Morgunblaðið - 08.06.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1985
17
Hann var fyrsti tankbíll í eigu
Olíufélagsins hf. en komst í eigu
þungaflutningafyrirtækis Gunn-
ars Guðmundssonar um 1960 sem
breytti honum í dráttarbíl en síð-
an um 1970 hefur hann verið
„sparibíll" hjá fyrirtaekinu og er
nú geymdur vel og vandlega, full-
komlega uppgerður. Eigandinn,
Gunnar Guðmundsson, stendur
við bílinn.
Mynd 3. White, árgerð 1947. Þessi
bíll var með 6 strokka bensínvél
en er nú með Trader-dieselvél.
Þessi bíll var keyptur af Sölu-
nefnd varnarliðseigna um 1950 og
mun hlassþyngd hafa verið talin 5
tonn, billinn var lengdur og
styrktur og skráður með hlass-
þyngd 7,5 tonn og heildarþyngd
12,7 tonn. White-vörubíla flutti
Garðar Gíslason til landsins þegar
árið 1918 og enn sést nýlegur
White-vörubíll í malarflutningum
á Reykjavíkursvæðinu. Sennilega
hafa White-vörubílarnir verið
flestir hér á landi upp úr 1947 en
þá voru nokkrir strætisvagnar af
þeirri gerð og Steypustöðin var
með nokkra slíka bíla í notkun.
Þessi vinnuþjarkur er enn ekki
kominn í sparifötin. Hann er í
fullri notkun hjá eigandanum,
Sandblástur — rás hf., í Njarðvík
og verður vonandi gefið líf er hann
hættir störfum eftir langa og
dygga þjónustu.
Mynd 4. Chevrolet, árgerð 1947.
Vél 6 strokka bensínvél 123 hest-
öfl, hlassþyngd 3,4 tonn, heildar-
þyngd 7,5 tonn. Einn fyrsti eig-
andi var Einar ísfeldsson á Kálfa-
stöðum í Mývatnssveit en hann
eignaðist bílinn á fyrsta ári hans
hér. Kjartan Friðgeirsson í Kópa-
vogi keypti bílinn árið 1978 en þá
hafði hann legið ónotaður í tvö ár.
Kjartan hefur síðan gert bílinn
svo vel upp að hann er nú einn
allra fallegasti fornbíllinn meðal
vörubílanna og ber með stolti
númerið Y-301.
Mynd 5. Euclid, árgerð 1947. Þess-
um tröllabílum kynntust íslend-
ingar fyrst um 1952 á Keflavíkur-
flugvelli, þá í eigu erlends verk-
taka. Þessir bílar hafa einnig bor-
ist hingað frá Skotlandi og Græn-
landi en eru bandarískir að upp-
runa, þó t.d. þessir frá Skotlandi
hafi komið hingað með Rolls
Royce-vélum. Sögusagnir hafa
verið um að þeir elstu hafi verið
jafnvel af árgerðunum 1936 til ’38.
Það mun vera rangt. Traustar
heimildir eru fyrir því að þeir
elstu séu af árgerð 1944. Átta slík-
ir bílar eru enn í notkun hjá
Hlaðbæ hf. og þeir eru allir með
GM-dieselvélum, 190 hestöfl, 6
strokka. Hlassþyngd er 18 tonn.
Myndin er af Y-6766, sem er ár-
gerð 1947, og tekin sl. haust er
Euclid-arnir voru í notkun við
breytingu á Nýbýlaveginum i
Kópavogi.
Mynd 6. Kockums, árgerð 1966.
Vél 265 hestöfl, diesel, 6 strokka,
hlassþyngd 18 tonn, heildarþyngd
33 tonn. Þessi bíll er í eigu Istaks
hf., sm flutti nokkra slíka inn
vegna framkvæmda við Búrfells-
virkjun. Tröllabílarnir eiga það
reyndar sameiginlegt að vera ein-
göngu notaðir i sérverkefni svo
sem virkjanir, hafnargerðir og
stórátök i vegagerð. Vegna þyngd-
ar og breiddar má ekki aka þeim
um vegi landsins nema á undan-
þágu en hins vegar er frjálst að
aka um vinnusvæði.
Mynd 7. Volvo, árgerð 1966. Vél
270 hestöfl, diesel, 6 strokka,
hlassþyngd 14 tonn, heildarþyngd
21 tonn. Istak hf. á þennan bíl og
keypti hann einnig upphaflega til
notkunar við Búrfellsvirkjun og
þá sem dráttarbíl. Nú hefur hon-
um verið ekið yfir tvær milljónir
kílómetra og breytt í vðrubíl.
Þessi bíll er enn í fullu fjöri og á
það til að bregða fyrir sig betri
fætinum og stinga nýrri bílana af.
Þessi bíll eins og Kockums-inn er
að komast á fornbílaaldurinn og
vonandi verða einhverjir til þess
að geyma og varðveita eintök
slíkra bíla.
Vinnuhópar á vegum
Æskulýðsráös
Reykjavíkur
VINNUHÓPUR Tónabæjar mun nú á
næstunni hefja starfsemi sína á vegum
Æskulýðsráðs annað sumarið f röð.
Ákveðið hefur verið að í sumar verði
einnig starfræktur vinnuhópur í Fella-
helli með sama sniði, þar sem svo vel
þótti takast ti) f fyrra, eins og segir í
fréttatilkynningu frá Æskulýðsráði
Reykjavíkur.
Unglingar á aldrinum 15—17 ára
munu starfa í vinnuhópunum,
10—22 í hvorum undir stjórn tveggja
verkstjóra. Verða þessir vinnuhópar
til þjónustu fyrir borgarbúa og verk-
efna aflað með tilboðum í ýmis verk,
s.s. garðhreinsun, gluggaþvott,
hreingerningu, snyrtingu og um-
hirðu ýmiskonar, t.d. kringum fyrir-
tæki og stofnanir.
(ílr frétutilkynninfu.)
Vorhappdrætti Sjálfstæðisflokksins
Dregið 15. júní
22 glæsilegir ferdavinningar
að verðmæti kr. 940.000.-
Vinsamlega geriö skil á heimsendum miðum
í Reykjavík er afgreiösla happdrættisins í
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Sími 82900, opiö í dag kl. 10 til 17 og á morgun kl. 13 til 17.
Sækjum — Sendum
Sjálfstæöisflokkurinn.
laugardag ffrá kl. 13 til 17
Viö kynnum Qóra OPEL bíla á bílasýning-
unni í BÍLVANGSSALNUM á laugar-
daginn: OPEL KAPETT, sem valinn
hefur veriö sem bíll ársins 1985, OPEL
ASCONA, sem fullnægir flestum kröfum
bílaáhugamannsins, OPEL REKORO
bílinn sem sker sig hvarvetna úr. og OPEL
CORSA, smábílinn sem allir falla (yrir.
OPEL bílarnir eru samnefnari þess besta í
þýskri hönnun. Traustir og liþrir í akstri og
einstaklega þægilegir fyrír ökumann og
farþega.
Þú kynnist þessum bílum á Oþelsýning-
unni aö Höföabakka 9. Ef þú átt góöan
notaöan bíl erum viö vísir til aö vijja kipþa
honum upp í einn nýjan og spegilgljáandi
OPEL til aö auövelda þér viöskiptin.
Greiösluskilmálarnir hjá okkur eru líka
sveigjanlegri en gengur og gerist.
BiLVANGUR SF
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300