Morgunblaðið - 08.06.1985, Síða 12
12
MQRGUNBLAÐIÐ, LAPGARDAfíUR 8. JÚNÍ 1985
Sólrún Bragadóttir Bergþór Pálsson
Ungir söngvarar á
tónleikaferðalagi
TVEIR ungir söngvarar, Sólrún Bragadóttir og Bergþór Pálsson, munu halda
tónleika á næstunni í BorgarPiröi og á Norðurlandi. Undirleikari verður
Jónas Ingimundarson.
Fyrstu tónleikarnir verða í
Logalandi í Reykholtsdal þriðju-
dagskvöldið 11. júní kl. 9, síðan 12.
júní kl. 9 i Miðgarði í Skagafirði,
þann 13. júní kl. 9 í Húsavíkur-
kirkju, 14. júní kl. 9 í Skúlagarði i
Kelduhverfi, þá 15. júní kl. 4 í
Skjólbrekku í Mývatnssveit og
loks þann 16. júní kl. 4 á sal
Menntaskólans á Akureyri.
Á söngskrá eru íslensk og er-
lend einsöngs- og tvísöngslög. Þau
Sólrun og Bergþór hafa stundað
söngnám og tónlistarnám i tón-
listardeild háskólans í Blooming-
ton, Indiana-fylki i þrjú ár. Aðal-
kennari þeirra, próf. Roy Samuel-
sen, norskættaður óperusöngvari
er væntanlegur hingað til lands i
júní til að leiðbeina á söngnám-
skeiði i Reykjavík. Eftir að tón-
leikahaldi Sólrunar og Bergþórs
lýkur halda þau aftur til Banda-
ríkjanna. Þar hyggjast þau Ijúka
framhaldsnámi.
Meöeigandi aö gistiheimili óskast
Óskaö er eftir traustum samstarfsaöila til þess aö
reka nýtt, mjög vel útbúiö gistiheimili (lítiö hótel) í
hjarta borgarinnar.
Veröhugmynd 9,5 milljónir.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni (ekki í síma).
Kauptún fasteignasala,
Hverfisgötu 82,
Hlynur Þór Magnússon,
Friórik Sigurbjörnsson hdl.
Húseign í Hafnarfirði
Til sölu nýtt timburhús á rúmlega 800 fm endalóö viö
Hrauntungu. Alls 170 fm á tveim hæöum. Neöri hæöin
er aö mestu fullgerö. Efri hæöin er einangruö meö öllum
lögnum en óinnréttuð aö ööru leyti. Fullfrágengiö aö utan.
Bílskúrsplata. Skipti á minna húsi eöa íbúö koma til
greina. Einkasala.
Árni Gunnlaugsson, hrl.,
Austurgötu 10, sími 50764.
Opióídagfrákl. 13.-16.
Vesturbær — Hagar — sjávarsýn
Hús í byggingu
viö Dunhaga, 205 fm á 2 hæðum, 50 fm bílskúr aö
auki. Selst á kostnaðarverði. Áhugasamir leggi
nöfn og síma inn á augl.deild Mbl. fyrir 15.6.
merkt: „Sannvirði — 2955“.
Monte Bedford og Frances Bedford
Norræna húsið:
Tónleikar Bedford Duo í dag
BEDFORD DUO, óbóleikarinn Monte Bedfod og píanóleikarinn Franc-
es Bedford, halda tónleika f Norræna húsinu í dag, iaugardaginn 8.
júní, kl. 15.00.
Þau eru á leið heim úr þriðju
tónleikaferð sinni um Evrópu
þar sem þau héldu tólf tónleika í
fimm löndum.
Bedford Duo hafa ferðast víða
um Bandaríkin og leikið á mörg-
um þekktum tónlistarhátíðum
þar. Áuk þess hafa þau gefið út
margar hljómplötur.
Þau Monte og Frances Bedford
kenna bæði við bandaríska há-
skóla, Monte við Alabama-
háskóla og Frances við Wis-
consin-Park Side-háskóla.
Á efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir Hándel, Bach, Gordon
Jacob, Ivar Lunde jr., Ole Bull og
George Gershwin.
(ÍJr rréttatilkynningu)
Sumarhátíð
Dómkórsins
á morgun
DÓMKÓRINN í Reykjavík efnir til
skemmtunar á morgun, sunnudaginn
9. júní, og hefst hún kl. 14.00 í
Oddfellowhúsinu vid Tjörnina með
sérstakri barnadagskrá. Dagskrá
fyrir fullorðna hefst kl. 16.00.
Á skemmtuninni leikur Skóla-
hljómsveit Kópavogs undir stjórn
Björns Guðjónssonar kl.
13.00—14.00 við Tjörnina. Á barna-
skemmtuninni verða m.a. Ragn-
hildur Gísladóttir og Leifur
Hauksson og brúðuleikhús undir
stjórn meðlima Dómkórsins. Þá
segir Þorsteinn Gunnarsson sögu
og nemendur úr Dansskóla Sigurð-
ar Hákonarsonar sýna dans.
Brugðið verður á leik með börnun-
um og efnt verður til leikfanga-
happdrættis.
Hornaflokkur Kópavogs leikur á
Austurvelli kl. 15.30 undir stjórn
Björns Guðjónssonar. Síðan dansa
félagar úr Þjóðdansafélagi Reykja-
víkur og Elín Sigurvinsdóttir, Sig-
rún V. Gestsdóttir og Skólakór
Kársness undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur syngja auk Dómkórs-
ins.
Aðgangseyrir er kr. 50. Einnig
verður selt kaffi o.fl. við vægu
Verði. (ír fiélUIilkjODÍngu.)
Borgarstjóm:
30 km hámarkshraði í Þing-
holtunum og á Skólavörðuhæð
Á FUNDI borgarstjórnar Reykjavíkur
sl. fimmtudagskvöld var samþykkt til-
laga þess efnis að hámarksökuhraði
skuli vera 30 km á klukkustund í
Þingholtunum og á Skólavörðuhæð,
nánar til tekið á svæði, sem afmark-
ast af þessum götum: Snorrabraut,
Laugavegi, Lækjargötu, Fríkirkjuvegi,
Sóleyjargötu og Hringbraut. Há-
markshraði á nefndum götum breytist
þó ekki.
Flutningsmaður tillögunnar var
Katrín Fjeldsted borgarfulltrúi og
var hún samþykkt með 15 sam-
hljóða atkvæðum. Fram kom hjá
flutningsmanni að slys á gangandi
vegfarendum, einkum börnum, hafi
verið mjög tíð í þessum hverfum,
enda séu götur þar margar þröngar
en umferð hinsvegar mikil, því
margir ökumenn stytti sér leið að
og frá miðbænum, með þvf að aka
um þessi hverfi.
Stangaveiði hefst í þremur af
þekktustu laxveiðiám þessa lands
mánudaginn 10. júní, Elliðaánum,
Laxá í Kjós og Laxá í Aðaldal. Það
er mikið fylgst með þeim öllum,
mikil hefð svífur yfir vötnunum í
Elliðaánum með viðurvist borgar-
stjóra og fleiri góðra manna. Laxá
í Kjós er sú á sem hæst hefur borið
höfuðið ef svo mætti að orði kom-
ast hin síðari mögru aflaár og
nafna hennar fyrir norðan er af
mörgum talin fegursti og verðmæt-
asti gimsteinninn af þeim öllum,
auk þcss spá fiskifræðingar veiði-
bata í ám á norðurlandi í sumar og
þann flokk skipar Laxá í Aðaldal
ásamt mörgum öðrum.
Horfur bara góðar
Um horfurnar á veiði í opnun
þessara áa verður að segjast eins
og er að þær eru góðar þó aldrei
verði spáð um hve margir liggi í
valnum í dagslok. Lax hefur ver-
ið að streyma upp Elliðaárnar
síðustu daga og tugir farið í telj-
arakistuna. Lax má sjá I öllum
helstu veiðistöðum þar fyrir neð-
an, í Teljarastreng, Móhyljun-
um, Fossinum, Breiðunni, við
Steininn og í Holunni. Er þetta
að sjá lax af mörgum stærðum
og örfáir eru í þungavigt, þ.e.a.s.
að því er virðist fiskar vel yfir 10
pund. Svo eru þarna tittir i
bland.
Laxá í Kjós býður sína veiði-
menn velkomna á bakka sína
með von um veiði. Menn hafa séð
talsverða fiskiför upp ána, séð
laxahópa af brúnni, í Kvíslafossi
og Laxfossi. Oft í góðæri er fisk-
ur einnig snemma kominn í
Pokafoss, langt frami í dal. Um
Laxá í Þingeyjarsýslu fer litlum
fréttum, þær ár sem byrjaðar
eru nyrðra, Laxá á Ásum og
Blanda, hafa ekki gefið að neinu
ráði, en hvað segir það um Laxá
í Þing.? Auk þess getur allt gerst
fram til mánudags.
Glæðist í netin
„Þetta hefur bara verið sæmi-
lega gott síðustu daga, laxinn
gengur betur og meira f dumb-
ungsveðrinu sem verið hefur,
sérstaklega vegna þess að Hvítá-
in er vatnslítil og tær. Þannig
fengum við rúma 20 laxa í morg-
un,“ sagði Sigurður Fjeldsted í
Ferjukoti samtali við Mbl. í
gærdag.
•Sigurður sagði ennfremur, að
veiðin nú væri nokkuð minni
svona í byrjun heldur en síðustu
2—3 árin, en þá hefði á hinn bóg-
inn botninn dottið úr veiði-
skapnum strax í júnílok. „Við
vonum að veiðin verði jafnari og
jafnframt betri í ár,“ sagði Sig-
urður. Laxinn sem nú veiðist er
stór og fallegur, ekki smælki
eins og kom á land fyrstu dag-
ana, „þetta er þessi venjulegi
vorlax sem veiðist núna, þetta
8—13 punda, fallegustu fiskar,"
sagði Sigurður 1 Ferjukoti að
lokum.
MorgunblsAið/H. Ben.
Stjórnarmenn úr SVFR freista gæfunnar í Norðurá 2. júní síðastliðinn.
Veiðin þar hefur glæðst nokkuð eftir slappa byrjun.