Morgunblaðið - 14.07.1985, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1985
55
Atlavík. Vinsjell áningarstaður ferðamanna á Austurlandi.
MorgunblaðiÖ/ólafur
Ferðamálanefnd Vest-Norden svæðisins fyrir utan Hótel Valaskjálf: Ólafur St. Valdimarsson, ráðuneytisstjóri,
Sigurður Hjaltason, framkvæmdastjóri, SSA, Jónas Hallgrímsson, stjórnarmaður Vest-Norden nefndarinnar, Kjartan
Lárusson, formaður Ferðamálaráðs, og Reynir Adólfsson, framkvæmdastjóri Ferðamálanefndarinnar. Á myndina
vantar 5. stjórnarmanninn, Færeyinginn Jakob Haraldsen, formann færeyska ferðamálaráðsins.
Egílsstaðir:
Norrænt samstarf að ferðamálum
Sérstök kynningarskrif-
stofa ferðamála opnuð
Kgilsstöðum, 9. júlí.
VERKEFNI okkar í fyrstu er að
vinna að heildarskipulagningu ferða-
mála milli íslands og Færeyja — en
síðar meir munu Grænland og Vest-
ur-Noregur væntanlega fléttast inn í
þá skipulagningu — sagði Jónas
Hallgrímsson, stjórnarmaður hinnar
svonefndu Vest-Norden-nefndar sem
er samnorræn nefnd og lætur einkum
málefni Grænlands, fslands, Færeyja
og Vestur-Noregs til sín taka.
íslensku fulltrúarnir í Vest-
Norden nefndinni, Jónas Hall-
grímsson og Bjarni Einarsson,
gerðu á sínum tíma að tillögu sinni
að nefndin gengist fyrir sérstöku
átaki til framdráttar ferðamálum
innan starfssvæðis nefndarinnar
— og eftir umfjöllun í nefndinni
var erindi þar að lútandi sent
Norrænu embættismannanefnd-
inni. Norræna embættismanna-
nefndin samþykkti síðan endanlega
í apríl síðastliðnum tillögur Vest-
Norden-nefndarinnar varðandi
ferðamálin — og til að vinna að
verkefninu skyldi komið á fót sér-
stakri 5 manna ferðamálanefnd er
fulltrúar samgönguráðuneytis,
Ferðamálaráðs íslands, Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi, Ferða-
málaráðs Færeyja og Vest-Nord-
en-nefndarinnar skipuðu.
Til verkefnisins veitir Norður-
landaráð 250 þús. n.kr. árlega
næstu 3 árin. Nefndin var strax
skipuð og hóf þegar störf — en í
henni eiga sæti: Ólafur Steinar
Valdimarsson, ráðuneytisstjóri
samgönguráðuneytis, Kjartan Lár-
usson, formaður Ferðamálaráðs,
Sigurður Hjaltason, framkvæmda-
stjóri SSA, Jakob Haraldsen, for-
maður færeyska ferðamálaráðsins
og Jónas Hallgrímsson af hálfu
Vest-Norden-nefndarinnar.
Nefndin hefur ráðið sér fram-
kvæmdastjóra, Reyni Adólfsson,
áður framkvæmdastjóra Ferða-
skrifstofu Vestfjarða. Alls sóttu 13
manns um starfið. Og nú hefur ver-
ið opnuð sérstök kynningarskrif-
stofa nefndarinnar að Lagarási 8 á
Egilsstöðum — sem Reynir mun
veita forstöðu.
Ólafur Steinar Valdimarsson,
ráðuneytisstjóri, gat þess á frétta-
mannafundi i dag að það væri afar
mikilvægt fyrir íslendinga að fá
þetta verkefni til sín — og ekki síst
Austfirðinga. Verulega væri komið
til móts við þarfir íslendinga með
þessu verkefni og það styrkti nor-
ræna samvinnu — og síðast en ekki
síst skilning almennings á nauðsyn
þeirrar samvinnu.
Kjartan Lárusson sagði starf
nefndarinnar nú í fyrstu beinast að
kynningu Færeyja á íslandi og
þeim ferðamöguleikum sem þar
byðust — og eins kynningu Íslands
í Færeyjum.
Jónas Hallgrímsson var bjart-
sýnn á viðgang ferðamála á Aust-
urlandi og nefndi hann sem dæmi
að farþegaaukning með Ms.
Norrena væri nú um 7% miðað við
síðastliðið ár — og það samstarf
sem nú er hafið myndi án efa efla
ferðamannaiðnaðinn almennt.
Ferðamálasamtök Austurlands
voru nýlega stofnuð á Djúpavogi og
var Rúnar Pálsson, Egilsstöðum,
kjörinn formaður þeirra samtaka.
Þessi nýstofnuðu samtök munu
njóta fyrirgreiðslu ferðamála-
nefndarinnar og verður Reynir
Adólfsson jafnframt starfsmaður
þeirra fyrst um sinn. Reynir mun
væntanlega ferðast um Austurland
á næstu dögum til upplýsingaöfl-
unar um ferðamál í fjórðungnum
og til að kynna starfsemi skrifstofu
sinnar á Egilsstöðum.
- Ólafur
Lukku
bílar
vloiiui_-_
f-:
'gönqpir loigrs.
Annar lukkubílalisti Œís
ANNAR lukkubílalisti Olís hefur verið hengdur upp á bensínstöðvum
fyrirtækisins. Tíu bílnúmer eru dregin út og eiga eigendur þeirra að
svara því hvaða tegund af olíu þeir noti. Geta þeir þannig fengið 10
þúsund króna greiðslu frá fyrirtækinu.
Skólakór Kársness ásamt stjórnanda sínum, Þórunni Björnsdóttur.
Skólakór Kársness heldur
tónleika í Kópavogskirkju
Skólakór Kársness undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur heldur tón-
leika í Kópavogskirkju mánudaginn
15. júlí kl. 20.30.
Á efnisskrá kórsins eru íslensk
þjóðlög og kórlög, sum þeirra sam-
in sérstaklega fyrir kórinn, ma-
drigalar, negrasálmar, lög frá
Ungverjalandi, Finnlandi og fleiri
löndum og kórverk eftir Knut
Nystedt og Brahms.
Kór Kársness heldur á alþjóð-
legt kóramót, „Europa Cantat", í
Strassburg í Frakklandi eftir fá-
eina daga.
Brúðaigjafir
Sérstök þjónusta
Óskalisti - gjafaskrá
Sé þess óskað, skráum við nöfn
brúðhjóna, hvaða hlutum þau óska
eftir og hvaða gjafir hafa verið
keyptar.
Þannig getagefendur ávallt séð hvað
búiðer aðkaupaog á þann hátt
forðast að gefnir séu margir munir
sömu gerðar.
Gjafakort
Munið vinsœlu gjafakortin. Þau henta vel ef fólk vill
ekki velja gjafirnar sjálft, heldur láta viðtakanda um
það.
Bankastræti 10, sími 13122.