Morgunblaðið - 14.07.1985, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚLf 1986
Austurrísk vín:
Engin fyrirmæli
um stöðvun sölu
— segir Einar Ólafsson, útibússtjóri hjá ÁTVR
„ÞAÐ hafa engin fyrirmæli bor-
ist til okkar um að stöðva sölu á
austurrískum vínum,“ sagði Ein-
ar Ólafsson, útibússtjóri hjá
Breytt
viðhorf og
vaxtamál
í athugun
— segir Jónas Haralz,
bankastjóri Landsbankans
„LANDSBANKINN hefur ekki talið
ástæðu til breytinga á vöxtum, en
með þessari vaxtahækkun Iðnaðar-
bankans hafa viðhorfin breyst og
vaxtamálin eru nú til athugunar hjá
okkur," sagði Jónas Haralz, banka-
stjóri Landsbankans, er hann var
inntur álits á þeirri ákvörðun banka-
stjórnar Iðnaðarbankans á fimmtu-
daginn að hækka vexti.
Eins og greint var frá í frétt
Morgunblaðsins á föstudag hækk-
aði Iðnaðarbankinn vexti á al-
mennum skuldabréfum úr 30,5% í
32%, forvexti almennra víxla úr
28% í 30%, vexti á sex mánaða
sparireikningum úr 29% í 32% og
vexti yfirdráttarlána hlaupareikn-
inga úr 29% í 31,5%. Var ástæðan
sögð aðlögun á vöxtum sem hafa
verið í gildi að undanförnu og til
samræmingar við aukna verð-
bólgu. Jónas Haralz sagði að engin
ákvörðun hefði enn verið tekin um
vaxtahækkun hjá Landsbankan-
um, en fram til þessa hefði ekki
verið talin ástæða til vaxtahækk-
unar. En þar sem ákvörðun Iðnað-
arbankans tæki bæði til útláns- og
innlánsvaxta hefðu viðhorfin
breyst og því talin ástæða til að
taka vaxtamálin til nánari athug-
unar.
Að sögn Matthíasar Á. Mat-
hiesen, viðskiptaráðherra, hefur
ekki verið fjallað um vaxtahækk-
anir í ríkisstjórn eða viðskipta-
ráðuneytinu, enda sé hér um að
ræða sjálfstæða ákvörðun bank-
anna sjálfra enda geri Seðlabank-
inn ekki athugasemdir við þær.
Víkingahátíðin
á Laugarvatni:
Tjöld fuku
TJÖLD fuku og fólk varð að forða
sér í skjól í fyrrinótt á víkingahátíð-
inni á Laugarvatni, þegar gerði
ofstopaveður. Hvassast varð milli
klukkan 5 og 8 um nóttina og var þá
veðurhæðin níu vindstig.
1.000—1.500 manns voru á tjald-
stæðinu á Laugarvatni í fyrrinótt.
Mótsstjórn víkingahátíðarinnar
hefur ákveðið að halda áfram há-
tíðinni þrátt fyrir hvassviðrið, en
veðrið átti að ganga niður í gær
samkvæmt veðurspám.
1 DAG
Meðal efnis í blaðinu í dag er:
Útvarp/sjónvarp .. 6
Dagbók 8
Fasteignir 9/18
Leiðari 28
Reykjavíkurbréf ... 28/29
Peningamarkaður 30
Myndasögur 31/32
Raðauglýsingar 40/47
íþróttir 54
Fólk í fréttum . 30b/31b
Dans/bíó/leikhús . . 32b/35b
Velvakandi . 36b/37b
ÁTVR, er Morgunblaðið leitaði
upplýsinga þar að lútandi í gær.
Að sögn Einars er ein tegund af
austurrísku hvítvíni á boðstólum
í útsölum ÁTVR, „Edel Frau-
lein“.
Vestur-Þjóðverjar gerðu um
eina milljón lítra af austurrísku
víni upptæka fyrr í vikunni og
hafa aðrar þjóðir, sem flytja inn
austurrískt vín, ýmist varað fólk
við að kaupa vínið, eða tekið það
úr hillum verslana. Eitrið sem hér
um ræðir nefnist „diethylene glyc-
ol“ og hafa rannsóknir leitt í ljós,
að um 0,5 til 3,5 grömm af eitrinu
eru í hverjum lítra. Þær vínteg-
undir sem helst hafa verið nefnd-
ar í þessum sambandi eru „Ruster
Spatlese 1983“, „Ruster Áuslese
1983“, „Georgener Auslese 1983“
og Ruster Neusiedlersee Spátlese
1983“.
Hundadagahátíðinni frestað
MorKunblaöið/GBerg
Dagskráratriðum á hundadagahátíðinni á Akureyri, sem
fyrirhuguð voru um helgina, var frestað vegna veðurs til
næstu helgar, en norðangarri hefur verið fyrir norðan síðari
hluta vikunnar. Að sögn forsjármanna hátíðarinnar hefur
hátíðin gengið vel, nema hvað veðrið hefur sett strik í
reikninginn. Myndin er frá skrúðgöngu barna á hátíðinni.
Hækkun kjarnfóðurgjaldsins:
Ekki rétta leiðin til að hafa
stjórn á búvöruframleiðslu
— segir Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins
„AÐ mínum dómi er það
ekki rétta leiðin til að hafa
stjórn á búvöruframleiðslunni
að auka kostnaðinn við hana
enda er hér um að ræða ein-
hliða ákvörðun Framsóknar-
flokksins,“ sagði Þorsteinn
Pálsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, er hann var spurður
álits á hækkun kjarnfóður-
gjaldsins 1130%. Þessi ráðstöf-
un hefur sem kunnugt er sætt
mikilli gagnrýni meðal bænda,
ekki síst hjá framleiðendum
eggja, kjúklinga og svínakjöts.
„Hér er um að ræða einhliða
ákvörðun landbúnaðarráðherra
og framsóknarflokksins, sem ekki
var borin upp í ríkisstjórn og ekki
kynnt samstarfsflokknum, svo
kynlegt sem það má vera þegar
um svo mikilvæga ákvörðun er að
ræða, er snertir skattlagningu á
aðföngum til matvælafram-
leiðslu," sagði Þorsteinn. „I annan
stað er mjög umdeilanlegt hversu
hár skattur af þessu tagi á að
vera og mín skoðun er sú, að það
sé í meira lagi vafasamt að það sé
rétta leiðin til að hafa stjórn á
búvöruframleiðslunni að auka
kostnaðinn við hana. Það leiðir til
þess að bændurnir fá minna í
aðra hönd. Þeirra afrakstur verð-
ur minni og söluverðið til neyt-
enda verður hærra. Frá mínum
bæjardyrum séð er þetta ekki
rétta leiðin og ég skil mæta vel þá
gagnrýni sem bændur hafa sett
fram gegn þessari ákvörðun land-
búnaðarráðherra og Framsóknar-
flokksins.
í þriðja lagi er gert ráð fyrir
því, að sérstaka fóðurbætisgjaldið
verði endurgreitt samkvæmt regl-
um sem á eftir að setja. Það er
auðvitað kynlegt að gefa út reglu-
gerð sem gerir ráð fyrir endur-
greiðslum áður en endurgreiðslu-
reglumar liggja fyrir, en það hef-
ur verið greint frá því, að þær eigi
að fara alfarið eftir framleiðslu-
magni. Nú gera nýju lögin ekki
ráð fyrir að það sé unnt að setja á
búmark nema viðkomandi bú-
grein hafi gert um það samninga.
Það er ekki hægt að fara bakdyra-
megin, samkvæmt þessum lögum,
að því að setja á búmark með
endurgreiðslureglum á kjarn-
fóðurgjaldi og ég vænti þess að
það verði ekki gerð tilraun til þess
þegar að þær reglur sjá dagsins
ljós,“ sagði Þorsteinn Pálsson.
Fjögur leyfí til eldis
regnbogasilungs
FJÓRIR aðilar hafa fengið leyfi hjá
landbúnaðarráðuneytinu til að
kaupa regnbogasilungsseiði frá
Laxalóni til framhaldseldis, að sögn
Guðmundar Sigþórssonar skrifstofu-
stjóra ráðuneytisins. Sagði Guð-
mundur að það væru allir sem um
það hefðu beðið.
Fyrirtækin eru: Fiskeldisfélagið
Strönd á Akranesi/Hvalfjarð-
arströnd, Guðmundur Runólfsson
í Grundarfirði, Hörður Guð-
mundsson á Kverngrjóti í Dölum
og Sjóeldi hf. í Höfnum. Sagði
Guðmundur að fyrirtækin hefðu
fengið leyfin í ráðuneytinu á þeim
forsendum að þau væru með lof-
orð fyrir seiðum frá Laxalóni.
Hann kvaðst ekki vita um afdrif
málsins, en sér skildist að þegar
allt hefði komið til alls hefðu
fyrirtækin ekki fengið regnboga-
silungsseiðin, og þau í staðinn ver-
ið seld úr landi.
Heímsókn forsetans tíl Austurlands:
Breytingar á dag-
skránni vegna veðurs
KKikwtöóum, 13. júlí. Frá Elisabetu Jónusdótt ur o* ÓUfi Guómundusyni fróttnmönnum Mor* unblaósinn.
TÍU DAGA opinber heimsókn forseta fslands, Vigdísar Finnbogadóttur, til þess að taka á moti forsetan-
til Austurlands, hófst klukkan 9.40 í morgun. Þá toku sýslumaður
S-Múlasýslu, Bogi Nilsson, kona hans Elsa Petersen, 16 fulltrúar sýslu-
nefndar og tveir fulltrúar Egilsstaðahrepps, á móti forsetanum með við-
höfn á Egilsstaðaflugvelli. Sex ára gömul stúlka, Lára Vigdís Kristjáns-
dóttir, frá Reyðarfirði, fsrði forsetanum blóm. Nokkur mannfjöldi hafði
safnast saman á flugvellinum þó að kalt væri í veðri, norð-vestanátt og
strekkingur. Snjóað hafði niður í miðjar hlíðar og Fjarðarheiði er þung-
fær fólksbifreiðum.
leiðis inn Vallaveg þar sem
hreppsnefnd Vallahrepps tók á
móti forsetanum og fylgdarliði
hans. Oddviti Vallahrepps fylgdi
forsetanum að Grímsá en þaðan
var síðan ekið að Þingmúla. Þar
hafði fjölmenni safnast saman
f fylgd með forseta fslands eru
Halldór Reynisson, forsetaritari,
kona hans, Guðrún Þ. Björns-
dóttir og Herdís Þorsteinsdóttir,
aðstoðarstúlka forseta.
Eftir móttökuathöfnina á Eg-
ilsstaðaflugvelli var haldið rak-
um, þrátt fyrir vetrarveður, er
ýmist gekk á með slyddu eða
hríðarbyl. Láta mun nærri að
nær helmingur hreppsbúa hafi
verið saman kominn á Þingmúla
til þess að fagna forsetanum.
Börn veifuðu íslenzka fánanum
og lítil stúlka færði forsetanum
blóm.
Þá var Þingmúlakirkja skoð-
uð. Jón Hrólfsson, oddviti
Skriðdalshrepps, greindi frá
sögu staðarins og færði forset-
anum að gjöf steingerving úr
fjallinu Þingmúla sem skiptir
byggð í Skriðdal. Þakkaði forset-
inn sérstaklega góða gjöf og
kvað steingerving þennan fá stað
í steinasafni Bessastaða við hlið
steingervings frá Vestfjörðum.
Síðan var haldið til Egilsstaða
og snæddur hádegisverður í
Valaskjálf I boði sýslunefnda
Múlasýslna. Ráðgert hafði verið
að frú Vigdís yrði viðstödd setn-
ingu sumarhátíðar ÚÍA að Eið-
um en þeirri hátíð hefur verið
frestað vegna veðurs. Ennfrem-
ur má búast við frekari breyt-
ingum á tilkynntri dagskrá
vegna veðurfarsins.