Morgunblaðið - 24.07.1985, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 24.07.1985, Qupperneq 56
» OPfNN 1000-00.30 TIL DAGLEGRA NOTA MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR. Sama veður áfram SUNNLENDINGAR hafa fengid gódan skammt af sólinni undan- farió og þurfa ekki að kvarta yfir vstu eins og í fyrra. Laugarnar hér sunnanlands eru yfirfullar af sól- dýrkendum. Blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins brugðu sér í Hveragerði í gær og heimsóttu m.a. tívolíið þar sem ungir sem aldnir skemmtu sér konunglega, en myndin hér er af tveimur gutt- um, sem voru meðal gesta þar. Veðurfræðingur veðurstofunn- ar sagði í samtali við Morgun- blaðið að næstu tveir dagar yrðu svipaðir. „Norðan og norðvestlæg átt verður ríkjandi. Lítilsháttar úrkoma verður fyrir norðan og norðaustanvert landið. Hitastig verður 6 til 10 stig norðanlands og 12 til 15 stig sunnanlands. Á föstudag má búast við hægri austlægri átt með þokkalegu veðri. Skattaálagningu lokið: Tekjuskattur einstaklinga rúmir 4 milljarðar króna Launahækkanir reyndust meiri en forsendur fjárlaga gerðu ráð fyrir SKATTAÁLAGNINGU er lokið á öllu landinu og hafa skattskrár verið lagðar fram. Samkvæmt þeim nemur brúttótekjuskattur einstaklinga 4 milljörðum króna, sem er 19,66% hærri upphæð en 1984. Brúttótekju- skattur lögaðila nemur rúmum 800 milljónum, sem er 21,87% hækkun frá fyrra ári, og aðstöðugjöld lögaðila nema rúmum 960 milljónum króna, sem er 39,31 % hærra en í fyrra. Sumir bænd- ur að verða uppiskroppa . með fóður SIJMAR tegundir fóðurs eru að verða uppseldar hjá fóðursölum en þeir hafa ekki bolmagn til að fjár- magna greiðslu á 50% kjarnfóður- gjaldinu, sem nú á að staðgreiða. Búist er við að bændur fari að lenda í vandræðum í vikulokin vegna skorts á fóðri, með alvarlegum af- leiðingum. Pétur Björnsson, framkvæmda- stjóri fóðurinnflutningsfyrirtækis- ins Guðbjörn Guðjónsson hf., sagði að fyrirtæki hans væri nú orðið uppiskroppa með 4 tegundir fóðurs, varpfóður, andauppeldisfóður og tvær tegundir smágrísafóðurs, og einnig væri að sverfa að með aðrar -'tegundir. Hann sagði að fyrirtækið ætti 5—600 tonn af fóðri á hafnar- bakkanum, en gæti ekki staðgreitt 50% fóðurgjaldið, sem þyrfti að gera við tollafgreiðslu fóðursins. Hann sagði að þetta fóður væri um hálfs mánaðar birgðir og væri 50% gjaldið af þessum birgðum 2,5 milljónir kr. Hann sagðist vita til þess að ástandið væri svipað hjá öðrum fóðursölum, bæði þeim sem flyttu inn fóður og blönduðu hér heima. Pétur sagði að bændur hefðu enn ^ekki lent í vandræðum vegna skorts á fóðri, enda hefði fóður ver- ið flutt á milli tanka hjá bændum til að bjarga málunum. En ef ekki fengist greiðslufrestur á fóður- gjaldinu yrðu sumir bændur fóður- lausir i vikulokin með þeim afleið- ingum sem hverjum manni væru ljósar. Pétur sagði líka að tollstjóri hefði farið fram á bankaábyrgð fyrir sérstaka fóðurgjaldinu (80% gjaldinu) en veittur er 4 mánaða greiðslufrestur á því gegn framvís- un slíkrar tryggingar. Sagði Pétur að eftir 4 mánuði yrði hans fyrir- tæki eitt að vera búið að veðsetja eignir og leggja fram bankaábyrgð ^ fyrir tugum milljóna vegna þessa gjalds, og nefndi tölur um allt að 50 milljónir. Þetta þyrfti fyrirtækið að leggja fram og greiða kostnaö af, en svo væri fyrirsjáanlegt að ekki þyrfti að greiða nema lítinn hluta þessarar upphæðar, svo skrítið sem það nú væri. Að sögn Sigurðar Þórðarsonar, skrifstofustjóra í fjármálaráðu- neytinu hefur skattbyrðin miðað við heildartekjur einstaklinga far- ið lækkandi frá árinu 1978, en áiagðir skattar í hlutfalli við tekj- ur einstaklinga eru nú 4,4%, en voru í fyrra 4,9% og árið 1978 6%. Sigurður Þórðarson sagði að upphæð tekjuskatts væri um 400 milljón krónum hærri en fjárlög gerðu ráð fyrir, þar sem launa- hækkanir á milli ára hefðu verið meiri en forsendur fjárlaga gerðu ráð fyrir. Færi öll þessi upphæð til greiðslu á þeim hækkunum, sem orðið hafa frá fjárlögum á ellilíf- eyri og slysa- og örorkubótum. Sigurður sagði ennfremur að áform ríkisstjórnarinnar um lækkun skatta um 600 milljónir hefði staðist nokkurn veginn, þar sem lækkunin næmi, samkvæmt útreikningum rikisskattstjóra, um 580 milljónum króna. Samkvæmt skattskrám greiðir Guðmundur Axelsson listaverkas- ali í Klausturhólum hæstu gjöld einstaklinga, rúmar 8,8 milljónir króna. Hæstu gjöld lögaðila greiða íslenskir aðalverktakar rúma 71 milljón króna. Sjá skrá yfir hæstu skatt- greiðendur á bls. 32 og 33. Borgarráð samþykkir kaup á Kröfluvirkjun BORGARRÁÐ samþykkti samhljóða á fundi í gær fyrir sitt leyti kaup Landsvirkjunar á Kröflu af ríkis- valdinu fyrir 1170 milljónir króna. Áður hafði Akureyrarbær samþykkt kaup á Kröflu og hafa því allir eign- araðilar Landsvirkjunar samþykkt kaupin. Fyrirhugað er að samningur Landsvirkjunar við ríkið verði undir- ritaður á Hmmtudag. Heildarskuldir Kröfluvirkjunar nema 3,5 milljörðum króna, þann- ig að ríkisvaldið tekur á sínar herðar um 2,4 milljarða króna af skuldum virkjunarinnar. Með þessu er talið, að raforkuverð þurfi ekki að kækka vegna yfir- töku Landsvirkjunar. Með samn- ingnum eignast Landsvirkjun all- ar eignir Kröfluvirkjunar, þar með talinn ótakmarkaðan rétt til að nýta þá orku, sem á svæðinu kann að finnast til framleiðslu allt að 70 MW. Borgarráð samþykkti samning- inn eins og hann liggur fyrir, nema hvað að ekki var fallist á kaup á gufuaflsstöðinni í Bjarnar- flagi að upphæð um 100 milljónir króna, en Akureyrarbær hafði fyrir sitt leyti fallist á kaup stöðv- arinnar. Enn aflast vel á Vestfjarðamiðum: „Stanslaust mok síðan í maí“ ÍMfirdi 23. júli. GUÐBJÖRG ÍS 46 er að landa um 170 tonnum, mest þorski, eftir þriggja daga veiði. Þegar fréttarit- ari Morgunblaðsins hitti Ásgeir Guðbjartsson skipstjóra var hann að hamast við að moka ís yfir þorsk í kössum, sem skipverjar hans stöfluðu beint í einangraða gáma, en gámarnir fara síðan á markað í Englandi, þar sem stór hlutí afla (Juðbjargar hefur verið seldur á fiskmörkuðum í sumar. „Við fengum þetta á Halanum, mest í botntrollið, en nokkuð þó í flottroll," sagði Ásgeir. „Þetta er nú farið að verða ansi skemmti- legt, það er búin að vera samfelld aflahrota á Halanum og austur undir hólfið á Strandagrunninu síðan 28. maí í vor. Mér finnst að það hafi aldrei áður verið annar eins fiskur á þessum slóðum. Þetta er jafn og góður fiskur og ekkert smælki. Mestur hluti tog- araflotans hefur verið þarna í sumar, en togurum fer nú fækk- — segir Ásgeir aflakóngur á Guðbjörgu ÍS MorgunblaSið/Úlfar Ágústsson Skipverjar á Guðbjörgu gáfu sér tíma til að stilla sér upp þritt fyrir annríkið. Allir eru á kafi í slorinu. Bæring Jónsson, matsveinn, lengst til vinstri, hamaðist í ísnum og Ásgeir og Guðbjartur sonur hans, sem er skipstjóri á móti föður sínum, létu hvorugir sitt eftir liggja. andi, því margir þeirra eru að verða búnir með kvótann. Mér finnst sjálfsagt að auka við kvót- ann. Því skyldi ekki mega veiða 370—380 þúsund tonn á ári núna á seinni hluta aldarinnar, eins og gert var allan fyrri hlutann? Okkur hefur gengið mjög vel með gámafiskinn, aldrei fengið „dán“, og meðalverðið rúmar 40 krónur á kílógrammið. Hann Baldur Jónsson er nýkominn úr skoðunarferð til Englands, þar sem hann fylgdist með fisksöl- unni, og hann sagði mér, að besti gámafiskurinn kæmi frá okkur sem leggjum upp hjá íshússfélagi Ísfirðinga og hjá Frosta í Súða- vík. „Nei, það má ekkert stoppa," sagði Ásgeir að lokum, „við för- um út aftur í kvöld. Við eigum enn nógan kvóta, enda búnir að kaupa mikið svo það verður að nota tækifærið á meðan það gefst." ÍJIfar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.