Morgunblaðið - 05.06.1985, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1985
GRILLVEISLA í MOSFELLSSVEIT fclk f ,(Si
Sex kinda- fréttum L
skrokkar grillaðir ... a5kJ
Tina Turner aö gefa
út ævisögu sína
Annie May Bullock eða öðru nafni Tina
Turner skrifaði nýlega undir samning
við bandariskt bókaforlag um að gefa út
ævisögu sína. Henni eru að sögn borgað-
ar óheyrilegar upphæðir fyrir handritið
þannig að eitthvað hlýtur hún að hafa
spennandi að segja ...
Fjölskylda
J órdanfukonungs
Þau geta verið stolt af „ungunum" sínum Jórd-
aníukonungur og drottning. Börnin sem hér eru
með móður sinni á myndinni eru Hanzeh fimm
ára, Hashem fjögurra og Iman tveggja ára.
Ibúarnir við Bergholt, Barrholt og hluta af Brattholti gerðu sér
dagamun um síðustu helgi. Að ioknum hreingerningum á göt-
um úti á laugardaginn tóku nágrannarnir höndum saman og
grilluðu sex kindaskrokka, pylsur og fleira góðgæti. Alls voru um
80 manns í veislunni og hún tókst að sögn viðstaddra mjög vel,
allavega stóð gamanið til að ganga fjögur aðfaranótt sunnudags.
— Þetta er í annað skipti sem nágrannar í Mosfellssveitinni taka
sig saman og elda, fara í leiki o.s.frv. og til stendur að gera
grillveisluna að árlegum viðburði.