Morgunblaðið - 14.07.1985, Síða 37

Morgunblaðið - 14.07.1985, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1985 37 GausUtoppen (Þelamörk, 1.883 m hár. áttu hann, fengu samtals 1100 krónur (norskar) í greiðslu, sem var þó nokkuð þá! íslendingar ættaðir af Þelamörk Af Sturlubók má sjá að tveir bræður, Björnólfr og Róaldr, flúðu frá Þelamörk af manndráps "ök- um. Þeir fóru að Fjölum (nefnifall: Fjalar) í Sunnfjord. Björnólfr var faðir Arnar, sem var faðir Ingólfs, fyrsta landnámsmannsins á ís- landi, 874. Róaldr var faðir Hróðmars, föður Hjörleifs, sem var kvæntur Helgu, systur Ingólfs. Hjörleifr fór til íslands sama ár og mágur hans, en hann var drep- inn af þrælum sínum. Þriðji landnámsmaðurinn frá Þelamörk, Þorsteinn Ásgrímsson, hefur fengið ítarlegt umtal, bæði í Sturlubók og Hauksbók. Það er sagt að Úlfur gildi, hersir á Þela- mörk (en Hauksbók bætir við: „í Tinnsdal"), ætti soninn Ásgrím, föður Þorsteins. Hann hefndi drápsins á föður sínum og fór til tslands. Hann hafði i fylgd með sér bróður sinn, Þorgeir, sem var aðeins 10 ára. Þorgeir keypti seinna stórbýlið Odda á Suður- landi. Hauksbók segir að Þorgeir sé ættfaðir Oddaverja, og þar með prestsins og lærdómsmannsins Sæmundar fróða. Það er skemmtilegt fyrir Tinnbúa (Tinndæli), sem ætla sér til fslands í sumar, að fá vitneskju um að ef til vill einn forfeðra þeirra væri í ætt Sæmundur fróða, sem er talinn „lærðastur allra manna“. (Á hinn bóginn er talið vafasamt að ættartalan frá Þor- geiri til Sæmundar sé rétt.) Ef til vill hefur líka Ingólfr ver- ið ættaður úr Tinn. t Vestfjord- dalnum er bær sem heitir Ingolvs- land. Að sögn Tinndælasögu er hann ævaforn. Ætli hann sem fyrst ræktaði þessa jörð, hafi verið einn þeirra ættfeðra Ingólfs, sem varð „frægstr allra landnámsmanna"? Austbygde og Atrá songkor hef- ur verið lengi að undirbúa ferðina til fslands. Sunnudaginn 24. mars var ég beðinn að koma til Tinn og flytja erindi um ísland og sýna Iitskyggnur. Þótti mér boðið til- valið, en í Austbygde, þar sem er- indið var flutt og myndirnar sýnd- ar, var áhuginn mikill og ekki að- eins meðlimir kórsins viðstaddir. Af fjárhagslegum og öðrum ástæðum getur því miður ekki all- ur kórinn farið til fslands, aðeins hluti af honum. Það mun þess vegna vera augljóst að kórinn geti engan veginn notið sin til fulls. En hjartahlýja söngmanna í garð fs- lendinga virðist að mínum dómi vera það mikil, að það muni gefa fyrirheit um einhvern góðan árangur! Söngvararnir munu líka kynnast fslendingum, heimsækja landshluta, söfn og fræga staði, ennfremur skoða listsýningar og fleira. Kórinn kemur til Reykja- víkur fimmtudaginn 1. ágúst, en heldur aftur heim til Noregs föstudaginn 9. sama mánaðar. Ég óska kórnum velfarnaðar og farsællar dvalar meðal góðra frænda og vina. Reykjavík í maí 1985, Ivar Orgland íf 1f -O------*-----O----- Vegna flutninga afsláttur á innréttingum og flísum til 28. júlí í Ármúla Opnum 29. júlí í Skútuvogi 4, flísaverslun í glæsilegu hús- næði meö rúmgóöum bílastæöum. Nýborg:# Ármúla 23, sími 686755. -----*--------C*------4*-------<3--------*------ fKwgmiMafrito Gódan daginn! LO«*‘ur .... Galant ••.... l_anc®r ^unoo-'84 SSi"-'- sn»ur*,url:...- Gal*nt " .... L»r>cer Co» 0°" ..po-’*4 Jatt*11WÍ GO« .... je«a pasae* •• Colt uancef •" .... Gaia0* " pa(er0 noVer «• iÖ&- Gol,11^o0'77-’82 SS Mloi "" Ber-e'^Ío UindBover .....1.250 "" 1.250 " " 2.69° ••;;. 380 Verð *<r" 750 •"" 750 ..... 890 O o« ’ Je«a • pa**e* Colt • L*ncef Ge1*0* 44 Kr- 44- 44- 44- 44- 44- T' 15°' 2: iso' 15°- 15°' 80" -50" 80- 15U SAMA VERÐ UM LAND ALLT! ""sar^ WJ HEKLAHF Laugavegi 170-172 Sími 21240

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.