Morgunblaðið - 25.07.1985, Síða 7
MÖRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1»85
7
Kolaverð ætti
að gefa frjálst
— segir Kristinn Pétursson á Bakkafirði
SAMKVÆMT skoðunum fiskfram-
leióenda, sem Morgunblaðið hefur
rætt við, er ekki hægt að vinna kola
miðað við núverandi hráefnisverð,
öðru vísi en að tap verði á fram-
leiðslunni. Hráefnisverð á kola var
hækkað um 54% með ákvörðun
verðlagsráðs sjávarútvegsins fyrir
nokkrum vikum og Árni Benedikts-
son, framkvæmdastjóri Framleiðni
sf., sem situr í ráðinu fyrir hönd fisk-
kaupenda, segir að með þessu hrá-
efnisverði sé hægt að flaka kola þó
ekki sé hagkvæmt að frysta hann.
Kristinn Pétursson á Bakkafirði
sagðist ekki myndi hefja vinnslu á
kola meðan hráefnisverð væri
óbreytt og Sigurður Garðarsson í
Vogum, sagðist aðeins vinna kola
tilneyddur, vegna kostnaðar sem
þegar hefði verið búið að leggja út
í, þegar hráefnisverðið var ákveð-
ið. Hann sagðist þó einungis
myndi vinna kola af eigin bátum,
en ekki kaupa hann til vinnslu,
eins og hefði verið ætlunin.
„Hréfnisverð á kíló af besta kol-
anum er 25 krónur upp úr sjó.
Nýtingin er 24%, þannig að hrá-
efnið í eitt kíló af afurðum kostar
104 krónur. Ef kolinn cr fram-
leiddur fyrir Bandaríkjamarkað,
roðlaus og beinlaus, fæst hæsta
verð 140 krónur fyrir kílóið. Einn
maður afkastar 5'/í> kílói á klukku-
tíma, þannig að vinnulaun á hvert
afurðakíló eru 30 krónur. Umbúðir
utan um hvert afurðakíló kosta 5
krónur. Samtals eru þetta 139
krónur. Það verður því 1 króna
eftir í svokallaða framlegð eða til
að standa undir öllum öðrum
kostnaði við framleiðsluna. Venju-
lega er talið að framlegðin þurfi
að vera 25—35%, en er í þessu til-
felli 0,71%,“ sagði Kristinn Pét-
ursson um hráefnisverðið.
Um útreikninga Árna Bene-
diktssonar í Morgunblaðinu, sem
áttu að sýna að hráefnisverðið á
kola væri ekki of hátt, ef hann
væri flakaður, sagði Sigurður
Garðarsson að þeir útreikningar
væru fyrst og fremst mikil ein-
földun, þar sem besta möguleg af-
koma væri sett sem algild. Þá
ættu menn ekki alltaf möguleika á
að flaka kolann, en miðað við nú-
verandi hráefnisverð lægi nærri
að það væri hagkvæmara að
henda honum heldur en að frysta
hann. Sigurður sagði, að svo dæmi
væri tekið væri afurðaverð á kola-
og ýsuflökum á Bretlandsmarkaði
svipað og svo væri einnig um hrá-
efnisverðið. Framleiðslukostn-
aðurinn væri hins vegar mun
meiri fyrir hvert kíló af kola og þó
væri ekki talið að það væri
Sölur í Bretlandi:
Meðalverð
45-50 kr.
ÞRJÚ skip seldu afla sinn í Bret-
landi í gær og var meðalverð fyrir
kíló á bilinu tæpar 45 krónur til
rúmlega 50 króna.
Dalborg seldi í Hull 105,9 tonn
fyrir 5,3 milljónir króna, meðal-
verðið 50,34 kr. Mestur hluti afla
Dalborgar var þorskur. Sólborgin
seldi líka í Hull 66,3 tonn fyrir 3,1
milljón, meðalverðið 47,11 kr., en
uppistaðan í afla hennar var ýsa,
en einnig var nokkuð um þorsk. Þá
seldi Beitir í Grimsby 154,3 tonn,
mestmegnis þorsk, en einnig
nokkuð af ýsu og kola. Verðið var
6,9 milljónir og meðalverðið 44,89
kr.
í dag eru ráðgerðar tvær sölur í
Bretlandi: Skúmur selur í
Grimsby og Ýmir í Hull.
grundvöllur fyrir því að framleiða
ýsuflök fyrir Bretlandsmarkað.
Þá bar þeim Sigurði og Kristni
saman um að það væri furðulegt
að hráefnisverð á kola veiddum í
dragnót væri 41% hærra, heldur
en á kola úr öðrum veiðarfærum.
Kristinn sagði að réttast væri að
verðlagsráð sjávarútvegsins kæmi
aftur saman og gæfi kolaverðið
frjálst í tilraunskyni og léti reyna
á frjálsa verðmyndun í þessum
efnum.
Ljósmynd/EG
Hópferð á fornbílum um Suðurnes
Fornbílaklúbbur fslands efndi til árlegrar sumarferöar sl. sunnudag. Fariö var um byggöarlög á Suðurnesjum og til
Keflavíkurflugvallar, en þar voru heimsóttir félagar í bifreiöaklúbbi Bandaríkjamanna. Á myndinni, sem tekin var á
Reykjanesbraut, sést hluti bilanna er tók þátt í ferðinni.
Teppaland geffur
skýr svör og f reistandi
A „TRAFIK“-GOLF
Filtteppi í 200 og 400 sm breidd. Slitsterk og
hentug gólfteppi t.d. á kjallara, veislusali,
verslanir o.s.frv.
Margir litir.
Mjúkur botn eöa
massívt.
Verö frá: pr. m’
SLITSTERKIR VINYLGÓLFDÚKAR
Ákaflega slitsterkir og þykkir gólfdúkar. Þægi-
legir undir fæti og auöþrífanlegir. Fjölmörg
mynstur og litir.
100% PVC.
i mörgum breiddum.
Verö frá: pr. m1
BELGÍSK BERBER-TEPPI
Virkilega falleg beigelituö teppi á stofur, hol og
herbergi meö mjúkum botni.
20% ull og 80% acryl.
Breidd 400 sm.
Verö frá: pr. m'
tilboð
„GRASTEPPI"
Á svalir, verandir og garöhús. Slitsterk
fagurgræn teppi sem þola vel bleytu og
mikla áníöslu. Breidd 200 og 400 cm.
Verö frá pr.fm.
WILTON-OFIN STÖK TEPPI
úr kembdri 100% ull. Einstök klassa-
teppi meö austurlenskum mynstrum
í hlýjum og djúpum litum.
Stærð 140x200
5.905
Stærð: 200x300
9.970
Stasrö: 170x240
8.604
Stmrö: 250x350
VORUUPPLYSINGAR:
.Fullvtssa er það lykllorð, sem Teppalana
stendur fyrir. Skrifaðar vöruupplýslngar, þótt
vandaðar séu, geta reynst torskildar Því er
nauösyn á, að til staöar sé sérhæft starfsfólk,
sem getur gefið rækilegar Ak
leiðbeiningar
um vöruval.
Sölumenn f
Teppalands 5^4 I .
viöskipta T~if
vinum okkar ,
fyllstu upplys- \ ‘ i.'ý
ingar og leiö- \ Jk fr
beinmgar um "m jSfS
teppaval Jm 4* IP
NYLONTEPPI
á öll herbergi
Praktisk lykkjuteppi, þettofin.
Margir litir. 100% polyamid. Mjúkur
svampbotn. 400 sm breidd.
Lágt verð: pr. m'
BERBER
Praktiskt gæöateppi með góöum
slitstyrk á stofur og hol í litum
náttúrunnar. Dúnmjúkur svamp-
botn. 300 sm breidd.
Frábært verö: pr. m’
Sérverslun sem fylgist
með tískunni.
Fagmenn taka mól,
sníða og leggja.
Umboðsmenn um allt
land.
an
ALULLARTEPPI
SNÖGG OG ÞÉTT LYKKJUOFIN TEPPI
100% ullarteppi, sem henta á allá fleti
heimilisins. Einkar hentug sem umgjörö
fyrir stök teppi. I Ijósum Berber-litum. Mjúk
ur svampbotn. Breidd 400 sm.
Verö frá: pr.m'
BERBER-M/ ULLARMERKI
Bráöfalleg lykkjuofin Berber-teppi á stofur
og hol. 100% hrein ný ull. Mjúkur svamp-
botn.
Breidd 400 sm. Verö frá: pr.m’
GRENSÁSVEG113, REYKJAVÍK, SÍMAR 83577 OG 83430