Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐK), ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1985 Lindin, hússtjórnarskólinn gamli á Laugarvatni. Hússtjórnarskólinn á Laugarvatni: Nemenda- og kennara- samband stofnað Vestmannaeyjar: Fyrsta hestamótið á þessari öld Vestmannaeyjum, 16. júlí. Á LAUGARDAGINN var haldid hér STOFNFUNDUR Nemenda- og kennarasambands Hússtjórnar- skólans á Laugarvatni var haldinn á Hótel Esju fimmtudaginn 27. júní sl. Rúmlega 70 konur mættu á fundinn. Ákveðið var að halda framhaldsstofnfund á Laugar- vatni hinn 14. september nk. og vonast undirbúningsnefndin eftir að sjá þar sem flesta gamla nem- endur og kennara. Mikill áhugi er fyrir því að koma upp orlofsheimili fyrir fyrrverandi nemendur og kennara og verður það mál rætt ýtarlega á framhaldsstofnfundinum. Kosnir hafa verið tengiliðir fyrir hvern árgang og er hlutverk þeirra að koma á sambandi milli skólasystra sinna og stjórnarinn- ar sem kosin verður á fram- haldsstofnfundinum í haust. Fram Útreikningar gjaldskrár eru á ábyrgð tann- læknafélagsins TANNLÆKNAFÉLAGI íslands þykir miður að ráðgjafarfyrirtæk- ið Hagvangur hefur dregist inn í umræður um gjaldskrár tann- lækna á þann hátt að misskilningi getur valdið. Hagvangur ákvað ekki forsend- ur umræddra gjaldskrárútreikn- inga og eru þeir alfarið á ábyrgð Tannlæknafélags íslands. Stjórn félagsins leitaði á sínum tíma álits tveggja valinkunnra lögfræðinga um lögmæti þeirra og breytti í samræmi við það. Hagvangur var fenginn sem hlutlaus aðili í máli þessu og eru útreikningar Hagvangs réttir mið- að við þær forsendur sem TFÍ lagði til grundvallar. Stjórn Tannlæknafélags íslands. (Fréttatilkynning.) að þeim fundi starfar undirbún- ingsnefnd, sem skipuð er þeim Jensínu Halldórsdóttur forstöðu- konu, Gerði Jóhannsdóttur og Val- borgu S. Böðvarsdóttur. (Fréttatilkynning) í Eyjum hestamót, það fyrsta sem sögur fara af á þessari öld, að því er Magnús Magnússon, einn af skipu- leggjendum mótsins, tjáði fréttarit- ara Mbl. Mættir voru til leiks 24 keppendur með 30 hesta, flestir af Suðurlandi, en einnig mættu all- margir hestamenn úr Vestmannaeyj- um þar sem er vaxandi áhugi á hest- um og hestamennsku. Mótið setti mikinn svip á bæj- arlífið þennan laugardagseftir- miðdag og þar bar mest á hópreið hestamanna gegnum bæinn undir fánum og þeir heimsóttu m.a. vist- fólk á Hraunbúðum, dvalarheimili aldraðra. Síðan var haldið á Stakkagerðistún þar sem bæjar- búum gafst kostur á að skoða reiðskjótana. Þarna háðu hesta- menn knattspyrnu á „kústprika- hesturn" við heimamenn, sem höfðu betur í því ati, 4—2. Þá var haldið á íþróttavöllinn í Löngulá þar sem Skútamótið fór fram. Var þar sýnd hlýðni hesta, torfæru- stökk en aðalkeppnin var í tölti. Þá háðu nokkrir góðborgarar boð- hlaupskeppni sem var í því fólgin að hlaupa ákveðna vegalengd með hnakk í fanginu og söðla hest, þeysa á honum til baka, spretta af honum þeysa til baka berbakt og síðan hlaupa á tveimum misfljót- um til baka í mark. Þetta boð- hlaup gerði góða lukku hjá fjöl- mörgum áhorfendum en sumir keppenda höfðu ekki stigið á hestbak í hartnær hálfa öld. Urslit í töltkeppninni urðu þau að Friðþjófur Vignisson sigraði á Eljari, annar vað Þórður Þorgeirs- son á Léttfeta og þriðji Davíð Jónsson á Hrin. Bestur af hestum Vestmanneyinga var Glóa, eigandi Esther Ingimarsdóttir. Þórður Þorgeirsson var kjörinn besti knapinn. Glæsilegasti hestur mót- sins var kosinn Blær, eigandi Ásmundur Pálsson. Magnús Magnússon sagði fréttaritara þá sögu að þegar Ásmundur var fermdur mátti hann fara í mikið stóð og velja sér hest sem fermingargjöf. Hann valdi ungan fola, nefndi hann Blæ og hefur tamið hann og þjálfað sjálfur. Það voru nokkrir aðilar í Eyjum sem stóðu fyrir þessu móti með Hörð Adólfsson veitingamann á Skútanum í broddi fylkingar og var mótið nefnt Skútamótið Herði til heiðurs. Keppendur og áhorf- endur gerðu góðan róm að þessari skemmtilegu nýbreytni í hesta- mennskunni og er vonast eftir að áfranjhald fylgi. Þegar menn höfðu gengið frá hestum sínum í haga að mótshaldi loknu var skundað í Herjólfsdal þar sem Hörður á Skútanum bauð til grillveislu. Var unað þar við gít- arspil, varðeld og söng fram eftir nóttu. —hkj. Vanir sjómenn vita hve mikið öryggi felst i góðri talstöð, Zodiac Seacom 80 erein sú besta sem völ er á Leiðrétting MEINLEG mistök urðu í samn- ingu fyrirsagnar á opnu bréfi 35 sjómannskvenna á Flateyri til siávarútvegsráðherra, Halldórs Asgrímssonar, þar sem helgar- banni á smábáta er mótmælt. Fréttin birtist á þriðju síðu í B-blaði Morgunblaðsins á sunnu- daginn og rétt er fyrirsögnin svona: „Mótmæla helgarbanni á smábáta." Eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á mistökun- um. rs _ jpglýsinga- síminn er 2 24 80 Heimilistæki bjóöa nú skipa- og bátatalstöövar frá Svíþjóð, sem eru í hæsta gæðaflokki: Zodiac Seacom 80. Seacom 80 er afar þægilegt og fullkomið öryggistæki á góðu verði. Seacom 80 getur vaktað 2 rásir samtímis, kall- rás og alþjóðlegu neyðarrásina, rás 16, sem hefur forgang. Fljótandi kristallar segja til um hvaða rás sé í gangi og aðgengilegir, upplýstir snertitakkar gera rásaval mjög auðvelt. Seacom 80 talstöðin er í þremur hlutum — tr'tæki, sem er eins og símtól, talstöðin sjálf með 55 alþjóðlegum VHF rásum og svo lítill, en kröftugur hátalari. Seacom 80 er fyrirferðarlítil og hentar vel við þröngar aðstæður. Talstöðin er í sleða sem hægt er að festa í loft eða á borð og auðvelt er að losa tækið og fara meö heim. Taltækið situr tryggt í sérhönnuðu sæti og hátalarann má festa þar sem hans er helst þörf. Settu þig í gott samband við okkur hjá Heimilistækjum. Seacom 80 er talstöð sem þú þarft að heyra meira um! Heimilistæki hf Tæknideild — Sætúni 8. Sími 27500. GOTT FOLK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.