Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 46
46 MÖRGUKBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDÁGUR 23. JÚLÍ 1085 3 rgggRi „ Eg skal taka. \j\b, Valdtmar." Ég bara fór út í morgun, því í stjörnuspánni þinni fyrir dag- inn stendur: l>ú eignast óvænt peninga! Konan mín og ég kynntumst þegar við vorum 19 ára. Nú er ég 47 ára en bún 34. HÖGNI HREKKVÍSI Svör frá Tjarnarskóla Vegna fyrirspurnar um Tjarnar- skóia í Veivakanda lostudaginn 12. júlí 1985 viljum við koma eftirfar- andi á framfæri: Við viljum f upphafi taka fram að hér á þessum vettvangi getum við aðeins veitt ákveðnar grunn upplýsingar en bendum jafnframt þeim sem áhuga hafa á frekari vitneskju að hafa samband við okkur. í fyrirspurninni er talað um „hinn almenna skóla“. í því sambandi viljum við benda á að starf í „hinum almenna skóla" er æði misjafnt bæði með tilliti til landshluta og einstakra skóla. Skipulag Tjarnarskóla í heild hefur verið metið af hálfu menntamálaráðuneytisins og hef- ur hann því hlotið starfsleyfi sem fullgildur skóli er starfi sam- kvæmt grunnskólalögunum. í skólanum verða þó breyttar áherslur, sérstaklega m.t.t. tengsla við atvinnulífið. Einnig verður kappkostað að nemendur kynnist af eigin raun, sem flestum þáttum er lúta að lífi og starfi i nútímaþj óðfélagi. Til þess að nemendur kynnist atvinnulífinu verður í hverri viku tveimur kennslustundum varið til fræðslu um íslenskt atvinnulíf, einni kennslustund til undirbún- ings og úrvinnslu heimsókna á vinnustaði og fjórum kennslu- stundum til heimsókna á vinnu- staði. Þessi atvinnulífskynning og -fræðsla fer fram í 9. bekk. í 8. bekk er skipulagður námsþáttur sem tengist þessari atvinnulífs- fræðslu. Stuðlað verður að því að skólastarfið einskorðist ekki við hefðbundna vinnu innan veggja skólans heldur tengist margvís- legri starfsemi utan hans. í þessu sambandi má nefna heimsóknir skólanema úr skólanum og fjöl- breytilegar heimsóknir í skólann (s.s. þjóðkunnar persónur, for- svarsmenn fyrirtækja/stofnana, listamenn, rithöfundar og fleira). Áhersla verður lögð á að nem- endur skólans fái góðan undirbún- ing undir framhaldsnám og má t.d. nefna að kennslustundir í ís- lensku og stærðfræði í 7. bekk eru fleiri en almennt tíðkast, auk þess sem nemendum skólans býðst að- stoð við heimanámið. í heimilisfræðum og líffræði í 8. og 9. bekk er fyrirhuguð sérstök útfærsla sem felst í því að færa viðfangsefnin nær nemendum sjálfum og því sem bíður þeirra í þjóðfélaginu að námi loknu. Enn má nefna að nemendur sækja ým- is námskeið í skólanum (s.s. tölvu- fræðsla, framsögn, framkoma, ræðumennska, tónmennt o.fl.). Stjórnendur Tjarnarskóla eru fullvissir um að í skólanum mynd- ist jákvæð og náin tengsl nem- enda, forráðamanna þeirra og starfsfólks skólans og þannig skapist grunnur að traustri menntun nemendanna. Margrét Theódórsdóttir og María Sólveig Héðinsdóttir Ömurlegur 17. júní ’85 Vonsvikinn 17. júní-gestur skrif- ar: Nýlega kvartaði Tómas Jónsson yfir ömurlegri dagskrá á Lækjar- torgi 17. júní og að sjónvarpið slökkti á bestu popptónlistarmenn landsins, Megas og Bubba. Ég vil endilega láta koma fram að ég er 100% sammála Tómasi. Ég fór með krakkana mína í bæ- inn en uppskar ekkert annað en leiðindi. Skemmtikraftarnir voru með aulalegan „húmor" svo undr- um sætti. Forráðamenn þjóðhátíð- arinnar hafa áreiðanlega ekki séð skemmtiatriðin áður en þau voru sýnd þama 17. júní. Það mætti segja mér að sum atriðin hafi ver- ið samin þarna á staðnum svo þunn voru þau. Um kvöldið fórum við hjónin svo með fleira fólki að hlýða á Léttsveit ríkisútvarpsins. Við átt- um von á metnaðarfullri sveiflu eða þess háttar. En, þvílík von- brigði. Léttsveitin reyndist vera einhverskonar dixieland-útgáfa af Lonlí Blú Bojs og HLH. Algjör lágkúra og engan vegin samboðin ríkisstofnun á borð við útvarpið. Hitt má koma fram að dagskrá- in í Laugardalshöllinni var góð. Ég ætlaði að taka hana upp á myndband fyrst sjónvarpið sýndi það þrekvirki að sjónvarpa henni. Allt fór vel af stað. Mikil gleði ríkti þegar kynnt var að Bubbi kæmi fram sem leyninúmer með Megasi. En, þá slökkti sjónvarpið á öllu. Og það klukkan 11.00! Má ekki hver hafa sinn smekk? Duranisti skrifar: Mig langar að mótmæla því sem Wham-aðdáandi skrifar í Velvak- anda 16. júní sl. Hún er að segja að Duranistar séu heimtufrekir að biðja um Duran Duran á Listahá- tíð. Má ekki hver hafa sinn tón- listarsmekk og biðja um sína bestu hljómsveit á Listahátíð? Elsku Whamisti, gerðu þér bara grein fyrir því að Duran Duran er vinsælasta hljómsveitin um þess- ar mundir. Ég veit ekki betur en það sé nú ansi oft búið að skrifa í Velvakanda og biðja um Wham, U2 og Frankie Goes to Hollywood á Listahátíð. Og hver var að biðja þá sem ekki hafa áhuga á Duran Duran að borga morðfjár á tón- leika með Duran Duran? Ég er viss um að hver og einn vill vita sem mest um sína bestu hljómsveit og er ég ekki að segja að Wham, U2 eða Frankie Goes to Hollywood séu eitthvað verri en Duran Duran. Svo má geta þess að ég las í poppblaði að það hafi verið svo fámennt á tónleikum hjá Wham að George Michael hafi al- gjörlega brjálast í flugvélinni á leiðinni heim. Það hafa kannski svona fáir nennt að fara á tónleik- ana. Að lokum vil ég þakka sjónvarp- inu fyrir frábæran þátt með Dur- an Duran laugardaginn 15. júní sl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.