Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 9
^ðkbteAl)ig,^fefbjWAgbWmrim EŒ oÚáttíi M dml :> til búreksturs &Perkins POWERPART ksmpBr OC ALFA-LAVAL MUELLER IMM|IM1||0 BÚNADARDEILD ARMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900 GLÆSILEGIR SKRAUTMUNIR Á GÓÐU VERÐI Á hverju ári byrjar Rosenthal fram/eiðslu á úrvali nýrra skrautmuna eftir heimsþekkta hönnuði. Um leið er einnig hœtt að framleiða ýmsa skrautmuni, sem lengi hafa verið á boðstólum. Rosenthal hefur gefið okkur kost á að bjóða viðskipta- vinum okkar slíka skrautmuni, sem nú er hœtt að framleiða, á lækkuðu veröi með allt að h elm ingsafslœtti. Nœstu vikur munum við bjóða slíkar vörur í verslun okkar á meðan birgðir endast. studiohúsið Á.EINARSSON & FUNK HF ' Laugavegi 85 SÍMI 18400 9 Svört skýrsla um tann- heilsu íslendinga Viö verjum álíka háu hlutfalli ríkisútgjalda til tannlæknisþjónustu og aörar Noröur- landaþjóðir, raunar hærra hlutfalli en Norö- menn, aö því er kemur fram í „svartri skýrslu um tannheilsumál íslendinga". Viö erum fimmta bezt setta þjóöin í heiminum, hvaö varöar fjölda tannlækna; viö höfum 1 tann- lækni fyrir hverja 1.250 íbúa. Engu aö síður skemmast aö jafnaöi fleiri tennur í íslend- ingum en nokkurri annnarri þjóö í heimin- um; tvisvar sinnum fleiri en skemmast í íbúum annarra Noröurlanda. Staksteinar staldra viö þessi mál í dag. Eitthvað er að Magnús R. Gíslason, yf- irtannlæknir ■ heilbrigðis- ráðuneytinu, fjallar um tannheilsu Islendinga, sem er verulega lakari en ann- arra þjóða, í tímaritinu Heilbrigöismál. Hann segir í stuttu máli að meðan við höldum að hægt sé að út- rýma tannskemmdum með því að gera viö skemmdirn- ar leggi hinar Norður- landaþjóðirnar aðal áherzlu á fyrirbyggjandi aðgerðir og sýni fram á, að hægt sé með því móti aö koma í veg fyrir skemmd- irnar. Hann segir orðrétt: „A hinum Noröurlönd- unum hefur tannskemmd- um fækkað um helming á fáum árum. Talið er að það megi þakka lögum og reglugerðum sem þar gilda um tannlæknaþjónustu og kveða m.a. á um hvernig þjónustunni skuli háttað og á hvaða þætti beri að leggja mesta áherzlu: 1) Fyrirbyggjandi starf 2) reglulegt eftirlit og skipu- legar tannlækningar 3) tannviðgerðir. Við höfum aftur á móti byrjað á öfugum enda og nær eingöngu hugsað um tann viðgerðir nar.“ Tannlækna- þjónusta óskipuleg Magnús R. Gíslason seg- ir á öðrum stað í grein sinni: „Tannlæknaþjónusta fyrir skólabörn er víða óskipuleg hérlendis og til- viljanakennd. Á þeim stöð- um þar sem börnin eru ekki kölluð inn til eftirlits reglulega, virðist raunin vera sú að þriðjungur þeirra fer ekki til tann- læknis fyrr en þau fá verk eða bólgu. Afleiðingin er sú að þegar þau loksins koma verða viðgerðirnar um- fangsmiklar og dýrar. Kinnig verða tennurnar veikari á eftir, ef þær tap- ast hreinlega ekki.“ Hann segir ennfremur: „Niöurstaðan er því sú að tannlæknisþjónustan skilar ekki þeim árangri sem æskilegur er. Hið opinbera hefur veitt til hennar fé án þess að gera sér Ijóst gildi forvarnar- starfs og án þess að ákveða, hvað gera skuli, í hvaða forgangsröð veita skuli þjónustuna og hverjir eigi að gera það. Eitt brýn- asta verkefnið í dag er að yfirvöld setji slíkar reglur." Tannvemd Kramkvæmd tannvernd- ar skiptir meginmáli. Mik- ilvægt er aö fyrir' liggi fast- mótuð fyrirmæli eða ábendingar um hana. Sér- fróðir aðilar hafa m.a. bent á, hvar koma megi fyrir fræðshi af þessu tagi: • f mæðravernd: Fræðsla ura tennur, varnir gegn tannskemmdum og réttar matarvenjur, m.a. með fra'ðslumyndum og fræðshibæklingum. l*ar má einnig koma fyrir tann- skoðun og tannhreinsun fyrir verðandi mæður. • f ungbarna- og smá- barnavernd: Kennsla í tannhiröu og mataræði. Út- vegun flúortaflna fyrir börn. • f heilzlugæzlu í skólum: Fyrirbyggjandi aðgerðir: flúorskolun og kennsla í tannhirðu. Fræðslumyndir og bæklingar. Tannskoðun minnst einu sinni ári. Tannviðgerðir. • Heilsuvernd aldraðra, langdvalarsjúklinga og þroskaheftra: Fræðsla, á sama hátt og fyrr er nefnd, tannskoðun og reglulegt tanneftirlit Lögin frá 1975 Árið 1975 vóru sett lög um að hið opinbera skyldi greiða hluta af kostnaði við tannlæknisþjónustu lands- manna. Lögin mæla fyrir um að létta á kostnaöi vegna tannlæknisþjónustu við vissa hópa, fyrst og fremst börn og unglinga til 17 ára aldurs og elle og örorkulífeyrisþega. Hir.s vegar var ekki gert ráð fyrir að breyta tilhögun þjónustunnar. Var hún þvi áfram aðallcga fólgin í tannviðgerðum fremur en i forvarnarstarfi. Grein Magnúsar R. Gíslasonar, yfirtannlæknis, í tímaritinu Heilbrigðismál, sem Staksteinar styöjast fyrst og fremst við í dag, á hinsvegar erindi til aF mennings. Samanburður á tannheilsu íslendinga og annarra þjóða vekur spurn- ingar um, hvort ekki sé brýn þörf á að breyta nokkuð til í skipulagi þess- ara mála hér á landi og leggja ríkari áherzlu á fyrirbyggjandi starfsþætti. TSílamatkadutinn t'tfl11 xQ-t&ttisyötu 12-18 Nisaan Praire 1984 Blásans., tvilitur. Ekinn 17 þús. km. Vökva- stýri, framdrif, 5 gíra, toppgrind, sóllúga m/rafm. Krómteinafelgur o.fl. Sórlega rúm- góóur fjölskyldubíll. Toyota Cand Cruiser 1985 Eklnn 3 þús. km. m/ðllu. Verð 780 þús. Datsun Cherry GL 1984 Ekinn 11 þús. km. Verð 340 þús. Subaru Station 1983 Ekinn 22 þús. km. Verð 435 þús. Ford Fiesta 1979 Ekinn 45 þús. km. Verð 165 þús. Toyota Carina atation 1981 Ekinn 63 þús. km. Verð 290 þús. Mazda 626 Coupé (2000) 1982 Blár. Ekinn 33 þús. km. Sjálfsk. m/öllu. Verð 315 þús. Mikil sala Vantar nýlega bíla á staöinn. Gott sýn- ingarsvæði í hjarta borgarinnar. Mercedes Benz 280 C 1977 2ja dyra, sporttýpa, brúnsans., ekinn 85 þús. km. Sjálfskiptur. útvarp, segulband Bíll i góðu lagi. Verð 650 þús. BMW 318 I 1982 Ekinn 31 þús. km. Verð 410 þus. Toyota Corolla Station 1979 Ekinn 77 þús. km. Verö 175 þús. Bronco Ranger II 1984 Ekinn 24 þús. milur. Verö 1300 þús. Daihatsu Runabout 1983 Ekinn 32 þús. km. Verö 275 þús. Mazda 323 5 dyra 1981 Grænsans. Ekinn 50 þús. km. Sjálfskiptur, 1500 vél, útvarp, segulband. Verö 240 þús. Subaru Station „1600“ 1984 Fjórhjóladrif. Grár. Ekinn 22 þús. km. 1600 vél. Útvarp, segulband, grjótgrind, silsaiist- ar. Verð 430 þús. í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI OG Á KASTRUP- FLUGVELLI .Agglýsinga- síminn er 2 24 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.