Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1985 6 Bókin blívur Bókmenntum voru gerð ágæt skil í dagskrá ríkisfjölmiðl- anna nú um helgina. Má þar minna á bókaspjall Áslaugar Ragnars er var á dagskrá rásar 1 á sunnudag kl. 18.00. Áslaug ræddi að þessu sinni við Eddu Þórarinsdóttur leikkonu um verk Einars Kárason- ar rithöfundar. Hafi þær stöllur bestu þakkir fyrir spjallið og má vænta þess að slíkt bókaspjall veki athygli á höfundum og einstökum .bókmenntaverkum. Þá var á dagskrá rásarinnar klukkan 13.30 síðari hluti dagskrár í samantekt Árna Blandon leikara er nefndist Hugmyndafræði Ibsens. Undirritað- ur hafði sérlega gaman af þessari dagskrá Árna. í fyrsta lagi vegna framsetningar efnisins en Árni Blandon valdi þá leið að hug- myndaheimi þessa »isa leikbók- menntanna, að greina skipulega þau hugmyndalegu skeið er Ibsen rataði í gegnum og endurspeglast svo mjög í verkum hans. I annan stað beitti Árni þeirri aðferð að spila upptökur af leikritum Ibsens er hafa verið færð á svið í útvarpi. Dæmasafnið féll prýðilega að texta Árna og veitti enn frekari innsýn inn í hugmyndaheim Henriks Ib- sen. Er ekki að efa að fyrrgreind dagskrá Árna Blandon á erindi til þeirra er starfa við bókmennta- kennslu. Væri við hæfi að gefa textann út á bók og dæmasafnið gæti svo fylgt með á snældu. Svava En það var ekki einvörðungu á rás eitt er bókmenntirnar skört- uðu. í sjónvarpinu var á dagskrá klukkan 20.55 á sunnudag fyrsti þátturinn í þáttaröðinni Samtíma- skáldkonur. Þáttaröð þessi er gerð á vegum Norðurlandasjónvarps- stöðvanna (Nordvision) og er ætlað að koma fyrir sjónir norrænna sjónvarpsglápara nú í sumar. Verða tvær skáldkonur kynntar fyrir tilstilli hverrar sjónvarps- stöðvar og er sá undarlegi háttur hafður á að ein kemur frá heima- landinu, en hin verður valin úr þeim aragrúa skáldkvenna er búa utan Norðurlandanna. Hefði ekki verið nær að velja tvær skáldkonur frá heimaslóð í stað þess að leita uppi einhverja frægðarkonu úti í hinum stóra heimi? Þannig fjaliar síðari þátturinn af hendi okkar ís- lendinga um írsku skáldkonuna Ir- is Murdoch. Sú ágæta skáldkona hefir vafalaust verið filmuð í bak og fyrir af sjónvarpsmönnum frá BBC. Við íslendingar eigum hins vegar fjölmarga ágæta kvenrithöf- unda sem gjarnan mætti kynna fyrir umheiminum, höfunda á borð við Jakobínu Sigurðardóttur, Nínu Björk Árnadóttur og Auði Haralds. Hér eru nefnd nöfn er koma fyrst upp í hugann og vafalaust þykir síðastnefnda skáldkonan ekki nógu fín fyrir samnorræna skáldkvenna- kynningu. Annars tókst ágætlega til með valið á fyrstu skáldkonunni því vissulega er Svava Jakobsdóttir merkur rithöfundur, þótt sumum þyki hún nokkuð stirð aflestrar og kemur þar til hin mikla notkun hlutgerfðra líkinga en Svava beitir mjög þeirri aðferð að gera óhlut- lægt efni hlutlægt. Ræddi hún þetta atriði við umsjónarmann þáttarins, Steinunni Sigurðardótt- ur skáldkonu, og nefndi sem dæmi að í stað þess að segja ónefnda móður hafa fengið „börnin á heil- ann“ þá léti hún börnin einfaldlega skera heilann úr móður sinni. Má ætla að þessi verkháttur Svövu hafi haft umtalsverð áhrif á aðra kvenrithöfunda, til dæmis sjálfa Steinunni. Steinunn kom annars vel fyrir í þessu spjalli eins og hennar er von og vísa, en varast ber að hafa ætíð sama fólkið í slík- um þáttum, sérstaklega hér í landi kunningsskaparins. Ólafur M. Jóhannesson ÚTYARP/SJÓNVARP „Theresa“ — ný útvarpssaga Á myndinni eru frá vinstri: umsjónarmaðurinn, Guðrún Jóndóttir, Ingi Ragnar Ingason, 14 ára, og Hildur Jónsdóttir, 14 ára. „Sviti og tár“ — unglingaþáttur ■■ Unglingaþátt- 00 urinn „Sviti og tár“ er á dagskrá rásar 1 í kvöld klukkan 20.00. Umsjónar- maður þáttarins er Guð- rún Jónsdóttir. Henni til aðstoðar eru tveir ungl- ingar, Ingi Ragnar Inga- son, 14 ára, og Hildur Jónsdóttir, 14 ára. Unglingaþáttur þessi er þriðju hverja viku á sama tíma. Efni hans er byggt upp út frá ákveðnu þema hverju sinni. Þátturinn í kvöld er sá þriðji í röð- inni. Fyrsti þátturinn fjall- aði um hugarfar unglinga, hvort þeir væru yfirleitt jákvæðir eða neikvæðir, hvort auðvelt eða erfitt væri að gleðja þá og þá með hverju. Annar þátturinn fjall- aði um tísku unglinga, fötin sem þeir ganga í, hvað sé í tísku núna og hvernig þeir cignist sín föt. Kom fram í þeim þætti að margur ungling- urinn býr sín föt til sjálf- ur. Þriðji þátturinn, sem verður í kvöld, fjallar um líkamann. Velt verður vöngum yfir hvort ungl- ingar hugsi mikið um heilsuna. Núna er mjög mikill íþróttaáhugi ríkj- andi meðal þeirra, en jafnframt aldrei verið eins mikið um notkun ým- issa vímugjafa og einmitt nú. Unglingarnir tjá sig sjálfir um efnið hverju sinni, en ekki er leitað til sérfræðinga. Ný útvarpssaga heitir „Theresa" og er eft- ir Francois Mauriac. Ann- ar lestur sögunnar er í kvöld klukkan 21.30. Höfundur skáldsögunn- ar er einn þekktasti og mikilvirkasti höfundur Frakka á þessari öld. Hann fæddistí Bordeaux 11. október árið 1885 og á því aldarafmæli nú í ár. Hann missti föður sinn ungur og hlaut strangt trúarlegt uppeldi á heim- ili sínu og í kaþólskum skólum í Bordeaux. Hann lauk háskólanámi í bók- menntum, en fluttist síð- an til Parísar þar sem hann hóf margþætt rit- störf og skrifaði jafn- framt skáldsögur, ljóð, leikrit, greinar og gagn- rýni. Hann hlaut marg- víslega viðurkenningu fyrir ritstörf sín í lifanda lífi, svo sem bók- menntaverðlaun frönsku akademíunnar 1925 og Nóbelsverðlaun 1952 og þegar hann lést árið 1970 höfðu verk hans verið þýdd á mörg tungumál og ein bók eftir hann á ís- lensku, Skriftamál, sem kom út hjá Menningar- sjóði 1959 í þýðingu Rafns Júlíussonar. Það sem einkum setur mark sitt á verk Mauriacs eru þau kristnu lífsvið- horf sem þar ríkja og beina sjónum hans að sál- arlífi persóna sinna og að spurningum um ábyrgð þeirra fyrir lífi sínu og gerðum og vekja hugleið- ingar um sekt og sakleysi. Jafnframt því sem Mauri- ac skyggnist óvægilega bak við grímu skinhelgi og hræsni hefur hann ein- stakan hæfileika til að seiða fram mynd um- hverfis, oftast átthaga hans sjálfs í Suðvestur- Frakklandi, og lýsa áhrif- um þess á mannfólkið. Þessi einkenni koma vel fram í „Theresu", sem er ein þekktasta saga hans og lýsir heimferð konu, sem hefur verið stefnt fyrir rétt, ákærð fyrir að hafa reynt að ráða mann sinn af dögum, hugleið- ingum hennar og minn- ingum á leiðinni, uppgjöri hennar við mann sinn er heim kemur og þeirri refsingu er hún verður að þola af honum. Betty Arvaniti í hlutverki Anniku í „Hver greiðir ferjutoll- inn?“ „Hver greiðir ferjutollinn?“ — fimmti þáttur ■■ fimmti þáttur 10 breska fram- — haldsmynda- flokksins „Hver greiðir ferjutollinn?" er á dagskrá sjónvarpsins í kvöld klukkan 21.10. Alls eru þættirnir átta. í aðalhlutverkum eru Jack Hedley, sem leikur Alan Haldene, og Betty Arvaniti í hlutverki Ann- iku. { síðasta þætti urðu miklar ættarerjur. Einn af Viglis-ættinni kom með lík afa síns og ætlaði að grafa hann í þorpi þar sem Matakis-ættin fór með völd. Þorpsbúar tóku heldur óblíðlega á móti komumanni, en þátturinn endaði á því að afinn fékk hvílustað á þeim stað sem hann hafði óskað sér og var það Annika sem þar reis upp á móti vilja móð- ur sinnar, en sú gamla var ekkert á því að leyfa greftrunina. ÚTVARP ÞRIÐJUDAGUR 23. júlí 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Morgunútvarp. 7.20 Leik- fimi. Tilkynningar. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Valdimars Gunnars- sonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð — Jónas Þóris- son, Hveragerði, talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: .Ömmustelpa" eftir Armann Kr. Einarsson. Höfundur les (9). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 10.45 „Man ég það sem löngu leið" Ragnheiður Viggósdóttir sér um þáttinn. 11.15 í fórum minum. Umsjón: Inga Eydal. RÚVAK. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar. 13.30 Inn og út um gluggann. Umsjón: Emil Gunnar Guð- mundsson. 13.40 Tónleikar. 14.00 .Úti i heimi“, endurminn- ingar dr. Jóns Stefánssonar. Jón Þ. Þór les (14). 14.30 Miðdegistónleikar. Hljómsveit Þjóðlistasafnsins I Ottawa leikur. Stjórnendur: Claudio Scimone og Murray Perahia. a. Sinfónla nr. 1 eftir Muzio Clementi. b. Sinfónla nr. 29 I A-dúr K. 201 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. (Hljóðritun frá kanadiska útvarpinu). 15.15 Út og suður. Endurtekinn þáttur Friðriks Páls Jónsson- ar frá sunnudegi. 15.45 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Frettir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Upptaktur — Guðmundur Benedikts- son. 17.00 Fréttir á ensku. 17.05 „Sumar á Flambards- setri" eftir K.M. Peyton. Silja 19.25 Sól og strðnd. 1. þáttur og teiknimyndin um Millu Marlu. (Nordvision — Danska sjón- varpið). Þýðandi Jóhanna Jóhannsdótt- ir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Nýjasta tækni og vlsindi. Aðalsteinsdóttir lýkur lestri þýðingar sinnar (15). 17A0 Slðdegisútvarp. — Sverrir Gauti Diego. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.45 Til- kynningar. Daglegt mál. Sigurður G. Tómasson flytur þáttinn. 20.00 Sviti og tár. Guörún Jónsdóttir stjórnar þætti fyrir unglinga. 20.40 Útgáfa Nýja testamentis- ins á islensku árið 1807. Felix Ölafsson flytur erindi. 21.05 „Túskildings-ómar“ eftir Kurt Weill. Sinfónlettu- hljómsveit Lundúna leikur; Riccardo Chailly stjórnar. (Hljóðritun frá breska útvarp- inu). Umsjónarmaður Sigurður H. Richter. 21.10 Hver greiðir ferjutollinn? Fimmti þáttur. Breskur framhaldsmyndaflokk- ur í átta þáttum. Aöalhlutverk: Jack Hedley og Betty Arvaniti. Þýðandi Jón O. Edwald. 22.00 Dularfullur sjúkdómur. 21.30 Útvarpssagan: „Ther- esa“ eftir Francois Mauriac. Kristján Arnason þýddi. Kristln Anna Þórarinsdóttir les (2). 22.00 Tónleikar. 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Leikrit: „Boðið upp á rnorð" eftir John Dickson Carr. Annar þáttur endurtek- inn: Flug 505 til London. Þýðing, leikgerð og leik- stjórn: Karl Agúst Úlfsson. Leikendur: Hjalti Rögn- valdsson, Lilja Guðrún Þor- valdsdóttir, Júlfus Hjörleifs- son, Jóhann Sigurðarson, Ingibjörg Björnsdóttir, Marla Sigurðardóttir, Jón Sigur- björnsson, Erlingur Glslason, (The Patients Are Changing Colours) Bresk heimildamynd um sér- kennilegan sjúkdóm sem lýsir sér meðal annars þannig aö sjúklingar skipta um hörundslit, hver svo sem hann var upp- runalega. Þýöandi og þulur: Jón O. Edwald. 22.50 Fréttir I dagskrárlok. Guðmundur Olafsson og Arnar Jónsson. 23.25 Kvöldtónleikar a. Barbara Hendricks syngur arlur úr frönskum óperum með Fllharmonlusveitinni I Monte Carlo; Jeffreu Tate stjórnar. b. Jose Carreras syngur arl- ur úr Itölskum óperum með Sinfóniuhljómsveit Lundúna; Jesús López Cobos stjórnar. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. 10.00—12.00 Morgunþáttur Stjórnandi: Páll Þorsteins- son. 14.00—15.00 Vagg og velta Stjórnandi: Gísli Sveinn Loftsson. 15.00—16.00 Meö slnu lagi Lög leikin af islenskum hljómplötum. Stjórnandi: Svavar Gests. 16.00—17.00 Þjóölagaþáttur Stjórnandi: Jón ólafsson. 17.00—18.00 Frlstund Unglingaþáttur. Stjórnandi: Eðvarð Ingólfs- son. Þriggja minútna fréttir sagð- ar klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og 17:00. SJÓNVARP ÞRIÐJUDAGUR 23. júll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.