Morgunblaðið - 14.07.1985, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1985
VÍSINDI Sverrir Ólafsson
„Það stórveldanna er
fyrst kæmi upp mann-
aðri rannsóknarstöð á
tunglinu eða jafnvel
verksmiðju hefði veru-
lega sterka stöðu gagn-
vart hinu með tilliti til
yfirráða og stjórnunar
geimsins í næsta ná-
grenni við jörðina.
Stjórn Bandaríkjanna
lætur nú þegar vinna
að hönnun geim-
stöðva. “
Þannig gæti hluti framtíðar tungstöAvar litid ÚL
Nýr áhugi á mönnuðum
tunglferðum
Asíðastliðnum árum hafa
mannaöar tunglferðir ekki
verið á dagskrá geimvísinda-
áætlana stórveldanna, en nú eru
liðin tæp 15 ár frá því síðasta
Apollo-ferjan tók sig á loft frá
yfirborði tunglsins og flaug til
baka til jarðarinnar. Síðan hefur
engin mannleg vera gengið um
grundir tunglsins. Áhafnir Ap-
ollo-ferjanna komu fyrir ýmsum
vísindatækjum á tunglinu, m.a.
til mælinga á sólarvindum og
tunglskjálftum. Einnig tóku þær
tunglgrjót með sér til jarðarinn-
ar, en athuganir á því hafa gefið
mikilvægar upplýsingar um efni
þau er koma fyrir á yfirborði
tunglsins. Mannaðar tunglferðir
eru ákaflega kostnaðarsamar og
„malarflutningur" þessi eflaust
sá dýrasti sem um getur í sög-
unni.
Apollo-áætlun Bandaríkjanna
lauk í desember 1972, en eftir
það leituðu Bandaríkjamenn eft-
ir árangursríkari og ódýrari
leiðum til aukinnar þekkingar á
geimnum. Frá lokum apollo-
áætlunarinnar hafa þeir lagt
höfuðáherslu á ómannaðar
geimferðir, sem hafa margvís-
lega kosti fram yfir þær mönn-
uðu. Geimskipin eru smærri og
geta ferðast og starfað mánuð-
um og jafnvel árum saman. Fjöl-
breytni tilrauna er hinsvegar
takmarkaðri, þar sem nauðsyn-
legt er að skipuleggja þær langt
fram í tímann og möguleikarnir
til að bregðast við óvæntum upp-
ákomum ekki þeir sömu og ef um
mannaðar ferðir er að ræða.
Kostnaður við mannlausar geim-
ferðir er einnig langtum minni,
þar sem ekki er nauðsynleg upp-
setning hinna flóknu tækja og
skilyrða, sem nauðsynleg eru til
að gera dvöl geimfaranna líf-
vænlega.
Á allra síðustu árum hefur
áhugi geimvísindamanna á
mönnuðum ferðum til tunglsins
hins vegar aukist á ný. Tilgang-
ur áætlaðra framtíðarferða yrði
ekki sá að stinga niður fánum
eða safna grjóti, heldur fram-
kvæma tilraunir af öllum hugs-
anlegum gerðum og það viðkom-
andi fleiri þáttum en þeim er
varða einungis yfirborð tungls-
ins.
Nýlega settu bandarískir
geimvísindamenn fram hug-
myndir um uppsetningu mann-
aðrar framtíðarstöðvar á tungl-
inu, sem framleitt gæti eigin
orku og matvæli ásamt öðrum
frumnauðsynjum og myndað þvi
sjálfstæða einingu. Það er von
vísindamannanna að slík stöð
geti orðið að veruleika innan
næstu 25 ára. Kostnaður við
uppsetningu hennar yrði gífur-
legur, en góður árangur geim-
skutluáætlunarinnar svo og lof-
orð Bandaríkjaforseta um að
byggja geimstöð á síðasta áratug
þessarar aldar hafa gefið vonum
visindamannanna byr undir
báða vængi. Hvort tveggja er
forsenda fyrir byggingu og
árangursríkari starfrækslu
tunglstöðvar. Helsta fyrirstaða
áætlunarinnar er hinn mikli
kostnaður við að koma efni frá
jörðinni til tunglsins. Sam-
kvæmt áætlunum þyrfti geim-
skutluflotinn að flytja 560 tonn
af efni á ári til lágbrautar
geimstöðvar í u.þ.b. 200 kíló-
metra fjarlægð frá yfirborði
jarðar og það í tíu ár, en svo
langan tíma tæki að byggja
tunglstöðina. Kostnaður við
þennan flutning er nálægt því að
vera 2000 dollarar fyrir hvert
kíló! Frá geimstöðinni til tungls-
ins sjálfs er áætlað að flutning-
urinn fari fram með sérstökum
geimskipum. Um það bil 70 pró-
sent af þessum þunga eru elds-
neyti í formi fljótandi súrefnis
fyrir geimskipin og starfsemi á
tunglinu sjálfu. Hagkvæmara
væri því að framleiða eldsneyti
þetta á tunglinu, en sú orka sem
þarf til að flytja eina þyngdar-
einingu frá yfirborði tunglsins
og út í geiminn er ekki nema
u.þ.b. fimm prósent af þeirri
orku sem þarf til hins sama ef
lagt er af stað frá yfirborði jarð-
arinnar. Möguleikar til slíkrar
framleiðslu eru góðir og flestir
„tunglspekingar" eru sammála
um það að höfuðþáttur hagnýtr-
ar starfsemi á tunglinu verði
framleiðsla súrefnis. Skoðun
sína byggja þeir á þeirri stað-
reynd að efnið „ilmenid" (járn-
títan þríoxíð, FeTiOs) er að finna
í yfirborði tunglsins. Ef „ilmen-
ið“ er hitað með vetni upp í
900°C myndast hreint súrefni í
nokkrum mæli. Aukaefni þessar-
ar framleiðslu eru járn og títan
er nota má sem byggingarefni.
Hugsanlegir erfiðleikar í þessu
sambandi eru skortur vetnis á
tunglinu. Vindar þeir er iðulega
Yfírborð tunglsins séó frá stjórnstöð Apollo II. Framundan í u.þ.b. 400
þús. km fjarlægð sést jörðin.
geisa á tunglinu blása þó örlitlu
magni af vetni inn í hrjúft yfir-
borð smákorna tunglefnisins.
Sumir vísindamenn eru bjart-
sýnir og álíta að vinna megi
nægjanlegt magn vetnis úr vel
saman þjöppuðu tunglefni. Ef
bjartsýni þessi er á rökum reist
eru forsendur fyrir því að
tunglstöð geti framleitt elds-
neyti og vatn til eigin nota.
Vatnsgróður ýmiskonar gæti
verið meginuppistaða næringar
þeirra er í stöðinni byggju. Sól-
arljós er ríkulega fyrir hendi, en
það má nota til framleiðslu á
hita og raforku. Ef umsvif og
orkuþörf stöðvarinnar yrðu mik-
il er hugsanlegt að byggja lítil
kjarnorkuver.
En hvað veldur hinum nýja
áhuga á mönnuðum tunglferð-
um? Vissulega ráða pólitískir
eða jafnvel efnahagslegir þættir
nokkru, en það er fullkomlega
raunsætt að gera ráð fyrir því að
í framtíðinni geti einhvers konar
framleiðsla farið fram á tungl-
inu. Það stórveldanna er fyrst
kæmi upp mannaðri rannsókn-
arstöð á tunglinu eða jafnvel
verksmiðju hefði verulega sterka
stöðu gagnvart hinu með tilliti
til yfirráða og stjórnunar geims-
ins í næsta nágrenni við jörðina.
Stjórn Bandaríkjanna lætur nú
þegar vinna að hönnun geim-
stöðva.
Áhugamenn um tunglstöðvar
vita að nú er rétti tíminn til að
sækja mál sitt, þvi ekki er ólík-
legt að þeir njóti góðs af geim-
stöðvaáætluninni.
Vísindalega séð er tunglið enn
mjög áhugavert viðfangsefni.
Apollo-farar gerðu lítið meira en
kroppa í yfirborð þess og taka
með sér nokkur sýni til jarðar.
Sú hlið tunglsins er vísar frá
jörðu er tiltölulega lítið rann-
sökuð. Eins er upphaf tunglsins
óráðin gáta og enn er ekkert vit-
að um kjarna þess eða innri upp-
byggingu. Vísindamenn langar
einnig að fá svar við spurning-
unni hvort tunglið hefur ein-
hvern tima búið yfir eigin seg-
ulsviði, en ýmis sýni sem tekin
hafa verið á tunglinu eru lítils-
háttar segulmögnuð. Búast má
við að svör við þessum spurning-
um fáist fljótlega eftir að vís-
indastöð verður komið upp á
tunglinu.
Lítið í gluggana um helgina
Barokksófasett + 2 aukastólar + sófaborö meö einlitu plussáklæöi.
Verö aöeins kr. 55.800.
Já allt þetta á kr. 53.000 staögreitt.
Einnig mikiö úrval af leðursófasettum.
VAlHÚSGðCN
S: 82275 og 685375.
Laxveidileyfi
Til sölu eru dagar á
vatnasvæöi Stangaveiðifélags
ísfirðinga.
Uppl. gefur Gunnlaugur Einarsson
í síma 94-3077 og 3413.
SAGA HÓTEL
Kaupmannahöfn, Colbjörnaenagade 20,
DK-1852 Copenhagen, aími (01)24-99-67.
Staðaett 200 m tri jirnbrautaratödinni, 300 m tri Tívolí og
700 m tri Riðhúatorginu.
íslendingar fá 10% afslátt
Eins og tveggja manna herbergi meö og án baós. Morgunmat-
ur innifalinn i verói. Litasjónvarp og bar.
Óakum öllum íalendingum gleðilega aumara.
Bredvig-fjölskyldan
V J