Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 23
MOBGUNBLADID. ÞRIÐJUDAGUR S8/f0lÁ(im> 23 Portúgal: Fyrrverandi byltingarhetja forsprakki hryðjuverka- samtakanna FP-25? Lissabon, 22. júlí. AP. KÉTTARHÖLD yfír Otelo Saraiva de Carvalho, fyrrverandi hetju og bylt- ingarleiðtoga, hófust í Lissabon í dag. Ásamt Carvalho eru fimmtíu og sjö menn ákærðir. Carvalho er ákærður fyrir að hafa stjórnað hryðjuverkasam- tökum sem hafa kennt sig við 25. aprfl, FP-25, og hafa unnið ýmis hermdar- og skemmdarverk í landinu síðustu árin. Gríðarlegar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar vegna þessa máls. Einn fulltrúi sakborninga varð fyrir árás rétt fyrir helgina, enda segja talsmenn lögreglu, að ekki hafi tekizt að hafa upp á nema fáum félögum í FP-25. Fylgst er með máli þessu af mikilli ákefð í Portúgal. Carvalho var einn þeirra sem atkvæðamikill í stjórn landsins hvað drýgstan þátt átti í að ryðja sumarið 1975, þegar vinstrimenn einræðisstjórn Caetano úr sessi voru hvað áhrifamestir. Hann 25. apríl 1974. Hann varð varð þá mjög umdeildur fyrir að- gerðir sínar og yfirlýsingar og þegar Eanes, núverandi forseti, og nokkrir aðrir herforingjar komu upp um samsæri í nóvember 1975, sem átti að tryggja endanlega valdatöku vinstri manna og kommúnista, hvarf Carvalho að mestu úr sviðsljósinu. Hann hefur nokkrum sinnum reynt að bjóða sig fram til þings, en ekki fengið fylgd svo neinu næmi. Búizt er við að réttarhöldin standi svo mánuðum skipti. Náttúruhamfarirnar á Ítalíu: „Sá föður minn hverfa í flóðbylgjuna“ Talið að vanræksla eigi þátt í því að varnargarðar uppistöðulóns brustu Torino og SUva, ÍUlíu, 22. júlfi. Frá frétUrit* ara Morgunblaðsins, Brynju Tomer, og AP. ..Ég sá föður minn hverfa i flóðbylgju, sem þeytti með sér hús- um, trjám, leir og eðju,“ segir Lucia Morandini, tvítug stúlka, sem starfaði ásamt foður sínum í íþróttavöruverzlun í Fiemme-dal. Kúmlega 200 manns fórust í vatns- flóði í dalnum á föstudag í kjölfar þess að varnargarður við uppi- stöðulón brast. Ekki hefur tekizt að bera kennsl á tæplega 100 lík, þar sem þau eru mjög illa farin. Þeir 15 sem björguðust dvelja nú á sjúkrahúsi í Trento, næstu borg við Fiemme-dalinn. Helzta spurningin, sem ítalsk- ir fjölmiðlar spyrja, er hver beri ábyrgð á atburðinum. Komið hefur í ljós að á síðastliðnum ár- um hafi verkamenn gert viðvart um sprungur í varnargarðinum. Rannsókn á orsökum slyssins stendur nú yfir og verður yfir- heyrslum haldið áfram þar til niðurstöður fást. Talið er að van- ræksla eigi stóran þátt í því hvernig fór. Engar tryggingar munu vera fyrir stórslysi sem þessu og því tjóni sem af því hlýst. Meðal þeirra sem dvelja á sjúkrahúsinu er 24 ára gömul stúlka, Maria Cara, en hún lá klemmd milli trjáa og húsarústa í 18 klukkustundir áður en henni var bjargað. Hjúkrunarkona sú er annast Mariu sagði í samtali við dagblaðið La Stampa, að líð- an stúlkunnar væri eftir atvik- um, hún væri komin úr lífshættu og með meðvitund, en líkami hennar, sérstaklega fætur og fótleggir, væri illa farinn. „Ég hefði kosið að koma hingað undir öðrum kringum- stæðum," sagði Francesco Coss- iga, forseti Ítalíu, við komu sína til Tesero í gær, en það var fyrsta embættisverk hins ný- kjörna forseta að fara til flóða- svæðisins og kynna sér ástand þar. Dvaldi forsetinn á staðnum allan daginn, ræddi við ættingja hinna látnu, vottaði þeim samúð sína og heimsótti slasaða á sjúkrahúsinu. Lucia Morandini, sem áður er getið, kvaðst hafa heyrt gífur- legan hávaða úti fyrir skömmu eftir hádegi á föstudag. „Ég hélt að öflugur jarðskjálfti væri að ríða yfir. Ég opnaði útidyrnar, en hurðin skelltist aftur og ég þeyttist út í horn. Faðir minn var í tveggja metra fjarlægð og ég horfði á hann deyja án þess að geta nokkuð gert,“ sagði Lucia. „Ég kem aldrei aftur til Fi- emme-dalsins," sagði Pier Giorgio, 52 ára gamall Mílanó- búi. Hann var einn af þeim fáu sem komst lífs af, en hann missti konu sína og átta ára son sinn. Eldri sonur Pier, sem er 17 ára, komst einnig lífs af. Pier hafði komið í frí til Fiemme-dalsins í 40 ár, en „hingað kem ég aldrei aftur, aldrei," sagði hinn ör- væntingarfulli Mílanóbúi að lok- um. íran: Bazargan reynir að bjóða sig fram við forsetakjör Nikósíu, Kýpur, 22. júlí. AP. ÞRJÁTÍU manns í íran, þar á með- al innanríkisráðherrann, hafa látið skrá sig sem hugsanlega frambjóð- endur við forsetakosningar í land- inu í næsta mánuði. Núverandi for- seti, Ali Khamenei, kunngerði um helgina að hann gæfi kost á sér til endurkjörs. í fréttum IRNA, ír- önsku fréttastofunnar, var tekið fram, að menn yrðu að uppfylia ým- is skilyrði til að geta farið í forseta- framboð og yrði þeim aðeins leyft að heyja kosningabaráttu og vera formlegir frambjóðendur. Haft er eftir írönsku blaði, að í hópi þeirra sem vildu bjóða sig fram væru Mehdi Bazargan, fyrsti forsætisráðherra Khom- einistjómarinnar, og nokkrii aðrir fyrrverandi ráðherrar. Ekk er vitað hvenær kjörnefnd sem í að úrskurða um hæfni frambjóð endanna lýkur störfum. Um helgina sprakk sprengja bíl við Abuzartorg í Teheran 0{ urðu minniháttar sprengingar ai sögn IRNA. Compi Camp tjaldvagnar í ferðalagið Okkur tókst að útvega eina aukasendingu af þessum vinsælu vögnum. Nú er að hafa hrað- an á og krækja sér í einn. Úrvals ferdabíll Hagstætt verð. Góðir greiösluskilmálar. Til afgreiðslu strax. Mest seldi tjaldvagn á íslandi. áSk Bolholti 4, Reykjavík sími 91-21945/84077. MITSUBISHI L 300 4x4 (alcflrif) 8 sæta mini bus meö torfærueiginleika. Kjörinn bíll fyrir vinnuflokka og stórar fjölskyldur. Verð frá kr. 763.900.- Lokaöur sendibíll meö renni- hurðum á báöum hliöum og stórum dyrum á afturgafli. Lipur og sparneytinn sendibíll. Ákjósanlegur til vöruflutninga. ! Verö frá kr. 564.000.-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.