Morgunblaðið - 14.07.1985, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JtlLl 1985
23
„Sjáðu, svona,“ segir Játvarður Jökull og opnar bréfamöppu með munninum, tekur svo
tréstautinn sinn góða í munninn og snýr fímlega við götuðu blaði og setur það upp á stautana
áður en hann lokar aftur læsingunni. Flettir með þessum hætti fimlega blöðunum til að fínna
það sem hann leitar að.
stautinn, snýr götuðu blaði fimlega við og
kemur því upp á pinnana áður en hann
festir læsinguna aftur. „Þetta er engin
kúnst," segir hann við orðlausan áhorfand-
ann, sem stynur upp: „Þú hlýtur að hafa
óendanlega þolinmæði."
„Ég hefi alltaf verið þolinmóður. Það
þýðir ekki að vera með nein læti. Svo venst
maður á að bíða eftir öðrum, taka tillit til
annarra. En þótt ég verði ekki beint óþol-
inmóður þá er mér ekki sama ef einhver
tefur mig frá verki. Ég hefi lengst af haft
þann sið að halda mig að verki. En er þetta
nú ekki orðið alltof mikið sjálfshól?" bætir
hann við og tekur pennann sinn í munn-
inn, beygir sig fram og skrifar nafnið sitt
með fallegum öruggum stöfum á blað.
Lætur fyrst á sig gleraugun sem liggja á
borðinu með því að beygja sig niður að
þeim. „Þetta er ofur einfalt.
Þetta hefur allt komið af sjálfu sér þeg-
ar þörfin hefur kallað. Kemur ekki allt í
einu. Eins og að matast. Fyrst var búið til
áhald til að festa í mataráhöldin. En það
er svo mikið mas að fá einhvern til að festa
það á að ég fór að taka matinn milliliða-
laust af diskunum. Það eina sem ég ekki
get borðað á þann hátt er þykkur grautur.
En þunnan vökva get ég sopið. Þá hefi ég
bara þægilegan bolla sem ég get drukkið
úr. Til dæmis á ég hentugan bolla geymd-
an í skáp í samkomuhúsinu. Það er
skemmtilegra að drekka úr bolla en gegn-
um rör. Því hefi ég aldréi getað vanist."
Játvarður segir mér að í fyrstu hafi
hann getað gengið um landareignina.
Hendurnar fóru fyrst, svo hann hætti að
geta klætt sig. „En ég get enn staðið upp,“
segir hann og vegur sig andartak upp úr
hjólastólnum.
Ég spyr hann hvort hann sé ósáttur við
skapara sinn vegna þessa. En hann neitar
því alveg: „Hann veit sjálfsagt hvað hann
er að gera. Trúaður? Veit ekki hvað segja
skal. Trúaður á minn hátt. En ég er ekki í
takt við þetta strangtrúarfólk."
Það er heldur fátítt á íslandi um þessar
mundir að vera svona sáttur við tilveruna,
ekki satt?
„Já, einhver er svartsýnni en ég. Það er
eitthvert ógurlegt óráð á flestu. Ef maður
fer svo að skoða einstaklingana, einn og
einn, þá er fjöldinn allur úrvalsfólk. En
það nægir ekki. Það er svo víða pottur
brotinn í stjórnarfarinu. Engin glóra í
þessari skuldasöfnun. Við erum alltaf að
sökkva dýpra og dýpra í skuldafenið. Og
hvergi er slakað á neinni kröfu. Það erum
ekki við, sem minna megum okkar, sem
erum að setja allt á hausinn."
Talið berst að Þörungaverksmiðjunni á
Reykhólum og Játvarður Jökull kveðst
aldrei hafa ljáð öðru eyra en að hún eigi
rétt á sér þótt hún hafi lent í sömu erlendu
skuldasúpunni og önnur fyrirtæki á fs-
landi vegna vaxtakjara og gengisfellingar.
Og við ræðum um annað áhugamál Ját-
varðar Jökuls, selafrumvarpið, sem hann
er ákaflega ósáttur við og hefur skrifað
ótal aðilum harðorð bréf út af — ráðherr-
um, þingflokki alþýðubandalagsins, þing-
mönnum, sýslunefndum o.fl. Svo að Ját-
varður Jökull kom mjög inn í umræðurnar
um þetta mál á alþingi: „Ætli það sé ekki
nokkuð óalgengt að svona maður eins og
ég, langt uppi í sveit, komi inn í átökin á
þingi eins og þegar þeir fóru að munn-
höggvast út af mér alþingismennirnir
Garðar Sigurðsson og Hjörleifur Gutt-
ormsson," segir Játvarður Jökull þegar
hann sýnir mér afritin af bréfunum sem
hann sendi um þetta mál. Og það er orð að
sönnu. Það er áreiðanlega einsdæmi að svo
fatlaður maður í afskekktri sveit fylgist
svo vel með og fylgi áhugamálum sínum
svo vel eftir með bréfaskriftum á æðstu
staði að rödd hans berist inn á þing lands-
ins.
Bók í haust og saga
Ólafsdalsskóla í smíðum
En slíkar bréfaskriftir eru þó ekki aðal-
viðfangsefni Játvarðar Jökuls, þegar hann
sest við ritvélina sína og nú tölvuna. Á
árinu 1979 gaf hann út bókina Umleikinn
ölduföldum, ágrip af sögu Hergilseyinga,
og ófáar æviskrár og annála hefur hann
skrifað í Árbók Barðastrandarsýslu, þar
sem hann hefur átt sæti í ritnefnd frá
1978.
Og nú er von á bók eftir hann í haust,
um Sigríði stórráðu, sem var lærð mjólk-
uriðnaðarkona á sinni tíð, starfaði í
Möðrudal á árunum 1861—74. „Sigríður
var ömmusystir mín, svo mér rennur blóð-
ið til skyldunnar," segir Játvarður Jökull.
Hann kveðst hafa verið að skrifa þessa bók
þegar Ásgeir Bjarnason í Ásgarði kom og
fékk hann til að skrifa sögu skólans í
Ólafsdal.
Játvarður hafði tekið saman útvarpser-
indi um Ólafsdalsskóla á aldarafmæli
hans 1980 og er nú að vinna að bók um
skólann. „Þá tók ég upp hjá sjálfum mér
að vinna nemendatal Ólafsdalsskóla frá
1880 til 1907 og hefi verið að því með öðru
sl. þrjú ár,“ segir Játvarður. „Ekkert er
jafn mikið komið undir velvilja fólks eins
og að hafa upp á myndum frá svona löngu
liðnum tíma. Til dæmis vantar myndir af
10 vesturförum frá Ólafsdal. Það þarf
kjark til, líklega bæði kjark og ýtni, að
kalia eftir myndum af 19du aldar mönnum
frá Ameríku.
Það er kannski glórulaus ofdirfska af
mér við þessar aðstæður að ætla mér að
skrifa sögu Torfa í ólafsdal," segir Ját-
varður Jökull eins og afsakandi. „En þeir
hættu á þetta í Búnaðarfélaginu. Eg var að
skila sögu Torfa Bjarnasonar og Ólafs-
dalsskóla, en á eftir að Ijúka nemendatal-
inu. Mig er að dreyma um að skrifa það
inn í tölvuna.
Ég á líka eftir að vinna þar nafnaskrá úr
Torfasögu,“ bætir hann við. Játvarður læt-
ur sig áreiðanlega ekki muna um það verk.
Nú þegar er hann búinn að setja inn á
tölvuna nafnaskrá fyrir bókina um Sigríði
stórráðu, 704 nöfn eða 24.536 tákn á
skerminum.
Hefur þér aldrei dottið í hug að gefast
upp, Játvarður, eftir að hafa staðið í þess-
ari baráttu í 28 ár?
„Nei, það hefur aldrei staðið til, ekki
meðan lömunin segir ekki stopp. Ég hefi
bara tekið þessu eins og það er. Aldurinn
er nú raunar farinn að færast yfir, ég er
kominn yfir sjötugt. En mér finnst ekkert
þrekvirki að láta aðra hafa fyrir sér. Ég er
árlegur gestur á Reykjalundi, hefi t.d.
vöðvabólgu í hálsinum sem hann Birgir
náði þó ekki úr mér á 10 vikum, en ég hefi
gott af dvölinni þar, bæði andlega og lík-
amlega."
Þótt Játvarður Jökull Júlíusson sé ný-
kominn úr erfiðri ferð að sunnan, er ekki
annað að heyra en að óþol sé í honum að
komast að verki — við að skrifa með tré-
stauti á tölvu efni í bók. Og ekki situr á
blaðamanni í gangfæru standi með tíu
nothæfa fingur til að skrifa með að tefja
fyrir.
Texti og myndir
Elín Pálmadóttir
Fallegar
sólstofur
Þessar dönsku sólstofur eru auöveldar í uppsetn-
ingu og ódýrar.
Verdin eru frá 34 þÚS.—59 þÚS.
med öllu
Gísli Jónsson og co.
Sundaborg 41, sími 686644.
RAFHLÖÐUVERKFÆRI
Drehfix 101
Borvél
Skrúfvél
BBC
BROWN BOVERl
★ Borvélar^
★ Skrúfvélar
★ Fylgihlutir:
★ — Töskur
★ — Slíður við belti
★ — Hleðslutæki
★ — Rafhlöður
★ — Skrúfjárnsett
★ — Tolllyklasett
Vatnagöröum 10, Rvík.
Símar 685855 og 685854
HF.