Morgunblaðið - 25.07.1985, Síða 27
■ MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGlIR25, JÚIiI 1985
827
í tilefni Reykja-
yíkurbréfs 21. júlí
— eftir Vilhjálm
Bjarnason
Ef ritstjórar Morgunblaðsins
eru spurðir að því hverjir skrifi
ritstjórnargreinar þ.e. forystu-
greinar og Reykjavíkurbréf blaðs-
ins þá verður fátt um svör. Slíkar
greinar eru sagðar á ábyrgð rit-
stjórnar. Og ein slík birtist sl.
sunnudag. Greinin er svo sem ekki
neitt, mestan part innantómt
froðusnakk um Vestmannaeyjar
og Vestmanneyinga, oflof, sem
einungis verður túlkað sem háð.
En hver er svo höfundurinn?
Hann gefur i skyn, að hann hafi
verið í heimsókn í Vestmannaeyj-
um nýlega. Vissulega var Matthí-
as Johannessen þar í heimsókn.
En er Matthías Johannessen
virkilega svo dómgreindarlaus að
hann fullyrði það að Vestmanna-
eyjahöfn sé ein besta höfn við
Norður-Atlantshaf? Ber þúsund
tonna skipalyfta stórhug einka-
rekstrarmanna fagurt vitni? Slík
mannvirki eru byggð fyrir fram-
lög ríkis og sveitarfélags. Stíll
greinarinnar er allur í uppskrúf-
aðri mælgi sem lítið skilur eftir og
með ólíkindum að skáld og rithöf-
undur í efri flokki listamanna-
launa láti frá sér fara.
Grunur minn er sá, að Matthías
Johannessen hafi greitt fyrir
gistivináttu Árna Johnsens með
því, að eftirláta þingmanninum
Reykjavikurbréf. Og þetta er
árangurinn, Reykjavíkurbréf,
laugardagur 20. júlí. Og til að
dylja höfundinn þá skrifar hann
gáfulega athugasemd um sjálfan
sig. Enda kemur á daginn að Árni
Johnsen var hringjandi í menn í
Vestmannaeyjum til að afla efnis í
Reykjavíkurbréf. En með þessari
kostulegu grein birtist mynd sem
Árni Johnsen hefur pantað hjá
vini sínum Sigmund Jóhannssyni.
Þar er gert á ósmekklegan hátt
lítið úr formanni Sjálfstæðis-
flokksins, hann hafður úti í hafs-
auga en frelsisgyðjan og gítar-
leikarinn í forgrunni. Jafnframt
er gefið i skyn, að allar styttur i
Vestmannaeyjum séu gjafir Árna
Johnsens. Mér vitanlega stóð hann
fyrir söfnun til að standa straum
af gerð afsteypu „Fæðingar sálar".
Trúverðugt uppgjör fyrir þá söfn-
un liggur ekki fyrir eða hver trúir
þvi að vaxtatekjur hafi verið
nákvæmlega kr. 47.000,-?
Undarleg tilviljun!! Mér er ekki
kunnugt um að Arni Johnsen hafi
haft afskipti af kaupum á Tröll-
konu Ásmundar, en slíku hafa að-
dáendur hans haldið fram að und-
anförnu. Árni og aðdáendur hans
halda því fram að allt sem til bóta
og framfara hefur mátt horfa i
Vestmannaeyjum á liðnum árum
séu verk hans. Samkvæmt mynd-
inni má reikna með bústu af þing-
manninum i líki frelsisstyttunnar
við innsiglinguna til Vestmanna-
eyja næst þegar þingmaðurinn
safnar fyrir styttu.
Þessi tegund ritstjórnarstefnu
sem hér kemur fram er dálitið
furðuleg. Það er hlutverk blaða og
fjölmiðla að greina frá staðreynd-
um og miðla skoðunum. Þannig
hefur ritstjórn Morgunblaðsins
tekið þá eðlilegu afstöðu að allt
efni, sem birtist i blaðinu nafn-
„Ég óska eftir því, að
Morgunblaðið og þá um
leið aðrir fjölmiðlar veiti
mönnum jafnan aðgang,
ef þeir ætla ekki að
glata sjálfstæði sínu.“
laust, sé ritstjórnar og á ábyrgð
hennar, þ.e. ritstjórn og blaða-
menn gera sjálfa sig ekki að aðal-
atriði. Þessu er á annan veg farið
þegar Árni Johnsen á í hlut. í
blaðamennsku hans hefur hann
verið aðalatriðið. Og árangurinn
er þingmennska hans. Stjórn-
málamaðurinn Árni Johnsen er
því sköpunarverk Morgunblaðsins.
Kvikmyndir
Árni Þórarinsson
Bíóhöllin: Allt í klessu —
Scavenger HuntA
Bandarísk. Árgerð 1979. Hand-
rit: Steven A. Vail, Henry Harp-
er. Leikstjóri: Michael Schultz.
Aðalhlutverk: Richard Benjamin,
Closi Leachman, Roddy Mc Dov-
all, Richard Muliigan, Robert
Morley, Tony Randall.
Á eftir Korsíkubræðrunum,
Stjörnuglópum, Skrattanum og
Max Devlin og öðrum vondum
gamanmyndum sumarsins
En hverjum þykir sinn fugl fagur.
Aðgangur Árna að Morgunblaðinu
er nánast takmarkalaus og á svo
einnig við um aðra fjölmiðla.
Ingvar Gíslason kallar þetta
bandalag kumpánaskaparins. Mér
er til efs að Morgunblaðið hafi
birt jafnmargar myndir af nokkr-
um öðrum þingmanni og Árna
Johnsen. Þannig er hann mun
meira áberandi á síðum blaðsins
en formaður Sjálfstæðisflokksins
og ráðherrar hans.
Mér er í fersku minni, þegar
formaður Sjálfstæðisflokksins
hélt boð fyrir formenn borgar-
flokkanna á Norðurlöndum, þá
birtist mynd af gítarleikaranum
Árna Johnsen, en formennirnir
voru hvergi sjáanlegir, enda algert
aukaatriði. Slíkt myndaval full-
yrðir ritstjórnin að sé ekki Árna
og ef svo er ekki, þá heitir það
bandalag kumpánaskaparins. Og
nú á þjóðin það í vændum, að fá
Árna Johnsen beint í andlitið í
Stikluþætti hjá Ómari Ragnars-
syni. Þannig vefur hann fjölmiðl-
um um fingur sér í kumpána-
skapnum.
Ástæðan fyrir því að ég skrifa
þessa grein er sú, að á liðnum ár-
drattast nú upp á tjaldið í Bíó-
höllinni þessi sex ára gamla
hækjumynd, eins konar útsölu-
tilbrigði við It’s a Mad, Mad,
Mad, Mad World. Allt í klessu
er eiginlega allt í klessu, eink-
um þó handrit og leikstjórn.
Þetta er farsi um alls kyns
fíflalæti sem erfðaskrá auð-
manns nokkurs leggur á herðar
eftirlifandi fjölskyldu og vina;
sá erfir auðæfin sem tekst að
safna saman aðskiljanlegu
drasli samkvæmt skilyrðum
erfðaskrárinnar. Öll myndin er
eltingaleikur þessa fólks við
um hafa fjölmiðlar í vaxandi mæli
ráðið gengi eða gengisleysi stjórn-
málamanna. Fréttaþulur í sjón-
varpi, Sigurjón Fjeldsted, flýgur
inn í borgarstjórn í prófkjöri. Og
fyrir hvað? Að lesa fréttir! Og
ekki hefur ræðu- og ritsnilld Al-
berts Guðmundssonar gert hann
að fjármálaráðherra.
Ég óska eftir því, að Morgun-
blaðið og þá um leið aðrir fjöl-
miðlar veiti mönnum jafnan að-
gang, ef þeir ætla ekki að glata
sjálfstæði sínu. Ef þeir gera það
ekki óska ég eftir því, að þeir
vandi val sitt betur en þegar rit-
stjórn Morgunblaðsins sendi frá
sér Reykjavíkurbréf þann 21.07.
1985 í máli og myndum.
Ég vil svo að lokum geta mér til
um framhaldið. Fyrir nokkrum
árum hafði ég samband við Árna
Johnsen og spurði hann um skrif
hans í Fylki, blað sjálfstæð-
ismanna í Vestmannaeyjum. Svör-
in sem ég fékk voru þessi: „Heyrðu
vinur, ef þú ert með einhvern
dónaskap við mig, þá skrifa ég um
þig"
Höfundur er úlibússtjóri Útregs-
banka íslands í Vestmannaeyjum.
draslið og er sá hasar mestan-
part laus við fyndni og sæmi-
legur leikhópur grípur til yfir-
gengilegs ofleiks í örvæntingu
sinni, einkum þó Richard Mull-
igan (Burt í Löðri).
I einu atriði myndarinnar
verða nokkrar af persónum
hennar fyrir áhrifum hlátur-
gass. Þær hlægja svakalega
mikið í þessu atriði. Sennilega
hefði það verið eina leið „Allt í
klessu" að hláturtaugum
áhorfenda að útbýta skammti
af þessu efni með hverjum að-
göngumiða.
Hláturgas með hverjum miða
„VERTU MEÐ í LJÚFUM LEIK“
NÝ MANNAKORNS-PLATA
MANNAKORN
Ný Mannakorns-plata hefur nú litið dagsins
Ijós, og er aldeilis að gera það gott. Platan
inniheldur lögin „Það er komið sumar“ og „Á
rauðu ljósi“.
Öll lög og textar eru eftir Magnús Eiríksson,
nema textinn í laginu „Eldur“ en hann er eftir
Stein Steinarr.
Við höfum af þessu til-
efni endurútgefið allar
eldri plötur Mannakorns
og eru þær fáanlegar í
öllum helstu hljómplötu-
verslunum landsins.
FÁLKINN
Laugavegi 24.
S. 18670.
FÁLKINN
Póstkröfur
simi 685149.
FÁLKINN
Suðurlsndsbraut 8.
S. 84670.