Morgunblaðið - 31.07.1985, Síða 32
32
MORGUNBLAÐID, MIDVIKUDAGUR 31. JÚLÍ1985
Bæjarleiðir
buðu
í bfltúr
Bifreiðastjórar Bæjarleiða og
fjölskyldur þeirra buðu í gær
öldruðum velunnurum Lang-
holtskirkju í ökuferð austur fyrir
Fjall. Meðfylgjandi mynd var
tekin við upphaf ferðarinnar.
MorgunblaðiA/Árni Sæberg
Líf og land verðlaunar
snyrtileg sveitaheimili
LANDSSAMTÖKIN Líf og Land
hafa ákveðið að veita þeim íslensk-
um sveitabæjum, sem eru vel gerðir,
snyrtilegir og falla vel að umhverfi
og landslagi, sérstaka viðurkenn-
ingu.
1 fréttatilkynningu frá samtök-
unum segir meðal annars að
mannvirki í sveitum á Íslandi hafi
mikil áhrif á næsta umhverfi, sér-
staklega þar sem ekki nýtur
trjágróðurs. „Ráðgert er að gefa
út litprentaðan bækling á vegum
samtakanna með myndum af þeim
bæjum, sem hljóta viðurkenningu
og er það von Lífs og lands að
þessi viðurkenning hvetji til
bættrar umgengni við íslensk
sveitaheimili."
Dómnefnd skipa Gestur Ólafs-
son arkitekt, formaður Lífs og
lands, Jónas Jónsson búnaðar-
málastjóri, Kjartan Lárusson
formaður ferðamálaráðs, Ragn-
hildur Skarphéðinsdóttir lands-
lagsarkitekt og Sigurður Blöndal
skógræktarstjóri. Oskað er eftir
ábendingum um snyrtilega bæi
fyrir ágústlok . Æskilegt er að
ábcndingu fylgi litmynd eða lit-
skyggna og að henni sé komið til
skrifstofu Lífs og lands, Garða-
stræti 17, Reykjavík, eða til þeirra
er sæti eiga í dómnefnd.
Héraðsmót Vestur-Barð-
strendinga um helgina
Baróatrtrönd, 26. júlí.
NÚNA UM helgina er fyrirhugað að halda hið árlega hérðasmót Vestur-
Barðstrendinga í frjálsum íþróttum og verður það haldið að þessu sinni á
nýjum velli þeirra Patreksfirðinga í umsjón íþróttafélagsins Harðar frá
Patreksfirði. Barðstrendingar hafa æft af fullum krafti í allt sumar fyrir
mótið og munu nokkrir galvaskir keppendur fara og keppa fyrir hönd
ungmennafélagsins, og hafa þeir allir staðið sig með einstakri prýði á undan
förnum mótum.
Brátt líður að verslunarmanna-
helginni, mestu ferðamannahelgi
sumarsins, og eru Barðstrend-
’ingar nú í óðaönn að undirbúa
hana svo mest sem má því eins og
undanfarin sumur á að slá upp
glensi og gamni í félagsheimilinu
Birkimel. Verða þar þrír þrumu
dansleikir og mun hljómsveitin
París frá Akureyri halda stuðinu
uppi. Þetta verða sveitaböll eins
og þau gerast best og margir eiga
' ljúfar minningar frá.
Næg tjaldstæði verða fyrir
hendi hvort sem fólk vill heldur
tjalda í skóginum eða á sléttu tún-
inu og verða tjaldstæðin endur-
gjaldslaus. Veitingar og snyrti-
aðstaða verður svo í félagsheimil-
inu alla helgina. Ekki er víst hvort
eða hvaða skemmtiatriði verða til
að stytta gestunum stundir en ör-
uggt er að það verður alveg heil-
mikið um að vera þessa helgi eins
og alltaf í Birkimel og því óhætt
að hvetja alla sem vettlingi geta
valdið að mæta á svæðið.
Tíðarfar hefur verið ágætt í
sumar og er heyskapur alls staðar
langt á veg kominn og sums staðar
alveg búinn. Ferðamenn hafa gert
mikið af því að leggja leið sína um
Ströndina en þó er áberandi
minna af erlendum ferðamönnum
heldur en t.d. í fyrrasumar, en þá
var heilmikið um erlenda ferða-
menn hér.
Gráslepputíðinni var að Ijúka
núna í gær þann 25. júlí en hún
hófst 25. apríl sl. Sæmileg veiði
var fyrri part vertíðarinnar en fór
svo versnandi eftir því sem á leið
og núna undir lokin var nánast
engin veiði. Sömu sögu er að segja
um hrefnuveiðarnar, þær hafa
ekki gengið eins vel og vænst var.
S.J.Þ.
Helga Ólafsdóttir
bóksafnsfræðing-
ur hlýtur styrk
HELGA Olafsdóttir bókasafnsfræð-
ingur og forstöðumaður Blindra-
bókasafns íslands, hefur hlotið
styrk úr sjóði Johanne Hansens,
fyrir vel unnin störf til eflingar
bókaþjónustu fyrir blinda hér á
landi. Nemur hann 10.000 dönskum
krónum sem er jafnvirði um 40.000
íslenskra króna.
Johanne Hansen, sem sjóðurinn
er kenndur við, var skólastjóri Als
Husholdningsskole og meðal ann-
ars kunn fyrir störf sín í dönsku
andspyrnuhreyfingunni í síðustu
heimsstyrjöld. Sjóðurinn var
stofnaður af vinum hennar árið
1964 og er úthlutað úr honum ann-
að hvert ár. Þetta er í tíunda
skipti sem veitt er úr sjóðunum,
en í fyrsta sinn sem íslendingur
verður þessa heiðurs aðnjótandi.
Neytendasamtökin:
Erfitt að áætla
„eðlilegan“ tímafjölda
NEYTENDASAMTÖKUNUM berast af og til kvartanir vegna dýrrar við-
gerðaþjónustu heimilistækja. í mörgum tilfellum er ekki hægt að gera neitt
til þess að fá reikninga endurskoðaða, ef seljendur vilja ekki Ijá máls á slíku,
segir í fréttatilkynningu frá Neytendasamtökunum.
Erfitt og næstum ókleift getur
reynst að áætla „eðlilegan" og
sanngjarnan tímafjölda auk þess
sem varahluta- og efniskostnaður
getur verið ærið misjafn. Oft er
þjónusta þessi undanþegin verð-
lagsákvæðum og því nánast á
vaídi seljanda að setja það upp,
sem hann telur ýtrast mögulegt.
Viðbrögð neytenda við frjálsri
verðlagningu, f hvaða mynd sem
hún birtist, eru því að gera verð-
samanburð og beina viðskiptum
sínum þangað, sem kaupin gerast
best. Til þess að benda neytendum
á mikilvægi þess að flana ekki að
neinu áður en um viðskipti er
samið, vilja Neytendasamtökin
koma á framfæri eftirfarandi
dæmi:
Kvörtun barst vegna viðgerðar
á sláttuvél hjá Seyði — sláttuvéla-
þjónustunni, Smiðjuvegi 28, Kópa-
vogi. Reikningurinn hljóðaði upp á
4.408 krónur, en vélin sem um
ræðir er 10—12 ára Major, sem
kostar ný u.þ.b. 13.000 krónur.
Neytendasamtökin ræddu við
forsvarsmann fyrirtækisins, en
hann var ekki til viðræðu um
endurskoðun eða lækkun reikn-
ings. Hann bar því við, að hugs-
aníega hefði þurft að vinna mikið
við blöndung, en vildi þó ekki ræða
þetta tilfelli við þá sem unnu við
viðgerðina. Þess má geta að nýr
blöndungur í þessa vél kostar um
1.500 krónur. Hann sagði enn-
fremur að á verkbeiðni gætu við-
skiptavinir sett hámark viðgerð-
arkostnaðar. Sá sem átti vélina í
þessu tilviki kannaðist ekki við að
hafa verið bent á það, en verið lof-
að að hringt yrði í hann ef sýnt
þætti að viðgerð reyndist óeðlilega
dýr.
Til samanburðar könnuðu Neyt-
endasamtökin tvö önnur verk-
stæði heimilissláttuvéla, eins og
þau áætluðu hliðstæða viðgerð.
Annað þeirra hefði tekið 1.720
krónur fyrir viðgerðina og hitt
1.462,50 krónur á meðan Seyðir
tók 4.408 krónur. Þess má að lok-
um geta að í fyrrasumar sá Verð-
lagsstofnun ástæðu til þess að
senda frá sér fréttatilkynningu
vegna reiknings frá Seyði —
sláttuvélaþjónustu.
(FrétUlilk;nning)
Rit um félagsstarf ungmenna:
íslensk æskulýðssamtök
ÆSKULÝÐSRÁÐ ríkisins hefur ný-
lega gefið út ritið „íslensk æsku-
lýðssamtök**. Eins og nafnið bendir
til er hér um að ræða upplýsingar um
landssamtök æskufólks, sem starfa
hér á landi, markmið þeirra, félaga-
fjölda, starfsemi o.s.frv.
Ritið er á íslensku, dönsku og
ensku. Því er ætlað að veita ís-
lenskum og erlendum ungmennum
nauðsynlegar upplýsingar um ís-
lensku æskulýðssamböndin, t.d.
skáta, stjórnmálasamtök, ung-
mcnnafélög og kristilega hópa.
Æskulýðsráð ríkisins hefur nú
starfað í 15 ár. Starfið er mest-
megnis fólgið i aðstoð við aðila er
sinna æskulýðsstarfi og má þar
nefna þjálfun leiðbeinenda, leið-
toga og útgáfu á margs konar efni
er snerta félagsmál. Eins leitast
ráðið við að stuðla að nýjungum í
æskulýðsstarfi.
Nýtt æskulýðsráð ríkisins tók
til starfa um síðastliðin áramót.
formaður er Erlendur Kristjáns-
sonog starfsmaður þess Níels Árni
Lund, æskulýðsfulltrúi.