Morgunblaðið - 14.07.1985, Síða 47
MORGUNBLA ÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚL11985
47
JOHANNES HELGI/Bergen 4
Málþing í
Bergen
ÞAÐ má einu gilda hvar maður
er á ferð í gamla bænum í Berg-
en. tslensk saga og norsk, dönsk
og þýsk, tvinnast þar saman við
nálega hvert húshorn.
Norskir konungar voru ís-
lenskum búandkörlum manna
hugleiknastir. Eru fornbók-
menntirnar ljósasti vottur þess.
Heimskringla ekki undanskilin.
Daglegt amstur almúga þótti
ekki í frásögur færandi, enda
hvunndagurinn norski víðast
hvar líkur hinum íslenska. Jafn-
vel afglapar i afdölum áttu þá
ósk heitasta að þeim auðnaðist
að líta konung augum áður en
ævi þeirra yrði öll. Skemmtileg-
asta dæmi þess er að finna í
Hreiðars þætti.
Hreiðar, maður ekki sjálf-
bjarga sakir vitsmunaskorts og
þó ekki alls varnað, er kominn ti
Björgvinjar I för með Þórði
bróður sínum, margsigldum
manni sem handgenginn er
Magnúsi konungi. Spyr nú kon-
ungur að Hreiðar er í för með
Þórði og að hann muni ekki vera
sem fólk er flest, leikur nú for-
vitni á að sjá afdalamanninn á
málþingi því sem blásið hefur
verið til við Voginn í Bergen.
Sjá vilda ek hann, segir kon-
ungr.
Og sendir nú konungr eftir
honum. Og er Hreiðarr heyrði
sagt að konungr vildi hitta hann,
þá gengr hann uppstert mjök og
nær á hvat, sem fyrir var, og var
hann því óvanr, að konungr
hefði beiðzt fundar hans. Hann
var á þá leið búinn, at hann var I
ökulbrókum (brækur teknar
saman um ökkla) og hafði feld
grán yfir sér. Ok er hann kemr
fyrir konung, þá fellr hann á kné
fyrir konung og kveðr hann vel.
Konungr svaraði honum hlæj-
andi og mælti: Ef þú átt við mik
erendi, þá mæl þú skjótt slíkt, er
þú vill. Aðrir eigu enn nauðsyn
að tala við mik síðan.
Hreiðarr segir: Mitt erendi
þykkir mér skyldast. Ek vilda
sjá þik, konungr.
Þykkir þér nú vel þá, segir
konungr, er þú sér mik?
Vel víst, segir Hreiðarr, en
eigi þykkjumst ek enn gerla sjá
þik.
Hvernig skulum við nú þá?
segir konungr. Vildir þú, at ek
stæða upp?
Hreiðarr svarar: Það vilda ek.
Konungr mælti, er hann var
upp staðinn: Nú muntu þykkjast
gerla sjá mik mega?
Eigi enn til gerla, segir Hreið-
arr, og er nú þó nær hófi.
Viltu þá, segir konungr, að ek
leggja af mér skikkjuna?
Þat vilda ek víst, segir Hreið-
arr.
Konungr mælti: Við skulum
þar þó nökkut innast til áðr um
þat málit. Þér eruð hugkvæmir
margir, íslendingar, ok veit ek
eigi, nema þú virðir þetta til
ginningar. Nú vil ek það undan
skilja.
Hreiðarr segir: Engi er til þess
færr, konungr, at ginna þik eða
ljúga at þér.
Konungr leggur nú af sér
skikkjuna og mælti: Hyggðu nú
at mér svá vandliga sem þik tíð-
ir.
Svá skal vera, segir Hreiðarr.
Hann gengr í hring um kon-
unginn ok mælti oft it sama
fyrir munni sér: Allvel, allvel,
segir hann.
Konungr mælti: Hefir þú nú
sét mik sem þú vilt?
At vísu, segir hann.
Konungr spurði: Hversu líst
þér á mik þá?
Hreiðarr svarar: Ekki hefur
Þórðr, bróðir minn, ofsögum frá
þér sagt, þat er vel er.
Konungr mælti: Máttu nökkut
at finna um þat er þú sér nú, ok
þat er eigi sé í alþýðu viti?
Ekki vil ek at finna, segir
hann, og ekki má ek þegar, því at
þannig myndi hverr sik kjósa
sem þú ert, þó at sjálfr mætti
ráða.
Mikinn tekr þú af, segir kon-
ungr.
Hreiðarr svarar: Háttung er
pðrum á þá, segir hann, at lof-
gjarnliga sé við mælt, ef þú átt
þetta eigi at sönnu, sem mér lízt
á þik ok ek sagða áðan.
Konungr mælti: Finn til nökk-
ut, þó að smátt sé.
Það er helzt þá, herra, segir
hann, at auga þitt annað er litlu
því ofar en annat.
O.sv.frv.
II
Þér eruð hugkvæmir margir,
Islendingar, sagði Magnús kun-
ukr (eins og á fornum peningum
stendur, hinu bleika og brennda
silfri). Hugkvæmnin er þó
eitthvað minna metin annó 1985
en forðum. En íslenóingar hafa
löngum verið vel séðir í Noregi. í
Lögmannsannál 1407 segir svo:
„Dauði Erlends bónda Filipus-
sonar úr Losnu, er merkiligastr
maðr hefir verit í öllu Noregi af
bændum fyrir flestra hluta sak-
ir, því at hann vildi aldrei ridd-
ari verða, þótt kóngarnir sjálfir
byðu honum. Trúði hann og betr
íslendingum en öðrum norræn-
um mönnum ok hafði þá jafnan I
sinni þjónustu."
En nútíð og fortíð. Tveir
glampar. Sama ljós. Sama þil.
Héðan sem ég sit þessa stundina
í gamla bænum er skammt til
Nýkirkjunnar sem um var ort í
fyrra stríði og Kristinn Reyr
snaraði í samvinnu við undirrit-
aðan:
Já, Lina var min kærasta og Ijúfust vina i senn,
sú fegursta frá Torgi aft Tollbúö, góðir menn.
Ó, Lína með sín augu; ó, Lina með sitt hár.
Ef Linu þína áttu, þér skilst mitt hjartasár.
En sjá, þau mást og hverfa í hin sælu
bernskuspor.
Einn sunnudag við fermdumst í Nýkirkjunni
um vor.
Ó, engin var sem Lina, svo unaðsfríð f kór
og leynibros frá henni um hjartað eldi fór.
Svo liðu ár við strit og baks, en Iftt mér
gekk f vil
og loks var engin sála, sem skrifaði mér til.
Og tundraðan að Bergensborg mig bar sem
uppá sker
en brúður annars þá hún var — og gæfan
horfin mér.
Því: Kvatt ég hef í hinsta sinni Bergen.
III
Hver sá sem rennir augum yf-
ir kort af Noregi og bregður á
það mælistiku sér í hendi sér
forsendurnar fyrir þeim sæg
smákonunga sem þar ríkti og um
leið ástæðuna fyrir mállýskun-
um sem í landinu hafa þróast á
umliðnum öldum. Það er ekki
einasta að lengd Noregs frá
nyrstu mörkum til syðstu jafn-
gildi vegalengdinni frá syðsta
odda Noregs og lengst niður á
ftalíuskaga; vesturströnd Nor-
egs er svo torfarin sem framast
má verða. Einn mótstaður, al-
þingi, kaupstefna og löggjafar-
samkoma í senn, sem kynni að
hafa getað hamlað gegn mál-
lýskunum, hefur af landfræði-
legum ástæðum ekki komið til
greina í Noregi, og leikum manni
virðist af sömu ástæðum, að
bókmenntir I líkingu við fslend-
ingasögur, þótt skrifaðar hefðu
verið, hefðu litlu þar um breytt,
nema þá kannski helst um mið-
bik landsins. Um samgang milli
byggðarlaga, umfram ránsferðir
víkinga, hefur ekki verið að ræða
svo teljandi sé öldum saman.
Ferðir milli byggðarlaga vestan-
megin hafa ekki verið á færi
annarra en sæfara sem þaul-
kunnugir hafa verið staðháttum
frá blautu barnsbeini og volkinu
vanir, og víst var víkingunum að
ýmsu leyti vorkunn. Þegar fólks-
fjölgun i Noregi náði hámarki
hverju sinni þá varð mannfellir
og vesturströndin varð af aug-
Ijósum ástæðum verst úti og um
Mynd/Jóhannes Helgi
björg ekki að ræða nema með
hernaði vestur um haf og suður
með löndum.
Sveitarfélögin hafa því sýni-
lega frá öndverðu þurft að vera
sjálfum sér nóg i andlegum sem
veraldlegum efnum, enda standa
ræturnar svo djúpt enn þann
dag í dag að erfitt getur verið
fyrir mann að öðlast þegnrétt í
öðru héraði en því sem hann er
borinn og barnfæddur, jafnvel
þótt hann kappkosti að tileinka
sér siði og mállýsku hins nýja
heimkynnis. Sú saga er sögð að
mætur maður frá vesturströnd-
inni hafi kvænst stúlku frá Þela-
mörk og sett sig niður I heim-
kynnum elskunnar; hann lagði
sig rækilega eftir Þelamerkur-
mállýskunni að ekki varð annað
greint en að hann væri Þela-
merkurbúi í húð og hár. 10 árum
síðar var hann einu sinni sem
oftar í kaupstaðarferð í Osló, en
að þessu sinni varð Þela-
merkurbúi vitni að því að vest-
urstrandarmaöur gat þess af
einhverju tilefni að hann kæmi
frá Þelamörk. Vinur vor var ekki
fyrr kominn heim til Þelamerk-
ur en kunningi hans braut uppá
alvarlegu máli, nefnilega þessu:
Kunninginn: Þú sagðir í Osló
að þú kæmir frá Þelamörk.
Vesturstrandarmaður: Það
sagði ég ekki. Ég sagðist hafa
komið með lestinni frá Þela-
mörk.
Kunninginn: En þú áttir þá að
láta þess getið að þú værir ekki
fæddur þar.
Heimildin Julian Kramer: Norek identitet — et
produkl it underutviklinp o*
sUmmetilhöriehet: Löpnannonnnáil;
fsiendingaoötpir f útgáfti Cuöna
Jónssonar, Hrappoeyrarprent 1*47.
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
húsnæöi i boöi
Iðnaðarhúsnæði
til leigu. Tveir hlutar, 220 fm hvor, á jaröhæö
viö Krókháls.
Uppl. í síma 671010.
Háskólanemar
Vantar ykkur húsnæöi. Ég bý í grennd viö
Háskólann og þarf pössun fyrir 7 ára dreng
og aðstoð á heimili. Frekari uppl. í síma
91-15366 e. kl. I8.00.
Iðnaðar- og
verslunarhúsnæði
til leigu viö Skemmuveg. 240 fm jaröhæö.
Stórar afgreiðsludyr.
Upplýsingar í síma 671010.
Iðnaðarhúsnæði
lönaður? lager? heildverslun
til leigu viö Vesturvör í Kóp. 520 fm (2X260).
A neöri hæö er lofth. 4.3 m og hurðarh. 3.5 m.
Upplýsingar í sima 44072 og 43250.
28. þing S.U.S.
verður haldiö á Akureyri 30. ágúst — 1. september nk. Féiöfl ungra
sjálfstæöismanna sendi tilnefningar um þlngfulltrúa fyrir 7. ágúst nk.
Hafiö samband viö skrifstofu sambandsins varöandi undirbúning.
Stlóm S.U.S.
Stjórnmálanefnd SUS
Stjórnmálanefnd SUS heldur sinn fyrsta fund nk. miövikudag, 17. júlí,
kl. 12.00 i Valhöll viö Háaleitisbraut. Rætt veröur um undirbúning
stjórnmálaályktunar fyrir næsta SUS-þing sem haldiö veröur á Akur-
eyri dagana 30. ágúst til 1. sept. nk.
öllum ungum sjáltstæöismönnum er velkomiö aö taka þátt í störfum
nefndarinnar.
Formaöur nefndarlnnar er Sigurbjöm Magnússon, form. Heimdallar.
sumarferð sjálfstæðis-
félaganna í Noröurlands-
kjördæmi eystra
Farin veröur sumarferö i Asbyrgi dagana 19.-21. júlf nk. Qist í tjöldum
eöa i svetnpokaplássi i Skúlagaröi. Lagt veröur af staö á föstudags-
kvöldi. fyrri hluta laugardags veröur fariö i Hljóöakletta og Hólmatung-
ur en seinni partlnn veröur grlllaö sameiginlega i Asbyrgl og margt
fleira sér til gamans gert. Lagt af staö heim um hádegi á sunnudag.
Fariö veröur meö rútum ef næg þátttaka fæst annars meö einkabilum.
Tilkynningar um þátttöku og nánari upplýsingar eru hjá Margréti í sima
25957 eftir kl. 19.00.