Morgunblaðið - 23.07.1985, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1985
Feögaminning:
Guðmundur Elías Guðmundsson og
Ketill Guðmundur Guðmundsson
Guðmundur Elías
Fæddur 16. maí 1917
Dáinn 15. júní 1985
Ketill Guðmundur
Fæddur 21. marz 1955
Dáinn 17. júlí 1985
Lífið hefur langa æfi
Ijós þér leiti og marga skúr.
Lífsins króna er heitin hverjum,
hér til dauða, en reynist trúr.
Lít því upp, þó húmið hafi
hart að dregið þyma fans.
Eflaust má úr efni slíku,
einnig mynda dýrðarkrans.
(G.Þ. frá Lundi)
í þessu erindi finnst mér vera
margt sem minnir á þann þrauta-
tíma sem undanfarnir mánuðir
hafa verið fyrir nánustu ættingja
feðganna Guðmundar og Ketils
sem létust með aðeins mánaðar
millibili. En í erindinu felst einnig
von fyrir þá sem trúa á hið góða
og fagra, þrátt fyrir allt, og víst er
að jafn góðar minningar og eru
um þá báða eiga eftir að verma
hug og hjarta er fram líða stundir.
Guðmundur Guðmundsson, eða
Mummi, eins og við kölluðum
hann öll, var fæddur á Hesteyri,
sonur hjónanna Ketilríðar Vetur-
liðadóttur og Guðmundar Þeófíl-
ussonar. Mummi var ekki fæddur
er faðir hans drukknaði og stóð þá
móðir hans ein uppi með 9 börn.
Má nærri geta að lífsbaráttan hef-
ur verið hörð og börnin orðið strax
að hjálpa til, strax og geta leyfði.
Mummi mun ekki hafa legið á liði
sínu, honum þótti vænt um móður
sína og tók hana snemma til sín,
er hann hafði eignast heimili á
ísafirði. Hann kvæntist Lilju
Halldórsdóttur frá ísafirði þann
30. apríl 1942 og fluttust þau fljót-
lega til ísafjarðar þar sem þau
bjuggu síðan. Var hjónaband
þeirra mjög farsælt. Þau eignuð-
ust fjögur börn, Hákon Pétur, sem
giftur er Ingigerði Traustadóttur
og búa þau á Akureyri, Ólaf Njál,
sem kvæntur er önnu Gunnlaugs-
dóttur og búa þau á ísafirði. Katr-
ínu, sem gift er Kristjáni Ragn-
arssyni og eiga þau heima á Eski-
firði. Yngstur var Ketill Guð-
mundsson, en hann lést i sjúkra-
húsi í London þ. 17. þ.m. Hann var
ógiftur og bjó í Reykjavík.
Guðmundur starfaði lengi við
Skipasmíðastöð M. Bernharðsson-
ar en gerðist síðan verkstjóri við
Hraðfrystihús Norðurtangans.
Hann vann þar fjölda ára, þótti
alltaf vænt um það fyrirtæki og
eignaðist þar góða vini. Mummi
átti auðvelt með að umgangast
fólk, jafnt unga sem aldna. Hann
hafði slíka kímnigáfu, var hjálp-
samur og hlýlegur í framkomu og
kom það ekki síst fram í umgengni
hans við barnabörnin, sem elsk-
uðu að koma til ömmu og afa og
gátu trúað þeim fyrir öllu, svosem
sigrum og ósigrum í íþróttum og
öðru sem þau tóku sér fyrir hend-
ur. Var mjög ánægjulegt að finna
trúnaðinn sem ríkti á milli þeirra.
Blómastofa
Friöfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavlk. Sími 31099
Opift öll kvöld
tii kl. 22,- elnnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
L.
Vinir þeirra hafa einnig átt hjá
þeim gott atlæti og fengið sömu
móttökur og þau, enda hefur oft
verið gestkvæmt á heimili þeirra
Lilju og Mumma.
Mummi var góður heimilisfaðir
og bar hag allrar fjölskyldunnar
mjög fyrir brjósti. Þau hjónin
hafa alla tíð verið samhent og var
alveg tíltekið hve þau voru sam-
taka um að ferðast, oft við erfiðar
aðstæður, hvenær sem færi gafst,
til þess að heimsækja ættingja og
vini. Má ég til að geta þess sem
dæmis um trygglyndi þeirra og
ættrækni að einu sinni, er ætt-
armót okkar var haldið úti á landi,
höfðu þau ekki bíl til umráða.
Fóru þau svo að segja á puttanum,
þó komin væru af létasta skeiði,
og glöddust allir mikið er þau birt-
ust, enda ómissandi i vinahópi.
Eins munum við sakna kvöld- og
helgarheimsókna þeirra Lilju og
Mumma, sem hafa orðið til þess að
hin mannlegu samskipti ættingj-
anna hafa orðið meiri en ella. Því
miður er alltof mikið um það að
við gefum okkur ekki tíma til að
heimsækja ættingja og vini og er
það verr, því allt í einu getum við
uppgötvað að okkar tími er út-
runninn og mættum við mikið
læra af dugnaði og tryggð þeirra
hjóna gegnum árin.
Lilja og Mummi keyptu Þurr-
hreinsunina á ísafirði fyrir nokkr-
um árum og hafa rekið hana af
mikilli samviskusemi. Hefur
margur haft orð á því að þeim hafi
alltaf verið tekið frekar sem kunn-
ingja en viðskiptavini. Mummi
hafði alltaf gaman af að rabba við
fólk og hreif hann alla með glað-
værð sinni og góðvild.
Veikindi sonarins unga hafa
tekið mikið á foreldrana, sem eðli-
legt er, og er ekki ólíklegt að
áhyggjur Mumma af honum hafi
að einhverju leyti átt þátt í því
sem síðar kom fyrir. Mummi varð
bráðkvaddur er hann var staddur í
heimsókn hjá vinum á Brjánslæk,
með Lilju og barnabörnum. Hafði
hann átt við nokkra vanheilsu að
stríða um nokkur ár, en aldrei svo
að hann væri frá vinnu og gerði
hann alltaf lítið úr veikindum sín-
um.
Er hann okkur öllum harmdauði
og mun ávallt verða okkur minn-
isstæður sem góður vinur og félagi
og erum við þakklát fyrir öll okkar
góðu kynni og biðjum góðan guð
að blessa minningu hans.
Ketill Guðmundur Guðmunds-
son fæddist á ísafirði og var
yngstur fjögurra barna þeirra
hjóna Lilju Halldórsdóttur og
Guðmundar E. Guðmundssonar.
Hann ólst upp við mikið ástríki í
heimahúsum og varð snemma
vinmargur, bæði í vinnu og ekki
síst meðal frændsystkina sinna.
Hann var ættrækinn og með börn-
um okkar og honum hefur alltaf
ríkt vinátta, bæði meðan hann
dvaldi heima og eins eftir að hann
flutti suður. Oft gladdi hann
barnabörnin okkar með smekkleg-
um gjöfum, sem valdar voru af
mikilli natni. Litla frændfólkið
hans hreifst af góðlegri glettni
hans og hlýlegri framkomu, sem
og aðrir sem kynntust honum.
Okkur var hann alltaf sami góði
drengurinn hvenær sem við hitt-
umst, hvort sem það var heima
eða heiman. Ketill fór í Verslun-
arskólann og lauk þaðan prófi.
Hann hóf síðan vinnu við útibú
Lar.dsbankans á ísafirði og kom
sér þar mjög vel, bæði hjá vinnu-
veitendum og starfsfélögum sín-
um. Héldu margir þeirra góðu
sambandi við hann síðar er hann
flutti að heiman. Hann var fær
bankastarfsmaður og hjálpsamur
við samstarfsfólk sem og við-
skiptavini og reyndist svo ávallt
síðar, hvar sem hann vann.
Síðast vann hann hjá Sparisjóði
vélstjóra í Reykjavík. Hefur mjög
komið í ljós, nú í hinum erfiðu
veikindum Ketiis, hve vinmargur
hann var, bæði meðal núverandi
og fyrrverandi starfsfélaga og
einnig í einkalífi sínu. Sérstaklega
sýndu þau Bryndís og Þorvaldur
frábæra tryggð og vináttu er þau
dvöldust til skiptis hjá honum all-
an þann tíma sem Ketill dvaldi í
sjúkrahúsi í London. Verður þeim
það aldrei fullþakkað. Islenski
presturinn í London sýndi einnig
frábæra umhyggju og hjálpsemi.
Séra Jón sat hjá honum til hinstu
stundar og veitti honum styrk sem
og nærstaddir vinir hans.
Starfsfólkið allt í sjúkrahúsinu
var honum mjög gott og gerði allt
sem í mannlegu valdi stóð til að
reyna að bjarga lífi hans og létta
honum þrautir. Við biðjum góðan
guð að blessa þau öll fyrir aðstoð
þeirra og umhyggju í hans garð.
Síðast en ekki síst ber að geta
um þann kjark og þá miklu fórn-
fýsi sem systir hans, Katrín,
sýndi, til þess að reyna að bjarga
lífi hans. Hún er gift kona og á
fjögur ung börn og býr austur á
landi. En þegar kom í Ijós að hún
væri sú eina sem gæti gefið bróður
sínum merg hikaði hún ekki við að
fara með honum og vonuðu allir
hið besta. En því miður tókst ekki
sem skyldi. Síðan kom reiðarslag-
ið, er hún var nýkomin heim til
sín, er faðirinn lést. Nokkrum dög-
um eftir jarðarför föðurins var
hún aftur kölluð út til London.
Hafði fyrri aðgerð orðið árang-
urslaus. Án þess að geta kvatt
fjölskyldu sína fyrir austan hlýddi
hún kallinu, enda unni hún bróður
sínum mikið og trúði því að hún
ein gæti bjargað honum. En því
miöur dugði mergflutningur held-
ur ekki í þetta sinn, þó vonir
glæddust um tíma. Vegna beiöni
Ketils, sem vildi að hún kæmist
heim til barnanna sinna, varð hún
að kveðja hann með þann grun i
brjósti að það yrði í hinsta sinn
sem hún sæi hann á lífi. Má geta
nærri um sálarstríð þeirra beggja.
En fórn hennar var ekki til
einskis, hún veit að hún gerði allt
sem hún gat og hún færði bróður
sínum von og trú og vissu um ást
hennar og allra ástvinanna heima.
Með því fékk hann þann styrk sem
hann sýndi í sinni miklu kvöl.
Hann bar sig mjög vel til hinstu
stundar og dáðust allir að þeirri
hugprýði sem hann sýndi. Fjöl-
skyldan gat hringt til hans á stof-
una sem hann dvaldi í og sýnir það
kjark hans að síðasta sunnudag-
inn sem hann lifði talaði hann við
móður sína, sem oftar, og bað
hana að gefast ekki upp því hann
sjálfur væri langt frá því að gefast
upp í þessari baráttu.
En næstu daga varð að gera á
honum aðgerðir, sem hann ekki
þoldi, og lést hann þann 17. þ.m.
Við Árnór og börnin okkar
þökkum guði fyrir að hafa fengið
að njóta kynna við þennan unga
og elskulega frænda, sem alltaf
var okkur tryggur og góður. Guð
blessi minningu hans.
Það er erfitt að skilja svo þung
örlög, sem á stuttum tíma hafa
dunið yfir sömu fjölskylduna. En
eins og segir í sálminum: „Svo ör-
stutt er bil milli bliðu og éls, og
brugðist getur lánið frá morgni til
kvölds." En þar segir líka: „En
gott áttu sá hver, sem Guð veitir
frið, þó gæfa þín sé hverful um
veraldar svið.“
Lilja mín, þú hefur sýnt ótrúleg-
an styrk í öllum þessum raunum,
ég veit að þú munt öðlast ró í sál
þinni með trú þinni og kjarki. Og
með þeim fjársjóði sem þú átt f
elskulegum börnum þínum,
tengdabörnum og barnabörnum,
sem sýnt hafa frábæra umhyggju
og ást og verið vakandi hverja
stund yfir að gera það sem best er,
ert þú með gott veganesti. Ég veit
að þú kannt að meta það og það
mun hjálpa þér í framtíðinni.
Við Arnór og börnin okkar og
fjölskyldur þeirra vottum þér,
Lilja mín, og ástvinum þínum öll-
um okkar innilegustu samúð og
biðjum guð að styrkja ykkur öll og
blessa í framtíðinni.
Málfríður Halldórsdóttir,
ísafirði.
Það var fyrir rúmlega fjórum
árum að Ketill ákvað að ganga til
liðs við okkur sem unnum saman í
Samtökunum '78. Hann slóst i för
með hópi úr félaginu sem sótti
frelsisviku lesbía og homma í
Stokkhólmi það sumar, 1981. Þá
kynntumst við strax þeim eigin-
leikum sem okkur þótti síðan ein-
kenna hann, hlýlegri einlægni og
opnum hug. Hann tók þátt í at-
burðum vikunnar af innilegri gleði
og ánægju og mótaði sér jafn-
framt skýra afstöðu til þess i
hvern farveg hann ætlaði að beina
lífi sinu. Þeirri afstöðu fylgdi
hann staðfestlega fram og okkur
þótti sem honum yxi æ siðan
lífstrú og lífsvilji, sem hann veitti
ósínkt af.
Ketill tók fúslega að sér að
gegna mikilvægu starfi í stjórn fé-
lagsins, er hann annaðist síðustu
þrjú ár, en það var umsjón með
fjárreiðum þess og tengsl við fé-
iagsmenn. Auk þess var hann
ævinlega boðinn og búinn að
leggja ómælda vinnu af mörkum
við verkefni sem honum þóttu
þörf. Honum var sérstök ánægja
að taka þátt í starfi skólahópsins,
en margir nemendur munu minn-
ast hans frá skólafundum. Með
látleysi, hlýju og jákvæðu lífsvið-
horfi átti hann greiða leið að
opnum hug nemenda.
Undanfarin þrjú ár hélt Ketill
heimili með góðum vini sínum og
félaga, Þorvaldi Kristinssyni.
Samúð okkar vottum við honum,
móður Ketils og systkinum.
Fráfall Ketils er mikill missir
okkur öllum sem þekktum hann.
Við kveðjum hann með miklum
söknuði en þökk fyrir ánægjulega
samleið.
Böðvar Björnsson
Guðni Baldursson
Helgi Magnússon
f bókinni Spámaðurinn, eftir
Kahlil Gibran, segir svo um vin-
áttuna:
„Vinur þinn er þér allt.
Hann er akur sálarinnar, þar sem sam-
úð þinni er sáð og gleði þín uppskorin.
Hann er brauð þitt og arineldur.
Þegar vinur þinn talar, þá andmælir þú
honum óttalaust eða ert honum sam-
þykkur af heilum hug.
Og þegar hann þegir, skiljið þið hvor
annan.
Því að í þögulli vináttu ykkar verða all-
ar hugsanir, allar langanir og allar von-
ir ykkar til og þeirra er notið í gleði,
sem krefst einskis.
Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú skilur
við vin þinn, því að það, sem þér þykir
vænst um í fari hans, getur orðið þér
Ijósara í fjarveru hans, eins og fjall-
göngumaður sér fjallið best af slétt-
unni.“
Fjölskyldan á Lindargötunni
sér nú á eftir sínum besta heimil-
isvini, á miðju því ári sem hann
fyllti þriðja tuginn.
Eitt kvöld í október síðastlið-
num, sat hann hjá okkur sem
oftar og fann að fótur sinn hafði
bólgnað. Þannig kom sjúkdómur-
inn, sem leiddi hann svo skjótt til
dauða, í ljós. Ketill tók örlögum
sínum með mikilli reisn. Hann
reyndi það sem læknavísindin eru
lengst komin í baráttunni við
sjúkdóminn. Bjartsýnn hélt hann
til London, þar sem möguleikinn á
lækningu er mestur. Þar naut
hann ómetanlegrar hjálpar vina
sinna, Þorvaldar og Bryndísar, og
systur sinnar Kötu. Hugrakkur
barðist hann og hélt í vonina í
lengstu lög, því svo mikið elskaði
hann lífið að ekkert taldi hann of
mikið álag á þrek sitt, svo hann
mætti lifa áfram. Samt átti dauð-
inn síðasta orðið í þeirri viðureign.
Við sem eftir lifum og er ekki
gefið að skilja til fulls, hvers
vegna svona hlutir gerast, höfum
það ráð eitt að halda á loft minn-
ingu hans, með þeirri reisn og
þeirri gleði sem einkenndi líf
hans. Okkur vinum hans og félög-
um í Samtökunum ’78 var ómetan-
legur styrkur að finna þann kraft
sem hann lagði i líf sitt, innan
Samtakanna sem utan. Innan
þeirra nýttist félagsþroski hans til
fulls, ungu félagi í mótun. ósér-
hlífni hans og vinnugleði var öðr-
um hvatning til starfa. Skilningur
hans á málefninu opnaði augu
margra, félagsmanna sem ann-
arra, fyrir þeirri staðreynd að það
að vera hommi og lesbía, er ekkert
til að skammast sin fyrir. Við eig-
um þvert á móti að vera stolt af
því að gangast við þeim tilfinning-
um sem búa í brjósti okkar. Þær
eru jafn heilagar og aðrar ástar-
tilfinningar. Þess vegna var Katli
mikið í mun að fólk niðurlægði sig
ekki þeirra vegna, né færi gáleys-
islega með þær.
Það sem einkenndi líf hans eftir
að hanm kom úr felum fyrir fjór-
um árum, var gleðin yfir því að
mega vera sá sem hann var.
Mannkostir hans blómstruðu og
nutu sín til fulls, þar sem hann
hafði unnið bug á þeim bælingum
sem heftu hann áður. Hann fann
sig sterkan og gaf óspart af sjálf-
um sér, vinum sínum og vinnufé-
lögum, sem löðuðust að hlýrri,
glettnislegri framkomu hans. Það
var ótrúlegt hvað hann komst yfir
að sinna mörgum vinum, úr öllum
áttum, og hlusta á vandamál
þeirra. Stundum fannst manni
jafnvel að hann mætti heimta
meira fyrir sjálfan sig. En það var
ekki hans lífmáti. Hann vildi sam-
gleðjast, hvetja og sjá jákvæðar
hliðar á lífinu.
Við undirritaðar eigum honum
ómetanlega skuld að gjalda fyrir
vináttu hans og þátttöku í heimil-
isstofnun okkar meö þeirri ást
sem hann sýndi sambandi okkar,
strax frá upphafi. Sú samstaða
sem myndast í minnihlutahópum
getur gert kraftaverk. I henni
felst einhver upprunalegur lífs-
kraftur. En það var ekki bara hún
sem nærði samband okkar við
Ketil, heldur það manneskjulega
Legsteinar
Framleiðum altar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val legsteina.
I
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGl 48 SÍMI 76677