Morgunblaðið - 25.07.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ1985
15
Eastwood í Play Misty for Me, leik-
stjórnarfruniraunin.
Eldraun
töffarans
Myndbönd
Árni Þórarinsson
Mesta hetja eða átrúnaðargoð
bandarísku þjóðarinnar er sam-
kvæmt skoðanakönnunum Clint
Eastwood. tmynd Eastwood á
hvíta tjaldinu er hinn kaldi,
svipbrigðalausi krossfari gegn
spillingu og óréttlæti, — ímynd
sem í seinni tíð hefur reyndar orð-
ið flóknari eftir því sem krossfar-
inn hefur orðið spilltari og rotnari
sjálfur (samanber síðustu mynd-
irnar, Sudden Impact og Tight-
rope). Eastwood er að sönnu gott
dæmi um velheppnað bandarískt
einkaframtak, mann sem brýst af
eigin rammleik og á eigin verð-
leikum út úr hólfi smáhlutverka
og sjónvarpsvinnu, og skapar sér
tækifæri og framtíð sem leikari og
leikstjóri. Þá er þess ógetið að
Clint Eastwood er líka kyntákn og
á velgengni sína því að þakka að
nokkru leyti.
Þess vegna er það athyglisvert
að sú mynd sem varð frumraun
Eastwoods sem leikstjóra fjallar
um mann sem verður fórnarlamb
sinnar kaidlyndu kvenhyili. Þetta
er Play Misty For Me sálf ræðilegur
þriller sem Eastwood gerði árið
1971 og var að koma á mynd-
bandamarkaðinn hérlendis.
Eastwood leikur plötusnúð á út-
varpsstöð í Kaliforníu; hann spilar
lög og fer með ljóð sem eiga að
höfða til rómantískra hlustenda á
síðkvöldum og þá ekki síst ást-
fanginna eða einmana kvenna.
Hann notfærir sér þessa stöðu til
hins ýtrasta og kæruleysisleg
kvensemi hans hefur í upphafi
myndarinnar bundið enda á sam-
band hans við konu sem hann í
raun elskar. Enn ein slík skyndi-
kynni við kvenkyns aðdáanda
reynast þá örlagarík. Konan sem
ævinlega hringir í hann í útsend-
ingu og biður um óskalagið Misty
með Errol Garner reynist ekki að-
eins vera ástsjúk; hún er morðóð-
ur geðsjúklingur.
Play Misty For Me hefur að
sumu leyti ekki staðist tímans
tönn. Atriðin með gömlu kærust-
unni, langir labbitúrar úti í nátt-
úrunni, ástaratriði við undirleik
lags Robertu Flack, The First
Time Ever I Saw Your Face, og
heimildainnslag frá tónlistarhá-
tíðinni í Monterey, — þetta eru
veikir hlekkir í heildarbygging-
unni. En spennuatriðin eru á hinn
bóginn jafn ógnvekjandi og
kraftmikil og þau voru fyrir tæp-
um fimmtán árum. Jessica Walter
sem hinn hættulegi aðdáandi skil-
ar túlkun á geðsjúklingi sem mun
trúlega verða sigild í kvikmynda-
sögunni. Eastwood sjálfur er hóf-
stilltur og óhagganlegur að vanda
og sýnir hér sem síðar hefur sann-
ast að hann er mun betri leikstjóri
en leikari.
Stjörnugjöf: Play Misty For
Me**!á
^
^
Habitat veit hvaö klukkan slær.
High tech línan er gott dæmi um
Habitathönnun: Nýstárleg,
otadrjúg og vönduö. Viö eigum nú til
háar hillur og lágvaxin hjólaborö,
eru á leiöinni videovagnar,
Lekkar og tölvuborö.
mleitt í svörtu og hvítu.
kr. 5.564,
High tech er i
High tech hillan i
og boröiö kr. 3.982,^
Habitat. Verslun — póstvi
Laugavegi 13, sími 25808.
.#"RÖNNING IffgSa