Morgunblaðið - 25.07.1985, Blaðsíða 28
*°L
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR,25. JýLl 1985
I STUTTU MALI
Líkamsrefsingar
í breskum skólum
23. júlí. AP.
BRKSKA ríkisstjórnin lagði á þriðju-
dag til hliðar tillögu um það hvort
foreldrar mættu ákveða hvort börn
þeirra yrðu látin sæta líkamlegri refs-
ingu í skólum ef þau brytu skólaregl-
ur.
Sir Keith Joseph, menntamálaráð-
herra, sagði að tillagan yrði látin
niður falla og skólayfTrvöldum yrði
áfram í sjálfsvald sett hvort nemend-
ur vaeru hýddir.
Ástæðan fyrir því að tillagan var
ekki afgreidd var sú, að lávarðadeild-
in iagði fram breytingartillögur þess
efnis að líkamsrefsingar í skólum
yrðu lagðar af með öllu sem sam-
ra-mdiNt ekki áformum ríkisstjórnar-
innar.
Sir Keith Joseph sagði að bann við
líkamsrefsingum hefði verið þvert á
vilja umtalsverðs minnihluta, bæði
foreldra og kennara, sem vildi eiga
þess kost að beita slíkum refsingum.
Bandaríkjastjórn lög-
sækir sjónvarpsstöðvar
Waakiagtoa, 24. jélí. AP.
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ í
Bandaríkjunum stefndi á þriðjudag
öllum stóru sjónvarpsstöðvunum í
Bandaríkjunum og krafðist þess að
þær létu af hendi allt efni sem varðaði
fréttaflutning þeirra um flugránið og
gíslatökuna 14. júní sem stóð í 17
daga.
Talsmaður dómsmálaráðuneytisins,
Terry Eastland, sagði að talið væri
nauðsynlegt að ýmislegt af því efni,
sem sjónvarpsstöðvarnar hafa í fórum
sínum um flugránið, yrði rannsakað
og talið hefði verið nauðsynlegt af
lagaástæðum að stefna. Eastland ncit-
aði að láta uppi hvaða upplýsingar það
væru sem ráðuneytið væri á höttunum
eftir.
Aftur á móti greindi CBS-sjón-
varpsstöðin frá því að tilgangur stefn-
unnar væri að fínna sönnunargógn á
hendur flugræningjunum í umræddu
fréttaefni án þess að geta heimildar
sinnar.
Peres hafnar
sendinefndarmönnum
Tel Aw, 24. jálí. AP.
SHIMON Peres, forsætisráðherra
ísraels, sagði á þriðjudag fyrir þing-
nefnd, að ísraelsmenn gætu aðeins
sætt sig við tvo þeirra sjö aðilja sem
stungið hefði verið upp á i samninga-
nefnd Jórdaníu og Palestínu. Hinir
fimm væru í tengslum við Krelsis-
samtök Palestínumanna, PLO. Huss-
ein Jórdaníukonungur sendi lista yfir
nefndarmenn til Washington og er
talið að Yasser Arafat, leiðtogi PLO,
hafi veitt honum samþykki sitt fyrir
listanum.
Síðar um daginn rteddi Peres stutt-
lega við palestínskan lögmann sem
lagt befur verið til að taki þátt í undir-
búningsviðræðum við Bandaríkja-
stjórn á þriðjudag.
I'tvarp Israel og ísraelsk dagblöð
greindu frá því að Peres og lögmaður-
inn, Faiz Abu Rahma, hefðu hist í
veislu í tilefni þjóðhátíðardgs Egypta-
lands, þeir hefðu átt orðaskipti, en
þeim hefði ekki farið neitt veigamikið
á milli.
Sjö Afganir stranda-
glópar í Tókýó
Tólýó, 24. jiilí. AP.
SJÖ Afganir hafa verið innlyksa á
hóteli á flugvellinum í Tókýó um mán-
aðarskeið vegna þess að þeim hefur
alls staðar verið neitað um hæli.
Sjömenningarnir lentu í Tókýó 29.
júní og voru þeir á leið til Kanada.
Þeir voru kyrrsettir á flugvellinum
sakir þess að þeir höfðu ekki gild
skilríki.
Ifim hefur verið meinuð landvist í
Japan á þeirri forsendu, að þeir væru
að flýja fátækt, en ekki ofsoknir og
gætu því ekki talist pólitískir flótta-
menn. Dómsmálaráðuneyti Japans
sagði að þeir hefðu komið frá Ind-
landi og hefðu verið búsettir þar um
nokkurra ára skeið.
Dómsmálaráðuneytið hefur farið
fram á það við pakistanska flugfélag-
ið, sem þeir flugu með til Japans, að
það flytji þá aftur til Nýju Dehlí, en
Afganirnir segjast hvergi fara: „Við
óttumst að verða fluttir nauðugir til
Afganistan og fórum ekki fyrr en
okkur hefur einhvers staðar verið lof-
að hæli."
AP/Slmamynd
Óður maður lagði til atlögu við lögreglumenn sem reyndu að afvopna hann
og handsama í Malmö í Svíþjóð. Maðurinn var með byssusting að vopni og
lét öllum illum látum á barnaleikvclli er lögregla kom á vettvang. Varð
lögreglan að særa manninn skotsárum og lézt hann um síðir.
Gekk berserksgang í Malmö:
Bugaðist loks
við 11. skotsár
Caataborg, 24. júlí. Fra Kristjini K. Kinarwyni.
LÖGREGLAN í Malmö í Suður-Svíþjóð komst í hann krappann er hún
hugðist stöðva 24 ára gamlan mann, sem gcrði sig til alls líklegan með 62
sentimetra langan byssusting að vopni. Tókst ekki að yfírbuga manninn fyrr
en hann hafði verið særður 11 skotsárum.
Það var um hálffjögurleytið að
lögreglunni var tilkynnt um óðan
mann, sem sveiflaði stórum byssu-
sting í allar áttir á barnaleikvelli.
Skeytti hann skapi sínu á leik-
tækjum og óttuðust menn um
börnin, sem þar voru að leik.
Þegar fyrsti lögreglubíllinn kom
á vettvang var strax kallað á liðs-
auka þar sem maðurinn var
brjálaður og framkoma hans vit-
firringsleg. Þegar lögreglumenn-
irnir voru orðnir sex reyndu þeir
að handtaka kauða, en hann var
ekki á þeim buxunum og lagði til
atlögu við lögregluna í stað þess
að leggja frá sér vopn. Hjó hann
til lögreglumannanna er þeir
reyndu að komast að honum.
Var þá gripið til táragass, en
það kom að litlum notum. Næst
var skotið aðvörunarskoti en
áfram sótti maðurinn að lögregl-
unni og gerði sig til alls líklegan.
Var þá reynt að gera mannin óvig-
an með því að særa hann skotsári
á læri, en hvorki fyrsta skot né
þau næstu á eftir dugðu til að slá
vopnin úr höndunum á honum.
Maðurinn stóð enn í báða fætur
þótt særður væri. Sótti hann enn
að lögreglumönnunum og er einn
þeirra hrasaði og datt aftur fyrir
sig var maðurinn snöggur til og
lagði til hans. Veitti hann
lögregluþjóninum svöðusár á læri
og virtist ekki ætla láta þar staðar
numið. Er hann reiddi til höggs að
nýju gripu lögreglumennirnir inn
í, skutu tveimur kúlum í brjóstið á
honum með þeirri afleiðingu að
slagæð í lunga fór í sundur. Tókst
þá loks að afvopna manninn óða
en skotsárin voru þá orðin 11 tals-
ins. Maðurinn var í skyndingu
fluttur í sjúkrahús og reyndist lát-
inn þegar þangað var komið.
Skelfing greip um sig í nágrenn-
inu þegar maðurinn birtist með
byssustinginn og gekk berserks-
gang á leikvellinum. Gustaf And-
ersson logreglustjóri í Malmö seg-
ir lögreglumennina hafa brugðist
rétt við er þeir reyndu að afvopna
manninn og taka hann úr umferð.
Hafi þeir skotið í sjálfsvörn.
Umfangsmikil
rannsókn vegna
Rainbow Warriors
Aacklmnd, 24. júli. AP. **
DÓMSTÓLL i Nýja-Sjálandi neitaði í dag að fallast á tryggingu úr hendi
frönskumælandi karls og konu, sem ákærð eru um niorð og íkveikju vegna
sprengingar þeirrar, sem varð 10. júlí í skipi Grænfriðunga, Rainhow
Warrior. Hin ákærðu segjast heita Alain Jacques Turenge, 33 ára, og
Sophie Frederique Claire Turenge, 36 ára. í dag lék þó enn mikill vafí á
hinu rétta um nöfn þeirra og þjóderni.
Sakborningarnir voru fölir og Auckland rétt áður en sprenging-
niðurlútir fyrir rétti, en töluðu
mikið sín í milli. Þau voru hand-
tekin í síðustu viku. Bæði bera
þau svissnesk vegabréf.
Af hálfu saksóknarans var far-
ið fram á, að gæzluvarðhald
þeirra yrði framlengt til 2. des-
ember nk. vegna umfangs rann-
sóknarinnar, sem færi næstum út
fyrir mörk þess, sem nokkru sinni
„hefur átt sér stað í þessu landi".
Dómarinn varð þó ekki við þeirri
kröfu, en framlengdi gæzlu-
varðhaldið um þrjár vikur.
Rannsókn málsins verður stöð-
ugt umfangsmeiri og nær nú til
annarra landa. Þannig er verið að
leita sakargagna bæöi í Sviss og
Frakklandi. Þá er hafin leit að
franskri snekkju, sem fór frá
in varð í Rainbow Warrior. Talið
var, að henni hefði verið siglt til
Nýju-Kaledóníu, sem er frönsk
eyja í Suður-Kyrrahafi. Hafa þrír
leynilögreglumenn verið sendir
þangað frá Nýja-Sjálandi til að
finna og rannsaka hugsanleg
gögn, sem þar kynnu að finnast
og gætu orðið til að upplýsa mál-
ið.
Rock Hudson
á sjúkrahúsi
Parbarborg, 24. júlí. AP.
AMKRÍSKI spítalinn í Parísarborg
gaf þi tilkynningu út í dag, að ekki
hefði tekizt að leiða í Ijós hvað amar
að Rock Hudson, kvikmyndastjörn-
unni, sem lagður var inn fársjúkur i
sunnudagskvöld.
Umboðsmaður Hudsons sagði
hann þjást af ólæknandi lifrar-
sjúkdómi. Sagði hann það tóman
söguburð að hann væri með ÓT-
veiki. Formælandi sjúkrahússins
segir líðan Hudsons eftir atvikum
góða.
Óttast er um
afdrif Pastora
San Joee, Ci»u Ríca, 24. julf. AP.
ÓTTAST er um afdrif Edens Pastora, eins helsta leiðtoga skæruliða í
Nicaragua, en talið er að þyrla hans hafí farist í Nicaragua, skammt frá
landamærum ('nsta Rica, i þriðjudag.
Fjölmiðlar í Costa Rica skýrðu
frá því í morgun, að Pastora væri
horfinn og síðdegis staðfestu
samherjar hans í Byltingarsinn-
aða lýðræðisbandalaginu, að leit
færi fram og þyrla hans hefði lík-
lega farist. Flugmaðurinn hafði
tilkynnt um vélarbilun, en síðan
rofnaði samband við hann.
Eden Pastora var hetja sandin-
istabyltingarinnar í Nicaragua
árið 1979 og leiddi sveitir þær
sem hertóku forsetahöllina í
Managua og steyptu Somoza, ein-
valdi landsins, af stóli. Síðan kom
upp ágreiningur milli Pastora og
róttækra manna í hinni nýju
stjórn, sem leiddi til þess að Past-
ora sagði sig úr henni og hóf
skæruhernað gegn henni. Hann
fullyrti, að sandinistar hyggðust
koma á marxísku einræði í Nicar-
agua og taka upp náiö samband
við kommúnistaríkin.
Tyrkland:
Jórdanskur embættis-
maður skotinn til bana
Bnuwel, 24.jýlí. AP.
TVENN hryðjuverkasamtök shíta
hafa lýst ibyrgð i dauða jórdansks
sendiriðsmanns, sem skotinn var
til bana í Ankara í Tyrklandi í dag,
i hcndur sér. Annars vegar voru
það samtökin „Heilagt stríð" (Ji-
bad) og hins vegar „Flokkur guðs".
Hinn fertugi sendiráðsritari
Jórdaníu, Ziad J. Sati, hafði
stöðvað bifreið sína á umferðar-
Ijósum í íbúðarhverfi í Ankara,
þegar maður réðst að bílnum og
skaut fjórum skotum í höfuð
sendiráðsmannsins. Hann lést
samstundis. íbúi í hverfinu sagð-
ist hafa heyrt skothvelli og hróp
og þegar hann leit út um glugg-
ann sá hann ungan mann stinga
byssu í buxnastrenginn og hlaupa
á brott. Lögreglan færði fjóra
AP/Sim»myna
Lík jórdanska sendistarfsmannsins Zaid Satis liggur sundurskotið í götunni
og hafa dagblöð verið lögð yfír Ifkið til að hylja það.
Tyrki og einn Líbana, sem lýs-
ingar sjónarvottarins áttu við, til
yfirheyrslu, en enginn hefur enn
verið ákærður fyrir ódæðið.
GENGI
GJALDMIÐLA:
Dollarinn
hækkar á ný
l/indon, 24. júlí. Al'.
GENGI Bandaríkjadollara
hækkaði í dag gagnvart öllum
helztu gjaldmiðlum Vestur-
Evrópu. Kom þessi hækkun í
kjölfar þeirrar hækkunar, sem
varð i dollaranum í kaupholl-
inni í New York í gær, eftir að
tilkynnt hafði vcrið, að aukning
hefði orðið í júní i eftirspurn
eftir ýmsum mikilvægum vörum
í Bandaríkjunum.
Dollarinn hækkaði gagnvart
sterlingspundinu, sem kostaði
1,4025 dollara síðdegis í dag
(1,4135). Gengi dollarans var
annars þannig, að fyrir hann
fengust:
2,8760 vestur-þýzk mörk (2,8420)
2,3630 svissneskir frankar (2,3430)
8,7350 franskir frankar (8,6700)
3,2325 hollenzk gyllini (3,2070)
1.922,50 iUlskar lirur (1.910,00)
1,3515 kanadískir dollarar (1,3480)
og 239,35 jen (238,10).
Gullverð lækkaði og var
verð á hverri únsu 318,10 doll-
arar í London siðdegis í dag
(321,25).