Morgunblaðið - 14.07.1985, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1985
35
Loksins, loksins eru Islend-
ingar orðnir víkingar. Vík-
ingarnir eru komnir, er til-
kynnt í veglegri auglýsingu í
sjónvarpinu. Danskir víkingar
sem gera strandhögg á Laug-
arvatni. En við erum fullvissuð
um að ekki þurfi menn að
hræðast því þar verða okkar
eigin íslensku víkingar - vænt-
anlega líka með horn. Nú, og
til útlanda erum við að senda
sveit víkinga, að því er sagði í
þriðjudagsblaðinu: n Bach að
hætti víkinga", segja þeir suð-
ur í Róm um komu Pólýfón-
kórs með kammersveitarliði.
Og á sömu síðu segir frá för
íslensks fulltrúa á fegurðar-
samkeppni á Miamiströnd í
Vesturheimi, klædd búningi er
„minna skal á klæðnað á vík-
ingaöld". Mynd fylgir til skýr-
ingar. Rennur upp ljós. Þær
hafa náttúrulega setið og beðið
eftir víkingunum sínum í leð-
urbíkíni og með bleikan
fjaðradúsk á höfði fornkon-
urnar. Eiginlega hefur manni í
fáfræði sinni frekar dottið í
hug kona hellisbúans við að
sjá svo fáklædda konu með
skinnbleðil. En það er líklega
miskilningur. Búningurinn var
borinn þar sem minna skyldi á
þjóð vora og land og hér
bjuggu aldrei frummenn.
Raunar ekki víkingar heldur,
en við erum nú að koma okkur
þeim upp þó seint sé.
Raunar ekki seinna vænna.
Fyrir það hve seint land-
námsmenn fundu þetta land,
tóku ekki að setjast hér að fyrr
en níunda öldin var nær öll,
misstum við að mestu af vík-
ingatímanum, sem var víst á 9.
öld (sá fyrri) og 10. öld ( sá
seinni). Þá voru Danir að
flandra í víking til Englands,
Frakklands, Normandí og upp
í Loiredalinn, Norðmenn að
fera strandhögg í Skotlandi, á
rlandi og hinum eyjunum
bresku auk Normandís og Sví-
ar héldu í austurátt til Rúss-
lands og jafnvel suður til Byz-
ans. Gerðu ekki víkingarnir
annars friðarsamningana við
Frakka árið 872, áður en Ing-
ólfur kom til Islands? Eitthvað
héldu menn þessum gaura-
gangi þó áfram í svosem eina
öld, teygðist úr því allt fram til
1013 þegar Sveinn tjúguskegg-
ur lagði undir sig England.
☆
Okkar menn tóku að setjast
að á þessari eyju norður í höf-
um eftir 874 og gerðust bú-
andkarlar, komu sér upp al-
þingi og fóru svo seinna að
skrifa bækur. Svoleiðis höfum
við a.m.k. lengstaf viljað hafa
það. Talið okkur það til tekna.
Vitanlega dreymdi unga
drengi á upphafsárunum hér
fjarri strandhöggum um að fá
líka að sigla fögru fleyi og fara
á brott með víkingum, standa í
stafni og stýra dýrum knerri.
Og einum og einum tókst að
komast í lið erlendra höfðingja
og höggva mann og annan á
fjarlægri ströndu. En að halda
í víking á eigin spýtur frá ís-
landi var þrautin þyngri, enda
fljótlega engin skip til þess.
Satt að segja hefur mér löng-
um fundist það svona fremur
geðugt en hitt að okkar menn
skyldu missa af þessháttar
brambolti tímans sem víkinga-
öld. Það á kannski eitthvað
skylt við „súru vínberin"?
I rauninni er víst ekki
seinna vænna fyrir Islendinga
að fara að gerast víkingar, nú
1000 árum síðar. Erum við
ekki þegar orðnir „country-
syngjandi" kúrekar norður í
landi? Og enginn hefur verið
að rekast í þvi hvort forfeður
okkar hafi nokkurn tíma rekið
nautpening um slétturnar við
Hópið. Má bara innflytja það.
☆
Danir, sem voru á sínum
tíma ekta víkingar er vöktu
hroll á ókunnum ströndum,
hafa löngum haldið við sinni
víkingaímynd. Kynntu hana
m.a. á heimssýningunni í
Kanada — enda gott auglýs-
ingabragð til sölu á danskri
skinku og osti í Ameríku. Piet
Hein orti þá fyrir þá grúkkur á
veggi sýningarskálans, þar
sem einni lauk eitthvað á
þessa leið:
Now we have the viking-age
— behind us.
Úr því að ekki tókst að rifja
upp nema hluta af víkingavísu
Piets Hein á alþjóðavettvangi
þá má láta hér fylgja aðra eft-
ir sama höfund, sem væntan-
lega er ætluð til uppörvunar
nútímavíkingum. Hann nefnir
hana á ensku (er ekki öll þjóð-
in skítpligtug til að læra ensku
í skyldunáminu?):
En það geta íslendingar vit-
anlega ekki gert — því þeir
eiga enga víkingaöld að baki.
Sakir skipaleysis gátum við
víst engin strandhögg gert á
fjarlægum stöðum. Nú má
bæta fyrir það, gera vík-
ingastrandhögg fyrir íslend-
inga á fjarlægum stöðum með
söng eða í víkingabíkíní á palli
eða með því að stunda vík-
ingaleikfimi á Laugavatni og
bíta í skjaldarrendur þar á
leikpalli. Þetta er semsagt allt
miklu auðveldara nú.
A Maxim for Vikings:
Here is a fact
that should help you fight
a bit longer:
Things that dont actu-
ally kill you outright
make you stronger.
ÁADKOMA SÉR UPPÞAKIYFIR HÖFUDID
ÁN ÞESS AD REISA
SÉR HURDARÁS
UM ÖXL?
Útvegsbankinn leysir ekki allan vanda
húsbyggjenda, EN getur þó komið þeim
til hjólþar.
Q Róðgjafinn í Útvegsbankanum getur
reiknað út mónaðarlega greiðslu-
byrði hinna ýmsu valkosta sem hús-
byggjanda eða kaupanda bjóðast.
Q Róðgjafinn getur kynnt þér hvernig
Plúslón með Ábót léttir undir greiðslu-
þungann.
Q Endurgreiðslutfmi getur orðið allt að
fjórum órum, jafnvel sex.
0 Frávik frá áœtluðum sparnaði þurfa
ekki að skerða lánsréttinn.
Við erum greinilega þín megin f barátt-
unni - Ekki sattT?
PLÚSLÁN
MEÐ ÁBÓT
ÚTVEGSBANKINN
1 EINN BAHKI • ÖLL WÓNUSTA