Morgunblaðið - 14.07.1985, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ, 3UNNUDAGUR 14. JÚLl 1986,
4
Menntamálaráðherra:
Ákvæði grunnskóla-
laganna um skóla-
skyldu koma til
framkvæmda í haust
Hver eru þau?
Halldór heitinn Pétursson málaði hafði verið að vinna við. Meðal þ*r f vörslu Fjólu Sigmundsdóttur,
margar andlitsmyndir á listferli sín- þeirra eru þessi tvö málverk sem hér ekkju Halldórs, en hún á heima í
um. Er hann féll frá árið 1977 komu eru myndir af, en ekki hefur tekist Drápuhlíð 11, sími 10288.
í Ijós allmörg málverk sem hann að koma þeim í réttar hendur. Eru
Siglufjörðun
Ráðstefna um endurnýjun
á Síldarverksmiðju ríkisins
„EFTIR ÞVÍ sem við best vitum
verður tölvustýring verksmiðj-
unnar sú fullkomnasta í heimi,“
sagði Páll Bragason, stjórnarfor-
maður Fálkans hf., en nú fer
fram gagnger endurnýjun á Síld-
arverksmiðju ríkisins á Siglu-
firði, sem beinist sérstaklega að
orkunýtingu og sjálfvirkni.
Það er Fálkinn hf., Verkfræði-
stofan Rafhönnun hf. og norsku
fyrirtækin SAAS Prosses og Myr-
ens verksted auk danska fyrirtæk-
isins Novo industri og Spirax
Sarco sem er enskt, sem standa að
endurnýjuninni auk Síldar-
verksmiðj unnar.
Að sögn Páls er verið að setja
upp tækin í verksmiðjuna og er
stefnt að því að því verði lokið
fyrir komandi loðnuvertíð. í til-
efni endurnýjunarinnar stendur
nú yfir ráðstefna á Siglufirði, sem
um sextíu manns sitja, þar sem
þessar nýjungar eru kynntar.
„Ákvæði grunnskólalaganna
um skólaskyldu eins og þau
eru, koma til framkvæmda í
haust. Því verður skólaskylda
í níunda bekk eins og gert var
ráð fyrir,“ sagði Ragnhildur
Helgadóttir menntamálaráð-
herra þegar hún var spurð um
framkvæmd grunnskólalag-
anna hvað níunda bekk varð-
ar.
„Með því er stuðlað að jafn-
rétti unglinga í hinum ýmsu
landshlutum til náms og lögin
munu jafna aðstöðu foreldra til
að senda börn sín i níunda bekk.
Staðreyndin er að yfir 96% nem-
enda í þessum aldursflokki
stunda nám í níunda bekk þannig
að hér er ekki um stórt kostnað-
aratriði að ræða fyrir hið opin-
bera. Hinsvegar er þetta mikið
sanngirnismál að eins sé staðið
að kostnaði við fræðslu nemenda
í níunda bekk og þeirra sem
stunda nám í yngri bekkjardeild-
um.
Rökin fyrir skólaskyldu eru
þau sömu fyrir níunda bekkinn
og aðra aldurshópa í grunnskól-
unum. Ég er þeirrar skoðunar að
þessi ráðstöfun eigi eftir að
verða nemendunum til góðs og
bæta möguleika þeirra á vinnu-
markaðinum og til framhalds-
náms,“ sagði Ragnhildur að lok-
um.
Vernd
t. TW. 1985
Fangahjálp í aldarfjórðung
AFMÆLISBLAÐ
Afmælisblað
Verndar
FÉLAGASAMTÖKIN Vernd, fanga-
hjálpin, hafa gefið út afmælisblað í
tilefni 25 ára starfsafmælis síns.
Jón Thors, deildarstjóri í
dómsmálaráðuneytinu, skrifar
„Afmælisspjall". Ásgeir Hannes
Eiríksson skrifar um Hilmar
Helgason, fyrrum formann Vernd-
ar, og viðtal er við Jónu Gróu Sig-
urðardóttur, formann og fram-
kvæmdastjóra Verndar. Jón
Bjarman, fangaprestur, skrifar
um embætti sitt og þátt Verndar í
því og einnig er í blaðinu útvarps-
erindi, sem Þóra Einarsdóttir,
fyrrverandi formaður Verndar og
núverandi heiðursformaður, flutti
í tilefni af 20 ára starfsferli
Verndar. í blaðinu er sagt frá
starfsemi Verndar, tilgangi og
markmiði og viðtal er við Hönnu
Johannessen, formann jólanefnd-
ar Verndar. Séra Árelíus Níelsson
skrifar grein sem nefnist: „Gengið
á vegum hins góða í tuttugu og
fimm ár“, viðtal er við Bjarka
Elíasson yfirlögregluþjón og
starfsfólk Verndar og fyrrum
formenn samtakanna eru kynntir.
Afmælisrit Verndar er 40 blað-
síður. Ritstjóri er Guðmundur
Árni Stefánsson.
Eftir aðalfund Verndar í maí sl.
er stjórn félagasamtakanna þann-
ig skipuð:
Heiðursformaöur: Þóra Einarsdóttir.
Formaöur: Jóna Gróa Sigurðardóttir.
Framkræmdastjórn: Hrafn Pálsson, vara-
formaður, Hanna Johannessen ritari,
Ottó örn Pétursson, gjaldkeri, og Sigur-
jðn Kristjánsson. Varamenn f fram-
kvæmdastjórn: Björn Einarsson, Ragnar
Halldðrsson, Erlendur Kristjánsson, Jón
Guðbergsson og Hróbjartur Lúthersson.
Aðalstjórn: Árelfus Níelsson, Áslaug
Cassata, Axel Kvaran, Birgir lsl. Gunn-
arsson, Bjðrg Hafsteinsdóttir, Brynleifur
Steingrímsson, Bragi Sigurðsson, Edda
Gísladóttir, Friðrik Sophusson, Guð-
mundur J. Guðmundsson, Guðmundur
Árni Stefánsson, Halldór Einarsson,
Helgi Kristbjarnarson, Hermann Gunn-
arsson, Jón Bjarman, Jóhanna Sigurð-
ardóttir, Kristján Guðmundsson, Már
Egilsson, Rannveig Ingimundardóttir,
Salome Kristinsdóttir, Sigriður Heið-
berg, Sigriður Ölafsdóttir, Sigriður
Valdemarsdóttir, Sigurður Guðmunds-
son, Sjöfn Sigurbjðrnsdóttir, Unnur
Jónsdóttir og Þorsteinn Guðlaugsson,
fulltrúi dómsmálaráðherra. Varamenn i
aðalstjórn: Sigriður Hannesdóttir, Frank
Cassata, Guðrún Beck, Stella Magnús-
dóttir og Ásgrímur P. Lúðvíksson. Endur-
skoðendur eru: Carl Brandt og Baldvin
Jónsson og raraendurskoðendur: Hannes
Þ. Sigurðsson og Guðrún Halldórsdóttir. J
HVERTSEM
TILEFNIÐ ER
ÞÁ ER ÁTTHAGASALURINN SNJÖLL LAUSN
Átthagasalurlnn Hótel Sögu er sniðinn fyrir öll hugsanleg mannamót. Hann hentar jafnt stórum sem
smáum hópum, allt frá 20 tll 200 manns og starfsfólk okkar kappkostar að uppfylla hvers konar óskir
um veitingar og þjónustu.
• Smá og stór afmæli • Hádegisverðarboð • Útskriftarveislur
• Fermlngarveislur • Kaffisamsæti • Fundir
• Skírnarveislur • Kvöldverðarboð • Ráðstefnur
• Ættarrmót • Brúðkaup • Vinasamsæti
• Erfldrykkjur • Árshátíðlr • o.fl. o.fl.
Við veitum allar frekari upplýsingar um verð og þjónustu og gefum góð ráð. Hafðu samóand við
veitingadeildina í síma 29900.
Við leysum málið.
GILDIHF