Morgunblaðið - 25.07.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ1985
31
Noregur:
Kvikmynd um Vínlands-
ferðir í undirbúningi
Osló, 22. júlí. Frá fréttaritara Morgunblaösins, Bemt Olufsen.
STÓRBROTIN kvikmynd um Vín-
landsferðirnar er nú í undirbúningi í
Noregi. Er ætlunin að gera kvikmynd
um ferðir Leifs Eiríkssonar í vesturveg
og á Kristófer Kólumbus að vera í
einu af aukahlutverkum myndarinnar.
Kemur þetta fram f Norska blaðinu
Aftenposten.
„Við viljum sýna, hvaða gagn Kól-
umbus hafði af þeirri vitneskju, scm
hann hafði fengið frá Norðurlönd-
um,“ hefur blaðið Aftenposten eftir
Alf R. Bjercke aðalræðismanni, sem
á frumkvæðið að kvikmyndinni.
Áformað er, að kvikmyndin verði
tilbúin fyrir Kólumbusarhátiðina í
Bandarikjunum 1992. Rithöfundur-
inn Vera Henriksen samdi handrit-
ið, en leikstjóri verður Louis de
Rochemont.
Myndin á að byggja á sögulegum
staðreyndum. Það er Kristófer Kól-
umbus, sem fyrstur kemur fram í
myndinni, en smám saman fer hún í
þann farveg að lýsa, hvernig lífinu
var háttað hjá fyrstu hvítu mönn-
unum, sem reyndu að setjast að á
Vínlandi.
„Vísindamenn hafa komizt að
þeirri niðurstöðu, að Kristófer Kól-
umbus hljóti að hafa verið kunnug-
ur frásögnum norrænna manna af
Vínlandsferðunum," segir Bjercke.
Lois de Rochemont leikstjóri tel-
ur, að bandarískir kvikmyndagerð-
armenn eigi eftir að verða hrifnir af
hugmyndinni. „Ég mun reyna að fá
Francis Coppola, sem kunnur er
fyrir stórmyndina „Apocalypse
now“ til að vinna að myndinni," seg-
ir de Rochemont.
Höfundur handritsins, Vera
Henriksen, segir að aðalpersóna
myndarinnar verði ekki Leifur Ei-
ríksson, heldur Guðríður Þorbjarn-
ardóttir, sem um tíma var gift
Þorsteini, bróður Leifs Eiríkssonar.
„Víkingarnir gerðu margar til-
raunir til að setjast að í Ameríku á
þessum tíma. Guðríður var með í
einni af þessum ferðum. Hún 61 son
á Vínlandi. Guðríður var annars
fyrir þeirri reynslu, sem ung kona
að stranda á skeri ásamt manni sín-
um. Voru þau þá á leið frá íslandi til
Grænlands og var bjargað af Leifi
Eiríkssyni," segir Vera Henriksen.
Seinna í sumar hyggst hún fara
til íslands og Grænlands í því skyni
að kynna sér söguslóðir með tilliti
til handrits síns.
„Kólumbus
var Norð-
firðingur“
Bollaleggingar um uppruna Kristó-
fers Kólumbusar halda stöðugt
áfram. Norskur sagnfræðingur,
Svein Magnus Grodys, heldur því nú
fram, að Kólumbus hafí verið frá
Hyen í Norðfírði í Noregi. Kemst
hann að þessari niðurstöðu með því
að bera saman heiti, ættarnöfn og
skjaldarmerki frá fyrri tímum í Nor-
egi. Norska blaðið „Dagbladet“
skýrði frá þessu í frétt fyrir skömmu
með fyrirsögninni: „Columbus var
Nordfjording."
Nicaragua:
Verður Tunnermann utanrík-
isráðherra í stað D’Escoto?
Managua, Nicaragua, 24. júli. AP.
BREYTINGAR kunna að vera í
vændum á skipan vinstri stjórnar-
innar í Nicaragua, er haft eftir
ónafngreindum embættismanni í
Managua. Þær miða m.a. að því, að
bæta sambúðina við Bandaríkja-
stjórn.
Líklegt er að liður í þessum
breytingum verði, að Carlos Tunn-
ermann, sendiherra Nicaragua í
Washington, taki við embætti
utanríkisráðherra af séra Miguel
D’Escoto, sem undanfarnar þrjár
vikur hefur verið í mótmælasvelti
til að sýna andúð sína á „hryðju-
verkastefnu Bandaríkjamanna
gagnvart Nicaragua," eins og
hann hefur komist að orði.
Læknar D’Escoto segja, að
heilsa hans sé góð, en hann hafi
hafi lést um 10 kg frá því hann hóf
hungurverkfallið 7. júlí. D’Escoto
drekkur nú aðeins vatn og sitrónu-
safa.
Hinn ónafngreindi heimildar-
maður í Managua, sem reynst hef-
ur áreiðanlegur, segir að litið sé
svo á að Tunnermann muni geta
beitt sér fyrir því að viðræður
hefjist á ný milli Bandaríkja-
stjórnar og stjórnar Nicaragua
um ágreiningsefni þeirra. Hann
hafi m.a. náið samband við George
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna. Viðræðum ríkjanna,
sem fram fóru í Mexikó, var slitið
í janúar sl. eftir að fulltrúar
þeirra höfðu átt með sér níu fundi.
Þá er talið að stjórn Nicaragua
hyggist skipa nýjan sendiherra í
Sovétríkjunum. Ernesto Castillo,
núverandi dómsmálaráðherra,
muni leysa af hólmi Jacinto Suar-
ez, sem verið hefur sendiherra í
Moskvu undanfarin fimm ár.
Suarez tekur við embætti yfir-
manns forsetaskrifstofunnar í
Managua, en hann og Oretga, for-
seti Nicaragua, sátu í sjö ár í fang-
elsi á valdaárum einræðisherrans
Anasastiosar Somoza, sem steypt
var af stóli árið 1979.
FJARFESTINGARFÉLAG ÍSLANDS HF.
auglýsir til sölu hlutabréf Ríkissjóðs
í eftirtöldum hlutafélögum:
"1
Hf. Eimskipafélag íslands,
Flugleiðir hf. og Rafha hf.
Fjármálaráðuneytið hefur falið Fjárfestingarfélagi íslands hf.
að selja hlutabráf Ríkissjóðs í Eimskip, Flugleiðum og Rafha.
Hlutur Ríkissjóðs
Nafnverð ofan-
greindra hlutabréfa
SÖLUTILBOÐ:
Gengi
Söluverðmæti
• Sölutilboð þetta stendur til 30. september 1985.
• Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fjárfestingarfélags íslands hfv
Hafnarstræti 7, 4. hæð, Reykjavík.
FJÁRFESTINGARFÉLAG
ÍSLANDS HF
HAFNARSTRÆTI 7, REYKJAVÍK.