Morgunblaðið - 14.07.1985, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, STJNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1985
Selormaplágan:
Kostar árs-
afla tuttugu
togara?
Stjórnarfrumvarp um selveiðar
strandaði í efri deild
Ýmis stjórnarfrumvörp, sem lögð
vóru fram á liðnu þingi, náðu ekki
fram að ganga. Eitt þeirra var frum-
varp til laga um selveiðar við ísland,
sem neðri deild samþykkti en náði
ekki í gegn um efri deild.
Efnisatriði frumvarpsins vóru
m.a.
• Sjávarútvegsráðuneytið hafi yf-
irumsjón allra mála er selveiðar
varða (en þessi mál heyra nú und-
ir landbúnaðarráðuneyti).
• Hafrannsóknastofnun annist
rannsóknir á selum við ísland.
Feli ráðherra aðilum utan þeirrar
stofnunar ákveðnar rannsóknir,
fylgist hún með gangi og niður-
stöðum þeirra.
• Sjávarútvegsráðuneytið hafi
samráð við Náttúruverndarráð,
Hafrannsóknastofnun, Búnaðarfé-
lag og Fiskifélag um stjórn og
skipulag selveiða.
• Landeigenda er einum heimilar
selveiðar og ráðstöfunarréttur
þeirra í landareign sinni, nema lög
mæli öðru vísi fyrir ...
• Erlendum ríkisborgurum eru
óheimilar selveiðar hér við
land ... Heimilt er að víkja frá
þessum ákvæðum með milliríkja-
samningum.
• Ráðherra getur sett reglur um
framkvæmd laganna sem banna
selveiðar á tilteknum svæðum,
takmarka selveiðar við ákveðinn
tíma friða ákveðnar tegundir,
leyfðar veiðiaðferðir, hvern veg
skuli gengið frá drepnum selum,
veiðar í visindalegum tilgangi, um
aðgerðir til fækkunar sela, sé þess
talin þörf, um selveiðar á friðlýst-
um svæðum (að fegnu samþykki
Náttúruverndarráðs) og til að
tryggja framkvæmd alþjóðlegra
samninga um selveiðar.
Selveiðar við ísland
Selveiðar hafa verið stundaðar
hér allt frá landnámi. Lengst af
vóru veiðar miðaðar við eigin
þarfir landsmanna. Seint á nítj-
ándu öld hófst útflutningur á
selskinnum. Frá þeim tíma eru til
tölur um veidda seli við landið,
fiskiskýrslur 1897—1945 og verzl-
unarskýrslur 1946 og síðan.
Meðalveiði á ári var um sex þús-
und dýr 1897—1919. Síðan minnk-
aði hún verulega og nær lágmarki
1939—1959, um 2.500 dýr á ári að
meðaltali. í greinargerð með
frumvarpi um selveiði, sem hér er
fjallað um, segir:
„Þessi minnkun í veiði stafar
líklega ekki af ofveiði heldur hafa
margir þættir komið við sögu:
verðfall á skinnum, selafár, ísaár,
og þjóðfélagslegar breytingar hér
á landi, sem áttu sér stað á þess-
um tíma ... Um 1928 varð töluvert
verðfall á selaskinnum á heims-
markaði. Upp frá því dregur úr
selveiðum hér við land. Helzt
þetta ástand allt til ársins 1960, en
þá rætist úr og veiðar aukast á ný.
Selveiðar ná síðan hámarki 1964
og eru miklar allt fram til ársins
1977, eða um 6.500 selir hvert ár
að meðaltali. Árið 1978 verður
verðfall á selskinnum á mörkuð-
um á meginlandi Evrópu ... og
gerði það að verkum að jafnt og
þétt dró úr selveiðum ...“
Hrmgormar/selormar
í greinargerð með frumvarpinu
segir ennfremur:
„Á siðastliðnu ári urðu allmikl-
ar umræður um selveiðar hér við
land og þó einkum um tengsl milli
sels og hringorms í fiski og þær
verðlaunaveitingar, sem Hring-
ormanefnd hóf í því skyni að
stuðla að áframhaldandi veiðum á
IÞINGHLÉI
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Samkeppni á íslandsmiðum
Selurinn er fallegt dýr. En hann er skæður keppinautur fiskimanna okkar í sókn í nytjafiska. Raunar sá mikilvirkasti
eftir að erlendum veiðiflotum var stuggað úr landhelginni. Auk þess stendur rökstuddur grunur til þess að selormar
(hringormar) í fiski tengist selnum.
Selveiðar við ísland eru jafngamlar byggð í landinu. Spurning er ef selveiðar leggjast af, hvort vöxtur selastofna
við landið geri verulegt skekkjustrik í reikning sjávarútvegs í landinu. Um þetta efni er fjallað „í þinghléi“ í dag.
sel hér við land. Ekki hefur verið
til nein heildarlöggjöf um selveið-
ar hér á landi heldur aðeins sund-
urlaus lagaákvæði sem sum hver
hafa mjög takmarkað gildi. Þótti
því nauðsyn bera til að sett yrðu
um veiðar þessar lög sem gæfu
stjórnvöldum heimild til þess að
setja reglur um veiðarnar og ýmis
atriði er þær snerta."
Hér er komið að stóru og kostn-
aðarsömu vandamáli fiskvinnsl-
unnar í landinu: hringormum eða
selormum. Tengsl eru talin milli
vaxtar selastofnsins hér við land
og selorma í fiski, sem valda
vinnslunni miklum kostnaði, auk
þess að rýra gæði hráefnisins. Það
var af þessum sökum sem Hring-
ormanefnd var sett á fót. Hún
gerði tilraun til þess árið 1982 að
örva selveiðar með verðlauna-
greiðslum fyrir veidd dýr. Ekki
vóru allir á eitt sáttir um fram-
kvæmd þess máls eins og menn
muna eflaust af blaðaskrifum frá
þeim tíma.
Gagnrýni á frumvarpið
Framangreint stjórnarfrum-
varp sætti nokkurri gagnrýni 'í
þinginu, m.a. vegna andstöðu Bún-
aðarþings. Búnaðarþing áréttar í
ályktun að selveiðar hafi frá fornu
fari verið hlunnindi, sem fylgt
hafi sjávarjörðum. Hlunnindi
þessi hafi staðið undir verulegum
hluta af lífsframfæri þeirra, sem
þær hafi setið. „Því er sjálfsagt að
málefni selveiða heyri undir land-
búnaðarráðuneytið," segir í sam-
þykkt Búnaðarþings, en frum-
varpið gerir ráð fyrir að sjávar-
útvegsráðuneytið fari með þau
framvegis. Ráðherravald, sem
felst í setningu reglugerðar, er og
umtalsvert.
Það kom og fram í máli gagn-
rýnenda, m.a. Hjörleifs Gutt-
ormssonar, að Hafrannsókna-
stofnun hefði gert athugasemd við
2. grein frumvarpsins, sem m.a.
gerir ráð fyrir að ráðherra geti
falið aðilum utan þeirrar stofnun-
ar ákveðnar rannsóknir (hér
staldra ýmsir við hringorma-
nefnd). Sami þingmaður gat þess
og að Náttúruverndarráð teldi
nauðsyn bera til að breyta orða-
lagi 3. greinar frumvarpsins, sem
fjallar um samráðsaöila ráðuneyt-
isins varðandi stjórn og skipulag
selveiða.
Þá telja ýmsir, sem tala í nafni
selverndar, að ekki hafi verið
færðar fullar sönnur á tengsl milli
fjölgunar sela og hringorma í
fiski, sem óneitanlega hafa mikil
áhrif, bæði hvað varðar kostnað-
arauka fiskvinnslufyrirtækja við
tínslu selorma úr fiskinum og
samkeppnis- og markaðsstöðu ís-
lenzkra fiskafurða á erlendum
mörkuðum.
Formsatriði, eins og það, hvaða
ráðuneyti skuli fara með selveiði-
mál, mun þó hafa ráðið öllu meiru
um andstöðu þingmanna við frum-
varpið.
88»"
i]«ssn
úsún
***f'|É
ii
NÝ ÞJÓNUSTA
, MEIRA FYRIR
PENINGANA
KOMDU MEÐ FILMUNA OG ÞÚ
FÆRÐ MYNDIRNAR SAMDÆGURS í FALLEGU
ALBÚMI ÁN AUKAGJALDS.
r
LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF'
Laugavegl 178 — S(mi685811