Morgunblaðið - 25.07.1985, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1985
Framkvæmdir hafnar við milljón seiða laxeldisstöð Silfurlax hf. f Qlfusi:
Upphafið rakið til lax-
veiðiferðar í Norðurá
„Kraftaverkamaður“ sænsks atvinnulífs, Curt Nicolin, meðal stofnenda
Stærsta seiðaeldis-
stöð landsins
Rannsóknir hafa farið fram i
Ölfusinu og arðsemisútreikningar
gerðir. Þar er nú hafin borun eftir
heitu vatni, enda er nægjanlegt
heitt vatn forsenda frekari fram-
kvæmda. Þegar árangur borana
verður ljós verður hafist handa
við að reisa klakhús fyrir klak i
haust og í framhaldi af þvi verður
síðan ráðist í að byggja eldishús
sem þurfa að vera til á næsta ári
til að taka við seiðunum. Bygg-
ingarnar verða alls 1.600 fermetr-
ar að grunnflatarmáli og auk þess
verða útbúnar útitjarnir. Gert er
ráð fyrir að í stöðinni verði fram-
ÍSLENSK-SÆNSKA fískeldisfyrirtækið Silfurlax hf. hefur ákveðið að byggja
stóra laxeldisstöð í landi Núpa III í Ölfusi. í Ölfusinu eru hafnar boranir
eftir heitu vatni, sem allar líkur eru á að séu þarna fyrir hendi, en þegar
jákvæður árangur fæst verður hafist handa við að reisa þarna klakhús og í
framhaldi af því seiðaeldisstöð til framleiðslu allt að einnar milljónar sjó-
gönguseiða á ári. Til samanburðar má geta þess að stöðin verður um fímm
sinnum stærri en Kollafjarðarstöðin.
Morgunblaðið/Þorkell
leidd 'k—l milljón sjógönguseiða
á ári og verður stöðin væntanlega
stærsta seiðaeldisstöð landsins.
Til samanburðar má geta þess að
seiðaeldisstöð íslandslax hf. á
Stað við Grindavík mun framleiða
‘k milljón seiða, og stærsta stöðin
í dag, Laxeldisstöð ríkisins í
Kollafirði, framleiðir 150—200
þúsund seiði á ári.
Seiði frá stöðinni verða seld á
innlendum og erlendum markaði,
en mikil eftirspurn er eftir seiðum
í dag og verðið hefur hækkað. Auk
þess hugsa Silfurlaxmenn sér að
nota hluta af þeim til hafbeitar og
hluta til áframhaldandi eldis í
strand- og sjókvíum.
Júlíus Birgir: „Við leggjum
áherslu á að koma seiðaeldinu
fyrst af stað. Ástæðan er sú að
hvað svo sem menn hugsa sér að
gera í laxeldi, þá þarf sjógöngu-
seiði til. Eins og staðan er í dag er
eftirspurn mikil eftir seiðum og
verð þeirra hátt og er það því
rökréttast að byrja á seiðaeldinu."
Hlutafélagið Silfurlax hf. var
stofnað í ágúst á síðasta ári sem
samnorrænt verkefni á sviði fisk-
eldis. I samþykktum félagsins seg-
ir um tilgang þess: Tilgangur fé-
lagsins er að stunda atvinnurekst-
ur á sviði fiskiræktar (þ.a.m. fisk-
eldi í fersku og söltu vatni, haf-
beit, fóðurframleiðslu, rannsókn-
ar- og þróunarstarfsemi og tækni-
þjónustu), vinnslu og sölu á fisk-
ræktarafurðum og annan skyldan
rekstur.
„Þjóösagnapersóna í
lifanda lífi“
51% hlutafjár er í eigu ís-
lenskra aðila en 49% i eigu Svía.
Stofnendur eru Jón Magnússon,
forstjóri heildverslunarinnar Jo-
han Rönning hf., sem er stjórnar-
formaður Johan Rönning hf.; Guð-
mundur Einarsson verkfræðingur;
dr. Curt Nicolin, stjórnarformað-
ur ASEA AB; Thomas Iveroth
læknir og Tomas Tengá fiskeldis-
ráðgjafi. í Sviþjóð hefur verið
rætt um Curt Nicolin sem „þjóð-
sagnapersónu í lifanda lífi“. Hann
hefur m.a. endurskipulagt tvö
stórfyrirtæki, ASEA sem er
stærsta rafvélafyrirtæki Norður-
landa, og SAS-flugfélagið. Nicolin
er nú stjórnarformaður ASEA AB
og fleiri tengdra fyrirtækja og á
auk þess sæti í stjórn SAS og
fleiri fyrirtækja. Thomas Iveroth
er eigandi 100 lesta eldisstöðvar
(fyrir regnbogasilung) í Grás-
marö, og Tomas Tengá er ráðgjafi
margra fiskeldisfyrirtækja og á
hlut í nokkrum slíkum fyrirtækj-
um.
Stjórn Silfurlax hf. réð ungan
vísindamann, dr. Júlíus Birgi
Kristinsson fiskalífeðlisfræðing,
sem framkvæmdastjóra fyrirtæk-
isins. Rætt var við Jón Magnússon
stjórnarformann og Júlíus á dög-
unum um áform fyrirtækisins.
Það þykir óneitanlega tíðindum
sæta að hinn sænski viðskiptajöf-
ur Curt Nicolin skuli vera kominn
í fiskeldi á íslandi, og voru þeir
því fyrst spurðir um tildrög þess.
Upphafið var laxveiði-
ferð í Norðurá 75
„Fyrirtækið Johan Rönning hf.
er búið að vera umboðsaðili fyrir
ASEA AB í áratugi og er reyndar
elsti umboðsaðili ÁSEA í heimin-
um í dag,“ sagði Jón. „Árið 1975
kom Curt Nicolin hingað til lands
og fórum við til laxveiða í Norð-
urá. Á leiðinni upp í Borgarfjörð
JarAborinn Narfí að störfura fyrir Silfurlax í Olfíisinu I gær.
spurði ég Curt að því hvað hann
teldi best hægt að gera fyrir ís-
lenskt atvinnulíf og var þá einkum
með íslenskan iðnað í huga. Hann
kom með ýmsar tillögur og ábend-
ingar en spurði einnig af hverju
við værum ekki komnir meira í
fiskeldið þrátt fyrir að við hefðum
til þess allar aðstæður: nóg af
ódýru heitu vatni, friðaða laxveiði
innan 200 mílna fiskveiðilögsögu
og ekki þá fisksjúkdóma sem ann-
ars staðar herja.
Hann hafði aftur samband við
mig nokkrum árum síðar og
óskaði eftir upplýsingum um fisk-
eldi á íslandi, sem ég aflaði mér og
sendi honum. Hann sendi síðan
tvo menn — þá Iveroth og Tengá
— og þeir kynntu sér aðstæður á
ýmsum stöðum á landinu. Eftir að
margir staðir höfðu verið athug-
aðir varð niðurstaðan sú að við
sömdum við landeigendur á Núp-
um III í Ölfusi um leigu á 10 ha
lands með hitaréttindum til að
reisa klak- og seiðaeldisstöð.“
MorgunDiaoio/UI.K.M.
Júlíus Birgir Kristinsson, framkværadastjóri (t.v.), og Jón Magnússon,
stjórnarformaður Silfurlax hf.
Einar Gunnarsson, formaður Landssambands flugbjörgunarsveita, tekur við bfl-
lyklunum úr hendi Páls Samúelssonar.
Landssamband flugbjörgun-
arsveita fær bifreið að gjöf
Nýtt fræðslurit
ferðafélagsins:
Göngu-
leiðir að
Fjallabaki
FERÐAFÉLAti íslands hefur nú
ráðist í útgáfu á flokki fræðslurita
fyrir ferðamenn og aðra unnendur
fróðleiks.
Efni ritanna er tvenns konar.
Annars vegar eru kynntar ýmsar
gönguleiðir, með tilheyrandi leið-
arlýsingum og fróðleik um stað-
fræði og náttúru leiðarinnar. Kort
og myndir verða í hverri bók til
skýringa og glöggvunar. Hins veg-
ar eru bækur um hin og önnur
náttúrufyrirbæri á landi hér, svo
sem steina, dýralíf og jurtir.
Stærð og gerð bæklinganna verður
við það miðuð að þeir fari vel á
ferðalagi.
Fyrsta bókin í þessum flokki er
þegar komin út. Nefnist hún
„Gönguleiðir að Fjallabaki" og
fjallar um Landmannalaugar, um-
hverfi þeirra, sögu og þjóðtrú og
Guðjón ó Magnússon
Gönguleiðir að Fjallabaki
gönguleiðina þaðan til Þórsmerk-
ur. Höfundur verksins er Guðjón
Ó. Magnússon kennari og land-
vörður. Það er ekki að ástæðu-
lausu að þetta svæði verður fyrir
valinu í fyrsta bæklingi flokksins.
„Laugavegurinn" eins og syðri
Fjallabaksleið er oft nefnd mun
nú einna fjölförnust íslenskra
óbyggðaleiða og hefur Ferðafélag-
ið reist gönguhús sem gist er í eft-
ir hverja dagleið á þessari leið.
Næsta rit í fræðsluflokknum
nefnist „Lífið í fjörunni" og er eft-
ir Agnar Ingólfsson. Sá bæklingur
kemur út síðla hausts.
„Opið hús“ í
Norræna húsinu:
Þingvalla-
spjall og kvik-
myndasýning
Sumardagskrá Norræna hússins
fyrir norræna ferðamenn ber heitið
„Opið hús“. Verður næsta samkoma
haldin í kvöld, 25. júlí, kl. 20:30.
Hefst dagskrá kvöldsins með
því að sr. Heimir Steinsson, þjóð-
garðsvörður, spjallar um Þing-
velli, hlutverk þeirra í vitund og
sögu þjóðarinnar. Að því loknu
verður gert kaffihlé, en síðan sýnd
kvikmynd Ósvalds Knudsen,
„Þrjár ásjónur íslands".
Spjall sr. Heimis verður flutt á
dönsku, en texti kvikmyndarinnar
er norskur. I fréttatilkynningu
Norræna hússins segir að dagskrá
þessi sé einkum ætluð norrænum
ferðamönnum, en ekki verði þó ís-
lendingum úthýst, heldur séu allir
velkomnir. Aðgangur er ókeypis.
(Úr (réttatilkynningu)
LANDSSAMBANDI fíugbjörgunar-
sveita hefur borist gjöf frá Toyota-
umboðinu, P. Samúelsson & Co., í til-
efni 15 ára afmælis fyrirtækisins á
|ressu ári. llm er að ræða torfærubifreið
af gerðinni Toyota Hi Lux með díselvél
að verðmæti 640 þúsund krónur.
Stjórn Landssambands flugbjörg-
unarsveita hefur ákveðið að afhenda
þennan bíl flugbjörgunarsveitinni
undir Vestur-Eyjafjöllum, sem hefur
ekki yfir bifreið að ráða og hafa fé-
lagar lagt til eigin bila, þegar farnar
hafa verið æfingaferðir eða þegar
sveitin hefur verið kölluð út til að-
stoðar.
Lýst eftir
rauðu hjóli
Á mánudag var rauðu kvenmanns-
reiðhjóli stolið frá Kleppsvegi 144.
Hjólið er af gerðinni Free spirit. Þeir
sem kunna að vita um afdrif hjólsins
eru vinsamlega beðnir að hringja (
síma 39484.