Morgunblaðið - 25.07.1985, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1985
21
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Værum við sjálf gallalaus myndum
við ekki hafa eins mikla skemmtun af
að rekast á þá hjá öðrum, — segir í
lífsspeki frá 17. öld.
Þessi orð gætu hafa verið rituð f
dag, enda breytist mannlegur breysk-
leiki seint. — Almenn matargerð hef-
ur á síðustu öldum tekið talsverðum
breytingum og hefur hún á síðustu ár-
um fengið einskonar alheimsform.
Hér er sérréttur frá Kína:
Kínverskar
vorrúllur
Brauðdeig:
300 g hveiti
1 tsk. salt
'A 1 sjóðandi vatn
1 egg og 1 eggjahvita
Isl. fylling:
% bolli grjón
1 ’/i bolli vatn
2—3 kindalundir
3 msk. hveiti
'k bolli vatn
1 laukur
kjötkraftur
1 tsk. karrý
1. Grjónin eru soðin á venjulegan
hátt í 10 mfn. Kælið.
2. Kinda- eða lambalundir eru
hreinsaðar af himnum og fitu, siðan
skornar í þunnar sneiðar og blandað
hveitinu.
3. Matarolía, 2 msk., er hituð vel á
pönnu og kjötið steikt. Fínsaxaður
laukur er steiktur með síðustu mín-
úturnar.
4. Því næst eru vatn og kjötkraftur
og karrý sett með kjötinu og soðið í
2—3 mín. Bætið í salti ef þarf. Látið
kólna.
Brauðdeig:
Hveiti og salti er blandað saman
og út í það er hrært sjóðandi vatni
og hnoðað með egginu. Úr deiginu
eru flattar út 10 pappírsþunnar
kringlóttar plötur eða kökur.
Blandið saman kjöti og grjónum og
skiptið niður á deigplöturnar 10.
Leggið hægri og vinstri hlið þeirra
að fyllingunni, rúllið þeim upp og
festið með eggjahvítu.
Vorrúllur eru síðan steiktar ljós-
brúnar í 2—3 msk. af matarolíu eða ,
þær eru djúpsteiktar. Brauðhjúpur-
inn á að vera fremur léttur og
stökkur. Þær eru ætlaðar sem for-
réttur, en vorrúllur (1—2 stk.) með
skál af hrásalati eru í raun fullkom-
in máltíð.
Fylling i vorrúllur getur verið
margskonar. Notið hugmyndaflugið.
Hér er kínversk fylling:
3 msk. kinv. sveppir þurrkaðir
300 g svínakjöt frampartur án fitu
200 g bambussprotar
6 msk. matarolía
2% msk. kínversk soja
2 tsk. kartöflumjöl
1. Sveppirnir eru látnir standa í
heitu vatni um stund og síðan
skornir í fína strimla. Bambussprot-
arnir eru einnig skornir i strimla.
2. Kjötið er einnig skorið í mjög
þunnar sneiðar og síðan blandað 2
msk. af hveiti og 1 tsk. salti.
3. Á pönnu eru hitaðar 2 msk. af
matarolíu og sveppir og bambus-
strimlar steikt örstutt, síðan er 1
tsk. af sojasósu bætt út í og látin
malla meö í 3 mín. Pannan tekin af
hellunni.
4. Kjötið er steikt á pönnu i 2 msk.
af matarolíu, síðan er 2 msk. af
vatni og sojasósunni bætt út í ásamt
grænmetinu og jafnað vel.
Kartöflumjöli er hrært út í 2 msk.
af vatni og sett með kjötinu og
grænmetinu til að binda það. Látið
kólna.
Verð á hráefni:
Kindal.3stk.500g Kr. 225.00
grjón Vi pakki Kr. 10.50
egg 2 stk. Kr. 16.40
Sumarferð
Hringsins
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn
fer í Þingvallaferð mánudaginn
29. júlí og verður lagt af stað frá
Umferðamiðstöðinni kl. 4. Áð
verður í Nesvík á Kjalarnesi og
síðan ekið um Kjósarskarð til
Þingvalla. I Þingvallakirkju
tekur sr. Heimir Steinsson á
móti ferðalöngunum og spjallar
við þær um sögu Þingvalla.
Loks verður snæddur kvöld-
verður á Hótel Valhöll.
(FrétUtilkynBÍBg)
Tilraun um manninn
Myndbönd
Árni Þórarinsson.
Allir þeir sem eitthvað koma á
myndbandaleigur vita að þar er
urmull af undirmálsmyndum með
titlum, höfundum og leikurum
sem enginn þekkir. Oftast eru
myndirnar þannig að enginn
myndi heldur þekkja þá. Ég nefndi
um daginn bandariska hrollvekju,
Dark Eyes, sem dæmi um vonda
vöru af þessu tagi. En það kemur
líka fyrir að þessar B- og C-mynd-
ir koma þægilega á óvart eða eru
a.m.k. frambærilegar á því plani
sem þær eru, þ.e. lágu. Þetta gildir
um algenga spólu á markaðnum
hér sem geymir Human Experi-
ments, bandaríska mynd frá árinu
1980 og gerð er af Gregory nokkr-
um Goodell. Human Experiments
er af þeirri tegund mynda sem
segir frá hrottalegum lifnaðar-
háttum innan veggja fangelsa í
Bandaríkjunum. í þessu tilfelli er
um að ræða kvennafangelsi. Ung
söngkona er dæmd saklaus fyrir
fjöldamorð og er sett í æði sér-
kennilegt „betrunarhús" ævilangt.
Þar fara fram á laun tilraunir
með manninn sem titill myndar-
innar vísar til og stendur
snarruglaður sálfræðingur fang-
elsisins fyrir þeim ósköpum. Hum-
an Experiments lýsir svo því
hvernig söngkonunni reiðir af i
þessari voðalegu prísund.
Myndin er þannig ekki frumleg
að efni. En hún er gerð af nokk-
urri kunnáttu og þeim grófa krafti
sem réttlætt getur gróðamyndir af
öðrum og þriðja gæðaflokki. Þekkt
andlit úr B-myndum, Linda Hain-
es sem söngkonan og Geoffrey
Lewis sem sálfræðingurinn,
standa vel fyrir sínu, og sum at-
riðin eru gædd drjúgum óhugnaði
fyrir tilstilli myndatöku og hljóð-
rásar, ekki síst atriði sem lýsir
flóttatilraun söngkonunnar. Hum-
an Experiments er groddaleg af-
þreying fyrir þá sem slíkt kunna
að meta.
Stjörnugjöf:
Human Experiments +'/:í
B 0 K I l
SpíiribókmeÖsércMum
Gullbókin sameinar kosti annarra spamaðar-
leiða, en sníður af vankanta þeirra.
og þeim fer sífellt fjölgandi,enda höfum
við hækkað vextina um 2% -
úr 31 upp í 33% á ári.
Samkvæmt spá Seðla-
bankans, hækkar lánskjara-
vísitala um 10,6% til áramóta,
en það samsvarar 22,3% á ári.
Ársfj órðungslega
er gerður samanburður á kjömm
Gullbókar og verðtryggðum þriggja mánaða
reikningum.
Pað skiptir engu máli hve oft þú tekur út, þú
færð ætíð fulla vexti á alla þína innstæðu.
Dæmi: Þú tekur út 10.000 kr. af 100.000
króna innstæðu. 1,7% vaxtaleiðrétting, 170 kr.
af 10.000 króna úttekt, dregst frá við vaxta-
færslu um næstu áramót.
Innstæðan, 90.000 krónur, ber eftir sem áður
hæstu vexti - nú 33% - allan tímann.
BÚNAÐARBANKINN
TRAUSTUR BANKI
Kr. 351.90