Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JULÍ1986 51 tímalána til að geta klofið greiðsl- ur vegna íbúðarinnar og auk þess greiða leigu fyrir það húsnæði, sem við þá bjuggum í. Húsaleigan varð sífell þyngri baggi eftir því sem lengra leið á byggingartím- ann. Greiðslur hækkuðu en laun lækkuðu hlutfallslega og það varð sífellt erfiðara að kljúfa öll venju- leg útgjöld. Sama ástand að ári liðnu Eftir að konan hætti að vinna úti hálfan daginn hef ég verið eina fyrirvinna heimilisins. Við erum með tvö ung börn, sem gætu verið á leikskóla en leikskólagjaldið er einfaldlega of hátt hlutfall af launum konunnar ef hún ynni hálfan daginn. Ég gat aðeins klór- að í bakkann eftir að ég fór að geta gefið upp til skatts stóran hluta teknanna, sem atvinnurek- andi. Þá fékk ég rekstur á bifreið og allan verkfærakostnað dreginn frá tekjum, en það fengi ég ekki sem venjulegur launþegi. — Hefur þú leitað til ráðgjafar- þjónustu Húsnæðisstofnunar ríkisins? „Já, ég þurfti að leita til hennar núna í mars 1985 vegna greiðslu- erfiðleika og fékk þar fulla fyrir- greiðslu. Aukalán til 10 ára, verð- tryggð eins og fyrri lán, þannig að ég er ekkert betur settur í raun. Öll lán eru að vísu komin í skil í dag en ég sé fram á sama ástand að ári liðnu ef ekki koma til ein- hverjar róttækar breytingar á öllu lánakefi í landinu." Umferðarráð: Leiðbeininga- bæklingur fyr- ir erlenda ferðamenn UMFERÐARRÁÐ hefur nýlega gef- ið út litprentaðan bækling á ensku með myndum af þeim umferðar- merkjum sem hér gilda. Jafnframt eru í smáriti þessu ráðleggingar til ferðamanna um þau atriði sem sérstaklega þarf að varast í umferðinni hér á landi og ætla má að vafist geti fyrir út- lendingum. Slíkum ferðaráðum til útlend- inga hefur Umferðarráð einnig komið á framfæri í bæklingi sem Ferðamálaráð hefur nýlega gefið út og dreifa á til þeirra útlendinga sem hyggjast ferðast hér á eigin bifreiðum eða bílaleigubflum. Umferðarráð væntir þess að hver sá er aðstöðu hefur til að ræða við erlenda ferðamenn um ferðalög um landið leitist við að gera þeim grein fyir þeim hættum er hér leynast s.s. við akstur yfir óbrúaðar jökulár. (FréttatUkynning frá Umferftarráði) prenturum FACIT 4509 / 4510 / 4511 prentarar ganga við flestar gerðir af tölvum. Þeir eru áreiðanlegir, mjög fljótvirkir og prentun er í háum gæðum. Þið getið sjálf skipt um leturhaus ef þið viljið, annars endist hver haus til þess að prenta meira en 100.000.000 stafi og það er sama sagan með borðann, hann endist fyrir meira en 4.000.000 stafa. En þið getið afskrifað milljónirnar með öllu þegar þið kaupið einn þessara þriggja FACIT prentara, því verðið er vægast sagt ótrúlega lágt eða frá rúmum 16.000 krónum. Látið sérhæfða sölumenn með langa reynslu að baki leiðbeina ykkur við val á réttum FACIT prentara. ■ GISLI J. JOHNSEN TÓLVUBUNAÐUR SF - SKRIFSTOFUBUNAOUR SF SMIÐJUVEGI 8 P.O. BOX 397 202 KÖPAVOGI SÍMI 73111 SUNNUHLÍÐ, AKUREYRI, SÍMI 96-25004 Til eigenda International Harvester landbúnaðarvéla Þar sem ekki hefur náöst samkomulag viö Vélar og þjónustu hf. (umboðsmenn J.I.Case á íslandi) um aö yfirtaka varahluti fyrir I.H. landbúnaðarvélar frá okkur, þá munum viö halda áfram aö þjóna þessum vélum meö varahluti eftir bestu getu um næstu framtíð. Fyrir hendi er fjölbreytt úrval af varahlutum í flestar þær vélar sem við höfum flutt inn og þá sérstaklega í heybindivélarnar og IH Farmall-dráttarvélarnar, „besta vin“ bóndans. BÚNADARDEILD SAMBANDSINS ARMULA3 108 REYKJAVIK SIMI 38900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.