Morgunblaðið - 25.07.1985, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1985
29
Klögumál í
Noregi vegna
hvalveiðimála
Osló, 24. júlí. Frá Jan Erik Lauré fréttariUra Morgunblaösins.
KLÖGUMÁLIN ganga nú á víxl í Noregi í framhaldi af banni
Alþjóðahvalveiðirádsins við hrefnuveiðum við Noreg. Annars vegar
eru yfirvöld sökuð um að hafa lekið upplýsingum, sem voru trúnað-
armál, til andstæðinga hvalveiða. Hins vegar krefst viðskiptaráðu-
neytið þess að öllum hvalveiðum verði hætt þar sem það óttast að
áframhaldandi veiðar komi til með að skaða útflutningsatvinnuveg-
AP/Símamynd
Áköf leit heldur enn áfram að þeim, sem saknað er eftir stífluslysið mikla á Ítalíu í síðustu viku. Fundizt hafa lík yfir
200 manna. Mynd þessi, sem tekin var í gær, sýnir froskmann við leit I stöðuvatni, sem myndaðist fyrir neðan
stífluna.
Handtökur vegna
stífluslyssins
Trenlo. 24. iúlí AP.
Trento, 24. júlí AP.
ÍTÖLSK yfirvöld hafa látið hand
taka eiganda námu þeirrar, þar sem
stíflugarður brast í síðustu viku með
þeim afleiðingum, að yfir 200 manns
týndu lífi. Hefur maðurinn, sem
heitir Giulio Rota, verið ákærður
fyrir manndráp af gáleysi. Gaf hann
sig sjálfur fram við yfirvöld, eftir að
handtökuskipun var gefin út.
Bróðir hans og meðeigandi var
lagður inn á sjúkrahús fyrir
nokkrum vikum vegna hjarta-
áfalls. Alls höfðu leitarmenn
fundið lík 202 manna í gær og
hafði þá enn ekki tekizt að bera
kennsl á 34 þeirra.
Gert er ráð fyrir, að margir
menn kunni að verða handteknir á
næstunni í tengslum við mál
þetta, einkum ýmsir opinberir
embættismenn, sem sóttir verða
til saka fyrir refsiverða van-
rækslu. í morgun sögðu tveir emb-
ættismenn af sér, eftir að kunn-
gert hafði verið, að þeir yrðu
ákærðir í tengslum við stífluslys-
ið.
tna.
Arne Synnes, ráðherraritari í
viðskiptaráðuneytinu, segir í
viðtali við blaðið Norges Hand-
els og Sjöfartstidende í dag að
Norðmenn eigi að fara að sam-
þykktum Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins og hætta hrefnuveiðum um
áramót. Lætur hann í ljós ótta
um að umhverfisverndarmenn
muni fara með gífurlegum
áróðri gegn Norðmönnum ef
þeir hætti ekki hvalveiðum —
útflutningshagsmunir séu í veði.
Hann segir að Norðmenn verði
að fara að leikreglum ef þeir
vilji láta taka sig alvarlega á
alþjóðavettvangi, t.d. á sviði
umhverfisverndar. Það gangi
ekki að leika tveimur skjöldum,
velja sumt en hafna öðru. Hafa
Greenpeace-samtökin fagnað
yfirlýsingum Synnes síðustu
daga.
Tveir menn í norsku sendi-
nefndinni á ársfundi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins í Bournemouth
halda því fram að andstæðingar
hvalveiða hafi fengið upplýs-
ingar, sem fara átti með sem
trúnaðarmál innan sendinefnd-
arinnar. „Friðunarsamtökin
fengu þessar upplýsingar frá
stjórnvöldum. Þau vissu um
innihald símtala og skeyta, sem
bárust frá utanríkisráðuneytinu
í Osló,“ segir Jakob Strand, full-
trúi norsku útvegssamtakanna,
Norges Fiskarlag, í sendinefnd-
inni. í sama streng tekur annar
nefndarmaður, Egil Öen. Hvor-
ugur þeirra telur sig vita með
hvaða hætti upplýsingunum var
lekið til hvalfriðunarmanna, en
segja að það hafi komið sér
mjög illa hversu nána vitneskju
þeir virtust hafa um afstöðu
nefndarmanna til mála á árs-
fundinum. Per Paust, blaða-
fulltrúi utanríkisráðuneytisins,
segir ásakanir Strand og Öen
það alvarlegar að ástæða sé til
að láta rannsókn fara fram á
sannleiksgildi þeirra.
AP/Símamynd
Frá tjaldbúðum shíta á lóó Atlit-fangelsisins við Haifa í ísrael. Shítarnir hafa
hafst við ( tjöldunum. f gær voru 100 fanganna látnir lausir og fluttir til
Líbanon.
ísraelar láta
100 shíta lausa
Ras El-Bajada, Líbanon, 24. júlí. AP.
EITTHUNDRAÐ shítar, sem verið hafa í haldi ísraela, voru látnir lausir í
dag og fluttir til heimalandsins, Líbanon, í bifreiðum Rauða krossins. Föng-
unum var fagnað innilega við heimkomuna.
ísraelar vísuðu á bug fullyrðing- bili.
um um að fangarnir hefðu sætt
illri meðferð. Sögðu þeir fulltrúa
Rauða krossins hafa fylgst með
aðbúnaði fanganna og heilsufari
og skoðað þá með reglulegu milli-
Shítarnir voru i hópi þeirra,
sem ræningjar TWA-þotunnar á
dögunum kröfðust að látnir yrðu
lausir í skiptum fyrir farþega þot-
unnar.
Svíþjóð:
Fékk nýtt hjarta
Stokkhólmi, 24. jólf. Frá frélUriUra Mor((unblaó«iiw.
FJÖRUTÍU og sjö ára gamall Svíi
fékk nýtt hjarta í dag. Er hann annar
Svíinn, sem hjarta er grætt í.
Fyrsta aðgerð þessarar tegundar
í Svíþjóð fór fram í fyrrasumar, en
hjartaþeginn lézt er vika var liðin.
Var lélegu heilsufari hans í heild
kennt um. Læknar halda því hins
vegar fram, að nýi hjartaþeginn sé
vel á sig kominn yfirleitt. Megi því
telja góðar horfur á því, að hann
geti lifað áfram með nýja hjartað.
Einn Svíi til viðbótar hefur feng-
ið nýtt hjarta. Gerðist það um síð-
astliðna páska og einnig í Karól-
ínska sjúkrahúsinu eins og nú. Nýja
hjartað var hins vegar gervihjarta
frá Bandaríkjunum. Þessi maður er
enn á lífi.
BROGA
skór fyrir siglingamenn
Verð: 1.886
Stærðir: 38—47Vz
Litir: hvítt
blátt
brún
Efnið og munstriö í
sólanum eru bylting
I framleiðslu á sigl-
ingaskóm.
Skórnir þola salt og bleytu, vegna
sérstakrar meðhöndlunar leöursins.
ULiBttn
Ananaustum
Sími 28855