Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLf 1985 Rauði krossinn: Margir vilja í hjálparstörf Verða fyrst að ljúka ströngu námskeiði UNDANFARNA daga hafa margir snúið sér til Rauða kross íslands og spurst fyrir um möguleika á því aö komast til starfa á vegum sam- takanna í Afríku. Jón Ásgeirsson framkvæmda- stjóri Rauða kross Islands sagði Rene Carillo frá Mexíkó. Hann er starfsmaður Alþjóðasambands Rauða krossins í Genf og hefur komið tvívegis hingaö til lands og kennt á námskeiðum Rauða kross- ins. að þessi áhugi væri vissulega gleðilegur en hann vildi taka það fram að enginn kæmist í þessi störf nema að hafa áður lokið sérstöku námskeiði sem Rauði krossinn gengst fyrir. Þessi námskeið eru að sögn Jóns mjög ströng. Þau standa í sex daga frá morgni til kvölds og fara öll fram á ensku og kemur námsefnið frá höfuðstöðvum Al- þjóða Rauða krossins í Genf. Síðast var slíkt námskeið haldið í vor og komust þá færri að en vildu, að sögn Jóns. Hann sagði að yfirleitt væru teknir u.þ.b. 20 þátttakendur á hvert námskeið en umsækjendur hafa verið um 50. Næsta námskeið verður væntanlega haldið næsta vor. „Við höfum verið beðnir að senda fólk til Eþíópíu og Súdans og er það mál nú í athugun. Um það bil fimmtán manns, sem lokið hafa þessum námskeiðum, eru nú reiðubúnir til þessara starfa og auk þess á fjórða tug manna sem áður hafa unnið við hjálparstarf og eru reiðubúnir að fara aftur. En allir þeir sem hafa áhuga á þessum störfum eru velkomnir á námskeið hjá okkur því aldrei er of margt fólk í þessum störfum," sagði Jón að lokum. Nýr salur í Veitingahöllinni Nýr veizlusalur, sem tekur allt upp í 50 manns, hefur verið tek- inn í notkun í Veitingahöllinni í Húsi verzlunarinnar. Er salur- inn innaf setustofu og bar veit- ingahússins og tengdur setu- stofunni. Innréttingar eru hinar sömu. „Fólk getur tekið á leigu mat- sal og setustofu fyrir hádegis- og kvöldfundi og veizlur hvers kon- ar,“ sagði Jóhannes Stefánsson, framkvæmdastjóri Veitingahall- arinnar í samtali við Morgun- blaðið. „Við tókum hinn nýja sal í notkun í tilefni tveggja ára af- mælis Veitingahallarinnar. Sal- urinn verður til útleigu fyrir stóra og smáa hópa og leggjum við áherslu á þægilegt umhverfi og góða þjónustu," sagði Jóhann- es. Yfirþjónn er Hörður Har- aldsson. MoiyunblsðiA/Július Jóhannes Stefánsson, framkvæmdastjóri Veitingahallarinnar, og Jón B. Sigurðsson, þjónn, í hinum nýja veitingasal. Að baki er setustofan með bar. Fréttapistill frá Winnipeg / Margrét Björgvinsdóttir Vaxandi starfsemi nor- ræna hússins í Winnipeg Lee Brandson Norræna húsið í Winnipeg stendur við Erin-stræti og satt best að segja stenst það að ytra búnaði hvergi nærri samanburð við Norræna húsið í Reykjavík. Þetta er gamalt hús, blámálað. Þó á þar sér stað harla merkileg starfsemi. Fram til ársins 1984 störfuðu norrænu félögin hér hvert í sínu horni og samvinna lítil sem engin milli þeirra. Áttu raunar fátt sameiginlegt annað en biankheitin og aðstöðuleysi fyrir starfsemina. Hér á árum áður átti Þjóðræknis- félag Islendinga í Vesturheimi hús það sem fyrrum hafði hýst Jóns Bjarnasonar-skólann og hafði Is- lendingafélagið Frón þar ailgóða aðstöðu, en það var orðið iúið, enda komið til ára sinna og þótti ekki leggjandi út í kostnað við við- gerðir og var húsið því selt. Eftir það, og raunar áður, fóru flestar skemmtanir og fundir íslendinga- félagsins fram í fyrstu Lúthersku kirkjunni í Winnipeg og var það varla viðunandi aðstaöa. Magnús Elíasson, borgarfulltrúi í Winni- peg, var svo einn af hvatamönnum þess að norrænu féíögrn samein- uðust um kaupin á húsinu við Er- in, og var það formlega tekið í notkun í marsmánuði 1984. „Starfsemin hefur gengið vel þetta fyrsta ár þó við eigum margt ólært og ógert", segir Lee Brand- son, þjóðlagasöngvari, leikari og málvísindamaður, sem verið hefur manna dugmestur við að veita nýju lífi í félagsskap íslendinga upp á síðkastið. „Húsnæðið gerir kleift að stunda margskonar starfsemi sem ekki var áður möguleg. Á efri hæð hússins hefur hvert land sitt sérstaka herbergi til fundahalda og þar hefur farið fram tungumálakennsla í vetur sem er stór liður í starfsemi húss- ins. íslendingafélagið Frón hefur um það bil jafn marga félaga og hin norrænu félögin samanlagt og hafa þeir -því haft einna mest um- svif. I vetur var íslenska kennd í fjórum hópum, eftir því hve langt fólk var komið á leið í náminu. Var þar tekin upp sú nýbreytni að kenna börnum og mæltist það mjög vel fyrir. Um sjötíu manns munu hafa sótt þessi íslensku- námskeið á vegum félagins. Auk þess er á efri hæð framreiddur skandinavískur matur og aðstaða er til að setjast niður, fá sér krús af öli og spjalla við náungann. Á neðri hæð er svo stór samkomu- salur, þar sem haldin eru böll og árshátíðir og þar æfir skandina- víski kórinn einu sinni í viku. Frón á allstórt íslenskt bóka- safn sem komið hefur verið fyrir í íslenska herberginu. Þvi miður hefur safnið ekki nema örfá sýn- ishorn af nýrri bókum. Á vegum Fróns erum við að stofna bóka- klúbb eða leshring og við stofnun hans opnast möguleikar á styrkj- um til kaupa á nýjum íslenskum bókum. Nú er verið að ganga frá fyrstu pöntun og eru það aðallega nýútkomnar íslenskar skáldsögur, leikrit og barnabækur. Einnig væri möguleiki á að koma á laggirnar norrænni bók- sölu. Sé ég ekki betur en það sé mikil þörf fyrir slíkt fyrirtæki hér í Winnipeg. Norrænt áhugamannaleikfélag var stofnað sl. haust á vegum hússins. Þar hafa íslendingar ver- ið í meirihluta og raunar gengið heldur illa að fá aðra skandinava til leiks. Aðalverkefni félagsins í vetur var að vinna efni upp úr ís- lenskum þjóðsögum en nú er verið að æfa Jóðlíf eftir Odd Björnsson og verður fyrsta sýning á því væntanlega á íslendingadeginum á Gimli í byrjun ágúst. írar, sem hafa sitt félagsheimili og leikhús í næsta nágrenni, hafa sýnt okkar leikfélagi mikinn áhuga og boðið upp á margskonar aðstoð og stuðning. Næsta vetur er í bígerð að halda þjóðlagakvöld, a.m.k. einu sinni í mánuði. Þá vonumst við til að fá í heimsókn þjóðlagasöngvarann Richard White frá Edmonton. Hann gaf nýverið út plötu þar sem hann syngur ljóð Stephans G. Stephanssonar í enskum þýðing- um. Lögin hefur hann sjálfur sam- ið og hefur platan fengið mjög góðar viðtökur hvarvetna hér í Kanada, og hann raunar notið margvíslegrar aðstoðar Vestur- Islendinga við gerð hennar. f því sambandi vil ég benda á að Rich- ard White sameinar bæði íslenska og kanadíska menningararfleifð og hana viljum við styðja. Við sem störfum fyrir Frón gerum okkur grein fyrir því að til Kanada fluttu íslendingar fyrst fyrir rúmri öld og ungt fólk f dag lítur fyrst og fremst á sig sem Kanada- menn, en íslenski arfurinn er ofarlega í því. Takist okkur að tengja þessa tvo þætti eru meiri möguleikar á að fá ungt fólk til þess að taka þátt í starfi norræna hússins hér í Winnipeg. —mb CH PIONEER ....06 BÍLLINN MEREXJR EINS OG HUÓ41UIMHÖLL Á HJÓUJM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.