Morgunblaðið - 12.06.1985, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1985
53
• Brian Talbot, miövallarleikmaöurinn anjalii hjá Arsanai, leikur meö liði Eltons Johns, Watford á næsta
keppnistímabili. Hér er Talbot ásamt íslenskri blómarós.
Jim Smith veröur
framkvæmdastjóri QPR
Frá Bob Henmuy, Iréttaritara Morgun blaáaina í Englandi.
Jim Smith sem veriö hefur ver-
iö framkvæmdastjóri hjá enska
knattspyrnufélaginu Oxford Unit-
ed, hefur veriö ráðinn sem fram-
kvæmdastjóri hjá Queens Park
Rangers.
"Smith sem er 44 ára hefur náö
mjög góöum árangri sem fram-
kvæmdastjóri Oxford. Tók viö liö-
inu t 3. deild og hefur komið því
upp í fyrstu deild á rúmlega tveim-
ur keppnistímabilum. Liöiö varö
sigurvegari í 2. deild í vetur. Hann
átti eftir eitt ár af samning sínum
við Oxford, en forráöamenn QPR
vildu ólmir fá hann og borguðu
Oxford ótilgreinda upphæö fyrir
hann. Ray Graydon, þjálfari Ox-
ford, mun taka viö af Smith sem
framkvæmdastjóri félagsins.
Talbot til Watford
Miövallarleikmaöurinn Brian
Talbot hjá Arsenal, gekk til liös við
Watford í gær og var greitt fyrir
hann 150.000 pund. Talbot. sem er
34 ára hefur leikiö meö Arsenal
síðan 1979, er hann var seldur frá
Ipswich fyrir 400.000 pund. Talbot
mun koma til meö aö veröa fyrirliöi
Watford á næsta keppnistímabili.
Hollins til Chelsea
John Hollins, hefur veriö ráöinn
framkvæmdastjóri Chelsea næstu
þrjú árin. Hann er ekki alveg
ókunnur á Stamford Bridge i
London, því hann lék meö Chelsea
fyrir 10 árum.
KSÍ gat notað Pétur
í 21 árs liðið
PÉTUR PÉTURSSON landsliósmaöur í knattspyrnu, hefói getað leikió
meö 21 árs liöinu sem lék gegn Spánverjum á Kópavogsvelli { gær-
kvöldi.
Pétur var dæmdur í leikbann af aganefnd FIFA (Alþjóöa-knattspyrnu-
sambandiö), en ekki af UEFA (Knattspyrnusamband Evrópu). A-lands-
leikurinn er í undankeppni heimsmeistarakeppninnar en 21 árs leikurinn
er í Evrópukeppni landsliöa og heyrir því undir UEFA. Pétur heföi því
getað leikið meö liöinu sem annar eldri leikmannanna.
Þaö er svo spurning hvort breyta eigi liöi sem vinnur jafn sannfærandi
sigur og 21 árs liöiö geröi gegn Skotum á dögunum. En möguleikinn á aö
nota Pétur var engu að síöur fyrir hendi.
23 böm til
Finnlands
HELGINA 14.—16. júní nk. fer
fram í Járvenpaa, Finnlandi,
fjóróa norræna barna- og ungl-
ingamótið í iþróttum fyrir fatlaöa.
Alls munu 23 börn og unglingar á
aldrinum 12—16 ára taka þátt í
þessu móti.
Börnin koma viösvegar af land-
inu og um margskonar tegundir
fötlunar er að ræöa, s.s. hreyfi-
hamlaöir, blindir og sjónskertir,
þroskaheftir og heyrnadaufir.
Keppnisgreinar á mótinu eru
boccia, borötennis, sund og frjáls-
ar íþróttir þ.m.t. hjólastólaakstur.
Mót þetta er haldið annaö hvert
ár, til skiptis á Noröurlöndunum og
hafa íslensku börnin ávallt staöiö
sig á þeim meö miklum ágaetum
og unnið til margra verölauna.
iþróttasamband fatlaöra vill aö
lokum færa öllum þeim aöilum
sem styrkt hafa ferö þessa s.s.
Kiwanis- og Lionshreyfingunni,
bæjarstjórnum og öörum sínar
bestu þakkir fyrir aö gera þessa
ferð mögulega.
Fréttatilkynning frá ÍF.
• Pátur Pátursson, land
maöur í knattspyrnu, heföi
leikíð meö 21 árs liðinu {
kvöldi. Hann var ekki ( bam
UEFA.
Hópferð á leik Vals
FARIN VEÐRUR hópferó meö rútu til Akureyrar til aö sjá leik Þórs og
Vals 14. júní næstkomandí. Lagt verður af ataö á föstudagsmorgunínn
kl. 8.00 og dvaliö á Akureyri til sunnudags. Verö i þessa ferö er 1.350.
Þeir sem áhuga hafa hafi samband vió Ellert í símum 38350 og 79193
eöa Jóhann í síma 24711. Þessi feró tókst mjög vel í fyrra, því er hún
endurtekin.
Fréttatilkynning frá V»l.
/----------------------N
HRESSANDl!
Bollar og önnur hressandi
matarílát á hreint
ótrúlega góðu verói.
Allt selst ódýrt
nú í júnímánuði.
Höfðabakka 9
Reykjavík
S. 685411
V_________________________________
Hamar og sðg
er ekkí nóg
NEMA ÞÚ VEUIR RÉTTA EFNIÐ^
Og nú erum við í Borgartúni 28