Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1985 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aóstoöarritstjóri Fuiltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, simi 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 360 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 30 kr. eintakiö. Réttarstaða lögreglumanna Könnunin um afstöðu ís- lendinga til lífsins og til- verunnar sem skýrt var frá á liðnum vetri leiddi í ljós, að al- menningur ber mikið traust til lögreglunnar og skipar henni á bekk með kirkjunni. Á hinn bóg- inn voru fjölmiðlar lágt skrifað- ir þegar menn voru spurðir um hvaða traust þeir bæru til ein- stakra þjóðféiagsstofnana. í Skaftamálinu svonefnda sem nú hefur verið afgreitt af Hæstarétti hefur verið leitast við að egna lögreglumönnum og blaðamönnum saman. Sú rimma er engum til sóma og snertir ekki kjarna málsins. Hitt er al- varlegt umhugsunarefni, að lögreglumenn líta þannig á niðurstöðu Hæstaréttar í Skaftamálinu, að hún geri rétt- arstöðu þeirra mjög óljósa og geti þess vegna haft óheppileg áhrif á störf þeirra. Einar Bjarnason, formaður Lögreglu- félags Reykjavíkur, sagði um þennan þátt málsins í Morgun- blaðsviðtali á laugardaginn: „Með þessum dómi er ríkisvaldið leyst undan húsbóndaskyldu, en við gerðir ábyrgir og bótaskyldir fyrir óhöppum og meiðslum sem handtekinn maður kann að verða fyrir, án þess að nokkuð tillit sé tekið til þess hvernig viðkomandi hegðar sér.“ í samtalinu við Einar Bjarna- son kemur fram, að honum finnst fráleitt að dæma lög- reglumenn og láta þá sæta per- sónulegri fébótaábyrgð fyrir gá- leysisverk og eins að sekta þá fyrir tjón sem þeir kunna að valda í aðkallandi útköllum, þar sem jafnvel mannslíf eru í húfi. Nú er rekið fyrir dómstólum mál, þar sem saksóknari krefst þess að lögreglumaður verði sviptur ökuleyfi og sektaður vegna áreksturs sem hann olli, þegar hann var að sinna tilkynningu um mann með hjartaáfall. Um það er ekki deilt, að menn hafi rétt til að krefjast máls- sóknar vegna atvika er snerta störf lögreglumanna. Efnisleg- um niðurstöðum dómstóla verð- ur ekki breytt af þeim sem utan dómskerfisins standa. Hins veg- ar geta dómar leitt til þess að mönnum verði ljós þörfin fyrir að setja ný lög eða breyta lög- um. Sé málatilbúnaður í Skafta- málinu skoðaður er auðvelt að færa rök fyrir því, að lögreglu- menn geti vel við dómsniður- stöðuna unað. Kröfum um refs- ingu fyrir ólöglega handtöku var hafnað. Einnig var því hafnað, að lögreglumenn hefðu vísvit- andi veitt Skafta Jónssyni áverka í andliti. Meirihluta dómenda Hæstaréttar þótti það „allsendis ófullnægjandi gæsla á Skafta", að aðeins einn lögreglu- maður skyldi gæta hans aftur í lögreglubifreiðinni „þegar haft er í huga að hann var í miklu uppnámi og braust um“ eins og segir í forsendum dóms Hæsta- réttar. Tveir lögreglumenn sátu í framsæti bifreiðarinnar en lögreglumaðurinn sem var hjá Skafta hélt honum í handjárn- um á grúfu á gólfi lögreglubif- reiðarinnar. „Við þetta svo og hreyfingar bifreiðarinnar er sennilegast að Skafti hafi hlotið andlitsáverkana,“ segir í for- sendum meirihluta Hæstarétt- ar. Telur meirihluti dómenda lögreglumanninn sem sat yfir Skafta hafa sýnt gáleysi og dæmdi hann í sekt. Minnihlut- inn, tveir dómarar af fimm, vildi sýkna lögreglumennina eins og gert var í héraðsdómi. Eins og áður segir telja for- svarsmenn lögreglumanna, að með þessum dómi hafi Hæsti- réttur raskað réttarstöðu lög- reglumanna. Morgunblaðið er þeirrar skoðunar að þessi rétt- arstaða þurfi að vera skýr og ótvíræð. Sé um vafaatriði að ræða þarf að greiða úr þeim með skýrum og afdráttarlausum reglum. Verði lögreglumenn að una því að bera sjálfir ábyrgð á gáleysi við framkvæmd starfs- skyldna við erfiðar aðstæður og á viðkvæmum stundum, þarf að koma til móts við þá ábyrgð í mati á launum lögreglumanna eða með viðunandi tryggingum. Hlutverk lögreglunnar er oft vanþakklátt. Leiða má rök að því, að í Skaftamálinu hafi lög- reglumaðurinn verið dæmdur fyrir að gæta þess ekki nægilega vel, að sá sem kærði hann fyrir hrottaskap, færi sér ekki að voða. Allir dómararnir í Skaftamál- inu eru sammála um, að meðal gagna málsins, sem lögð voru fyrir héraðsdóm, hafi verið ýmis óþörf og þýðingarlaus gögn, svo sem ljósrit blaðafrétta og blaða- greina um málið. Með þessum orðum víkja dómarar að því mikla moldviðri sem verið hefur í kringum þetta mál í fjölmiðl- um. Einar Bjarnason, formaður Lögreglufélags Reykjavíkur, sagði í Morgunblaðsviðtalinu á laugardaginn, að í Skaftamálinu hafi fjölmiðlar með „reginafli" sínu fengið „almenningsálitið til að dæma lögreglumennina þrjá seka fyrir ofbeldi." Má skilja Einar á þann veg, að sá dómur sé jafnvel þyngri en niðurstaðan í Hæstarétti. Hér skal síður en svo gert lítið úr þessari tilfinningu lögreglu- manna. Það er þó ósanngjarnt hjá þeim að draga alla fjölmiðla í sama dilk í þessu efni. Morgun- blaðið telur að Skaftamálið hafi ekki rýrt traust manna til lög- reglunnar. Á hinn bóginn gefur málið fyllsta tilefni til að rætt sé málefnalega um réttarstöðu lögreglumanna og húsbónda- skyldu ríkisins vegna tjóns sem þeir valda af gáleysi við fram- kvæmd vandasamra og mikil- vægra starfa sinna. Listasafn háskólans í hugvísindahúsið Odda LISTASAFN háskóla íslands, sem stofnað var áriö 1980, hefur nú fengið fastan samastaö á efstu hæö í hinu nýja hugvísindahúsi háskólans, Odda, en þar hafa verið sett upp um 90 listaverk af þeim tæplega 250 verkum, sem safnið á. Að meginstofni til eru verk í eigu Listasafns háskólans gjöf hjónanna Ingibjargar Guðmundsdóttur og Sverris Sigurðssonar fyrrum iðnrek- anda, samtals 140 verk, þar af 115 eftir Þorvald Skúlason. En í stofnskrá safnsins er kveðið á um að 1% þeirrar fjárhæðar sem varið er til nýbygginga á vegum háskól- ans skuli renna til safnsins og meðal annars notað til kaupa á nýjum listaverkum. Á þeim fimm árum sem safnið hefur verið starfrækt hefur stjórn þess fest kaup á 90 listaverk- um eftir 60 höfunda, og nokk- ur fleiri verk hefur safnið fengið að gjöf. í stjórn Listasafns háskól- ans hafa verið frá upphafi, Sverrir Sigurðsson, Björn Th. Björnsson listfræðingur og dr. Gylfi Þ. Gíslason prófessor, sem jafnframt er formaður stjórnarinnar. Björn Th. hef- ur haft umsjón með safninu frá öndverðu og lýsti því svo að þar kæmu fram þrjár kynslóðir listamanna, en safnið hefði þó þá megin- stefnu að kaupa fyrst og fremst verk eftir listamenn í nútímanum. „Við lítum á þetta sem nú- tímasafn," sagði Björn og þeir Gylfi bættu því við að þeir væru ekki einir um þá skoð- um, og voru þá að vísa til orða Braga Ásgeirssonar í Morg- unblaðinu nýverið, þar sem hann sagði að þetta safn bæri með réttu að kalla nýlista- safn. Safnið verður opið í sumar alla daga vikunnar frá 13.30- 17.00 og er enginn aðgangs- eyrir. Á veturna hins vegar verður salurinn nýttur sem lesstofa fyrir stúdenta, án þess þó að myndir hverfi af veggjum. Biskupsvísitasíu í Ra árvallaprófastsdæmi VÍSITASÍU biskups íslands, herra Péturs Sigurgeirssonar, í Rangár- vallaprófastsdæmi lauk sl. miðviku- dag með guðsþjónustu í Skarðs- kirkju á Landi. Hafði biskup þá vís- iterað fimm prestaköll og tekið þátt í guðsþjónustum í 13 kirkjum, auk Voðmúlastaðakapellu. í prófasts- dæminu er sjötta prestakallið, Kirkjuhvoisprestakall, en það verðr vísiteraö síðar á þessu ári þar sem sóknarpresturinn, sr. Auður Eir Vil- hjálmsdóttir, er nú í leyfi. Vísitasían tók 12 daga og var kirkjusókn víða ágæt, enda þótt nú sé helzti bjarg- ræðistími ársins. Séra Sváfnir Sveinbjarnason prófastur og frú Ingibjörg Halldórsdóttir voru í fylgd með biskupshjónunum í vísitasíunni, en auk þess var sr. Magnús Guð- jónsson biskupsritari með í för. „Það hefur verið okkur hjónun- um mikil ánægja að ferðast um prófastsdæmið og hvarvetna höf- um við fundið mikinn hlýhug og ræktarsemi í garð kirkjunnar. Það er auðfundið að kirkjan er fólkinu hér um slóðir mikils virði í lífs- baráttunni, en hún er frábrugðin því sem við í þéttbýlinu eigum að venjast. Við höfum yfirleitt verið heppin með veður og það er sann- arlega ánægjulegt að fá að sjá þessar fögru sveitir í svo björtu ljósi. Mér eru minnisstæð orð sem húsfreyjan á Keldum lét falla í samtali við mig er ég dáðist að því hversu mikill árangur hefur náðst í baráttunni við sandfok og upp- blástur: „Það hefði verið auðveld- ara fyrir okkur að gefast upp en að þrauka. Það gerðum við nú samt.“ Þessi ummæli bera dugnaði og myndarskap fólksins hér fag- urt vitni. Þegar komið er í kirkjur hér í prófastsdæminu vekur það athygli að víða eru fagrir gripir og' þegar spurt er um uppruna þeirra er svarið ávallt á sömu lund; þetta eru gjafir sem einstaklingar hafa gefið til minningar um látna ást- vini. Þetta sýnir e.t.v. einna bezt hver hugur fólksins er í garð kirkjunnar. Sumar sóknir sem við höfum heimsótt eru fámennar og þar sem svo háttar til hefur verið tekinn upp sá siður að hafa sam- eiginlegar messur í tveimur sókn-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.