Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1986
Eygi ekki nokkra von
— segir Rafn Thorarensen um íbúðarmál sín
„Ég eygi ekki nokkra von í dag og bíð eftir htekkun á fasteignamarkaðin-
um. Þá sel ég íbúðina á meðan ég á eitthvað í henni,“ segir Rafn Thoraren-
sen, múrari, sem undirritaði samning haustið 1980 við byggingafélagið Bygg-
ung í Kópavogi um kaup á 79 fermetra, 3ja herbergja, íbúð. Aætlaður
byggingarkostnaður var 505 þús. kr. um áramót 1980—1981, miðað við 67%
verðbólgu á byggingartímanum. Endanlegur byggingarkostnaður i janúar
1984 varð hinsvegar 711 þús. kr., sem Rafn hefur meðal annars fjármagnað
með 525 þús. kr. í lífeyrissjóðslánum og öðrum skammtímalánum. Heildar-
upphæð lána, sem hvfla á íbúðinni í dag er 1.600.000 þús. kr. Lánin eru öll
verðtryggð og afborganir eru um 400 þús. kr. á ári af um 600 þús. kr.
árslaunum.
Byrjaði með tvær
hendur tómar
„Það má segja að ég hafi byrjað
með tvær hendur tómar, því ég
átti ekki neitt og varð að taka líf-
eyrissjóðslán til að greiða stað-
festingargjald fyrir íbúðina. Lán-
ið, sem er verðtryggt var upphaf-
lega, árið 1980, 28.500.00 kr. og af
því hef ég þegar greitt 100 þús. kr.,
en eftirstöðvarnar í dag eru komn-
ar í um 200 þús. kr.“
— ÞÚ hefur ekki verið hræddur
við að leggja út í þessar fram-
kvæmdir?
„Nei, ég átti í rauninni ekki
annarra kosta völ. Við vorum búin
að vera í leiguhúsnæöi frá því árið
1977 og okkur fannst ekkert vit 1
að búa við þau fjárútlát og óöryggi
áfram. Ég hafði heyrt að í
byggingarsamvinnufélögum
byggðu menn langt undir kostnaði
miðað við íbúðir á opinberum
markaði og á þessum árum gerðu
þau það. Dæmið hefði ugglaust
gengið upp ef ekki hefði komið til
skert laun og óðaverðbólga."
Leist vel á að byggja með
byggingarsamvinnufélagi
„í lögum um byggingarsam-
vinnufélög skuldbinda þau sig til
að láta fagmenn í hverri iðngrein
vinna alla vinnu en gefa jafnframt
eigendunum kost á að vinna sjálfir
í eigin íbúð ef þeir eru fagmenn
eins og til dæmis í mínu tilfelli.
Þess vegna leist mér vel á að
byggja með þeim.“
— Og stóðst það?
„Biddu fyrri þér. Þetta hefur
verið eintómt svekkjelsi og leið-
indi og menn áttu í erfiðleikum
með að komast að í íbúðum sínum
til að vinna í sínu fagi.
Maður var sjálfur að puða við að
standa við eigin skuldbindingar og
greiða samkvæmt þeim kostnað-
aráætlunum, sem félagið lagði
fram. Byggingarfélagið gat hins-
vegar hagað sér eins og það vildi
og tekið tilboðum í hina ýmsu
verkþætti eftir eigin geðþótta.
Sem dæmi get ég nefnt að tekið
var tilboði í alla málningarvinnu
hússins, sem var 40% yfir kostn-
aðaráætlun."
Byggingarsamvinnufélög
hafa ekki nægilegt aðhald
„Áður en eigendur fengu íbúð-
ina afhenta í maí 1982 urðu þeir
að vera skuldlausir við byggingar-
félagið. Þá var lögð fram ný
greiðsluáætlun, sem náði fram á
árið, sem fól í sér hækkanir, sem
enginn eigendanna hafði gert ráð
fyrir. í júnímánuði hækkaði
greiðslan úr 12 þús. kr. í 40 þús.
kr., hina mánuðina var gert ráð
fyrir 14 þús. kr. greiðslu á mánuði.
Þegar spurt var hvernig stæði á
því að hækkunin væri svona mikil
Rafn Thorarensen múrari
í júní var svarið: „Þetta er bara
svona“.“
— Finnst þér byggingarfélagið
eiga sök á því hverning staða þín
er í dag?
„Málið er því miður ekki svo
einfalt. Ég vil hinsvegar undir-
strika það, að ég álít byggingar-
samvinnufélögin ekki hafa nægi-
lega mikið aðhald og þau veita
mönnum ekki nægilega góðar upp-
lýsingar áður en hafist er handa í
upphafi. Þegar kom að endanlegu
uppgjöri 1984 þá gekk það í alla
staði vel, var mjög þægilegt. Ég
varð hinsvegar að taka nýtt lán til
að geta gert upp.“
Á alltaf minna og
minna í íbúðinni
— Hvað átt þú mikið í íbúðinni
í dag?
„Ætli ég slyppi ekki með að eiga
um 200 til 300 þús. kr. 1 íbúðinni
miðað við markaðsverð á svona
íbúð í dag, sem er á bilinu 1,8 til 2
milljónir. Skuldirnar, sem hvíla á
íbúðinni eru komanr í 1,6 milljónir
kr. og á meðan lánskjaravísitöl-
unni er ekki breytt á ég alltaf
minna og minna í íbúðinni eftir
því sem tíminn líður.
Á byggingartímanum frá 1980
til 1985 breyttist hlutfall milli
launa og lánskjaravisitölu. Ef
hlutfallið væri það sama i dag og
það var í janúar 1981 þyrftu mín
laun að hækka um 50% eins og
best sést á einingaverðinu, sem
notað er sem viðmiðun við launa-
greiðslur í uppmælingavinnu hjá
múrurum. Það er í dag kr. 17,15 en
ætti að vera um kr. 26,00, ef miðað
er við að það hefði fylgt lánskjara-
vísitölunni. Ég varð því fyrir
verulegri kjararýrnun á þeim
tíma, sem ég stóð i stórframr
kvæmdum.
Auk þess varð ég fyrir því eins
og margir aðrir að lenda í tima-
bundnu atvinnuleysi i tvigang á
þessum tíma. Það stóð i rúma tvo
mánuði í hvort skipti. Þá mánuði
varð ég enn að gripa til skamm-
Á ÁRIÆSKUNNAR
Tilboð í kaupfélögunum 22. til 27. júlí ’85
til þeirra sem ferðast innanlands
Nú, á ári æskunnar, vlljum vlð hjálpa ungu fólki til að ferðast um eigið land. í því
skyni bjóðum við ýmsar vörur í ferðalagið á sérlega hagstæðu verði í kaupfélögum
um land allt. Vörurnar sem um er að ræða eru meðal annars:
CARÁVAM göngutjöld
CARAVAM bakpokar
Vopni-regnfatnaður
andlitsþurrkur
ffi
CARAVAM svefnpokar
íþróttasokkar
konfekt með appelsínufyllingu
HOLTAKEX 3 tegundir
Vinnum saman V
Vertu með / J Kaupfélögin
Sýslunefnd V-ísafjarðarsýslu ályktar:
Fiskiðnaðurinn fái orku
á sama verði og járn-
blendiverksmiðjan
AÐALFUNDUR sýslunefndar
Vestur-ísafjarðarsýslu var haldinn á
ísafirði 6.—7. júní síðastliðinn og
var fjöldi mála til umrsðu.
Meðal annars var fjallað um
samgöngumál og var samþykkt
ályktun þar sem því er fagnað að
samgönguráðherra hefur lýst því
yfir að næsta stórverkefni í vega-
gerð á Vestfjörðum verði bygging
brúar yfir Dýrafjörð. í ályktun-
inni er Skipaútgerð ríkisins þakk-
að fyrir bætta þjónustu við Vest-
firðinga, en jafnframt er bent á
mörg óleyst verkefni á sviði
flugmála í fjórðungnum.
Sýslunefndin ræddi einnig um
Geðhjálp:
Opinn fund-
ur með Judy
Chamberlin
HÖFUNDUR bókarinnar „On Our
Own“, Judi Chamberlin, heldur
fyrirlestur í dag, þriðjudaginn 23.
júlí, í Kristalsal Hótels Loftleiða.
Hún kemur hingað á vegum Geð-
hjálpar. í fréttatilkynningu Geð-
hjálpar segir, að Judi sé sjálf fyrrver-
andi geðsjúklingur og leiðtogi í rétt-
indabaráttu geðsjúkra í Norður-
Ameríku.
Umræðuefni fundarins verður
jjálfshjálparhreyfing geðsjúkra
ig valkostaþjónusta í geðheil-
>rigðismálum auk þess sem Judi
?hamberlin mun segja frá reynslu
inni af geðsjúkrahúsum og störf-
im alþjóðlegrar ráðstefnu um
eðheilbrigðismál, sem haldin var
Englandi, fyrir skömmu.
Fundurinn, sem er öllum opinn,
efst klukkan 20:30 og verður er-
ídi Judi Chamberlin þýtt jafnóð-
m yfir á íslensku.
riðuveiki í fjórðungnum og lýsti
yfir stuðningi við aðgerðir Sauð-
fjárveikivarna í því máli. Nefndin
harmar að heimamenn skuli ekki
hafa borið gæfu til samstöðu í
þessu máli og telur nauðsynlegt að
koma í veg fyrir að sá ágreiningur
stefni árangri af fjárskiptum í
voða.
í ályktun um skólamál er það
gagnrýnt að mikið vanti á að
ákvæöum grunnskólalaganna sé
framfylgt í sýslunni og er bent á
tíða skipun réttindalausra kenn-
ara til starfa og skort á kennslu-
húsnæði og skólabókasöfnum í því
sambandi.
Að lokum var samþykkt ályktun
um atvinnumál, þar sem segir
meðal annars að nú sé þrengt
mjög að höfuðatvinnugreinum í
sýslunni, sjávarútvegi og landbún-
aði, með kvótakerfi og fjársvelti. í
niðurlagi ályktunarinnar segir:
„Vestfirska stóriðjan, fiskiðnaður-
inn knýr á um sama orkuverð og
járnblendið á Grundartanga.
Ennfremur þarfnast aðilar hér
breytinga á dollaralánum í hag-
stæðari gjaldmiðla líkt og Lands-
virkjun hefur fengið. Gagngerð
bylting atvinnuhátta verður vart
hér í næstu framtíði Því er nauð-
synlegt að treysta grundvöllinn og
byggja upp framúrstefnu í hinum
hefðbundnu atvinnugreinum, gera
þær arðsamar, vellaunaðar og eft-
irsóknarverðar. Þjónusta, verslun
og iðnaður myndu í kjölfar þess
blómgast, mannlífið eflast, listir
og menning vaxa, byggðir styrkj-
ast og trúin á framtíðina kæmi í
stað bölmóðs og uppgjafar."
(Úr fréttatilkynningu)
INNLENT