Morgunblaðið - 25.07.1985, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. jQLl 1985
Höfum aldrei gert eins
mikið til að samræma
veiðar og vinnslu
— segir Einar K. Guðfinnsson, útgerðastjóri hjá
Einari Guðfinnssyni hf. Bolungarvík
Koluneam'k. 22. jnlí.
AFLABRÖGÐ hér í Bolungarvík
hafa verið með afbrigðum góð það
sem af er sumars.
Héðan eru gerðir út þrír skut-
togarar, mb. Sólrún sem stundar
rækjuveiðar, mb. Dagrún og mb.
Heiðrún. Frá því á síðasta ári hef-
ur orðið mikil aukning á útgerð
þriggja til átta lesta handfærabáta
og lætur nærri að í flota Bolvík-
inga hafi bæst um tuttugu slíkir
bátar.
Aflabrögð þessara báta hafa yf-
irleitt verið góð og eru dæmi þess
að einn maður hafi aflað rúmar
tvær lestir í róðri. t síðustu viku
komu t.d að landi færabátar, sem
verið höfðu tvo sólahringa úti,
með allt að 6,7 lestir á einn bát, en
það voru þeir Rögnvaldur Guð-
mundsson og Sigurgeir Þórarins-
son á vélbátum Ingimar Baldurs-
syni sem svo vel öfluðu.
Þennan sama dag komu fjórir
aðrir bátar að landi eftir jafn
langan tíma og var enginn þeirra
með minna en fjórar lestir. Afli
togaranna hefur einnig verið mjög
góður. Að sögn fróðra manna er
hér yfirleitt um gott hráefni að
ræða. Þegar vel aflast á þessum
tímum kvótaskiptinga koma vafa-
laust upp spurningar eins og hvort
ákafinn í tonnafjöldann sé ekki
fullmikill eða hvað með stjórnun
fiskveiða af hendi heimamanna
undir slíkum kringumstæðum?
„Ég held að þær séu mjög orðum
auknar þessar rokufréttir dag-
Handfærabátur í höfn með góðan afla.
samkvæmt kvóta og einnig mikill
fjöldi af trillum og minni bátum.
Það er sífellt verið að klifa á því
að útgerðarmenn og fiskverkendur
hirði ekki um að stjórna veiðunum
og samræma veiðar og vinnslu,
eins og það er kallað,“ sagði Einar.
„Þetta er þó alrangt. Sannleikur-
inn er sá að aldrei nokkru sinni
fyrr hefur jafn mikið verið gert til
að stjórna þessum hlutum. Og það
má að mínu viti miklu fremur
gagnrýna okkur fyrir að ganga um
of inná starfssvið skipstjórnar-
manna, en hitt, að við reynum
Rögnvaldur og Sigurgeir á Ingimar
Baldvinssyni, landa sínum góða afla,
6,7 lestum, eftir tvo sólarhringa.
blaðanna upp á síðkastið, um að
tugum og gott ef ekki hundruðum
tonna sé sópað á land af hálfónýt-
um fiski,“ sagði Einar K. Guð-
finnsson, útgerðarstjóri hjá Ein-
ari Guðfinnssyni hf., er fréttarit-
ari Morgunblaðsins spurði hann
þessara spurninga.
„Eins og blöð hafa skýrt frá hef-
ur verið mikill afli á Vestfjarða-
miðum og skip og togarar komið
inn með fullfermi eftir aðeins ör-
fáa daga. í Bolungarvík eru gerðir
út tveir togarar á þorskveiðar Afli togarans Heiðrúnar ísaður í gáma til útflutnings.
ekki að samræma veiðar og
vinnslu. Þetta geta menn einfald-
lega séð með því að bera saman
róðrarlag nú og fyrir sárafáum ár-
um. Það er tvennt ólíkt eins og
allir vita sem fylgst hafa með. Það
er svo önnur saga að menn hafa
misjafnan háttinn á að stjórna,”
sagði Einar ennfremur. „Sumir,
sem hafa til þess kvóta, auka
gámaútflutninginn. Aðrir grípa til
þess ráðs að stöðva skipin, tak-
marka aflann og þar fram eftir
götunum.
Það má segja að hér höfum við
gert þetta allt í senn. Við höfum
flutt út gámafisk, en einnig stöðv-
að skipin. Það síðarnefnda er
hinsvegar mjög erfitt að gera svo
öllum líki. Svona takmarkanir
verða aldrei vinsælar, því þær
bitna alltaf á einhverjum. Nú síð-
ast var til dæmis Dagrún stöðvuð
í heila viku og framundan er 4 til 5
daga stöðvun hjá Heiðrúnu. Bæði
skipin hafa verið látin sigla og
Dagrún er nú einmitt á leið í sigl-
ingu í ágústbyrjun. Litlu bátarnir
voru stoppaðir í eina viku um dag-
inn.“
Einar sagðist álíta að stjórnun-
in á veiðunum væri mjög virk.
Markmiðið væri að standa sem
skynsamlegast að málum, þannig
að aflakvótinn dygði út árið.
— Gunnar.
SVIPMYNDIR ÚR BORGINNI.. ./óiafur Ormsson
„Þú ert eins og
grillaður kjúklingur“
þegar þessar línur eru festar á
blað, laugardaginn 20. júlí um há-
degi, er skýjað í borginni og ekki
beinlínis hlýtt í veðri, hiti á mæli
við eldhúsglugga hér í Norður-
mýrinni sýnir sjö stig og það er
hálf haustlegt um að litast en ég
þori næstum að fullyrða að sum-
arið er langt frá því að vera búið.
í vagni, leið þrjú, Nes-Háaleiti,
frá Hlemmi vestur á Bárugötu
fyrr um morguninn uppúr klukk-
an níu hitti ég Birgi Svan Símon-
arson sjómann og skáld. Það lá
bara vel á honum og hann skýrði
frá því að hann væri háseti um
borð I dragnótabátnum Stefni
sem gerður er út frá Reykjavík og
hásetahluturinn, tryggingin, rúm-
ar fjörutiu þúsund krónur á mán-
uði og ef eitthvað fiskast að ráði
má hafa allgott kaup við aö starfa
um borð í dragnótabát og þannig
á það líka að vera, sjómennirnir
okkar eiga að hafa góð laun, þeir
starfa við þann atvinnuveg sem
enn er hornsteinn afkomu þessar-
ar þjóðar þó svo að verslunar-
stéttin eigi ef til vill erfitt með að
kyngja því. Birgir Svan hefur sent
frá sér nokkrar ágætar ljóða-
bækur á liðnum árum og mun eiga
nokkuð stóran aðdáendahóp.
Hann hefur verið að yrkja af og
til um borð í Stefni undanfarna
mánuði, þegar hann hefur skropp-
ið ofan af dekki og niður í lúkar
og sendir nú frá sér nýja ljóðabók
á næstunni, bók um fimmtiu síður
og ólafur Lárusson myndlistar-
maður myndskreytir. Þetta er sjö-
unda ljóðabók Birgis, sem er mað-
ur á besta aldri, þrjátiu og fimm
ára, og hefur með ritstörfum
lengst af fengist við kennslu og
sjómennsku.
Ég gekk um miðborgina þennan
laugardagsmorgun og alls staðar
voru erlendir ferðamenn. I Nýja
kökuhúsinu við AusturvöU var
þéttsetið og þar voru töluð ein
fimm tungumál. Við eitt borðið
þýska, annað franska, þriðja
danska, fjórða sænska og það
fímmta enska. Erlendu ferða-
mennirnir rýndu f landakort og
bækur sumir voru með nýleg
tímarit og blöð og þeir drukku
ýmist kaffi eða súkkulaði. Það var
ekki fyrr en í Bókaverslun Sigfús-
ar Eymundsen í Austurstræti að
ég kom auga á mann sem ég taldi
líklegt að væri ekki erlendur
ferðamaður, svipurinn var kunn-
uglegur og við nánari athugun
kom í ljós að það var Árni Ein-
arsson fyrrverandi bflasali, inn-
fæddur Reykvíkingur. I bóka-
versluninni var allt fullt af er-
lendum ferðamönnum og töluvert
verslað. Á gangstéttum við
Laugaveginn bar mikið á erlend-
um ferðamönnum, þeir skoðuðu i
búðarglugga, sumir voru með bak-
poka á herðunum og þreytulegir.
Upp við Hlemm sá ég hvar Her-
mann Ólason, maður tæplega fer-
tugur sem undanfarin ár hefur
búið í kofa i Kristianfu f Kaup-
mannahöfn og stundað hænsna-
rækt með meiru, veifaði til min
um leið og hann steig upp í vagn-
inn, leið þrjú, Nes-Háaleiti, lfk-
lega sama vagn og ég hafði ferð-
ast með fyrr um morguninn.
Sumarleyfi eru nú f hámarki og
fjölmargir landsmenn f ferðum
innanlands sem utan þessa dag-
ana. Slæmur fjárhagur kann þó
að hafa einhver áhrif á ferðir
fólks, greinilegt er að fjárhagur
margra er ekkert allof góður á
þessu sumri sem nú er rúmlega
hálfnað. Það var hér um daginn
að í hópi vinnufélaga var verið að
ræða um fyrirhugað sumarfrí og
möguleika á að ferðast um á sem
ódýrastan hátt. Einn vinnufé-
laganna sem á liðnu sumri fór um
Evrópulönd og átti dýrlega daga
taldi ólfklegt að nokkuð yrði úr
ferðalögum hjá honum nú f ár af
efnahagsástæöum:
— Ætli ég fari bara nokkuð
nema út f garðinn við heimilið
mitt að huga að gróðrinum, eða
kannski verð ég bara á rúm-
stokknum. Ég þarf að borga af
húsinu, borga af lífeyrissjóðs-
láninu, húsnæðisstjórnarláninu,
handhafaláninu og svo er það vfx-
illinn eftir um það bil þrjár vikur
sem ég þarf að greiða upp. Bráð-
um koma svo afborganir af sóffa-
settinu og hljómflutnings-
tækjunum.
Annar maður sem býr við mun
betri fjárhag og getur nokkurn
veginn um frjálst höfuð strokið og
hefur ferðast svolftið um landið f
sumar og t.d. legið f sólbaði við
sumarbústað í skógivöxnu um-
hverfi úti á landsbyggðinni í tæp-
ar þrjár vikur og er orðinn sól-
brúnn og sællegur kom nýlega inn
í verslun í miðborginni. Hann var
að enda sitt sumarleyfi og var að
skoða f hillur f versluninni þegar
kaupmaðurinn gekk upp að hon-
um og sagði allt i einu með bros á
vör:
— Þú ert eins og grillaður
kjúklingur. Þú ert búinn að fá á
þig brúna litinn sé ég. Viltu ekki
segja hvernig þú ferð að þvf að
verða svona sólbrúnn. Ég hefði
ekkert á móti þvf að dökkna svo-
lítið ég er hvítur eins og næpa,
vinur minn, af þvf að ég stend hér
innanbúðar frá morgni til kvölds.
Við sem erum sjálfstæðir verslun-
areigendur eigum aldrei mögu-
leika á að komast f sumarfrf,
þetta er þrotlaus þrældómur ef
eitthvað á að hafa út úr þessu
basli.
Þeir þekkjast vel kaupmaður-
inn og sólbrúni maðurinn og sá
sfðarnefndi hafði bara gaman af
orðum kaupmannsins. Það var
sólskin og fagurt veður f borginni
þennan dag þegar þeir hittust f
versluninni og þeir ræddu lengi
um baðstrandarlff úti f heimi á
meðan aðstoðarmaður kaup-
mannsins afgreiddi nokkra við-
skiptavini sem litu inn á meðan
sólbrúni maðurinn stoppaði.