Morgunblaðið - 25.07.1985, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ1985
19
Áskorun til ríkisstjórnarinnar frá umhverfisverndarsamtökum:
Efnahagsþvingunum hótað verði
hvalveiðar leyfðar í vísindaskyni
BRÉF það, sem hér fer á eftir, var
afhent Halldóri Ásgrímssyni, sjávar-
útvegsráðherra, meðan á þingi. Al-
þjóðahvalveiðiráðsins í Bourne-
mouth í síðustu viku stóð. f bréfinu
er skorað á ríkisstjórn íslands að
leyfa ekki hvalveiðar í vísindaskyni
næstu fjögur ár, en fslendingum hót-
að með efnahagsþvingunum ella.
Bréfið er frá ýmsum umhverfis-
verndarsamtökum.
18. júlí, 1985.
Til íslensku ríkisstjórnarinnar.
Neðantaldar friðunar- og dýra-
verndunarhreyfingar líta fyrir-
ætlanir ríkisstjórnar fslands um
að drepa 800 hvali af ýmsum teg-
undum í vísindaskyni á næstu
fjórum árur.i alvarlegum augum.
Við skorum á yður að falla frá
þessum áætlunum fyrir 1. sept-
ember, 1985, þegar upprunalegur
lokafrestur til staðfestingar
samningi þeim, sem þér gerðuð við
fyrirtæki það sem stjórnar veið-
unum, rennur út.
Vísindanefnd Alþjóðahvalveiði-
ráðsins veitti áætlununum ekki
samþykki sitt. Ýmsir nefndar-
menn héldu fram að tillagan varð-
aði ekki viss atriði sem meginmáli
skiptu í rannsóknum á hlutaðeig-
andi hvaltegundum. Þeir lögðu því
til að ríkisstjórn fslands veitti
veiðileyfið ekki í núverandi mynd.
Við erum ósáttir við að íslend-
ingar ætli að drepa fleiri hvali í
þágu vísindanna en orðið er vegna
þess að stór hluti þeirra upplýs-
inga sem safnast hefur saman við
hvalveiðar undanfarinna ára hef-
ur ekki verið rannsakaður til hlít-
Eldur við
Þrengslaveg
— ferðafólk fari
gætilega með eld
HveragerAi, 21. julí.
SLÖKKVILIÐIÐ í Hveragerði var
kvatt út í sl. viku til að slökkva eld I
gróðri við Raufarhólshelli við
Prengslaveg. Hafði lögreglan í Árnes-
sýslu gert ítrekaðar tilraunir til að
slökkva eldinn, sem alltaf gaus upp
aftur. Þótti mönnum, sem þarna komu
að, augljóst að um íkveikju út frá
mannaferðum væri að ræða, líklega
frá vindlingi.
Slökkviliðsstjórinn í Hveragerði,
Bjarni Eyvindsson, hafði samband
við mig og kvaðst vilja koma þeim
viðvörunum á framfæri við þá sem
leggja leið sína utan vega að fara
gætilega með eld því á hverju sumri
væru þeir félagar kallaðir út vegna
elda sem rekja mætti til íkveikju,
ýmist af gáleysi og þar sem kveikt
væri í af prakkaraskap.
Á sl. vori börðust þeir margsinnis
við sinubruna sem stefndi beint I
íbúðar- og gripahús. 1 eitt skiptið
varð að fara með jarðýtu á staðinn
til að rista skurð í veg fyrir eldinn
til að hefta útbreiðslu hans.
Sagði Bjarni að nýr tankbíll sem
slökkvilið Hveragerðls eignaðist á
síðasta ári hafi komið að mjög góð-
um notum i sumum tilfella. En svo
mætti benda á að viða í grenndinni,
t.d. á Hellisheiði, væru svæði þar
sem engu farartæki yrði viðkomið.
Þess má að lokum geta að slökkvi-
liðið var um 1 klukkustund að
slökkva eldinn við Þrengslaveginn
en hvert útkall er dýrt spaug.
Sigrún
VJterkurog
hagkvæmur
auglýsingamióill!
ar. Einnig er það okkur áhyggju-
efni að ríkisstjórn Íslands skuli
hafa undirritað samning við hval-
veiðifyrirtækið um veiðar þessar
áður en vísindanefnd Alþjóða-
hvalveiðiráðsins átti þess kost að
yfirfara áætlunina. En fyrst og
fremst erum við sannfærðir um að
fyrirætlanir íslendinga um að
drepa að minnsta kosti 800 hvali á
árunum 1986 til 1989 geri að engu
hið yfirgripsmikla mat sem gert
skal á áhrifum hvalfriðunar á
hvalastofna. Mat þetta nýtur full-
tingis í áætlunargrein 10 (e). Að
lokum: Það er trúa okkar að vænt-
anlegur útflutningur á kjöti af
hvölum þeim sem veiddir verða
samkvæmt umræddum veiðileyf-
um sýni að upprunalegur tilgang-
ur fyrirhugaðra veiða sé að gera
íslendingum fært að halda áfram
hvalveiðum í gróðaskyni meðan á
veiðibanni stendur.
Öll neðangreind samtök mót-
mæla því harðlega að veiðileyfið
verði veitt. Fari svo munu mörg
þessara samtaka beita sér fyrir
því að ríki í Evrópubandalaginu og
ríkisstjórn Bandaríkjanna leggi
höft á innflutning íslenskra fisk-
afurða og veiðibann á hverja þá
þjóð sem flytur inn afurðir af
hvölum veiddum af íslendingum.
Stuðningsmenn okkar um allan
heim skipta milljónum. Við ætlum
að kynna félögum samtaka okkar
og almenningi í heimalöndum
okkar fyrirhuguð hvaladráp Is-
lendinga. Við vonum að ríkis-
stjórn Islands afturkalli veiðileyf-
ið fyrir 1. september 1985, til þess
að forðast hverjar þær alþjóðlegu
aðgerðir sem skaðað gætu íslend-
inga.
Virðingarfyllst,
The Whale Center, World Wildlife
Fund International, Campanha
Popular em Defensa da Natureza,
Monito Consortium, Sea Sheperd
Conservation Society, Dolphin
Action Group, International Fund
for Animal Welfare, Society
Against Violation of the Envir-
onment International, Greenpeace
International, Environmental
Investigation Agency, Connecticut
Cetacean Society, The Humane
Society of the United States, An-
imal Protection Institue, I+KARE
Wildlife Coalition, Friends of the
Earth, Center for Environmental
Education, American Cetacean
Society, Protection and Conserv-
ation of Animals and Plantlife,
Royal Society for the Prevention
of Cruelty to Animals, Internat-
ional League for the Protection of
Animals, People’s Trust for End-
angered Species, Brazilian Found-
ation for the Conservation of Nat-
ure.
ÖRYGGI
UMHVERFIS JÓRÐINA
ÖRYGGISKORTIÐ OG SOS-NEYÐARÞJÓNUSTA
FYLGJA FERÐATRYGGINGU SAMVINNUTRYGGINGA
SOS-INTERNATIONAL
skírteinið tryggir handhafa
óskertan ferðasjóð þrátt fyrir
heilsufarsáföll, - því allir
reikningar þar að lútandi
sendast beint til Samvinnu-
trygginga.
Kynntu þér SOS-
NEYÐARÞJÓNUSTUNA.
Nýtt öryggi í ferðatryggingu
Samvinnutrygginga.
GÓÐA FERÐ!
5AMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMULA3 REYKJAVÍK SlMI 81411
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT