Morgunblaðið - 23.07.1985, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 23. JÚLÍ 1985
19
Laugavegur verð-
ur hvorki vist-
gata né göngugata
— eftirSkúla
Jóhannesson
Vegna breytinga neðst á Lauga-
vegi og villandi upplýsinga um
þessi mál finn ég mig knúinn til að
upplýsa almennan vegfaranda
Laugavegar um þær breytingar
sem fram fara á þessari stærstu
og vinsælustu verslunargötu
Reykjavíkur og liklega iandsins.
— Sunnudaginn 23. júní sl.
birtist á baksíðu Morgunblaðsins
myndarleg frétt með fyrirsögninni
„Neðsta hluta Laugavegar breytt í
vistgötu." Vistgata er skilgreind í
þessari frétt sem gata þar sem
ökutæki koma ekki nema i brýn-
ustu erindagjörðum og að gatan
verði einskonar torg. Fátt í þess-
ari frétt er rétt.
— í texta undir mynd sem birt-
ist í Morgunblaðinu 17. júlí sl. er
þess getið að „Reykjavíkurborg
hafi hafist handa um að breyta
neðsta hluta Laugavegar í göngu-
götu“.
Göngugata á hún ekki að verða,
ekki eins og við þekkjum erlendis
frá. Báðar þessar fréttir gefa fólki
villandi hugmynd um hvað er
þarna að gerast.
Breyting sú sem fram fer á
neðsta hluta Laugavegar, þ.e. kafl-
inn Klapparstígur að gatnamótum
Skólavörðustígs mun ekki hefta
eða breyta bifreiðaumferð, hægt
verður að aka inn og útaf Lauga-
veginum á þessum kafla eins og
áður, meira að segja mun bifreiða-
stæðum á þessum kafla fjölga, þau
voru 9 fyrir breytingu en verða 12.
Skortur á bifreiðastæðum við
Laugaveginn er mikill og er því
hverju stæði sem bætist við fagn-
að. Það má segja að Laugavegur
hafi í reynd aðeins verið ein ak-
rein og hann mun áfram vera það,
nema nú mjókkar þessi akrein og
gangstéttirnar verða breikkaðar
sem þvi nemur. Á þeim stutta
kafla sem Laugavegurinn var tvær
akreinar, frá Smiðjustíg að Skóla-
vörðustíg, verður hann ein akrein.
Breikkun gangstétta verður til
mikilla bóta fyrir gangandi um-
ferð og til að bæta um betur verð-
ur hiti bæði í gangstéttum og á
akbraut, þeim kostnaði munu hús-
eigendur og borgin skipta á milli
sín. Til að fegra þennan vegark-
afla þá býður þessi breikkun á
gangstéttum uppá að hægt sé að
koma fyrir blóma- og trjáskreyt-
ingum, einnig er gert ráð fyrir
nýrri götulýsingu. Þessar breyt-
ingar eru gerðar til þess að gatan
verði vistlegri, en ekki „vistgata"
með þeim umferðarhöftum sem
þeim fylgja, og „göngugata" verð-
ur hún ekki, ekki eins og við
þekkjum þær frá suðlægari lönd-
um.
Bílaumferð verður þarna sem
áður, strætisvagninn mun aka
þarna áfram og ekki síst mun
gangandi umferð njóta sín á
Laugaveginum, og þetta er líklega
sú gerð „göngugötu" sem hentar
okkur íslendingum best.
Veðurfar hér á landi gerir okkur
háðari bílum en við ef til vill vilj-
um, þess vegna þurfum við að
komast sem mest á honum. Þar
sem fólkið er, eins og á Laugaveg-
inum, þar á strætisvagninn heima,
allt þetta þrennt, fólkið, strætis-
vagninn og einkabíllinn er og hef-
ur verið góð blanda á Laugavegin-
um, og þar verða umferðarslys
engin, þrátt fyrir að á góðum degi
fari um 3 þúsund gangandi vegfar-
endur og hundruð bíla þar um á
hverjum klukkutíma. Um málefni
Laugavegar mætti rita lengra
mál, en verður ekki gert að sinni,
en þessi gata er okkur öllum kær,
þar getum við leitað góðra við-
skipta, eða bara sýnt okkur og séð
aðra, og nú fljótlegra í fallegra
umhverfi.
Árni óla, gamall starfsmaður
Morgunblaðsins, lét eftir sig rit-
„Þessar breytingar eru
geröar til þess aö gatan
verði vistlegri, en ekki
„vistgata“ með þeim
umferðarhöftum sem
þeim fylgja, og „göngu-
gata“ verður hún ekki,
ekki eins og við þekkj-
um þær frá suðlægari
löndum.“
verk um þessa merku og gömlu
verslunargötu, gaman væri ef
Morgunblaðsmenn rifjuðu eitt-
hvað upp við tækifæri.
Að lokum þakka ég skipulags-
yfirvöldum fyrir gott samstarf við
húseigendur og verslunareigend-
ur, en sú skylda þeirra að upplýsa
þær þúsundir vegfarenda, sem leið
eiga um Laugaveginn daglega, um
hvað við veginn ætti að gera,
brást, því er þessi grein rituð.
Höfundur er rerslunareigandi
rið Laugareg.
Únnið að breytingum á Laugavegi
1500 árg. 1985
Viö erum nú aö selja síöustu bílana af Polonez 1500 árgerö 1985 á
aðeins 277.500 kr.
komnir á götuna meö ryövörn og fullan bensíntank.
Frábær kaup á stórum og rúmgóöum alhliða fjölskyldubíl eöa
vinnubíl fyrir iönaöarmenn.
1100 lítra farangursrými er aftursætiö leggst fram.
Sterkur og traustur bíll eftir ítalskan hönnuð,
kjörinn fyrir íslenskar aðstæður.
nagsiæo
greiðslukjör
Ármúla 23, aími 685870 — 81733