Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 1
64SIÐUR B STOFNAÐ 1913 162. tbl. 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins 200 handteknir í Suður-Afríku ióhannesarborg, 22. júlí. AP. LÖGREGLA handtók 200 menn í dag í framhaldi af setningu neyð- ariaga um helgina, þar af 17 blökkumannaleiðtoga. Vestræn ríki hafa gagnrýnt setningu neyðarlaganna og sagt þau afleiðingu af aðskilnaðarstefnu stjórnar P.W. Botha. Leiðtogar þeldökkra íbúa segja stjórnina hafa viðurkennt með setningu laganna að hún ráði ekki við ástandið í landinu. Á sunnudag voru 113 manns handteknir í Suður-Afríku á fyrsta degi neyðarlaga, hinna fyrstu í 25 ár. f hópi þeirra 17, sem handtekn- ir voru í dag, eru fjórir prestar, lögfræðingur og læknir. Óttast er að handtaka leiðtoganna verði frekar til að kynda undir óeirðum. Desmond Tutu biskup bauðst til að miðla málum milli blökku- manna og stjórnar Botha. Hann sagði óeirðir myndu halda áfram og ofbeldi, sem bæði hvítir og blakkir væru andvígir, þar til rík- isstjórn hvítra léti af aðskilnað- arstefnu sinni. Botha hefur vísað á bug tilmælum stjórnarandstöð- unnar um að þing landsins yrði kallað saman til að fjalla um setn- ingu neyðarlaganna. Dómsmálaráðherra Suður- Afríku tók í dag til greina mót- mæli ritstjóra blaða og tímarita heimafyrir og hætti við að fyrir- skipa ritskoðun. Hvatti hann til minni fréttaflutnings af óeirðum og sagði blöð hafa aukið á spennu með frásögnum sínum. AP/Símamynd Skrifstofur bandaríska flugfélagsins Nortwest Orient í Kaupmannahöfn eyðilögdust í sprengingu þar í borg í gærmorgun. Sprengingin varð skammt frá skrifstofu Flugleiða í miðborg Kaupmannahafnar. Einnig sprakk sprengja í bænahúsi gyðinga og varð tjón þar einnig mikið. Alls slösuðust 27 manns í sprengingunum. Hryðjuverk færast nær Norðurlöndum Olíuráðherrar fjalla um lækkun olfuverðs Uenr, 22. jálí. AP. OLÍURÁÐHERRAR OPEC-ríkjanna ákváðu á fundi sínum í dag að fresta ákvörðunum um framleiðsluminnkun til haustsins og einbeita sér fremur að tillögum Saudi-Araba um lækkun olíuverðs. Saudi-Arabar krefjast einkum. verðlækkunar á gæðaminni olíu, sem seld er á 26,50 dollara tunnan. Egyptar og Mexíkanar selja sam- svarandi olíu á 23 dollara. Aukinn þrýstingur hefur verið á OPEC- ríkin um að lækka sitt verð eftir að Egyptar og Mexikanar, sem ekki eru í sölusamtökunum, lækk- uðu sína olíu í byrjun mánaðarins. Ágreiningur er um verðlækkun innan OPEC. Líbýumenn, Alsírbú- ar og íranir eru mjög á móti verð- lækkun, vilja fremur framleiðslu- samdrátt. Þorri ráðherranna telur framleiðsluminnkun útilokaða, ekki sé hægt að draga framleiðsl- una frekar saman til að halda verði háu. Framleiðsla OPEC-ríkjanna hefur ekki verið minni í 20 ár, eða að meðaltali 14,7 milljónir tunna á dag á öðrum ársfjórðungi. Mark- aðshlutdeild OPEC-ríkjanna hef- ur fallið úr 63,4% árið 1979 í 42,8% í fyrra, og í ár er hlutdeild- in rétt rúmlega 30%. Hafa OPEC-ríkin orðið undir í sam- keppni vegna ódýrari olíu frá ríkj- um utan samtakanna. Af þessum sökum vilja Saudi-Arabar nú lækka olíuverðið. OPEC-ríkin eru talin standa frammi fyrir erfiðum ákvörðun- um, en forseti þeirra, Subroto, olíuráðherra Indónesíu, sagði það rangt að samtökin væru jafnvel að leysast upp. Ákváðu ráðherrarnir að fresta umræðum um fram- leiðslustefnuna, sem er mikið ágreiningsefni, þegar fjögur ríki, írak, Ecuador, Gabon og Qatar, kröfðust aukinnar framleiðslu- hlutdeildar. Fyrir lágu tillögur ír- ana, sem gengu í þveröfuga átt, um 7% framleiðslusamdrátt hjá hverju ríki fyrir sig. Kaupmannahöfn, 22. júlí. AP. NORÐURLÖND hafa verið tiltölu- lega laus við aðgerðir hryðjuverka- manna þar til í dag, að hermdar- verkamenn sprengdu tvær sprengjur í miðborg Kaupmannahafnar. Sér- fróðir menn telja að hermdar- verkamenn hafi átt athvarf á Norð- urlöndum milli þess sem þeir hafa látið til skarar skríða í Vestur- Evrópu. Hafi þeir hingað til ekki vilj- að hætta afdrepi sínu, en með at- burðunum í morgun virðast alþjóða- hryðjuverk færast nær Norðurlönd- um. AP/Slmamynd Yamani, olíuráðberra Saudi-Arabíu, á fundi með blaðamönnum í upphafí fundar olíuráðherra OPEC-ríkjanna í Genf í gær. Kaupmannahafnarlögreglan kvaðst í kvöld litla vitneskju hafa um sprengjutilræðin í skrifstofu bandaríska flugfélagsins North- west Orient og bænahúsi gyðinga. Sex menn voru handteknir er þeir hugðust fara með flugbátnum til Svíþjóðar. Voru þeir enn í yfir- heyrslu í kvöld, en engin ákæra hafði verið gefin út. í sprenging- unum slösuðust 27 menn, þar af liggur Alsírbúi milli heims og helju á sjúkrahúsi. I Beirút sögð- ust hryðjuverkasamtökin Heilagt stríð bera ábyrgð á verknaðinum og sögðu tilræðin hefnd fyrir árás ísraela á tvö þorp í Suður-Líbanon í gær, sunnudag. Hermt er að sexmenningarnir, sem eru í haldi lögreglunnar, séu frá Miðausturlöndum. Sprengja fannst við brottfararstað flug- bátsins í Nýhöfn. Var hún í tösku merktri Northwest Orient og er talið að hún hafi verið í fórum þeirra er að tilræðunum stóðu. f sprengingunni í bænahúsi gyð- inga, sem stendur skammt frá sí- vala turninum, varð einnig tjón á elliheimili, sem stendur næst bænahúsinu. Slösuðust sjö vist- menn elliheimilisins. Hafði sprengju verið komið fyrir innan dyra i bænahúsinu. Sprakk hún skömmu eftir bænastund, sem 20 manns voru viðstaddir. Hins vegar sprakk sprengjan hjá Northwest Orient á stéttinni fyrir utan skrifstofuna. Á skrifstofunni voru Forseti Kína í Washington Washington, 22. jálí. AP. LI XIANNIAN, forseti Kína, kom í dag í fjögurra daga heimsókn til Bandaríkj- anna. Li mun eiga viðræður við Reagan á morgun, þriðjudag, og síðan sitja veizlu Bandaríkjaforseta. Ákveðið hefur verið að breyta út frá venju þegar Reagan tekur á móti Li á lóð Hvíta hússins þar sem Reagan hefur ekki náð sér að fullu. Búizt er við að Reagan og Li und- irriti í Washington samkomulag um samvinnu Bandaríkjamanna og Kínverja á sviði kjarnorkuvísinda. þrír menn og slösuðust þeir óveru- lega. í hópi hinna slösuðu voru 10 Danir, þrír Bandaríkjamenn, tveir Pólverjar, Brei, fjórir Alsírbúar, Þjóðverji og Svíi. Sjá „Bygging Flugleiða nötraði og skalf“ á bls. 5 Ráðstefna um framtíð Evrópu- bandalags Brwwel, 22. jólí. AP. ÁKVEÐIÐ rar í dag á fundi utan ríkisráðherra Evrópubandalagsins (EB) að efna til ráðstefnu um framtíð bandalagsins í Lúxemborg í september. Ráðstefnunni er ætl- að að leggja tillögur að breytingu á Rómarsáttmálanum fyrir leið- togafund bandalagsins 3. desem- ber. Bretar, Grikkir og Danir lögð- ust gegn ráðstefnu af þessu tagi, er tillögur um hana komu fram á leiðtogafundi EB í Mílanó í vor, en hafa nú fallið frá and- stöðu sinni. Töldu þeir hægt að ganga lengra í átt til samein- ingar ríkjanna án breytinga á Rómarsáttmálanum. Talið er að helzta vandamálið á ráðstefnunni verði að ná ein- ingu um breytingar á starfi bandalagsins, en skilyrði er að EB-ríkin öll samþykki niður- stöðum ráðstefnunnar. Sir Geoffrey Howe utanríkisráð- herra Breta segir alla hlynnta meiri sameiningu og aukinni ákvarðanatöku í nafni banda- lagsins á grundvelli meirihluta. Hingað til hefur neitunarvald hamlað ákvarðanatöku í ýmsum málum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.