Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1985
49
Slysaalda á Selfossi um helgina:
Ekið á menn,
bíla og hross
TVÖ MIKIL umferðarslys urðu í nágrenni Selfoss á sunnudags-
kvöldið með u.þ.b. einnar klukkustundar millibili og mæddi mikið á
lögreglunni á Selfossi um þessa helgi, sem reyndist í rólegra lagi
víðast hvar annars staðar á landinu.
ökumaður fólksbifreiðar af
gerðinni Saab ók aftan á Mazda-
bifreið, sem fór á 70 km hraða eft-
ir Skilavegi um kl. 19 í fyrrakvöld.
Kastaðist Saab-bifreiðin yfir á
gagnstæðan vegarhelming eftir
aftanáaksturinn, lenti þar á
kyrrstæðri Opel-bifreið, sem stóð
utan akbrautar og valt síðan þrjár
veltur utan vegar. Að sögn Sel-
fosslögreglunnar var ökumaður
Saab-bifreiðarinnar bæði ölvaður
og réttindalaus.
Ökumann Mazda-bifreiðarinnar
sakaði ekki og ökumaður kyrr-
stæðu bifreiðarinnar, sem næst
varð fyrir barðinu á þeim
réttindalausa, var að færa farþeg-
unum kaffi þegar óhappið varð.
Sat fólkið því utan vegar, rétt hjá
bifreiðinni og snæddi nesti þegar
Saab-bíllinn kom fljúgandi yfir
veginn og lenti á farartæki þess og
var mesta mildi að ekki fór verr.
Ökumaður Saab-bifreiðarinnar
skrámaðist lítillega en kona, sem
var eini farþeginn í bílnum hjá
honum, viðbeinsbrotnaði. Að sögn
lögreglunnar á Selfossi er Saab-
bifreiðin að heita má ónýt, Opel-
bifreiðin stórskemmd og Mazda-
bifreiðin allmikið skemmd að aft-
an.
Rúmri klukkustund seinna, eða
um klukkan 20 á sunnudagskvöld-
ið, var ekið á sex hross sem einn
maður var á leið með yfir Skeiða-
vegamót á Suðurlandsvegi, allt
reiðhesta. Meiddust fjórir hest-
anna og þar af tveir svo illa að
aflífa varð þá. Knapinn sem hafði
fimm hesta í taumi er mikið mar-
inn og lerkaður og leitaði hann
læknishjálpar á Selfossi. Bifreiðin
sem óhappinu olli er jeppi af gerð-
inni Scout og samkvæmt lögregl-
unni á Selfossi er talið að gáleysis-
legur akstur ökumanns hafi valdið
slysinu. Scout-bifreiðin var full af
farþegum en engan sakaði.
óvenjumikil umferð hesta-
manna var á þessum slóðum um
helgina vegna kappreiða sem
haldnar voru á Murneyrum. Voru
bæði knapinn sem ekið var á og
fólkið, sem var að snæða nesti í
vegarkantinum þegar Saab-bif-
reiðin lenti á bíl þess, að koma af
kappreiðunum. Þá féll bóndi úr
Flóanum af hestbaki og háls-
brotnaði á Urriðavegi, er hann var
á leiðinni heim af kappreiðunum á
Murneyri aðfaranótt sunnudags.
Maðurinn var fluttur til Reykja-
víkur á Borgarspítalann og mun
líðan hans vera eftir atvikum.
Á laugardaginn var ekið á sjö
ára dreng á reiðhjóli á Selfossi.
Drengurinn hlaut nokkra áverka
en er ekki talinn alvarlega slasað-
ur. Þá varð bílvelta í Biskupstung-
unum en engann sakaði. I Hver-
agerði ók ölvaður og réttindalaus
ökumaður á ljósastaur. Urðu
staurinn og bíllinn illa úti við ár-
eksturinn en ökumanninn sakaði
ekki.
Auk þessa var nokkuð um að
menn væru teknir ölvaðir við
akstur og minniháttar árekstra og
slys á útivistarsvæðum.
Einn Selfyssingur, sem trúlega
hefur verið á heimleið frá dansleik
á Flúðum og vantað far heim, tók
ófrjálsri hendi dráttarvél á bæn-
um Hellisholtum í Hrunamanna-
hreppi og ók henni langleiðina til
Selfoss. Hann hafði þó lagt farar-
tækinu er lögreglan hafði uppi á
honum og er málið i rannsókn.
Umferöarslys
hjá Veiðivötnum
Kona slasaðist á höfði og
brjóstkassa þegar jeppi og fólks-
bíll rákust saman um klukkan 16 i
gær nálægt Veiðivötnum. Var
konan flutt til Reykjavíkur til
læknismeðferðar. Að sögn lögregl-
unnar á Hvolsvelli varð slysið í
beygju á blindhæð innan við Þór-
istind u.þ.b. sex km frá Veiðivötn-
um.
15 ára ók á steinvegg:
Hlaut alvarlega
áverka á auga
FIMMTÁN ára piltur slasaðist al-
varlega þegar hann ók bifreið á
steinvegg við Ásvallagötu. Hann
skarst illa í andliti og skaddaðist á
auga. Hann var fluttur í slysadeild
Borgarspítalans, síðan á augndeild
Landakotsspítala til aðgerðar og
liggur nú á gjörgszludeild. Annar
piltur var með í förinni og skarst
hann einnig mikið í andliti.
Pilturinn, sem ók bifreiðinni,
hafði tekið bifreið föður síns
traustataki. Hann ók Ásvallagötu
til austurs og hugðisl beygja norð-
ur Ljósvallagötu, en fór of hratt í
beygjuna og lenti upp á gangstétt
og munaði minnstu að hann lenti
á kirkjugarðsveggnum, en náði að
sveigja frá honum og nokkrum
bifreiðum, en hafnaði síðan á
steinvegg vestan megin við göt-
una. Bifreiðin skemmdist mikið.
Slysið varð laust eftir klukkan eitt
aðfaranótt laugardagsins.
KALT HAREYÐANDIVAX
LOUIS MARCEL Ekkertsull,
S T R I P W A X engin fyrirhöfn
nttiuim «i«ovi) wMWAMfiD mAm toa
LOUIS MARCEL
FACIAL STRIP WAX
<alt
iáreyðandi
/AX
Kalt strimla-VAX fjarlægir
óæskileg líkamshár á svip-
stundu, meö einu handtaki.
Reyndu kalda strimla-VAXIÐ frá
Louis Marcel.
«l»am «».»nu M«h« *oi» «4nhs
Bankastræti 3,
sími 13635.
Póstsendum.
HELGARÞJÖNUSTA
Eins og undanfarin sumur
er varahlutaverslun okkar
OPIN ALLA LAUGARDAGA
FRÁ KL. 10 F.H. - 2. E.H.
Komið eða hringið í
þjónustusíma varahlutaverslunar:
3 98 11 - 68 63 20
BÚNADARDEILD!
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
7V1SAEA
UTSAH
ITSApJ
SALA
uisala ,insr
ÍITSAI
pSAiJ
BALA
hlNGHOLTSSTRÆTI l
A4DCNS
ÞINGHOLTSSTRÆTI l