.472 krónur, eóa um 88%. Á sama tíma hafa
húsaleigu- og þjónustugjöld hjá Reykjavíkurborg hækkað um 60%. Þessar
upplýsingar koma fram í skriflegu svari heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra við fyrirspurn frá Svavari Gestssyni, formanni ALþýðubandalagsins. í
svari ráðherra kom einnig fram að rúmlega 2500 einstaklingar bíða eftir
vistun, annað hvort á dvalarheimili eða á hjúkrunardeild.
Tekjutrygging hækkaði um
108%, úr 3.285 krónum í 6.819
krónur, en grunnlífeyrir um 66%,
úr 2.810 krónum í 4.653 krónur.
Elli- og örorkulífeyrisþegar
greiddu 13 krónur fyrir lyf sam-
kvæmt lyfjaskrá I fram til 1.
október 1983, en þurfa nú að
greiða 50 krónur. Fyrir 1. desem-
ber 1984 var gjaldið 60 krónur.
Fyrir lyf á lyfjaskrá II þurfa þess-
ir aðilar að greiða 100 krónur.
Þess ber að geta að fjölmörg lyf
eru að fullu greidd af almanna-
tryggingum.
Elli- og örorkulífeyrisþegum
var gert að greiða 15 krónur 1.
júní 1983 fyrir viðtal við lækni á
stofu, en nú 75 krónur. Gjald
vegna vitjunar er 110 krónur á
móti 30 krónum 1. júní 1983.
Greiðslur lífeyrisþega fyrir sér-
fræðiþjónustu voru 32 krónur 1.
júní 1983, en hafa hækkað i 100
krónur. Aðeins má krefja sjúkling
um eina greiðslu fyrir hverja
komu og skiptir engu hversu
margar tegundir rannsókna,
ásamt viðtali eða aðgerð er um að
ræða. Þar að auki greiðir hann að-
eins 12 sinnum á ári, það er mest
1200 krónur, eftir það er sérfræði-
þjónustan ókeypis á því almanaks-
ári.
í heilbrigðisráðuneytinu liggja
fyrir upplýsingar um heimilis-
hjálp við aldraðra í a.m.k. 38
sveitarfélögum. Um 2100 aldraðir
notfæra sér hana.
Eftir 1. júní sl. eiga vistrými á
dvalarheimilum að vera 1289 og
hefur fækkað úr 1319 frá ársbyrj-
un 1984. Rúm fyrir vistmenn á
hjúkrunardeildum eru 1095, á
móti 927 frá sama tíma.
Atvinnuleysi í Hafnarfirði:
Úr hefur rætzt
— segir forsætisráöherra
Steingrímur Hermansson forsæt-
isráðherra kvaó ríkisstjórn sína hafa
rætt atvinnuvanda Hafnfirðinga,
bæði vegna erinda frá verkalýðs-
samtökum og bæjarstjórn. Atvinnu-
ástand i firðinum hafi hinsvegar
skánað verulega síðustu mánuði. Nú
séu aðeins 42 á atvinnuleysisskrá,
sem sé 0.7% af mannafla, eða hið
sama og meðaltalsatvinnuleysi í
landinu. Þar af séu 8 konur og 6
karlar sem störf hafi haft hjá Bæjar-
útgerð Hafnarfjarðar.
Forsætisráðherra sagði Hafn-
firðinga einkurn hafa borið upp
fjárhags- og greiðsluvanda Bæjar-
útgerðar Hafnarfjarðar og yrði að
þeim málum hugað.
Kjartan Jóhannsson (A) kvað
atvinnuleysisdaga i Hafnarfirði á
liðnu ári 50% fleiri hlutfallslega
en meðalatvinnuleysi í landinu.
Atvinnuleysi hafi t.d. verið átta til
tíu sinnum meira en í Reykjavik
liðið ár og fram á þetta ár. Úr hafi
rætzt síðustu tvo mánuði, en allt
standi það á völtum fótum. BÚH
eigi í miklum erfiðleikum. í raun
sé aðeins eitt fyrirtæki eftir í firð-
inum sem starfi í fiskvinnslu. Við
þurfi að bregðast.
Útflutningsráð
- ár útflutningsins
Matthías Á. Mathiesen viðskipta-
ráðherra svaraði í gær í sameinuðu
þingi fyrirspurnum frá Gunnari G.
Schram (S) um útflutningsráð, und-
irbúning að ári útflutningsins 1986
og árangur af störfum nefndar um
verkefnaútflutning.
Útflutningsráð
Ráðherra kvað ráðuneyti sitt
hafa skipað sérstaka nefnd um út-
flutningsmál í janúarmánuði sl.
undir formennsku ólafs Davíðs-
sonar. Nefndin á að gera tillögur
um fyrirkomulag útflutningsmála
og þá sérstaklega hvernig megi
efla samstarf útflytjenda og og
stjórnvalda. Nefndin var skipuð i
framhaldi af samþykkt ríkis-
stjórnarinnar um sérstaka út-
flutningsmiðstöð, er annizt aðstoð
við útflytjendur og allar útflutn-
ingsgreinar eigi aðild að.
Nefndin hefur ekki lokið störf-
um en „niðurstaða mun væntan-
lega liggja fyrir innan skamms".
Ár útflutningsins
Hópur manna undir forystu
Ragnars Kjartanssonar vinnur að
þessu verkefni, sagði ráðherra,
þ.e. undirbúningi að ári útflutn-
ingsins. Tillögur nefndarinnar eru
væntanlegar um nk. mánaðamót.
Á þessu stigi er ekki tímabært að
fjalla um þær hugmyndir, sem
nefndin vinnur að.
Útflutningur verkefna
og þjónustu
Stjórnskipuð nefnd, undir for-
ystu Magnúsar Gunnarssonar,
hefur unnið að þessu verkefni.
Fyrir nefndina var lagt að greiða
fyrir þessari tegund útflutnings,
einkum á sviði sjávarútvegs og
orkuvinnslu. Fulltrúi frá útflutn-
ingsmiðstöð iðnaðarins hefur setið
fundi nefndarinnar. Starfi nefnd-
arinnar er í stórum dráttum skipt
í þrjá hluta:
• 1) Að kanna og auka áhuga inn-
lendra aðila á útflutningi verkefna
og þjónustu.
• 2) Að koma sjónarmiðum
áhugaaðila á þessum vettvangi á
framfæri við ráðuneyti og ríkis-
stofnanir. Veittur var skilorðs-
bundinn fjárstuðningur til að
kosta forrannsóknir á jarðhita-
verkefnum í Tyrklandi í samvinnu
við Orkustofnun og danska aðila. í
könnun er hvort hagkvæmt geti
talizt að ísland gerist aðila að ein-
hverjum hinna þriggja stóru
Fimm þúsund fóstureyðingar
Meirihlutinn af félagslegum ástæðum
Á árunum 1976 til 1984 vóru framkvæmdar 4.990 fóstureyðingar hér á
landi á grundvelli laga nr. 25/1975. Árið 1976 vóru framkvæmdar 368
fóstureyðingar, 523 árið 1983, 613 árið 1982 og 735 árið 1984. Framan-
greint kom fram í svari Matthíasar Bjarnasonar heilbrigðisráðherra við
fyrirspurnum Árna Johnsen (S) um þetta efni.
í svari ráðherra kom einnig
fram:
• Á árunum 1976—1983 vóru
samtals gerðar 610 fóstureyð-
ingar af félagslegum ástæðum,
samkvæmt 1. tölulið 9. greinar
laganna, þ.e. á þeim forsendum
að skammt sé frá síðustu fæð-
ingu hjá móður, heimilisaðstæð-
ur séu bágar, ómegð og æsku eða
þroskaleysi viðkomandi. Árlegur
fjöldi þessara fóstureyðinga var
á bilinu 70—90.
• Á sama árabili vóru gerðar
2.805 fóstureyðingar af félags-
legum ástæðum, samkvæmt d-
lið 1. töluliðar 9. greinar lag-
anna, þ.e. vegna „annarra félags-
legra ástæðna". Fóstureyðingum
samkvæmt þessum lið hefur
fjölgað jafnt frá ári til árs; vóru
161 1976 en 483 1983.
• Fóstureyðingar af læknis-
fræðilegum ástæðum eingöngu
vóru 448 talsins á þessu árabili.
• Á þessu tímabili (1976—1983)
vóru gerðar 473 fóstureyðingar á
konum sem höfðu áður gengizt
undir fóstureyðingu. Af þessum
hópi höfðu 422 konur einu sinni
áður gengizt undir fóstureyð-
ingu, 47 tvisvar og 4 þrisvar.
• Á þessu sama árabili vóru
gerðar 59 fóstureyðingar eftir 12
vikna meðgöngu af félagslegum
ástæðum eingöngu. Slíkar fóst-
ureyðingar eru einungis heimil-
aðar með leyfi úrskurðar- og eft-
irlitsnefndar.
• Á sama árabili vóru fram-
kvæmdar samtals 141 fóstureyð-
ing eftir 12 vikna meðgöngutíma
af læknisfræðilegum ástæðum.
• Af 105 fóstureyðingum sem
gerðar vóru á 13. til 16. viku
meðgöngu vóru 27 tilvik ein-
göngu læknisfræðileg, 59 ein-
göngu félagsleg, en bæði félags-
og læknisfræðileg í 16 tilvikum.
Matthías Bjarnason heilbrigð-
isráðherra kvað fóstureyðingar
hér hlutfallslega færri en á öðr-
um Norðurlöndum og fram-
kvæmd laganna innan eðlilegra
marka, þó nauðsynlegt eftirlit og
aðhald sé nauðsynlegt. Erfitt sé
um samanburð við fyrri tíma
vegna þess að grunur leiki á um
óskráðar og ólöglegar fóstureyð-
ingar hér fyrr á árum, sem og
fóstureyðingar íslenzkra kvenna
erlendis, sem heimildir séu ekki
til um.
Hjörleifur Guttormsson (Abl.)
kvað fremur ástæðu til að rýmka
en þrengja þessa löggjöf.
Kristín Ástgeirsdóttir (Kvl.)
sagði nauðsynlegt að standa
traustan vörð um rétt hverrar
konu til eigin ákvörðunar um
fóstureyðingu.
Árni Johnsen (S), fyrirspyrj-
andi, taldi fjölgun fóstureyðinga
hér úr hófi. Nauðsynlegt sé að
endurmeta þessi mál í ljósi til-
tækrar reynslu.
Ráðherra svaraði einnig fyrir-
spurn frá Kristínu S. Kvaran
(BJ) um eftirlitsnefnd með fóst-
ureyðingum. Frá fyrirspurn og
svari verður nánar sagt síðar.
svæðisþjónustubanka: Ameríku-
bankans, Afríkubankans eða
Asíubankans.
• 3) Þá er loks unnið að gerð
tillagna sem lagðar verða fyrir
ráðuneytið um „hverning bezt
verði að því staðið af hálfu stjórn-
valda í framtíðinni að greiða fyrir
útflutningi verkefna og þjónustu".
Háðir útflutningi
Gunnar G. Schram, fyrirspyrj-
andi, kvað enga sjálfstæða Evr-
ópuþjóð jafn háða útflutningi os
Islendinga, þ.e. flytti á erlendí
markaði jafn hátt hlutfall þjóðar
framleiðslu sinnar. Efling nýrri
iðn- og þjónustugreina, sem of
markaðsöflun og staða erlendis
skipti okkur meginmáli. Þess-
vegna þurfi að herða róðurinn é
þessum vettvangi.
Úttekt á
rekstri Seðlabanka
íslands
ÞINGMAÐUR Alþýðubandalagsins.
Geir Gunnarsson, hefur lagt fram
tillögu til þingsályktunar, þar sem
skorað er á rfkisstjórnina að fela
Hagvangi hf. að gera hliðstæða út-
tekt á rekstri Neðlabanka fslands.
Kanna á hagkvæmni í rekstri bank-
ans, meðai annars er varðar manna-
hald og húsnæði, jafnframt því að
gera tillögur til úrbóta.
I greinargerð með tillögunni
segir:
„Að undanförnu hafa stjórnvöld
gengist fyrir því að ráðgjafarfyr-
irtæki tækju rekstur ýmissa ríkis-
stofnana til sérstakrar athugunar
i því skyni að auka hagkvæmni í
rekstri þeirra. Þeir, sem hafa beitt
sér fyrir þessum ráðstöfunum,
telja að þær hafi gefist vel í ýms-
um tilvikum og borið árangur í
hagræðingu og rekstri. Einhverra
hluta vegna hefur þó ekki verið
gripið til þessara aðgerða gagn-
vart þeirri stofnun sem hvað flest-
ir meðal almennings draga í efa að
gæti nægilegs aðhalds og sparnað-
ar í rekstri, þ.e. Seðlabankanum,
og leggur flm. til með þeirri þál-
till. sem hér er flutt að úr því verði
bætt... “