Morgunblaðið - 14.07.1985, Page 1
96 SIÐUR
B
STOFNAÐ 1913
156. tbl. 72. árg.____________________________________SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1985________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rainbow Warrior.
Leita manns
af gúmbáti
Autkland. 13. júlí. AP.
Cninsamlegur gúmbátur er fund-
inn í strandlengjunni við Auckland
og er talið að hann kunni að tengjast
sprengingu um borð í skipi grænfrið-
unga, Kainbow Warrior.
Að sögn rannsóknarlögreglunnar
í Auckland sást maður róa bátnum
í grennd við Rainbow Warrior
skömmu áður en sprenging varð
um borð í skipinu með þeirri afleið-
ingu að það sökk.
Énn er leitað fransks manns,
sem var um borð í Rainbow Warr-
ior skömmu fyrir sprenginguna og
er alþjóðalögreglan Interpol komin
í spilið. Frakkinn tók sér far með
flugvél til Pólynesíu kvöldið sem
sprengingin varð um borð í skipi
grænfriðunga og er hans nú leitað
þar. Sigla átti Rainbow Warrior til
Pólynesíu til að mótmæla kjarn-
orkutilraunum Frakka á Mururoa-
eyjum.
Mexíkó:
Ásakanir um
kosningasvik
Monterrey, Mexíkó, 13. júlí. AP.
Á FIMMTA tug þúsunda stuðnings-
manna stjórnarandstöðunnar í Mex-
íkó mótmælti úrslitum kosninganna á
sunnudag og sökuðu stjórnarflokkinn
um kosningasvik, á langfjölmennasta
útifundi, sem haldin hefur verið í
borginni Monterrey í tvo áratugi.
Sett var á svið á fundinum emb-
ættistaka Fernando Canales Clar-
ido frambjóðanda PAN við fylkis-
stjórakosningarnar í Nuevo Leon
við mikinn fögnuð fundarmanna.
Jorge Trevino, frambjóðandi
stjórnarflokksins, PRI, var lýstur
sigurvegari, en stuðningsmenn
PAN segja að úrslitin hafi verið
fölsuð og viðurkenna því ekki Trev-
ino sem fylkisstjóra. Athöfnin og
mótmælafundurinn fóru fram fyrir
utan höll fylkisstjórans. Fór allt
friðsamlega fram.
Á miðvikudag blés PRI til fundar
í Monterrey til að fagna kosningu
Trevino. Helmingi færri sóttu þann
fund en mótmælafund PAN.
Röðull rennur í Djúpið
Einn skuttogara ísfirðinga siglir til veiða út ísafjarðardjúp við sólarlag.
MorgunblaÖid/ólafur K. Magnússon
Sovétmenn framselja
bátafólk til Víetnam
Genf, AP.
ÞRJÁTÍU og sjö víetnamskir flótta-
menn, sem sovézka skipið Poisk tók
um borð úr báti fyrir um mánuði,
hafa verið sendir aftur til Víetnams.
Skýrði Leon Davico, talsmaður
flóttamannastofnunar Sameinuðu
þjóðanna, frá þessu á fostudaginn.
Davico sagði ennfremur, að sov-
ézk stjórnvöld hefðu ekki enn
skýrt flóttamannastofnunni frá
örlögum bátafólksins og hefðu
aldrei svarað tilboði stofnunar-
innar um að taka við fólkinu og
finna því samastað. Tilboð þetta
var borið fram fyrir tveimur vik-
um.
Poisk var á leið frá Víetnam til
sovézku eyjarinnar Sakhalin, er
það tók víetnamska bátafólkið um
borð. í hópi þess voru 17 konur og
4 börn. Ekki er til þess vitað, að
sovézkt skip hafi áður tekið báta-
fólk frá Víetnam um borð.
í dag komu 50 víetnamskir
flóttamenn með líberísku flutn-
ingaskipi til Japan. Á meðal þess-
ara flóttamanna voru 34 karlmenn
og 16 konur. Höfðu þau flúið frá
Víetnam á 43 feta löngum báti 27.
júní sl. og var þeim bjargað um
borð í líberíska skipið 4. júlí.
Skæruliðar vinstri manna í E1 Salyadon
Réðust á stærsta
fangelsi landsins
S»n Salvador, 13. júli. AP.
SKÆRUUÐAR vinstri manna í El Salvador, vopnaðir sprengjuvörpum,
handsprengjum og rifflum, réðust í gærkvöldi á stærsta fangelsi landsins og
tókst 104 föngum að flýja í ringulreiðinni, sem skapaðist við árásina.
FORSETTI íslands, Vigdís Finnbogadóttir, kom til Eg-
ilsstaða í gærmorgun í upphafi heimsóknar til Austur-
lands. Á meðfylgjandi símamynd
Árna Sæberg, Ijósmyndara Morgunblaðsins, eru
fremst (fv) Bogi Nilsson sýslumaður, Vigdís Finn-
bogadóttir, Hrafn Sveinbjarnarson Hallormsstað og
Stefán Ólafsson Helgustöðum í Helgustaðahreppi.
Sjá á bls. 2: „Breytingar á dagskrá vegna veðurs“.
Þrír fangaverðir særðust í árás-
inni á La Mariona-fangelsi, sem
stóð yfir í hálfa klukkustund, og er
einn þeirra þungt haldinn.
Jose Vitelio Escobar, fangelsis-
stjóri, segir, að árásin hafi verið
gerð rétt áður en flytja átti fang-
ana í klefa sina á ný. Margir
þeirra voru þá við æfingar í fang-
elsisgarðinum.
Fjölmennt lið hermanna og
lögreglu kom fljótlega á vettvang,
og tókst að handsama einn stroku-
fangann. Hinna er ákaft leitað.
í fangelsinu hafa verið 1.500
fangar og í þeim hópi eru 433
menn, sem dæmdir hafa verið
fyrir aðild að skæruhernaðinum
gegn stjórnvöldum landsins.