Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 24
24 JÍORmJNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23j6tf 1985 „Heimsmót æskunnar“ í Moskvu: AP/Símamynd Baenahús Votta Jehóva í Sydney í Ástralíu eftir sprenginu, sem varð í húsinu á sunnudag. Þrír menn a.m.k. fórust. Talið er að um hermdarverk hafi verið að ræða. Sydney: Sprenging hjá Vottum Jehóva Sydney, Ástralíu, 22. júní. AP. Sprengjusérfræðingar og aðrir rannsóknarmenn frá lögreglunni í Sydney héldu í dag, mánudag, áfram athugun í rústum bæna- húss Vótta Jehóva, sem var sprengt i loft upp á sunnudag. Þá lézt einn Vottur og 43 slösuð- ust. Fjórtán þeirra eru enn á Jehóva, enda hafa þeir oft orðið sjúkrahúsi og eru flestir í lífs- hættu. Svo virðist sem engin augljós ástæða sé fyrir þessu óhæfu- verki önnur en andúð á Vottum fyrir aðkasti í einni eða annarri mynd í Sydney. Lögreglan segir að sjónarvottar hafi séð mann á bláum bíl aka á ofsahraða frá staðnum nokkru áður en spreng- ingin varð. Sovésk andófs- kona handtekin FREGNIR fra Moskvu herma, að andófsmaðurinn Irina Griv- ina hafi verið handtekin 12. júlí sl. og fyrirskipað að fara frá borginni tafarlaust. Eigin- manni hennar hafi jafnframt verið vikið úr starfí. Grivina, sem áður hefur setið í fangelsi vegna pólitískra skoð- ana sinna, bakaði sér reiði stjórnvalda vegna bréfs sem hún sendi frá sér þar sem vest- rænum þátttakendum í „Heims- móti æskunnar", sem hefst í Moskvu 27. júlí nk., er boðið að heimsækja hana á heimili henn- ar í borginni. Grivina hafði einnig ritað grein, sem birt var á Vesturlöndum, þar sem hún vekur athygli á því að „æsku- lýðsmótið" er í reynd áróðurs- sýning stjórnvalda. Þá hafa samherjar sovéskra andófsmanna í Hollandi sent frá sér fréttbréf um undirbúninginn fyrir heimsmótið í Moskvu. Þar kemur fram að sovéskir þátttak- endur koma aðeins úr röðum fé- laga í Komsomol, æskulýðssam- tökum kommúnistaflokksins. Þeir sem valdir hafa verið hafa verið sérstaklega þjálfaðir í því að umgangast útlendinga og m.a. gerð nákvæm grein fyrir því hvernig þeir eigi að svara spurningum um sovéska andófs- menn. Er hin opinbera „lína“ sú að þeir séu „glæpamenn, sem brotið hafi lög“. Liður í „Heimsmóti æskunn- ar“ er svokölluð „Friðarganga" og í því skyni að koma í veg fyrir að þar fari eitthvað úr böndum hafa sovéskir þátttakendur æft gönguna á Leninsky-stræti skammt frá Gagarin-torgi. Fyrirfram hefur verið ákveðið hvaða vígorð verða hrópuð og á hvaða stöðum það verður gert. Þátttakendur í göngunni hafa verið valdir úr hópi ungra starfsmanna í nokkrum verk- smiðjum og stofnunum. ísraelar sendu fallhlífarher- menn í tvö þorp í S-Líbanon Beirút, Lfbanon, 22. júlí. AP. FJÖLDI ísraelskra her- manna réðust í gær, sunnu- dag, á tvö þorp í Suður-Líb- anon og segja sjónarvottar að þeir hafí drepið þrjá og hand- tekið hóp manna sem eru grunaðir um að styðja AMAL-hreyfíngu shíta á þessum slóðum. Herþyrlur flugu yfír þorpin og vörpuðu hermönnunum út, fyrst í þorpið Qabrikha um átta kílómetrum vestur af landa- mærum ísraels og Líbanons. í seinni árásinni sem var á þorp í grenndinni, sem hefur ekki verið nafngreint, kveiktu hermennirnir í moskum og fjórum íbúðarhúsum Frakkland: Sprenging í brauðgerð í Le Bourget París, 21. Júlí. AP. ÖFLUG sprenging varð í byggingu í Le Bourget, einu úthverfanna norð- ur af París, árdegis á sunnudag. Tveir biðu bana þegar byggingin hrundi og níu særðust. Talið er líklegt að gasleki hafi orsakað sprenginguna, en það hafði ekki fengist staðfest þegar síðast fréttist. í Le Bourget er þekktur flug- völlur sem heitir eftir úthverfinu. Er hann einn þriggja stærstu flugvalla í París, en er aðallega ætlaður einkaflugvélum. og gerðu húsleit á fjölda heimila og að sögn sjónarvotta rændu þeir einnig nokkrar búðir í þorpinu. Talsmaður ísraelshers sagði, að einn skæruliði hefði verið drepinn í átökum milli ísraelskra her- manna og „hryðjuverkasveita" í Qabrikha. Talsmaðurinn sagðist ekki hafa heyrt um að önnur árás hefði verið gerð. Þessi atlaga Israela er sú fyrsta innan landamæra Líbanons síðan 10. júlí, en þá flugu ísraelskar orrustuvélar yfir flóttamannabúð- ir í grennd við Tripoli og vörpuðu sprengjum með þeim afleiðingum að tuttugu og fjórir létust og 87 slösuðust. Þær aðgerðir voru gerð- ar í hefndarskyni fyrir tvær sjálfsmorðsárásir shíta þar sem þrettán óbreyttir borgarar létust og tveir hermenn SLA-hersveita kristinna hægri manna í Suður- Líbanon sem styðja ísraela. Á því svæði sem ísraelar réðust á í gær eiga afganskir friðar- gæslumenn Sameinuðu þjóðanna að vera til verndar en ekki fer sög- um af því hvort þeir blönduðu sér í átökin. Rignir í Súdan: Jarðrækt komin í fullan gang Kairó, Egyptalandi, 22. júlí. AP. MIKLAR rigningar eru nú í suð- vestur Súdan og íbúar eru að gróðursetja og vinna land fyrir jarðhnetur og (leiri korntegund- ir, að því er fulltrúar vestrænna hjálparsamtaka í Khartoum, höf- uðborg Súdans, sögðu um helg- ina. Rigningin var fyrir nokkrum vikum svo mikil að erfiðlega gekk að koma hjálpargögnum og matvælum til 500 þúsund Súdana í suðvesturvatnahéruð- um landsins. Á því svæði eru nú einnig um hálf önnur millj- ón flóttamanna frá Eþíópíu, Tjad, Zaire og Uganda. Aftur á móti varð rigningin til að alls konar gróður og akrar fengju nægilega vökvun til að spretta jókst hröðum skrefum. „Nú eru allir að setja niður og vinna í fullum gangi allan sólarhring- inn og suðurhluti Súdan virðist því vera komin yfir það versta. Búast má við metuppskeru ef rignir áfram næstu vikur,“ er einnig haft eftir ofangreindum fulltrúa. Nixon hugleiddi 4 sinnum að beita kjarnorkuvopnum New York, 22. júlí. AP. AÐ SÖGN tímaritsins Time hugleiddi Richard Nixon, fyrrum forseti Bandaríkjanna, fjórum sinnum að beita kjarnorkuvopnum á fímm ára stjórnarferli sínum, 1%9—1974. í tímaritinu er haft eftir Nixon, að til greina hafí komið að varpa kjarnorkusprengju í Víetnamstríðinu, en forsetinn hafí horfið frá því þar sem margir óbreyttir borgarar hefðu látið lífíð í slíkri sprengingu auk óvinaherjanna. Þetta kemur fram í tveimur viðtölum sem blaðamenn tíma- ritsins áttu við Nixon fyrr í mánuðinum. Einnig segir að í þremur öðrum tilfellum hafi Nixon hugleitt að nota kjarn- orkuvopn. Það var í stríðinu í Austurlöndum nær árið 1973, landamæradeilum Sovétmanna og Kínverja og stríði Indverja og Pakistana árið 1971. í öllum þremur tilfellunum sagði Nixon að stjórn hans hefði fremur kosið að nota tilvist kjarnorkuvopna Bandaríkja- manna sem hótun og hann hefði aldrei verið að því kominn að beita þeim. Varðandi stríðið í Austurlöndum nær, sagði Nixon að Leonid Brezhnev, leiðtogi Sovétmanna þá, hefði hótað af- skiptum af stríðinu. Stjórn Nix- ons hefði þá ekki getað horft upp á ísraela varnarlausa og hefði það verið skylda Bandaríkja- manna að koma Israelum til hjálpar. Þeim hraus einnig hug- ur við að Rússar einir næðu yfir- ráðum í þessum heimshluta. Þegar Rússar og Kínverjar áttu í landamæradeilum sagði Nixon að þeir hefðu orðið að koma Sovétmönnum í skilning um að Bandaríkjamenn myndu ekki leyfa Sovétmönnum að komast upp með að troða á Kín- verjum. Nixon sagði að á meðan á stríði Indverja og Pakistana stóð, hefði stjórn hans óttast að Kínverjar færu að blanda sér í málið og þá hefðu Sovétmenn Richard Nixon brugðist skjótt við. „Við fréttum ekki fyrr en síðar," sagði Nixon, „að Kínverjar höfðu ekki nægan vígbúnað til þess. En ef þeir hefðu blandað sér í málin og Sovétmenn brugðist við, hvað hefðum við gert? Það er engin spurning í mínum huga hvað við hefðum þá gert,“ sagði Nixon, án þess að skýra nánar hvað hann átti við. Nixon sagði að tilraunir til að útrýma eða hefta framleiðslu kjarnorkuvopna væru sér ekki að skapi og væru auk þess „barnalegar". Hann sagði að í stað þess ættu Bandaríkjamenn að snúa sér að gagnárásarvíg- búnaði fremur en að beina vopn- um sínum að þéttbýlum svæðum. „Þegar ég lít til baka,“ sagði Nixon, „þá verður mér æ betur ljóst hvað það er siðferðislega rangt að beina vopnum að þétt- býlum svæðum. Ég trúi því ein- dregið að við ættum að færa okkur frá þeirri hugmynd að eyða borgum og snúa okkur fremur að hernaðarlegum skot- mörkum. Það er meira fyrir- byggjandi og með því fást betri möguleikar á jafnvægi í heimin- um.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.