Morgunblaðið - 25.07.1985, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 25.07.1985, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGtlR 25. JtJLÍ 1985 Björn Svein- björnsson verkfrœðing- ur látinn Björn Sveinbjörnsson verkfræð- ingur lést í Reykjavík sl. þriðjudag. Hann var fæddur 30. desember 1925 að Knarrarbergi, Eyjafirði, einka- barn hjónanna Guðrúnar Þ. Björnsdóttur, garðyrkjukonu frá Veðramóti, og Sveinbjörns Jónsson- ar forstjóra Ofnasmiðjunnar. Björn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1946, stundaði síðan nám við III- inois Institute of Technology í Chicago og lauk þaðan prófi í iðn- aðarverkfræði 1951. Björn starfaði sem verkfræð- ingur hjá Ofnasmiðjunni hf. og Einangrun hf. 1951—’58, var framkvæmdastjóri Vefarans hf. 1952—'78 og verkfræðingur hjá Rannsóknastofnun iðnaðarins 1976—’78. Hann vann við rann- sóknir hjá Iðntæknistofnun fs- lands frá 1978 og var deildarverk- fræðingur þar frá 1979. Björn átti sæti í stjórn Ofna- smiðjunnar hf. frá 1951, Sáningar hf. frá 1982 og í varastjórn Stálfé- lagsins hf. frá 1982. Björn starfaði mikið að félags- málum, má þar sérstaklega nefna Oddfellowregluna, Rotaryklúbb- inn, Skátahreyfinguna, Blindra- félagið, Verkfræðingafélagið og Fél. íslenskra einkaflugmanna. Fyrri kona Björns var Jakobína Guðríður Finnbogadóttir og áttu þau fimm börn. Eftirlifandi eigin- kona Björns er Guðlaug Björns- dóttir. Stjóm Landssambands lögreglumanna: Viðræður hafnar við dómsmálaráðherra MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá stjórn Landssambands lögreglumanna: „Stjórn Landssambands lögreglu- manna hefur fjallað um nýgenginn dóm Hæstaréttar þar sem lögreglu- maður er sakfelldur fyrir að valda af gáleysi áverkum á fanga er hann annaðist gæslu á í flutningi að lög- reglustöð. Niðurstaða dómsins hlýtur að kalla á gjörbreytt skipulag og starfsaðferðir lögreglu. Það fyrir- komulag sem nú er algengast, að einn lögreglumaður gæti handtekins manns í flutningi hefur verið átalin af Hæstarétti sem allsendis ófull- nægjandi gæsla. Sá dómur Hæsta- réttar er afdráttarlaus og verður að bregðast við honum með því að fjölga lögreglumönnum. Löregluþjónum hefur vissulega verið ljós sú ábyrgð sem starfinu fylgir. Skylda þeirra er að gæta ör- yggis þegnanna, þar á meðal hand- tekinna manna. Ljóst er að þess ör- yggis verður ekki gætt nema til komi aukinn mannafli. Lögreglumenn vilja ekki gerast lögbrjótar. Sú stund hlýtur því að vera nærri, að lögreglumenn veigri sér við að sinna verkum sem geta leitt til refsidóms og mannorðsmiss- is. Ef lögreglumenn hinsvegar hlíta ekki áminningu Hæstaréttar er hægt að leiða rök að því, að þeir hafi vísvitandi hundsað álit Hæstaréttar og hlýtur þá réttarstaða þeirra að verða enn óvissari ef óhapp verður. Landssamband lögreglumanna hefur þegar hafið viðræður við dómsmálaráðherra um nauðsynleg- ar úrbætur í löggæslumálum. Þá er fyrirhuguð ráðstefna stjórnar Landssambands lögreglumanna með formönnum allra lögreglufé- laga í landinu dagana 30.—31. júli nk. Þar verður þetta mál rætt og ákvarðanir teknar um hvernig lög- reglumenn skuli bregðast við þess- um breyttu viðhorfum." Fjölskyldu- og skátamót Um verslunarmannahelgina verdur fjölskyldu- og skátamót í landi skáta að Úlfljótsvatni í Grafningshreppi. Dagskrá mótsins er sniðin fyrir fjölskyldur og skáta. Boðið verður upp á hressileg skátaverkefni svo sem hike-ferðir og næturleiki, jafnframt varðelda, bátsferðir og fjölskylduleiki og stuttar gönguferðir. Tjaldstæðin opna á föstudag en mótið verður sett kl. 14.00 á laugardag. Aðstaða að Úlfljótsvatni er öll mjög ákjósanleg. Við Borgarvík og Fossá eru tjaldstæði án nú- tíma þæginda en í skjóli mikillar náttúrufegurðar. Á túni við DSÚ er einnig hægt að tjalda og þar er að finna öll nútíma þægindi s.s. rennandi vatn og salerni. Mótsgjald er ekkert í peningum en ætlast er til að þátttakendur gefi staðnum 3—4 klukkustunda vinnu þess í stað. Staðurinn er í uppbyggingu og því gott að fá nokkrar viljugar hendur til starfa einhverja stund. Frá BSÍ eru ferðir á Úlfljóts- vatn á föstudögum kl. 20.00 og um þessa helgi höfum við samið um aukaferðir sem verða á laugar- daginn kl. 13.00 og til baka á mánudaginn kl. 17.00 og svo eru ferðir til baka á sunnudaginn eins og alltaf er. Næg bílastæði eru við Úlfljótsvatn og við Fossá, og á túninu við DSU má koma fyrir tjaldvögnum. Kjörorð mótsins er: „Með sól í hjarta.“ (Fréttatilkynning frá Úlfljótsvatnsráði) Hitaveituframkvœmdir í Fossvogi ENDURNÝJUN stendur nú yfir á gamalli hitaveitulögn í Fossvoginum. Jafnframt er verið að breyta lögninni lítilsháttar og stækka hana. Verkið var boðið út í þremur hlut- um. Hagvirki annast einn þeirra, Eyrarland og aðrar götur í grennd sem liggja í austur. Hinir tveir verk- takarnir eru Grétar Sveinsson og Eyjólfur og Kolbeinn sf. og annast þeir Hörgsland og nærliggjandi göt- Hjá Hagvirki fengust þær upplýs- ingar að stokkar þessir hafi verið fylltir á sínum tíma með svokallaðri frauðsteypu og eru það þeir sem nú er verið að skipta um. Agdestein efstur á Skákþingi Noröurlanda: Jóhann á góða möguleika á stórmeistaraárangri (ijövik í Noregi, 24. júlí. Frá Áskeli Erni Kárasyni, fréttamanni Morgunblaósins. í 9. UMFERÐINNI, sem tefld var 1 dag, kom loks að fyrsta íslenska tapinu í landsliðsflokki er Norðmaðurinn Simen Agdestein vann Helga Ólafsson. Jóhann Hjartarson gerði jafntefli við Öst-Hansen og er Agdestein þar með búinn að taka forystuna í mótinu með sína 7 vinninga. íslendingarnir eru þó ekki langt undan og þó aðeins séu eftir tvær umferðir eiga þeir góða möguleika á að skáka honum, Jóhann er með 6'/i vinning og Helgi með 6 vinninga. Jóhann á góða möguleika á að ná stórmeistaraárangri f mótinu. Úrslit í 9. umferðinni urðu þessi: Helmers 'A — 'A, Yrjölá — Westerin- Agdestein — Helgi 0—1, Öst-Hans- en V4 —V4 og Sciissler — Wiedenkell- en — Jóhann ‘A — V4, Jens Chr. Han- er bið. Westerinen vann biðskák sfna sen — Máki Vf> — V4, Curt Hansen — gegn Scössler úr 8. umferð. Salan á hlutabréfum ríkisins: Útilokum ekki erlenda kaupendur m ÆT ■W# A . • • æ « « . « • a v. ™ Mat Fjárfestingarfélagsins á hlutabréfunum eölilegt mark- aösverð segir Þorsteinn Guönason hjá Fjárfestingarfélaginu ÞORSTEINN Guðnason, rekstrarhagfræðingur hjá Fjárfestingarfélagi íslands, sagði á fundi með fréttamönnum í gær, að það væri ekki rétt, sem haft var eftir Herði Sigurgestssyni forstjóra Eimskips í Morgunblað- inu, að mat Fjárfestingarfélagsins á hlutabréfum ríkisins f Eimskip væri einvörðungu mat á eigin fé fyrirtækisins. Eins og fram hefur komið fól fjármálaráðherra Fjárfestingarfélaginu að meta verðmæti hlutabréfa ríkisins í Eimskip, Flugleiðum og Rafha, og reyndist matið vera um tífalt nafnverð í öllum tilvikum, og líklegasta verð hjá Eimskip 10,9-falt nafn- verð. Sala á bréfunum verður opnuð í dag og stendur til 30. september. Fjárfestingarfélagið mun annast söluna, og sagði Þorsteinn að þeir úti- lokuðu engan sem mögulegan kaupanda, hvort sem um innlendan eða útlendan aðila væri að ræða. Sölulaun hafa ekki verið rædd, að sögn Þorsteins. Það sem Hörður Sigurgests- son sagði efnislega í Morgun- blaðinu í gær, var, að það færi eftir því hvernig menn mætu framtíðarhorfur fyrirtækisins og stöðu hvert matið á hluta- bréfunum ætti að vera, en það væri ekki viðtekið að leggja að jöfnu eigið fé fyrirtækis og verð á hlutabréfum, eins og hann taldi að Fjárfestingarfélagið gerði í sinni skýrslu. Vegna ummæla Þorsteins Guðnasonar, að Hörður hefði rangt fyrir sér í þessu efni, var Þorsteinn beðinn um að skýra nákvæmlega hvernig mat Fjár- festingarfélagsins er hugsað: „Við byggjum okkar mat á því grundvallaratriði að hagrænt verðgildi sérhvers fyrirtækis sé jafnt núvirði framtíðartekju- strauma, sem eignir, samsetnmg eigna og stjórnun eigna fyrir- tækisins afla eigendum eða hluthöfum fyrirtækjanna um ókomna framtíð. Þessi staðhæf- ing er viðurkennd," sagði Þor- steinn. „Hitt er annað mál, að það er vandkvæðum bundið að áætla framtíðartekjustrauma fyrir- tækis um ókomna framtíð. Til þess að komast fram hjá þessum vandkvæðum eru til nálgunarað- ferðir, sem jafnan eru notaðar. Ein aðferðin er sú (og hana not- uðum við) að meta nettómark- aðsvirði eigna og núvirði óvenju- legs hagnaðar (supernormal profit), sem samsetning eign- anna og innri viðir fyrirtækja geta hugsanlega aflað. Samtala þessara tveggja þátta er'hag- rænt gildi fyrirtækisins, og þar með hagrænt verðgildi hluta- fjárins. En hins vegar komumst við að því, að það er ekkert sem bendir til þess, með tilliti til þeirrar miklu samkeppni sem ríkir í at- vinnugreininni, að um óvenju- Iegan hagnað verði að ræða í framtiðinni, hvort heldur hjá Eimskip eða Flugleiðum. Áf þessum ástæðum gerum við ráð fyrir því að hagrænt verðgildi hlutafjárins jafngilti nettó markaðsvirði eignanna." —En stenst þá ekki fullyrðing Harðar, að hér sé einvörðungu um mat á eignum fyrirtækisins að ræða, úr þvi þið gerið ekki ráð fyrir neinum „óvenjulegum hagnaði“? „Það er ekki svo að við tökum efnahagsstöðu fyrirtækisins á einum tímapunkti, heldur met- um við markaðsvirði eigna og skulda fyrirtækisins. Ástæðan fyrir því er sú, að á virkum markaði er markaðsvirði ein- stakra eigna jafnt og núvirði framtíðartekjustrauma sem þessar eignir gefa af aér. Selj- andi á þessum markaði selur ekki eignirnar undir því núvirði hagnaðar sem • hann fengi ef hann leigði eigina, og kaupandi kaupir ekki eignina yfir því nú- virði tekna sem eignin aflar hon- um á líftíma hennar. Vegna þess að markaður fyrir eignir Flug- leiða og Eimskips er tiltölulega virkur, þá getum við nálgast þetta hagræna verðgildi, sem ég skilgreindi áðan, með þvf að meta markaðsvirði einstakra eigna. Það má líka geta þess að við notuðum einnig aðrar matsað- ferðir til viðmiðunar (sem eru ekki eins nákvæmar að okkar mati) — sk. verðtekjuhlutfalls- greiningu og sívaxtarlíkan — og staðfestu þær fyrri niðurstöðu." — En hver er kominn til með að segja að markaðsverð hluta- bréfanna sé hið sama og þið nefnið hagrænt verðgildi bréf- anna? „Hagrænt verðgildi hlutabréf- anna þarf ekki að vera það sama og markaðsverð bréfanna, en á vikrum hlutabréfamörkuðum eru sérfræðigar sem meta hag- rænt verðgildi hlutabréfa. Ef markaðsvirði bréfanna er undir hagræna verðgildinu þá kaupa þeir hlutabréfin og þar með eykst eftirspurnin eftir bréfun- um, þannig að markaðsverð hlutabréfanna leitast við að ná jafnvægi í hagræna verðgildinu. Á sama hátt: ef markaðsverð hlutabréfanna er hærra en hag- rænt verðgildi selja þeir bréfin og þar með eykst framboðið og lækkar verð bréfanna. Niður- staðan er sú sama, markaðsverð- ið nálgast aftur hagræna verð- gildið. Væri slíkur markaður til hérlendis væri sennilegt að markaðsvirði bréfa Eimskips væri nærri líklegasta tilviki í mati Fjárfestingarfélagsins, eða 10,9-falt nafnverðið." — En hér á landi er enginn hlutabréfamarkaður sem mótar verðið. Og viðbrögð forstjóra Eimskips og Flugleiða, og reynd- ar fleiri yfirmanna annarra stórfyrirtækja, benda ekki til þess að verð bréfanna sé raun- hæft. „Hagrænt verðgildi fyrirtækj- anna er raunveruleg eign eigend- anna eða hluthafanna. Fjár- málaráðherra sem seljandi hef- ur tekið þá aftstöðu að selja ekki hlutabréf umbjóðenda sinna undir því verðgildi sem þau standa fyrir, og lái honum það hver sem vill. Hann metur það væntanlega svo að seljist bréfin ekki nú á hagrænu verðgildi, þá seljist þau síðar á hagrænu verð- gildi, þegar hlutabréfamarkaður hér á landi er orðinn virkari, en það hlýtur að koma að því fyrr eða síðar. Fjármálaráðherra er einfald- lega að gæta hagsmuna umbjóð- enda sinna til fullnustu," sagði Þorsteinn Guðnason.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.