Morgunblaðið - 14.07.1985, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.07.1985, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ1985 LeikaðsUða barna er eitt þeirra verkefna sem félags- menn hafa unnið ötullega við að koma í gott horf. Ekki er að sjá annað en krakkarnir kunni það vel að meta. Valur Óskarsson landvörður Lv. ásamt Gunnari Þor- lákssyni formanni dagskrárnefndar. Að baki þeim sést nýja félagsheimilið og pallur þar sem aðaldagskrá móts- ins fer fram. 25. mót bindindismanna haldið í Galtalækjarskógi um verslunarmannahelgina: Nýtt félagsheim- ili tekið í notkun BINDINDISMÓTIÐ í Galtalækjarskógi hefur hlotið fastan sess í hugum margra sem einn af höfuðviðburðum verslunarmannahelgarinnar. Þetta árið verður mótið haldið í 25. sinn dagana 2.—5. ágúst og vegna tímamótanna verður dagskrá þess aukin frá fyrri árum. Að sögn Gunnars Þorlákssonar formanns dagskrárnefndar hefst hátíðin föstudagskvöldið 2. ágúst með dansleikjum á tveimur stöðum við undirleik hljómsveitanna Nátthrafna og Special Treatment. Sjö dansleikir verða haldnir mótsdagana og eru tveir þeirra sérstaklega ætlaðir börnum. V Elsta hús á svæði bindindismanna í Galtalækjarskógi hýsir mótsstjórn og aðra er hafa yfirumsjón með bindindis- mótunum. Morgunblaðið/Július „Viðburðir laugardags og sunnudags miðast við alla fjöl- skylduna. Haldin verður reið- hjólakeppni og reynt á ökuleikni bílstjóra í umsjá Bindindisfélags ökumanna. Brúðubíllinn heldur sýningu, Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts leikur og flutt verða gamanvísur og gamanmál. Jass- gaukar djassa og um kvöldið verð- ur kveiíttur varðeldur og flugeld- um skotið undir miðnættið. Auk margra annarra atriða verður rekið Tívolí alla mótsdagana og leikaðstaða fyrir yngstu mótsgest- ina verður enn bætt. Gunnar sagði að fyrsta bindind- ismótið hefði verið haldið árið 1960 í Húsafellsskógi en 1967 fluttist mótshaldið til Galtalækj- ar. „Þar hefur mótið verið haldið árlega síðan með einni undantekn- ingu 1974 þegar hátíðahöldin féllu niður vegna 1100 ára afmælis ís- landsbyggðar." „Sumarheimilistemplarar, sem eru Ungtemplarar Suðurlands, og Fjölskylduarfur ••• Ljómandi gjöf Glæsileg Vesturþýsk stíl hnífapör úr silfurhúðuðu gæðastáli með harðgljáa og 18 karat gyllingu er eign sem verður fjölskylduarfur næstu kynslóða... ELBA 74“ Gullfallegt mynstur, nýkomiö. Verö aöeins kr. 2.780,-. 30 stk. í gjafakassa. PERLA Verö kr. 3.318,-. 30 stk. í gjafakassa. Einnig selt í stykkjatali. PARIS Verö kr. 5.230,-. 30 stk. í gjafakassa. Einnig selt í stykkjatali. FROSTI Verð kr. 4.315,-. 30 stk. í gjafakassa. Einnig selt í stykkjatali. Póstsendum RAMMAGERÐIN HAFNARSTRÆTI19 uma»tland. K RISTALL & POSTULÍN Sími 11081 umdæmisstúka góðtemplara á Suðurlandi, leigja land Merkihvols af Landhreppi til 50 ára en einnig hafa hjónin á Galtalæk sýnt mót- inu mikla vinsemd og leigt hreyf- ingunni land undir tjaldstæði til eins árs í senn.“ „f Galtalækjarskógi hefur verið komið upp góðri aðstöðu fyrir gesti. Síðastliðið sumar og reynd- ar einnig nú dvelur landvörður í Galtalækjarskógi þannig að svæð- ið hefur verið opið þeim ferðalöng- um sem vilja dvelja í fallegu vímuefnalausu umhverfi. Snyrtiaðstöðu og rennandi vatn er að finna víða á svæðinu og ný- lega reis þar 240 fermetra félags- heimili. Þar er fullkomin eldunar- aðstaða og þjónar húsið sem greiðasala meðan á mótum stend- ur. Annars er hægt að nýta það sem veislusali eða til fundahalda. 1 framtíðinni er stefnan að byggja litla svefnskála fyrir 6—8 manns og yrði heimilið þá tilvalið fyrir ráðstefnur og til lengri dvalar. 3—4000 gestir sækja mótið að staðaldri en flestir voru í Galta- læk árið 1975 eða um 8.000. Við verðum lítið vör við þótt önnur mót séu haldin hér í nágrenninu og fjöldi gesta er svipaður milli ára og viss kjarni sem vill eyða helginni án áfengis kemur hingað ár eftir ár. Að sögn Gunnars er bætt að- staða dvalargesta að þakka óeig- ingjörnu sjálfboðastarfi templara. „Hér hafa félagsmenn fundið verkefni við sitt hæfi og unnið öt- ullega að þeim málum. Einn hópur hefur séð um vatnslagnir og upp- byggingu snyrtingarinnar, aðrir hafa sinnt leikaðstöðu barna sem er orðin mjög góð og ekki er ósennilegt að börnin hvetji for- eldra sína til að koma hingað aft- ur og aftur vegna hennar. Enn aðrir hafa séð um raflagnir í nýja húsið og þannig mætti lengi telja. „Uppgræðsla Galtalækjarskóg- ar og lands Merkihvols hefur einn- ig átt hugi templara og síðast í vor fór flugvél landgræðslunnar yfir svæðið með nokkur tonn af áburði og gróðursettar hafa verið hundr- uð trjáplantna í gegnum árin.“ „Þótt nokkurn tíma hafi tekið að koma aðstöðunni í það horf sem nú er, aðallega vegna fjárskorts, efast ég ekki um að það uppbygg- ingarstarf hefur orðið til að tengja félagsmenn sterkari bönd- um við Templarahreyfinguna og auka hróður hennar meðal al- mennings. Með starfinu hér sann- ast að templarar eru ekki líflausir predikarar sem tönnlast sífellt á drykkjubðlinu. „Bindindismenn hafa valið sér lífsstíl sem krefst þess ekki að vímuefni séu fylginautur félags- skapar eða skemmtunar. Ungt fólk stundar í æ ríkari mæli heil- brigt líferni og líkamsrækt hvers konar og vímugjafar eiga illa við slíkan hugsunarhátt. Ég hef því enga trú á öðru en að starf templ- aranna eigi bjarta framtíð fyrir höndum og að bindindismót verði haldin í Galtalækjarskógi um ókomin ár.“ V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.