Morgunblaðið - 14.07.1985, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1985
Kannski
glórulaus
ofdirfska
segir Játvarður Jökull sem er
að skrifa sögu Ólafsdalsskóla og nemendatal
skólans með tréstauti á tölvu
Játvarður Jökull Júlíusson á
Miðjanesi í Reykhólasveit er bú-
inn að fá sér tölvu — og er að
skrifa á hana. Þætti ekki tíðind-
um sæta við venjulegar aðstæð-
ur, en Játvarður Jökull situr í
hjólastól, lamaður upp að hnjám
og öxlum og hefur hvorki not af
höndum né fótum. í staðinn not-
ar hann tréstaut með gúmmíi á
endanum og stjórnar honum
með munninum einum. Stór-
kostlegt að horfa á hann, ekki
aöeins skrifa á tölvuna heldur
líka við að fletta með þessum
hætti blöðum og jafnvel taka
þau úr og setja þau götuð í
bréfamöppu. Hann var nýkom-
inn heim að Miðjanesi í Reyk-
hólasveit frá Reykjalundi, þar
sem hann hafði m.a. verið að fá
þessa rittölvu og þjálfast í að
nota hana, þegar blaðamaður
Mbl. var þar á ferð.
Játvarður kvaðst hafa fengið
tölvu í viku í fyrra, rétt til að
kynnast henni. Fyrir jólin
fékk hann svo sína eigin
greidda af Trygggingarráði.
Hún beið hans á Reykjalundi.
Til að hann gæti notað hana
þurfti að festa 4 táknlykla, því
með stautinum sínum getur hann ekki ýtt
á fleiri takka en einr. í einu. Átti að vera
hægt að lagfæra það og það reyndist rétt.
Játvarður sagði að tölvan væri hljóðlátari
og höggin ekki eins snögg eins og á raf-
magnsritvélina. Talað er um að fullfrískt
fólk finni til einhverrar hræðslu andspæn-
is því viðfangsefni að fara að vinna á tölv-
ur. En ekki þessi lamaði bóndi. Hann
gengur að því eins og hverju öðru verkefni.
Bóndinn tók að lamast
Játvarður Jökull var bóndi á Miðjanesi
og hafði búið sig undir það lífsstarf í
Hvanneyrarskóla. Hafði aldrei dottið í hug
að gera neitt annað. Var búinn að búa í
nær 20 ár þegar hann fór að kenna lömun-
ar í útlimum um 1957 og limir héldu áfram
að visna, svo að hann var orðinn öryrki frá
1958. Er þar á ferð einhvers konar tauga-
lömun. Og þessi hraustlegi bóndi hætti að
geta unnið útivið. En hann settist ekki i
aðgerðarleysi. Hann fór að skrifa. „Gat
ekki gert neitt annað," segir hann. „Mig
hafði stundum langað að skrifa í blöð um
ýmis málefni og gerði það bara,“ segir
Játvarður einfaldlega þegar blaðamaður
fer að spyrja hann um þessi viðbrögð
Hefi bara reynt að aðlagast jafnóðum, segir Játvarður Jökull, sem nú hefur flutt sig af
rafmagnsritvélinni yfir á tölvu og skrifar þannig heilar bækur með munninum.
Játvarður Jökull skrifar nafið sitt á blað með öruggum, fallegum stöfum, sem ekki allir leika
eftir þótt þeir hafi not af hendi með fímm fíngrum.
manns sem kippt er á þennan hátt út úr
lífsstarfi sínu. Síðan hefur Játvarður
skrifað greinar í safnrit, tímarit og dag-
blöð, og heilar bækur. En meðan hann var
bóndi hafði hann haft afskipti af félags-
málum, verið í ýmsum nefndum, m.a.
hreppsnefnd, og var oddviti um skeið.
„Sem betur fer kom þetta ekki allt í
einu, svo maður hefur bara reynt að aðlag-
ast því jafnóðum," segir Játvarður. í
fyrstu handskrifaði hann, en 1971 var svo
komið að hann gat ekki lengur haldið á
penna og fékk þá rafmagnsritvél.
Þreifaði sig áfram
„Ég byrjaði á Reykjalundi að þreifa
fyrir mér, en til þess að geta skrifað á
ritvélina varð ég að geta snert hana. Fann
þá upp á því að hafa þetta prik í munnin-
um,“ segir Játvarður Jökull. „Þetta átti að
vera létt, en prikið rann alltaf til svo tekið
var upp á því að hafa á endanum stammt
gúmmí. Og með þessu get ég gatað blöð og
gengið frá þeim í möppur. Sjáðu svona!“
Og Játvarður beygir sig niður og opnar
læsinguna á einni möppunni á borðinu
með munninum, tekur upp i sig tré-
GIÆSILEim
W hAAZDA 929 LTD er vandaöur,
Jríkulega útbúinn luxusbíll, svo
sannariega „einn meö öllu"
Verö frá aöe ' r • 623.000
BILABORG HF
Smiðshöföa 23 sími 812 99
Léttar
handhægar
steypu
hrærivélar
Á MJÖG
GÓÐU VERÐI
Skeljungsbúðin
S)Öumúla33
símar 81722 og 38125
JfHðrgtmÞlfiMb
Metsö/uUaðá hverjum degi!