Morgunblaðið - 25.07.1985, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚLl 1985
Bflainnflutningurinn:
1316 færri fólks-
bflar en í fyrra
FYRSTU sex mánuði þessa árs var
flutt inn 2.861 ný fólksbifreið, en í
fyrra voru fluttar inn 4.177 slíkar á
sama tíma. Hins vegar voru fluttar
inn fleiri vörubifreiðar nú en á síð-
asta ári.
Fyrstu sex mánuði þessa árs
voru fluttir inn 1.316 færri fólks-
bílar en á sama tíma í fyrra.
Heildarbílainnflutningurinn á
þessu ári er 3.165 bílar, samanbor-
ið við 4.872 á síðasta ári eða 1.282
bifreiðum færra.
Nánari skipting innflutningsins
fyrstu sex mánuði þessa árs, tölur
fyrir sama tímabil í fyrra innan
BSRB til-
nefnir ekki
í verðlags-
nefndir
búvara
STJÓRN Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja ákvað á
fundi sínum í gær að tilnefna
ekki fulltrúa í nefndir sem verð-
legga eiga búvörur, annars vegar
til bænda og hins vegar í heild-
sölu.
Landbúnaðarráðuneytið
óskaði eftir tilnefningu BSRB í
nefndirnar í samræmi við hin
nýju lög um framleiðslu, verð-
lagningu og sölu á búvörum, en
þar er gert ráð fyrir að BSRB
og ASÍ tilnefni hina svokölluðu
neytendafulltrúa í verðlags-
nefndir landbúnaðarins. „Við
meðferð málsins á Alþingi
lýsti stjórn BSRB sig andvíga
því fyrirkomulagi á verðlagn-
ingu búvara sem lögin gera ráð
fyrir. Afstaða bandalags-
stjórnarinnar er óbreytt, og
mun BSRB ekki tilnefna full-
trúa í nefndirnar," sagði
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, eftir stjórnarfundinn í
gær.
Miðstjórn ASÍ tekur afstöðu
til óskar landbúnaðarráðu-
neytisins á næsta miðstjórnar-
fundi, sem gert er ráð fyrir að
verði í byrjun ágúst. Sam-
kvæmt heimildum Morgun-
blaðsins má búast við sömu af-
stöðu ASÍ, enda var umsögn
þeirra til Alþingis um laga-
frumvarpið mjög neikvæð. Til-
nefningarfresti lauk reyndar
15. júlí, því nefndirnar eiga að
vera fullskipaðar 1. ágúst. Fé-
lagsmálaráðherra og við-
skiptaráðherra eiga nú að til-
nefna neytendafulltrúana fyrir
BSRB og einnig fyrir ASÍ noti
það sér ekki rétt sinn til til-
nefningar í nefndirnar.
sviga, eru eftirfarandi: Notaðar
fólksbifreiðar 226 (190), nýjar
sendibifreiðar 230 (254), notaðar
sendibifreiðar 17 (7), nýjar vöru-
bifreiðar 184 (174), notaðar vöru-
bifreiðar 41 (29), aðrar nýjar bif-
reiðar 9 (17), aðrar notaðar bif-
reiðar 22 (24).
Skotið á starfs-
mannabústaöinn:
Byssumaður-
inn handtekinn
26 ÁRA Reykvíkingur hefur viður-
kennt að hafa skotið af haglahys.su
inn um glugga á starfsmannabústað
bandaríska sendiráðsins að Þing-
holtsstræti 34 að morgni sunnudags-
ins. Maðurinn var handtekinn á
þriðjudagskvöldið og lá játning fyrir
í gær. Manninum var sleppt úr haldi
í gærkvöldi, enda málið upplýst.
Rannsóknarlögregla ríkisins lagði
hald á skotvopn mannsins, 2 byssur.
Maðurinn knúði dyra á starfs-
mannabústaðnum um fimmleytið
á sunnudagsmorguninn, en var
neitað um inngöngu. Hann kvaðst
hafa reiðst og skotið af hagla-
byssu sinni inn um gluggann, en
hann var að koma úr helgarferð
utan af landi. Hann hefur byssu-
leyfi og hefur ekki áður komið við
sögu sakamála.
Kirkjuvegur 10
Hafnarfjörður:
Bæjarstjórn afþakkar hús
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar ákvað á fundi sínum
fyrir stuttu að þiggja ekki húseign þá er stendur á lóð
númer 10 við Kirkjuveg í Hafnarfirði, en eigandi þess
ánafnaði Hafnarfjarðarbæ húsið í erfðaskrá sinni.
Eigandi húseignarinnar var Sigríður Erlendsdóttir, en
hún lést árið 1980. Hún hafði búið mest alla ævi sína
í húsinu og setti það skilyrði m.a. að bæjarstjórnin
héldi heimilinu eins og hún skildi við það og ætti
húsið að „sýna hvernig íslensk alþýðuheimili litu út
upp úr aldamótunum“ eins og hún orðaði það í erfða-
skránni.
Einar Ingi Halldórsson, bæjarstjóri Hafnar-
fjarðar, sagði í samtali við Mbl. að bæjarstjórnin
hefði ákveðið að þiggja ekki boðið vegna ýmissa
skilyrða sem fylgdu með í erfðaskránni. „Það sem
vó hvað mest í ákvörðun okkar var að lóðarréttur-
inn fylgdi ekki með og því hefðum við þurft að láta
flytja húsið, sem er lítið, lágreist og gamalt, eitt-
hvert annað.
Gamla konan ánafnaði lóðina sjóði verka-
kvennafélagsins hér í bæ og átti að nota ágóða af
henni til að hjálpa fátækum börnum að dveljast á
dagheimili verkakvennafélagsins, Hörðavöllum í
Hafnarfirði."
Einar Ingi sagði að búið væri til meðferðar hjá
skiptaráðanda og gerði hann fastlega ráð fyrir að
húsið sjálft myndi einnig renna til sjóðs verka-
kvennafélagsins úr því að bæjarstjórnin afþakkaði
það.
Framleiðsluráð og landbúnaðarráðuneyti:
Staðgreiðsla mjólkur
ekki framkvæmd strax
FRAMLEIÐSLURÁÐ landbúnaóar-
ins telur óhjákvæmilegt að fyrri
ákvarðanir þess um útborgun mjólk-
urverðs fyrir júlí og ágúst standi
óbreyttar, þ.e. að 75% grundvallar-
verðs mjólkur sé greitt að inn-
leggsmánuði loknum, þrátt fyrir
gildistöku nýju laganna um fram-
leiðslu, verðlagningu og sölu á bú-
vörum, sem gera ráð fyrir stað-
greiðslu búvara, með að hámarki
15%frádrætti af grundvallarverði.
í bókun sem samþykkt var á sið-
asta fundi Framleiðsluráðs kemur
ofangreind skoðun fram, og er vís-
að til túlkunar landbúnaðarráðu-
neytisins á lögunum þar sem talið
er að framlenging á fyrri verð-
ákvörðunum í bráðabirgðaákvæð-
um laganna nái til ákvörðunar um
útborgunarhlutfall mjólkur. Þá
vísar Framleiðsluráð einnig til
þess að ekki hafi enn verið aukið
fé til afurðalána til að standa und-
ir aukinni útborgun mjólkur.
Helst virðist vafi leika á um
hvort heimilt sé að halda eftir
25% grundvallarverðs mjólkur,
sem ákveðið var yfir sumarmán-
uðina, þar sem í lögunum er gert
ráð fyrir að ekki megi halda eftir
nema 15% gjaldi til jöfnunar
mjólkurframleiðslu yfir árið (fyrir
utan venjuleg framleiðendagjöld),
og munar þarna 10 prósentustig-
um. En nú hefur Framleiðsluráð
og landbúnaðarráðuneytið tekið af
skarið í þessu efni.
Fjármálaráðherra neitar
BSRB um 5 % launahækkun
Stjórn BSRB átelur skammsýni fjármálaráðherra
Afram sól
sunnanlands
en skýjað
norðanlands
SPÁÐ er björtu veðri sunnanlands í
dag og 11—17 stiga hita, en áfram
verður skýjað norðanlands og heldur
kaldara, þétta 7—11 stig. Hæg norð-
vestlæg átt verður ríkjandi.
Á föstudag og laugardag er spáð
hægri breytilegri átt á landinu og
að það birti til og hlýni fyrir norð-
an og verði tiltölulega gott veður
um allt land. Á sunnudag er hugs-
anlegt að áttin verði austlæg og
það þykkni upp syðst á landinu.
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur hafnað málaleitan BSRB um að laun félags-
manna bandalagsins verði hækkuð um 5% til samræmis við laun félaga í
BHM, en Kjaradómur úrskurðaði 12. júlí síðastliðinn að laun BHM félaga
skyldu hækka um 5%. Segir í fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu að
kjarasamningur BSRB og ríkisins gildi til áramóta án heimildar til uppsagn-
ar fyrir þann tíma eða ákvæðis um endurskoðun af einu eða öðru tilefni.
Stjórn BSRB samþykkti í gær ályktun, þar sem skammsýni fjármálaráðherra
er átalin.
í fréttatilkynningu fjármála-
ráðuneytisins segir siðan: „Fjár-
málaráðherra hefur því ekki séð
sér fært að verða við málaleitan
BSRB en mun eftir föngum leita
ieiða til að tryggja í samvinnu við
aðildarfélög BSRB, að ekki skapist
óeðlilegt og óviöunandi misræmi í
launamálum starfsmanna við
sömu störf eftir því hvort þeir eru
í BSRB eða BHM.“
Ályktun stjórnar BSRB er svo-
hljóðandi: „í samningum BSRB og
ríkisins 27. júní 1985 náðust fram
tvö meginatriði. 1. launahækkun
og þar með í reynd kaupmáttar-
trygging út samningstímabilið
miðað við spá um verðlagsþróun
til áramóta. 2. Samræming launa
við laun annarra, meðal annars
með því að samið var um sam-
bærileegan launastiga og Kjara-
dómur hafði úrskurðað félags-
mönnum BHM.
Stjórn BSRB telur það mjög
þýðingarmikið að sömu laun séu
greidd fyrir sambærileg störf án
tillits til þess í hvaða stéttarfélagi
starfsmenn eru. Hjá ríki og sveit-
arfélögum verður þetta samræmi
best tryggt með því að sami launa-
stigi gildi fyrir öll félög opinberra
starfsmanna. Þegar Kjaradómur
kvað upp nýjan úrskurð 12. júli
síðastliðinn um 5% hækkun launa
ríkisstarfsmanna í BHM var aftur
orðin röskun á launakjörum
opinberra starfsmanna. Enn á ný
er opinberum starfsmönnum
greidd laun eftir tveimur mismun-
andi launastigum. { viðræðum sem
undanfarna daga hafa farið fram
milli fulltrúa BSRB og fjármála-
ráðherra, hafa af hálfu BSRB ver-
ið settar fram rökstuddar tillögur
um að sú röskun á samræmi sem
Kjaradómur hefur úrskurðað
verði lagfærð með almennri hækk-
un launa félagsmanna BSRB og að
sama launastiga verði haldið
áfram fyrir alla ríkisstarfsmenn.
Stjórn BSRB átelur þá skammsýni
fjármálaráðherra að hafna tillög-
um bandalagsins um samræmdan
launastiga. Þá vill stjórn banda-
lagsins vara við þeirri hættu sem
þjóðfélaginu og ekki síst launa-
fólki stafar af því misgengi sem
sífelld er að aukast í tekjuskipt-
ingu í þjóðfélaginu".
Vestmannaeyjar:
Eldur í risi
Vextnunnaerjuni, 24. júlf.
SLÖKKVILIÐIl) í Vestmannaeyjum
var kvatt út á níunda tímanum í kvöld
aö íbúðarhúsi við Faxastíg. í húsinu
eru tvær íbúðir og innréttað ris sem
tilheyrir efri hæðinni. Eldur var laus í
risinu og mikinn reykjarmökk lagði út
um kvistglugga þegar slökkviliðið kom
á staöinn.
Greiðlega gekk að ráða niðurlögum
eldsins, en skemmdir á risinu eru veru-
lega miklar af völdum elds, reyks og
vatns. Reykskemmdir urðu einhverjar
á 2. hæð hússins, en skemmdir eru
annars ókannaðar og óvíst er um
eldsupptök. hkj