Morgunblaðið - 23.07.1985, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 23.07.1985, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1985 Bann — eftir Kjartan Jóhannsson Laxveiðar í sjó jafnvel þótt litl- ar séu geta flokkast undir rán- yrkju. Ástæðan er fyrst og fremst hegðun laxins og þekkingarskort- ur á gönguleiðum hans. Þegar lax er veiddur á hafi úti er nánast ógerningur, miðað við núverandi þekkingu á laxastofnin- um og laxagöngum, að segja til um úr hvaða stofni eða af hvaða upp- runa hinn veiddi lax er. Hitt er víst, að það eyðist sem af er tekið. Miklum fjármunum er nú varið til þess að rækta ár og jafnframt færist hafbeit á laxi sem atvinn- ugrein í vöxt. Sá sem festir fé í 'slíkri starfsemi getur aldrei orðið viss um endurheimtu sína eða arð af fjárfestingunni. Hitt er þó öllu verra að aðrir hirði arðinn af fjár- festingunni með því að stunda laxveiðar á hafi úti. Laxveiðar í sjó hafa það einmitt f för með sér að einn sáir en annar uppsker. Þannig er sáðmaðurinn rændur og veiðarnar rányrkja. Stjórn laxveiða er líka nánast ókleif, svo lengi sem laxveiðar eru stundaðar í sjó, einfaldlega af þeirri ástæðu að menn vita ekki hvað þeir eru að gera, úr hvaða stofni er verið að veiða eða hvaðan hinn veiddi lax er upprunninn. Allt hnígur þetta að því að lax- veiðar eigi ekki að stunda í sjó, svo framarlega sem vit á að vera í veiðunum og stuðla eigi að við- gangi stofnanna og heilbrigðum grundvelli undir ræktun eða haf- beit. á laxveiðum í sjó Hafréttarsáttmálinn Þessi skilningur kemur skýrt fram í Hafréttarsáttmálanum, þar sem upprunalandi göngufisks, sem hrygnir í fersku vatni, er fal- in meginábyrgð á varðveislu stofnsins og stjórnun veiða. Þann- ig geta upprunaríki skv. 66. gr. Hafréttarsáttmálans ákveðið afla- mark og gripið til annarra stjórn- unaraðgerða til þess að tryggja viðgang og verndun stofnsins. Samkvæmt greininni er ætlast til að upprunalönd sameinist um að- gerðir af þessu tagi, enda skiljan- lega ekki gagn að þeim nema svo sé. Þannig er í rauninni litið á upprunaland eða hrygningarland sem eiganda viðkomandi stofns. Sá sem veiðir úr slíkum stofni á hafi úti er því að ganga í eignir annarra. Ofveiði og hrun Allt bendir til þess að á undan- förnum árum hafi verið gengið mjög nærri laxastofninum í og við Norður-Atlantshaf með ofveiði. Á áratugnum frá 1973 til 1983 hröp- uðu þannig veiðar tíu landa á þessu svæði um 40%. Veiðar í norðurhluta Noregshafs voru um 900 tonn á sjöunda áratugnum en eru nú um 200 tonn og í ám og við strendur Noregs hafa veiðarnar minnkað um fjórðung á sama tíma. Við Vestur-Grænland veidd- ist um 2700 tonn 1971, en árið 1983 tókst ekki að ná nema 300 tonnum. Þannig mætti áfram telja og hvarvetna úr Evrópu berast fregn- ir af miklum samdrætti í laxa- göngum í hefðbundnar laxveiðiár. Vafalítið er meginskýringin á þessu hruni sú ofveiði í sjó sem viðgekkst og viðgengst enn. Við íslendingar höfum markað okkur skýra stefnu í þessum efn- um. Afstaða okkar gagnvart eigin veiðum og annarra í sjó liggur ljós fyrir og Alþingi samþykkti m.a. þingsályktun 1983 frá Eyjólfi Konráð Jónssyni þar sem ríkis- stjórninni var falið að beita sér fyrir því að stöðvaðar yrðu lax- veiðar Færeyinga í efnahagslögs- ögu sinni og skyldi ríkisstjórnin hafa um þetta samráð við önnur upprunalönd laxastofnsins í Norður-Atlantshafi. I greinargerð með tillögunni var jafnframt á það bent að veiðar Færeyinga væru nýhafnar, þ.e.a.s. eftir að 66. gr. Hafréttarsáttmálans hefði verið frágengin og málstaður þeirra því enn verri en ella. Samþykkt EvrópuráÖsins Fyrir um það bil ári vakti ég máls á því innan Evrópuráðsins að taka ætti til athugunar hvernig vernda mætti í samræmi við ákvæði Hafréttarsáttmálans hagsmuni þeirra sem stunda ræktun á laxveiðiám eða hafbeit. Málið var síðan til umfjöllunar í nefndum ráðsins og kom til af- greiðslu hinn 4. júlí sl. á grund- velli skýrslu sem ég lagði fram og ályktunar sem ég mælti fyrir. Meginniðurstaða ályktunarinnar var að mæla með banni á laxveiöum í sjó og var þá sérstaklega vitnað til veiða Færeyinga milli 12 og 200 mílna og veiðanna við Vestur- Kjartan Jóhannsson „Meginniðurstaða ályktunarinnar var að mæla með banni á lax- veiðum í sjó og var þá sérstaklega vitnað til veiða Færeyinga milli 12 og 200 mflna og veið- anna við Vestur-Græn- land. Tillagan var sam- þykkt með atkvæðum aílra nema Dana.“ Grænland. Tillagan var samþykkt með atkvæðum allra nema Dana. Vinnum almennan stuðning Evrópuþjóða Umræðurnar sannfærðu mig um að við eigum að geta eignast marga bandamenn í þessu máli. Ályktun Evrópuráðsins er mikil- vægt skref til þess að ná endan- legri niðurstöðu og með þeirri um- ræðu sem þar fór fram tókst að vekja skilning og áhuga margra. Ég dreg þann lærdóm af umræð- unni að við eigum ekki eingöngu eða fyrst og fremst að snúa okkur að Færeyingum, Grænlendingum eða Dönum í þessu máli, heldur ekki síð- ur og enn frekar að rækta stuðning við banni á laxveiðum í sjó hjá öðr- um Evrópuríkjum. Þau eiga sömu hagsmuna og við að gæta. Þar eins og hjá okkur er stunduð ræktun á laxveiðiám. Þar eins og hjá okkur er áhugi á hafbeit. Þessar þjóðir skilja að hvorugt er til neins ef aðrir hirða afrakstur slíkrar við- leitni og fjárfestingar. Þessar þjóðir skilja, og reyndar trúi ég að Danir geri það eiginlega líka, að ekki er hægt að hafa skynsamlega stjórn á veiðunum og vernda stofnana nema aflagðar verði laxveiðar í sjó. Norðmenn, Skotar, Englendingar og írar sýndu mik- inn skilning á þessu í umræðum I Evrópuráðinu og hið sama kom fram hjá Svíum og Belgum. Með því að vinna áfram að málinu og fylgja eftir ályktun Evrópuráðsins er ég sannfærður um að skapa megi almennan stuðning í Evrópu við banni á laxveiðum í sjó og þannig þann þrýsting m.a. á Dani og Færeyinga sem nauðsynlegur er til þess að koma málinu endan- lega í höfn. Höfundur er þingmaður Alþýðu- ílokks fyrir Reykjaneskjördæmi. Þeir borga mest sem minnstu húsin byggja — eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur Nú um nokkurt skeið hefur nóg framboð verið á einbýlis- og rað- húsalóðum í Reykjavík. Er það enda í samræmi við þá stefnu nú- verandi borgaryfirvalda að allir skuli eiga kost á lóð þegar þeir vilja og/eða geta byggt. Þetta ríf- lega framboð breytir þó ekki þeirri staðreynd að misjafnlega gengur mönnum að byggja yfir sig og sína. Til þess liggja ýmsar ástæður og vega þar líklega þyngst versnandi lifsafkoma launafólks og lélegt hús- næðislánakerfi. Ekki er beinlínis hægt að segja að Reykjavíkurborg sé þarna um að kenna, en hins vegar má vel fullyrða að borgaryfirvöld taki ekki nægilegt mið af þessum að- stæðum við skipulag nýrra hverfa og íþyngi efnalitlum húsbyggjend- um meir en ástæða er til. Engra kosta völ Þorri þeirra byggingarlóða sem nú er völ á í Reykjavík er í Graf- arvogi. Eru lóðirnar tiltðlulega stórar eða um 700—800 m2 og af því leiðir að í skipulagi er gert ráð fyrir að þarna sé mögulegt að byggja stór hús þó það sé alls eng- in kvöð. Þetta tengist svo aftur þeim gatnagerðargjöldum sem fólk þarf að greiða og mig langar til að gera hér lítillega að um- ræðuefni. Um gatnagerðargjald gildir það ákvæði að það skuli vera lág- marksgjald og miðast við nýt- ingarmöguleika samkvæmt skipu- lagi. Það endurgreiðist ekki þó minna sé byggt á lóð en skipulag gerir ráð fyrir. í Grafarvogi mið- ast þetta gjald við 650 3 einbýlis- hús og er því um 480 þúsund kr., við 550 3 raðhús sem gera 261 þús. kr. og við 450 3 í fjölbýli sem gera 95 þús. kr. Ef stærra er byggt hækkar gjaldið sem því nemur en er óbreytt þó minna sé byggt. Með öðrum orðum, þeir sem byggja til- tölulega lítil einbýlishús og raðhús — sem eru oftast þeir efnaminni — greiða í raun hærra gjald á hvern rúmmetra en aðrir. Sem dæmi má nefna að sá sem byggir sér 500 3 einbýlishús í Grafarvogi borgar rúmum 110 þúsund kr. meira í gatnagerðargjald með þessu móti en ef hann greiddi ein- ungis fyrir raunverulegt bygg- ingarmagn á lóðinni þ.e. 500 3 Munar flesta lánskjaraþræla um minna. Ef þetta mál er skoðað í víðara samhengi kemur í ljós hvaða upp- hæðir þarna er um að ræða. Sam- kvæmt upplýsingum frá skrif- stofustjóra borgarverkfræðings voru 125 einbýlishús af 339, sam- þykktum árið 1984, undir viðmið- unarstærð (650 3) eða um 37%. Af 119 raðhúsum voru 40 hús eða 34% undir viðmiðunarstærð (550 3) Hefðu allir þeir sem þessi hús byggja einungis greitt í samræmi við raunverulegt byggingarmagn á Ióð, hefði borgin fengið 8 milljón- um kr. minni tekjur af gatna- gerðargjöldum á síðasta ári en raun var á. Það má líka orða þetta þannig, að borgin hafi í raun skattlagt þá húsbyggjendur sem byggðu minni hús en skipulagið í Grafarvogi gerði ráð fyrir, um 8 milljónir króna. Ég kalla þetta skattlagningu vegna þess að þessir húsbyggjend- ur áttu þess kost að byggja á minni lóðum sem miðuðust við minna byggingarmagn. Litlar lóð- ir er ekki á boðstólum í Reykjavík. í þeim efnum er ekkert val í þess- ari „frjálsu" borg þar sem allir geta fengið lóðir og byggt eins og þeim sýnist ef þeir bara borga það sem upp er sett. Minni lóðir lægri gjöld En hvernig er hægt að breyta þessu óréttlæti gagnvart þeim húsbyggjendum sem ekki vilja, þurfa eða geta byggt stór einbýl- ishús eða raðhús? Ein leiðin er að lækka lág- marksgatnagerðargjaldið, þ.e. miða það við minna byggingar- magn en nú er í Grafarvogi. Slík lækkun virðist sanngjörn en hefur þó ákveðinn annmarka þegar bet- ur er að gáð. Hann er sá að borgin hefur ákveðinn kostnað af því að gera lóðir byggingarhæfar. Ef um væri að ræða tiltölulega stórar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir „Hefðu allir þeir sem þessi hús byggja einung- is greitt í samræmi við raunverulegt bygging- armagn á lóð, hefði borgin fengið 8 milljón- um minni tekjur af gatnagerðargjöldum á síðasta ári en raun var á“ lóðir sem síðan væru byggð á lítil einbýlishús eða raðhús með lágu gatnagerðargjaldi, þá er vafasamt að borgin næði í gatnagerðar- gjöldum inn fyrir því sem hún þyrfti til að standa undir fram- kvæmdum á þessum nýbyggingar- svæðum. Slíkt kæmi aðeins niður á öðrum þáttum í rekstri borgar- innar og aukinni skattheimtu. Mun betri lausn á þessu máli er einfaldlega að gera ráð fyrir því við skipulag nýrra íbúðarhverfa að einhverjir vilji byggja smátt (ca. 36% húsbyggjenda). Og þeir sem það vilja þurfa ekki 700—800 m2 lóðir. í nýjum hverfum þarf því að gera sérstaklega ráð fyrir lóð- um undir smærri einbýlishús og raðhús. Þar sem lágmarksgatna- gerðargjald miðast við nýtingarm- öguleika lóða samkvæmt skipu- lagi, þá hefði þetta sjálfkrafa í för með sér að gjaldið myndi lækka og enginn þyrfti að greiða meir en sanngjarnt er. Með þessu móti fengist líka mun betri nýting á landi, þ.e. fleiri lóðir fengjust á hvern hektara lands. Þar með fengi borgin tekjur í samræmi við þann kostnað sem hún hefur af framkvæmdum á svæðinu. Nú er lag En af hverju er þetta ekki gert? Spyr sá sem ekki veit. Borgarkerf- ið sem er svo fljótvirkt, skilvirkt, framkvæmdaglatt og kraftmikið undir stjórn núverandi meirihluta hefur verið að möndla með tillögu frá Kvennaframboðinu þessa efnis nú í fjóra mánuði. Var tillagan flutt í borgarstjórn og vísað þaðan til borgarráðs. Þar var hún lögð í pækil og lá í honum þar til fyrir nokkrum dögum að borgarráð ákvað að senda hana skipulags- nefnd til umsagnar. Sér því ekki enn fyrir endann á málinu þó ein- hver skriður sé að komast á það. Vonandi láta borgaryfirvöld það ekki aftra sér að þessi tillaga er frá Kvennaframboðinu komin, heldur vinda bráðan bug að þvi að leiðrétta þetta misrétti sem við- gengst gagnvart þeim sem hvorki geta né vilja byggja sér stór og dýr hús. Höfundur er borgarfulltrúi Kvennaframboðsins í borgarstjórn Reykjavíkur. o^° C með stál í tá og sóla. Skerfan 3h - Sími 82670 ÚTSÖLUSTAÐIR: ATLABÚÐIN - AKUREYRI VERSL AXELS SVEINBJÖRNSS - AKRANESI BYKO - KÓPAVOGI OG HAFNARFIRÐI HÚSPRÝÐI - BORGARNESI JÓN BENEDIKTSSON - HÖFN SKÓBÚÐ SAUÐÁRKRÓKS ÞRÖSTUR MARSELlUSSON - ISAFIRÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.