Morgunblaðið - 14.07.1985, Page 50
50
MÓfi&UNBLAftfP, SCTTNUDAGUR 14. JÚLÍ 1985
SVIPMYND Á SUNNUDEGI/Eduard Shevardnadze
hevardnadze er einn
af yngstu forystu-
mönnum Sovétríkj-
anna þótt hann sé 57
ára gamall. Ásamt
Geidar Aliyev og
Dinmukhamed
Kunayev er hann
fulltrúi þeirra þjóða, sem enn eru í
minnihluta í Sovétríkjunum, en
verða í meirihluta eftir nokkur ár.
Aðeins tveir aðrir utanríkisráð-
herrar hafa ekki verið Rússar:
Trotsky og Litvinov, sem báðir
voru Gyðingar.
Þar sem Shevardnadze hefur
haft litla sem enga reynslu af utan-
ríkismálum mun Gorbachev hafa
mikil áhrif á mótun utanrikisstefn-
unnar, en líklega verður leitað ráða
hja Gromyko, hinum gamalreynda
fyrirrennara Shevardnadzes, sem
hefur verið skipaður forseti.
Shevardnadze er níundi utanrik-
isráðherra Sovétríkjanna og annar
utanrikisráðherra iandsins í þrjá
áratugi. Allan þann tíma hefur
stjórn utanríkismála verið í hönd-
um Gromykos, sem gekk í utanrik-
isþjónustuna 1939 og varð utanrík-
isráðherra 1957.
KOM Á ÓVART
Skipun Shevardnadzes kom á
óvart vegna takmarkaðrar reynslu
„Það eina sem hann hefur fram að
færa í utanríkismálum eru grúsisk-
ir persónutöfrar," sagði annar.
Fyrir um 25 árum var Shev-
ardnadze formaður svokallaðrar
Einingarnefndar Afríku og Asíu.
Hann hefur einnig verið í forsæti á
ráðstefnum með fulltrúum frá
löndum þriðja heimsins i Tiflisi,
höfuðborg Grúsíu.
Hann hefur farið til Búlgaríu,
Tékkóslóvakíu og Ungverjalands,
en sjaldan út fyrir sovézku valda-
blokkina. Hann var formaður
nefndar, sem fór til Alsírs í fyrra,
og hefur farið til Túnis, Indlands
og Brazilíu. Hann hefur einnig far-
ið í stuttar heimsóknir með sovézk-
um sendinefndum til Portúgals og
Austurríkis. Löndin sem hann hef-
ur heimsótt eru því aðeins níu tals-
ins.
LÍKUR FERILL
Shevardnadze er kennari og
Eduard Shevardnadza
hans í utanríkismálum. Vestrænir
„Kremlarfræðingar“ hefðu líklega
bent á Vitali Vorotnikov, stjórn-
málaráðsfulltrúa sem hefur verið
sendiherra á Kúbu, ef þeir hefðu
verið spurðir hvern þeir teldu lík-
legasta eftirmann Gromykos. Fá-
um hefði dottið Shevardnadze í
hug.
Um Shevardnadze er sagt að
hann sé „hugmyndaríkur", „hressi-
legur“ og „kraftmikill" og bæti
þannig upp reynsluleysið. Reynslu-
leysi hefur ekki komið í veg fyrir að
menn hafí verið skipaðir utanrík-
isráðherrar í Sovétríkjunum —
Gromyko var fyrsti sérhæfði mað-
urinn, sem gegndi því starfi.
Til greina kom að hækka Shev-
ardnadze í tign þegar Gorbachev
varð aðalritari kommúnistaflokks-
ins í marz. Hann hafði verið auka-
fulltrúi (þ.e. fulltrúi án atkvæðis-
réttar) í framkvæmdastjórninni,
eða stjórnmálaráðinu, síðan 1978.
En gengið var fram hjá honum og í
staðinn voru þrír bandamenn
Gorbachevs, Viktor Chebrikov, yf-
irmaður KGB, og tveir miðstjórn-
arritarar, Nikolai Ryxhkov og Yeg-
or Ligachev, skipaðir aðalfulltrúar
í stjórnmálaráðinu í apríl.
Fréttin um skipun Shevardnadze
kom svo á óvart að sumir erlendir
fulltrúar hristu höfuðið þegar þeir
heyrðu Tikhonov forsætisráðherra
tilnefna hann á fundi Æðsta ráðs-
ins.
„Þeir hljóta að vera snarruglað-
ir,“ tautaði vestrænn sendiherra.
sagnfræðingur að mennt og hefur
eingöngu fengizt við störf í þágu
flokksins á landsbyggðinni. Hann
hefur svipaðan feril að baki og
Gorbachev og uppruni þeirra er
keimlíkur. Þeir tilheyra einnig
„skóla þróttmikilla og metnaðar-
gjarnra ungra manna", sem þrosk-
uðust á árunum eftir fráfall Stal-
íns.
Eduard Shevardnadze er fæddur
25. janúar 1928 í þorpinu Mamat
vestur af Tiflisi, milli Kákasus-
fjalla og Svartahafs, og er af ætt
valdamikilla stjórnmálamanna í
Grúsíu, þar sem Stalín er fæddur
og enn dýrkaður. Fyrsti verndari
hans var bróðir hans, Ippokrat,
sem var valdamikill deildarstjóri í
grúsísku miðstjórninni þar til hann
lézt fyrir sjö árum.
Shevardnadze starfaði í „ung-
herjasamtökum" kommúnista-
flokksins og var í tvö ár leiðbein-
andi í þeim áður en hann varð fé-
lagi í kommúnistaflokknum 1948.
Líkt og margir af hans kynslóð var
hann tekinn í lögregluna, MVD, og
náði hershöfðingjatign. Sennilega
er hann eini utanríkisráðherra
heims sem hefur verið lögreglu-
maður.
Árið 1958 varð hann aðalfulltrúi
í grúsísku miðstjórninni. Síðan var
hann innanrikisráðherra Grúsíu á
árunum 1965 til 1972.
Á þessum árum gegndi Gorbach-
ev svipuðum störfum í Stavropol í
norðurjaðri Kákasus. Vestrænir
sérfræðingar telja líklegt að þeir
Eduard Shevardnadze, eftirmaður
Andrei Gromykos í embætti ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna og
áður leiðtogi kommúnistaflokksins í
Grúsíu (Georgíu), þykir vel máli farinn
og er steyptur í sama mót og Mikhail
Gorbachev, sem héðan í frá
mun móta sovézka utanríkisstefnu.
Hann er sagður yfirlætislaus og er ekki
ýkja vel kunnur í Sovétríkjunum að öðru
leyti en því að frá því hefur verið skýrt
að hann hafi getið sér gott orð fyrir
baráttu gegn spillingu í Grúsíu og unnið
brautryðjandastarf með tilraunum í
efnahagsmálum. Ljóst þykir að hann
styðji baráttu hins nýja leiðtoga í Kreml
fyrir auknum aga og takmörkuðum um-
bótum.
bæta efnahagsástandið með tals-
verðum árangri. Hann stóð fyrir
„efnahagstilraunum," sem byggð-
ust á frumkvæði og valddreifingu,
og þær vöktu athygli í Sovétríkjun-
um. Eitt af því sem hann reyndi
var að koma á samvinnu landbún-
aðar og iðnaðar.
Flestar þær „efnahagstilraunir",
sem Gorbachev hefur lagt mikið
upp úr og mikið veður hefur verið
gert út af, voru fyrst gerðar í
Grúsíu.
í tvö ár hefur Shevardnadze
reynt að virkja áhuga Grúsíu-
manna þeirra á sjálfstæðum at-
vinnurekstri með því að leyfa hálf-
gerðan einkarekstur veitingahúsa
og annarra fyrirtækja.
Bændur í Grúsíu hafa hagnazt á
því að senda tómata og gúrkur til
Moskvu og selja vöruna fyrir allt
að 400 kr. pundið á köldustu vetr-
armánuðunum. Oft hafa vörubílar
með slíkan farm horfið á leiðinni
og varan hefur komizt í hendur
maöuriun
frá Grilsíu
Steyptur í sama mót og Gorbachev
hafi þekkzt og líklega hitzt á fund-
um um málefni þessa landshluta.
Ef það er rétt á samband þeirra sér
25 ára sögu.
Shevardnadze barst lítið á í
Grúsíu öfugt við aðra leiðtoga
flokksins og sagt var að Nanuli
kona hans, sem er blaðamaður,
hefði farið með strætisvagni í vinn-
una. Hann þótti fær og ákveðinn
embættismaður, en var nokkuð
umdeildur.
Barátta hans gegn spillingu, sem
hófst þegar hann var innanríkis-
ráðherra Grúsíu, varð fræg í Sovét-
ríkjunum og slík frægð er nauðsyn-
leg sovézkum flokksstarfsmönnum,
sem vilja ná langt. Hann braut
einnig á bak aftur öll merki grús-
ískrar aðskilnaðarstefnu, en reyndi
að stuðla að varðveizlu grúsískra
séreinkenna.
Grúsíumenn eru alræmdir fyrir
spillingu í Sovétríkjunum. Þeir
hafa oft verið ráðamönnum í
Moskvu erfiðir, því að þeir eru
sjálfstæðir og vilja fara eigin leið-
ir. Þeir eru framtakssamir og dug-
legir að vinna sér inn aukapeninga.
MÚTUHNEYKSLI
Shevardnadze gegndi mikilvægu
hlutverki í rannsókn mesta mútu-
hneykslis í sögu lýðveldisins. Höf-
uðpaurinn var Otari Lazishvili,
vildarvinur fyrrverandi saksókn-
ara, sem notaði sambönd sín til að
hilma yfir ólögleg viðskipti. Shev-
ardnadze lét til skarar skríða 1972.
Fyrir atbeina hans tókst að af-
hjúpa mikið mútu- og svartamark-
aðskerfi, sem teygði anga sfna til
æðstu valdamanna í Grúáiu, alla
leið til Vasili Mzhavanadzes
flokksleiðtoga, fyrirrennara hans.
f Moskvu var mikið lof borið á
Shevardnadze fyrir frammistöð-
una. Mzhavanadze var settur af og
Shevardnadze gerður að leiðtoga
grúsíska kommúnistaflokksins í
hans stað.
Rússneski sagnfræðingurinn,
Mikael Voslensky, sem flúði land,
segir í bók sinni Nomenklatura að
Mazhavanadze, næstráðandi hans,
Albert Churkin og konur þeirra
(„Tamörurnar tvær“ eða „Tamöru-
prinsessumar“) hafi mótað mútu-
starfsemi, í Grúsíu.
Hann segir að ráðherraembætti
hafi gengið kaupum og sölum: emb-
ætti félagsmálaráðherra hafi kost-
að 100,000 rúblur og embætti við-
skipta- og iðnaðarráðherra 250,000
til 300,000. En hann segir að menn
hafi einnig þurft að vera f réttum
klíkum.
Samkvæmt þessari frásögn not-
aði Shevardnadze hneykslið til að
krækja sér í stöðu flokksleiðtoga
með stuðningi frá Moskvu. Vosl-
ensky segir að einhverjir ráðamenn
í Moskvu hafi séð sér hag f því að
Ijóstrað yrði upp um hneykslið.
Hann gizkar á Shevardnadze hafi
fengið stuðning Yuri Andropovs og
Tsviguns og Brezhnev hafi reynt að
jafna ágreining.
Voslensky segir að sannleikurinn
hafi ekki sigrað í þessu máli heldur
Shevardnadze, sem fékk starfið
sem hann sóttist eftir og kommún-
istískt siðgæði hafi ekki aukizt i
Grúsíu.
Allan þann tíma sem Shevardn-
adze var flokksleiðtogi, 13 ár, bár-
ust fréttir um baráttu hans gegn
spillingu. Sagt var að eitt það
fyrsta sem hann gerði hafi verið að
kalla leiðtoga flokksins saman og
svipta þá glæsilegum gullúrum,
sem þeir báru.
Sagan segir að hann hafi beðið
þá að greiða atkvæði f ákveðnu
máli með því að rétta upp hönd.
Hann starði á gullarmbandsúr
þeirra og sagði: „Allir sem eru ekki
með erlend úr mega láta höndina
síga.“ Sagt er að þar með hafi haf-
izt hreinsun i flokknum.
Barátta Shevardnadzes gegn
spillingu gekk stundum erfiðlega.
Grúsíska „Mafian“ er voldug og
stöðugt rísa ný og glæsileg einbýl-
ishús manna sem hagnast á vafa-
saman hátt.
Fyrir fjórum árum var embætt-
ismaður leiddur fyrir aftökusveit
fyrir að þiggja mútur að upphæð
fimm og hálf millj. fsl kr. Ári síðar
voru fyrrverandi fjármálaráðherra
og tveir aðrir háttsettir embætt-
ismenn dæmdir í 13 ára fangelsi
hver fyrir ólögleg viðskipti með
demanta og lúxusbfla, sem ríkið
átti.
„TILRAUNIR“
Shevardnadze reyndi líka að
óprúttinna aðila, sem hafa selt
hana með álitlegum hagnaði. I vet-
ur voru nokkrir yfirmenn ávaxta-
og grænmetisframleiðslu Grúsíu
dæmdir fyrir stórfellda fjárkúgun.
Nýlega hvatti Shevardnadze til
baráttu gegn vaxandi notkun eit-
urlyfja í Grúsiu, aðallega á hassi
og ópíum.
í Grúsiu heyrist vel f bandarísku
útvarpsstöðinni Voice of America,
þótt sendingar hennar séu truflað-
ar í flestum öðrum hlutum Sovét-
rfkjanna.
Ymsar nýjungar, sem Shev-
ardnadze bryddaði upp á í Grúsíu,
mæltust vel fyrir hjá almenningi,
m.a. skoðanakannanir, sem hann
beitti sér fyrir og bera sjálfstrausti
hans vitni. Nýlega birti grúsískt
dagblað spurningalista um baráttu
Shevardnadzes gegn spillingu og
bað lesendur um svör. Hann hefur
einnig reynt að kanna vinsældir
embættismanna og þar með gert
almenningi kleift að hafa nokkur
áhrif á val þeirra.
Sérfræðingar segja að þótt Shev-
ardnadze sé harður i horn að taka
skjalli hann fólk með góðum
árangri og yfir ræðum hans sé viss
þokki, þær „láti vel f eyrum“, hann
„slái á letta strengi“ og þar „örli á
kímni“.
Shevardnadze hefur
komið nokkuð við
sögu valdabaráttunnar
í Sovétríkjunum
Þegar Konstantín Chernenko var
kjörinn flokksleiðtogi lýsti Shev-
ardnadze hann yfir eindregnum
stuðningi við hann og hældi honum
í lengra máli en aðrir leiðtogar.
Hann sagði að Chernenko hefði
beitt áhrifum sínum í Moskvu til að
tryKRja stuðning við síðustu ný-
mæli í efnahagsmálum lýðveldis-
ins.
Hins vegar var Shevardnadze
kuldalegur í garð Yuri Andropovs.
Á valdadögum Leonid Brezhnevs
gerði hann sér sérstakt far um að
sýna að hann væri hlynntur Chern-
enko og virðist hafa stutt hann eft-
ir fráfall Andropovs. Chernenko
virtist þvf fús til samvinnu við
unga, umbótasinnaða leiðtoga.