Morgunblaðið - 25.07.1985, Qupperneq 6
MQRQUNBL4i>í£V FHMMTUDA&UR 2ði JtlU l985
6
UTVARP / S JON VARP
Að utan
Svokallaðir fréttapistlar úr fór-
um þeirra fréttaritara ríkis-
fjölmiðlanna er starfa á erlendri
grund verða sífellt ábúðarmeiri.
Hljóta afnotagjaldsgreiðendur að
fagna þessari þróun því að þrátt
fyrir að nokkur útgjaldaauki fylgi
vaxandi umsvifum þessara tíðinda-
manna er ekki að efa að frétta-
pistlarnir gefa okkur, er hér sitjum
nyrst á Atlantshafshryggnum,
dýpri og raunsannari mynd af lífi
þeirra þjóða er tíðindamennirnir
gista. Það er nú einu sinni svo að
mikið af þeim fréttum er berast
okkur til eyrna eru þýddar af
strimlum fjarritanna og oftast
fylgja engar nánari útlistanir eða
skýringar. Glymur þessi síbylja í
eyrum manna í takt við glamrið í
hníf og gaffli, enda fara fréttatím-
ar oft saman við matartíma.
Verður hér tekið dæmi af einni
slíkri fjarritafrétt er sigldi að
hlustum undirritaðs þá hann stakk
siðasta bita sunnudagssteikurinnar
í munn: Samkvæmt könnun Evr-
ópuráðsins hafa meðallaun sífellt
verið að lækka á undanförnum ár-
um í Evrópu vegna vaxandi af-
skipta ríkisstjórna á kostnað laun-
þega, en atvinnurekendum til hags-
bóta. Hvað segir svona fréttaskot í
raun og veru? Er hér verið að boða
þann „stórasannleik" að í raun ráði
vondir stórkapítalistar því hverjir
sitji í ríkisstjórnum á Vesturlönd-
um? Eftir fréttinni að dæma sitja
slíkir menn við stjórnvölinn í Evr-
ópu. Ef þetta er rétt þá er um stór-
frétt að ræða er kollvarpar öllum
hugmyndum lýðræðissinna um
þingræðið og lýðræðið. Nei í alvöru
talað þá á frétt sem þessi ekki
heima í ríkisfjölmiðli lýðrsðisþjóð-
ar. Hún á miklu fremur heima í
fjölmiðlum alræðisþjóðanna, þar
sem fréttaskýringarnar eru hluti
af áróðurspólitík stjórnvalda. í
slíkum fjölmiðlum eru fréttir ekki
settar í víðara samhengi heldur
komið fyrir á réttum stað innan
hins þrönga ramma hinnar opin-
beru hugmyndafræði. Fyrrgreind
frétt af „níðingshætti vestrænna
ríkisstjórna" passar prýðilega inní
slíkan hugsjónaramma, en stenst hún
röklega skoðun þar sem efnahags-
ástand heimsins og hinar sérstæðu
forsendur v-evrópskra launasamn-
inga eru teknar inní myndina?
Hlutverk hins vestræna frétta-
manns er ekki bara að lepja allt
það er hrýtur af fjarritanum, svona
einsog sveitabarn er kemur í kaup-
stað og telur allt hjal borgarbarns-
ins „stórasannleik."
Fréttapistlarnir
Eins og sagði hér áðan ættu
fréttapistlar hinna erlendu frétta-
ritara ríkisfjölmiðlanna að gefa
raunsannari mynd af vettvangi en
umrædd frétt. Þannig barst út-
varpshlustendum nýverið til eyrna
í þætti Páls Heiðars: Drög að dag-
bók vikunnar, er hljómar af rás 1 á
laugardagsmorgnum milli kl. 11 og
12, aldeilis prýðilegur fréttapistill
frá Bjarna Sigtryggssyni í Osló. í
pistli þessum greindi Bjarni frá því
að fiskimjöl væri óðum að ryðja sér
til rúms í Noregi sem heilsufæða.
Væri nú svo komið að þarlendar
fiskimjölsverksmiðjur hefðu vart
undan að mala fiskbein og slóg oní
landsmenn. Ástæðan fyrir þessum
gífurlegu vinsældum fiskimjölsins
meðal norskrar alþýðu er niður-
stöður rannsókna er benda til ævin-
týralegs næringargildis mjölsins.
Greindi Bjarni vel og skilmerkilega
frá öllum málavöxtum og settist sá
er hér ritar vonglaður að soðning-
unni þá Bjarni hafði lokið máli
sínu, því hvar er að finna verk-
smiðju er tandurhreinsar fiski-
mjöl, með gufu úr iðrum jarðar,
nema á gamla góða Fróni?
Ólafur M.
Jóhannesson
Fjallað verður um fíkniefnamál í „Fimmtudagsumræðunni" í kvöld.
Fimmtudagsumræðan:
Rætt verður um fíkniefnamál
í kvöld klukkan
00 35 22-35, að lokn-
um fréttum og
orði kvöldins, er fimmtu-
dagsumræðan á dagskrá
rásar 1. Að þessu sinni
verða fíkniefnamálin til
umræðu.
Sigríður Árnadóttir
fréttamaður stýrir um-
ræðunum, en aðrir sem
unnu að gerð þáttarins
eru Helga Ágústsdóttir,
Bergur Þorgrímsson og
Ómar H. Kristmundsson.
Er þátturinn gerður í eins
konar framhaldi af þátta-
röð um fíkniefnamál, sem
var á dagskrá útvarpsins
fyrir skömmu. Að sögn
Helgu Ágústsdóttur verð-
ur rætt um stöðu þessara
mála í dag og hvað er
helst til úrbóta, fræðslu
og fyrirbyggjandi starf.
Drepið verður á lagalegu
hliðina, dómskerfið og
þær rannsóknir sem beitt
er í fíkniefnamálum, svo
nokkuð sé nefnt.
Rætt verður við Guð-
rúnu Helgadóttur alþing-
ismann, Hjalta Zóphaní-
asson í dómsmálaráðu-
neytinu, Þórarin Tyrf-
ingsson yfirlækni og Sig-
trygg Jónsson sálfræðing.
Þáttur þessi var áður á
dagskrá fimmtudaginn 11.
júlí sl. en féll þá niður
vegna þess að tæknimað-
ur fékkst ekki til starfa. í
kvöld verður sem sagt
gerð önnur tilraun til að
senda þáttinn út. Takist
hún hefst hann eins og áð-
ur sagði á rás 1 klukkan
22.35.
Gestagangur:
Tveir ungir læknar
ræða við Ragnheiði
■■■■ Þátturinn
91 00 Gestagangur er
& A ~' á dagskrá rásar
2 í kvöld klukkan 21.00.
Það er að venju Ragnheið-
ur Davíðsdóttir sem tekur
á móti gestunum. Þeir eru
að þessu sinni tveir lækn-
ar af yngri kynslóðinni,
þau Þóra Fischer kven-
sjúkdómalæknir á Land-
spítalanum og Einar
Thoroddsen háls- nef- og
eyrnalæknir á Borgarspít-
alanum. Þess má geta að
Þóra mun vera eina konan
sem starfar hér á landi
sem sérfræðingur í kven-
sjúkdómum. Að sögn
Ragnheiðar verður ekki
mikið rætt um læknis-
fræði eða sjúkdóma í
þættinum, þó gestirnir
séu læknar, heldur verður
áherslan lögð á að spjalla
vítt og breitt um áhuga-
mál gestanna fyrir utan
starfið. Sagði Ragnheiður
að þau hefðu eflaust bæði
frá mörgu að segja því
þau væru hresst og at-
hafnasamt fólk.
Gestirnir munu velja
Ragnheiður Davíðsdóttir
tekur á móti gestum á rás 2
í kvöld kl. 21.00.
tónlist þá sem leikin verð-
ur í þættinum og ræða
eitthvað um hana. Ragn-
heiður sagði að lokum að
aðaláherslan yrði þó á hið
talaða orð og hefði það
verið þróunin í þessum
þáttum að undanförnu að
tónlistin hafi verið að
minnka á kostnað hins
talaða orðs, vegna þess að
gestirnir hafi alltaf frá
svo mörgu skemmtilegu
að segja að ekki veitti af
einni klukkustund til að
koma því á framfæri.
Seinni hluti Draumleiks
August Strindberg
■■■■ Seinni hluti
90 00 samsettrar
dagskrár úr
verkum sænska skáldsins
Augusts Strindberg er á
dagskrá rásar 1 i kvöld
klukkan 20.00, en fyrri
hluta var útvarpað fyrir
hálfum mánuði. Nefnist
þátturinn „Draumleikur".
Lesið verður úr bréfum
og dagbókarbrotum
Strindbergs og leikarar úr
Stúdentaleikhúsinu flytja
kafla úr verki hans
„Draumleik", en Stúd-
entaleikhúsið sýnir verkið
einmitt um þessar mund-
Umsjónarmenn þáttar-
ins eru Anton Helgi Jóns-
son, Árni Sigurjónsson og
Hafliði Arngrímsson.
/Á
UTVARP
FIMMTUDAGUR
25. júlí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
Morgunútvarp. 7.20 Leik-
fimi. Tilkynningar.
7.55 Málræktarþáttur. Endur-
tekinn þáttur Ólafs Oddsson-
ar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir.
Morgunorð: — Erlingur Nl-
elsson, fsatiröi, talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund þarnanna:
.Ömmustelpa'' eftir Armann
Kr. Einarsson. Höfundur les
(11).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagþl.
(útdr ). Tónleikar.
10.45 Málefni aldraöra. Þáttur I
umsjá Þóris S. GuðÞergs-
son.
11.00 „Ég man þá tlð“. Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Her-
mann Ragnar Stefánsson.
11J0 Létt tónlist. Dagskrá. Til-
kynningar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
14.00 „Úti I heimi", endurminn-
ingar dr. Jóns Stefánssonar.
Jón Þ. Þór les (16).
14J0 Miðdegistónleikar.
a. Trló fyrir klarinettu, fiðlu
og planó eftir Aram Katsjat-
úrlan. Gervase de Peyer,
Emanuel Hurwitz og Lamar
Crowson leika.
þ. Sónata nr. 2 I F-dúr fyrir
selló og planó eftir Johannes
Brahms. Janos Starker og
Julius Katchen leika.
15.15 Tíðindi af Suðurlandi.
Umsjón: Þorlákur Helgason.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 A frlvaktinni. Sigrún Sig-
uröardóttir kynnir óskalög
sjómanna.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Ragnheiður Gyða
Jónsdóttir.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.45 Til-
kynningar.
Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Draumleikur. Blandaöur
þáttur um draum og veru-
leika í tengslum við leikrit
Strindbergs. Seinni hluti.
Umsjónarmenn: Anton Helgi
Jónsson, Arni Sigurjónsson
og Hafliði Arngrlmsson.
20.30 Einsöngur I útvarpssal.
Elln Sigurvinsdóttir syngur
lög eftir Sigfús Halldórsson.
Höfundurinn leikur með á pl-
anó.
21.00 Erlend Ijóð frá liðnum
tlmum. Kristján Arnason
kynnir þjóöaþýðingar Helga
Hálfdanarsonar. Þriöji þátt-
ur: „Kom fyll þlna skál". Les-
ari: Erlingur Glslason.
21.25 Samleikur I útvarpssal.
Sigurður I. Snorrason og
Guöný Guömundsdóttir leika
saman á klarinettu og planó.
a. „Steflaus tilþrigði" eftir
Werner Schulze.
b. Fjögur Islensk þjóðlög I út-
setningu Þorkels Sigur-
björnssonar.
c. „Stef og tilbrigði" eftir Je-
an Francais.
21.45 Frá hjartanu. Umsjón:
Kristján R. Kristjánsson. RU-
VAK.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Fimmtudagsumræöan.
Um flkniefnamál. Stjórnandi:
Sigrlður Arnadóttir.
23.35 Fiðlusónata nr. 3 I c-moll
op. 46 eftir Edvard Grieg.
Fritz Kreisler og Sergei
Rakmaninoff leika.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
I
SJÓNVARP
19.25 Refurinn og björninn.
Þýðandi Kristln Mantyia.
(Nordvision — Finnska sjón-
varpið).
Ævintýri Berta
2. þáttur
Sænskur teiknimyndaflokk-
ur.
Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpiö).
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Agnetha án ABBA
(A som i Agnetha)
Þáttur um söngkonuna Agn-
ethu Faitskog sem söng áð-
FOSTUDAGUR
26. júll
ur með sænsku sveitinni
ABBA en er nú að hefja
sjálfstæðan tónlistarferil.
Þýðandi Veturliði Guönason.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið).
21.15 Njósnarafjölskyldan
(A Family of Spies)
Bresk heimildamynd um
mesta njósnamál sem upp
hefur komið I Bandarlkjunum
um árabil. Walker og fjöl-
skylda hans seldu Rússum
árum saman mikilvægar
upplýsingar um varnarkerfi
Atlantshafsbandalagsins. I
myndinni er reynt að gera
grein fyrir afleiðingum þessa
mikla njósnamáls.
Þýðandi og þulur Bogi Arnar
Finnbogason.
21.50 Hvernig ég vann strlðiö
(How I Won the War)
Bresk blómynd frá árinu
1967.
Leikstjóri Richard Lester.
Aðalhlutverk: Michael
Crawford, Lee Montague.
John Lennon, Roy Kinnear,
Jack Mac Gowran.
Myndin gerist I heimsstyrj-
ðldinni siöari og er gert nap-
urt grln að strlösbröltinu.
Þetta er sagan af þvl hvernig
Ljúfur liðsforingi leiddi her-
deild slna til elns konar sig-
urs.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
23.40 Fréttir f dagskrárlok.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Asgeir Tómas-
son og Gunnlaugur Helga-
son.
14.00—15.00 Dægurflugur
Nýjustu dægurlögin.
Stjórnandi: Leópold Sveins-
son.
15.00—16.00 í geghum tiðina
Stjórnandi: Þorgeir Astvalds-
son.
16.00—17.00 Bylgjur
Framsækin rokktónlist.
Stjórnendur: Asmundur
Jónsson og Arni Danlel Júll-
usson.
17.00—18.00 Einu sinni áður
var
Vinsæl lög frá 1955 til 1962
— Rokktlmabilið.
Stjórnandi: Bertram Möller.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
ar klukkan: 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.
Hlé
20.00—21.00 Vinsældalisti
hlustenda rásar 2
10 vinsælustu lögin leikin.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
21.00—22.00 Gestagangur
Gestir koma I stúdió og velja
lög ásamt léttu spjalli.
Stjórnandi: Ragnheiöur Dav-
Iðsdóttir.
22.00—23.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00—24.00 Kvöldsýn
Stjórnendur: Júlíus Einars-
son og Tryggvi Jakobsson.