Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ1985 5 Bygging Fhigleiða nötraði og skalf — sagði Davíð Guðmundsson forstöðumaður Fhig- leiða um sprengingamar í Kaupmannahöfn yÞETTA var hryllileg sjón. Það hlýtur að vera gott að vera á Islandi þegar heimurinn er orðinn svona slæmur,“ sagði Davíð Guðmundsson, forstöðumaður Flugleiða í Kaupmanna- höfn, í samtali við Morgunblaðið um hermdarverkið, sem framið var í miöborg Kaupmannahafnar í gærmorgun. AP/Simamynd Hér sést hvemig umhorfs var fvrir utan bænahús Gyðinga eftir sprengingamar í Er talið að þrjár sprengjur hafi sprungið skammt frá skrifstofum Flugleiða. Ein sprengja sprakk í anddyri Imperial-hótelsins við umboðsskrifstofu bandaríska flugfélagsins Northwest Orient í Vester Farimagsgade, en hinar tvær við bænahús gyðinga þar Ardfe Þórðar- dóttír skipuð- formaður LÍN Menntamálaráðherra hefur skip- að Árdísi Þórðardóttur rekstrar- hagfræðing formann stjórnar Lána- sjóðs íslenzkra námsmanna. Árdís tekur við formennsku af Sigurði Skagfjörð Sigurðssyni en hann baðst lausnar frá stöðunni þar sem hann er á förum til út- landa. skammt frá, eða í Krystelgade. 27 manns slösuðust í sprengingun- um, Einar Ágústsson sendiherra ís- lands í Danmörku sagði að eng- inn tslendingur hefði verið meðal hinna slösuðu. Bætti hann því við að starfsfólk íslenska sendiráðs- Árdís Þórðardóttir, rekstrarhag- fræðingur. Ljósm. Mbl./KÖE. ins hefði heyrt sprengjugnýinn, sem hefði verið geysilega mikill. Að sögn Davíðs Guðmundsson- ar voru sprengingarnar svo öflug- ar að bygging sú, sem Flugleiðir hafa aðsetur í nötraði og skalf, en skrifstofa félagsins er aðeins um hundrað metra frá Imperial- hótelinu. Hann sagði að erfitt hefði verið að átta sig á hvað hefði gerst í upphafi, þar sem mikill reykj- armökkur hefði myndast við sprengingarnar. Þó kvaðst hann hafa séð mann, sem lá í götunni, með mikil brunasár og höfðu föt- in tæst af honum. Þá hefðu rúður brotnað og miklar skemmdir orð- ið á húsnæði nokkurra ferða- skrifstofa í götunni. Sprengingarnar urðu um kl. 8.30 að íslenskum tíma, og lá at- vinnustarfsemi að mestu niðri í Vester Farimagsgade og nær- liggjandi götum állan gærdag. Davíð sagði að eftir spreng- ingarnar hefði starfsfólki Flug- leiða verið gert að yfirgefa skrifstofu félagsins í þrjá tíma. Stuttu síðar hefði starfsfólkið aftur verið látið hverfa frá einn tíma vegna sprengjuhótunar, sem reyndist vera gabb. Þá hringdi maður, sem ekki lét nafn síns getið, í lögregluna og sagði að sprengja væri á skrif- stofu brasilíska flugfélagsins Varig, en það hefur aðsetur and- spænis skrifstofu Flugleiða. Elsa Níelsdóttir ritari á skrifstofu Flugleiða í Kaupmannahöfn sagði þegar blaðamaður ræddi við hana seint Kaupmannahöfn í gær. í gær, að reynt hefði verið að halda starfsemi félagsins gang- andi í dag, enda þótt vinna hefði að mestu leyti legið niðri annars staðar í götunni. Nú væri verið að hreinsa til eftir sprengingarnar, en mikill viðbúnaður væri í miðborg Kaup- mannahafnar. Loks má geta þess að forstöð- umaður Northwest Orient, Har- ald Rytz, sem er mikili íslands- vinur, vann sem sölustjóri 13 ár á skrifstofu Flugleiða þar. Sjálfur var Rytz ekki á skrifstofu flugfé- lagsins þegar sprengingin varð. +1 ’-fr Vr ERTU AÐ FARA í FRÍ? Sláðu til og fáðu þér ★ stjömukort! Persónukort Hugsaðu stöðu þína í ró og næði! Við bjóðum þér tvær tegundir af stjörnukortum. Með báðum fylgir skriflegur texti: Lýsir persónuleika þínum, m.a.: grunntóni, tilfinningum, hugsun, ást og vin- áttu, starfsorku og framkomu. Bendir á hæfi- leika þína, ónýtta möguleika og varasama þætti. 1 FramtíÓarkort * t Hvað gerist næstu tólf mánuði? Framtíöarkortiö segir frá hverjum mánuöi, bendir á jákvæöa möguleika og varasama þætti. Hjálþar þér aö vinna meö líf þitt á uppbyggilegan hátt og finna rétta tímann til athafna. Viö segjum aö stjörnuspeki sé stórkostleg og eitt þaö gagnlegasta tæki sem manninum stendur til boöa, leiöi til sjálfsþekkingar, mann- þekkingar og almennt til aukins skilnings manna á meðal. Stjörnuspeki er góö fyrir ein- staklinga og t.d. hjón, foreldra og fyrir þá sem standa á tímamótum o.s.frv. Athugaðu máliö og dæmdu fyrir sjálfan þig! LÍTTU VIÐ Á LAUGAVEGI 66, EÐA HRINGDU í SÍMA 10377 OG PANTAÐU KORT! „Er nokkuö aö marka þetta?“ segja margir. Þeir sem hafa fengiö kort segja: „Þaö er hreint furöulegt hvaö stjörnukortiö lýsir mér!“ „Er stjörnuspeki ekki bara tóm vitleysa og plat?“ segja sumir. Einn sagöi: „Þegar ég skoöa stjörnukort þeirra sem mér er illa viö, skil ég þá og andúöin hverfur!“ Bjóöum einnig sérstakan einkatíma, þar sem kort þitt er túlkaö af Gunnlaugi Guö- mundssyni stjörnusþekingi. Ef bæði kortin eru gerð samtímis er 20% ★ * afsláttur. Einnig 20% fjölskylduafsláttur. Laugavegi 66, •ími 10377.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.